Morgunblaðið - 29.07.1965, Side 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 29. júlí 1965
!
I
I
- Edward Heath -
Verði hann forsætisrdðherro Bretn, verðnr
hann 4. piparsveinninn í þvi embætti
ÞAÐ kom nokkuð á óvart, að
Edward Heath skyldi verða
íyrir valinu sem foringi
brezka íhaldsflokksins, því að
almcnnt hafði verið talið, að
Reginald Maudling, fyrrum
fjármálaráðherra, yrði þar
hlutskarpari. Við fyrstu at-
kvæðagreiðslu hlaut Heath
hins vegar 150 atkv., Maudl-
ing 133 og þriðji frambjóðand-
inn, Enoch Powell, 15. Átti síð
an að fara fram önnur at-
kvæðagreiðsla, þar eð enginn
frambjóðenda hafði fengið til-
skildan atkvæðafjölda, en þeir
Maudling og Powell drógu þá
til baka framboð sín, svo að
Heath var kjörinn.
Edward Heath er 49 ára að
aldri og af alþýðufólki kom-
inn, sem er óvenjulegt um for
ingja íhaldsflokksins, en faðir
hans var trésmiður. Heath
brauzt til mennta af eigin
rammleik og stundaði nám í
Oxford. í síðari heimsstyrjöld-
inni gegndi hann herþjónustu
í konwnglega stórskotaliðinu,
en að henni lokinni sneri hann
sér að banka- og fjármála-
starfsemi og á hann nú m.a.
sæti í bankaráði Lundúna-
banka.
Heath tók frá upphafi mik-
inn þátt í félagsstarfsemi
ungra ihaldsmanna. Hann var
fyrst kjörinn á þing fyrir
Bexley-kjördæmi 1950. Verka-
málaráðherra varð hann 1959
og hafði þá átt sæti í stjórn-
inni frá 1950 og einkum fjall-
að um efnahagsmál. Hann hef-
ur haft mikil afskipti af utan-
ríkismálum og þegar aðild
Breta að Efnahagsbandalagi
Evrópu var efst á baugi fyrir
nokkrum árum, var Heath for
maður nefndar þeirrar, sem
með það mál fór í Bretlandi
William Pitt, yngri.
og þótti frammistaða hans þar
með ágætum.
Heath er lýst sem glæsileg-
um manni. Hann þykir mjög
snjall ræðumaður og á auð-
velt með að telja aðra á sitt
mál. Hann nýtur aðdáunar
andstæðinga sinna sem stuðn-
ingsmanna fyrir framkomu
sína, enda þótt sumir haldi
því fram, að hann sé dálítið
fráhrindandi.
Eitt þykir sérstætt um
Heath og er talið, að ýmsir
Bretar sætti sig ekki fullkom-
lega við þá tilhugsun, ef Heath
yrði síðar forsætisráðherra,
sem vel má verða. Hann er
maður ókvæntur og yrði hann
forsætisráðherra, væri hann
aðeins fjórði forsætisráðherra
Bretlands, sem væri pipar-
sveinn.
Af þeim 46 forsætisráðherr-
um, sem verið hafa í Bret-
landi, frá því embættið varð
til 1720, hafa aðeins þrír verið
piparsveinar. Frægastur þess-
ara manna var William Pitt
yngri, en hinir Wilmington
jarl og Balfour jarl.
Wilmington varð forsætis-
ráðherra 1742 og hélt embætt-
Balfour jarl.
inu í 18 mánuði. Hann var
álitinn vera aðeins verkfæri £
höndum Georgs II. konungs og
var mjög hafður að háði og
spotti af almenningi.
William Pitt yngri er sá mað
ur, sem yngstur hefur orðið
forsætisráðherra í Bretlandi.
Hann tók við því embætti
1783, þá aðeins 24 ára gamall
og var forsætisráðherra nær
óslitið allt til ársins 1806, er
hann lézt. Hann var mikill
námsmaður en heilsulítill. Á
meðan hann var forsætisráð-
herra geisuðu Napoleonsstyrj-
aldirnar sem ákafast og stóðu
Bretar þá oft nær einir í bar-
áttunni gegn Frökkum. Pitt
mun aldrei hafa sýnt neinn
áhuga á því að ganga í hjóna-
band, enda þótt talið væri, að
hann hefði um tíma litið hýru
auga á dóttur Aucklands
lávarðs.
Balfour var forsætisráð-
herra Bretlands frá 1902—
1905. Hann var menntamaður
af aðalsættum og hafði lykil-
aðstöðu í íhaldsflokknum í
nær 50 ár. Hann hafði mikinn
hug á að kvænast May Lyttle-
ton, frænku helzta stjórnmála
andstæðings síns, Gladstone.
Var Balfour þá 27 ára gam-
all. Þau trúlofuðust en ekki
opinberlega. Mánuði seinna
lézt hún. Eftir það mun Bal-
four aldrei hafa haft áhuga á
því að ganga í hjónaband.
SLYSALAUS
Gifurlegur ferðamannasfrumur úr
bænum um verzlúnarmannahelgia
Gifurlegur ferðamannastrumur
GÍFTJRLEGUR fjöldi Reykvík-
inga miun leggja land undir fót
og fara I ferðalag um næstu
belgi, en á mánudag er sem
kunnugt er frídagur verzlunar-
manna. Mestur fjöldinn fer aust-
ur í Þórsmörk. Þangað mun Ulf-
ar Jacobsen flytja farþega að
venju, en í fyrra fóru í Þórs-
mörk á hans vegum nær 1.000
m&nns. Þá mun ferðaskrifstofa
Úlfars einnig halda dansleik í
Þórsmörk á svæði, sem Skógrækt
ríkisins hefur útvegað henni til
afnota í Húsadal. Yfirfararstjór-
ar verða þeir Úlfar Jacobsen og
Sigurður Þorsteinsson og auk
þeirra verða fjölmargir aðstoðar
fararstjórar með í ferðinni. Fjör
ug unglingahljómsveit, Sóló,
mun leika fyrir dansi.
Þá efnir Ferðafélag íslands
til 6 hópferða um helgina. Farið
verður í Þórsmör'k, Landmanna-
laugar, Brei'ðafjarðareyjar og
kring um Snæfellsnes, Hvera-
velli, Kerlingarfjöll og í Hvann-
gil um Fjallabaksveg syðri. Þá
munu Kjartan og Ingimar einnig
fara í hópferðir til Þórsmerkur
á langferðabifreiðum sínum.
Búizt er við mjög mikilli um-
ferð um þjóðvegi landsins um
helgina. Lögreglan hefur uppi
mikinn viðbúnað til að allt fari
vel og greiðlega fram. Flokkar
lögreglumanna verða í Þórs-
mórk, á Laugarvatni og í Bjark-
arlundi. Þá verða lögreglumenn
og bifreíðaeftirlitsmenn saman
úti á vegunum yfir helgina. Ef
vart verður við óspektir ein-
hvers staðar verður flok'kur lög-
reglumanna tiltækur í Reykja-
vík og fer á staðinn. Einnig lög-
gæzlan skipulögð þannig, að
hægt verður að flytja löggæzlu-
menn milli staða án mikillar
fyrirhafnar. Verður allt gert sem
unnt er til að koma í veg fyrir
að slys verði í umferðinni yfir
helgina.
Þá hafði blaðið tal af Magnúsi
H. Valdimarssyni framkvæmda-
stjóra Félags islenzkra bifreiða-
eigenda. Sagði hann, að vega-
þjónusta FÍB um helgina yrði
meiri en nokkru sinni fyrr. Alls
verða 17 bílar á vegum félagsins
víða um landið. Alilir bílarnir
eru búnir langdrægum talstöðv-
um og góðum sjúkrakössum. Til
að ná sambandi vfð bílana er
fólki ráðlagt að hafa samband
við loftskeytastöðina i Gufu-
nesi og Akureyrarradió.J
Magnús sagði, að tveir bílanna
á vegum FÍB væru upplýsinga-
bilar, tveir væru hjólbarðavið-
gerðabílar og einn væri sjúkra-
bíll. í sjúkrabílnum verður auk
ökumanns einn ma’ður frá hjálp-
arsveit skáta í Reykjavík. Sjúkra
bifreiðin er Opel-bifreið, blá að
lit, merkt FÍB — Slysahjálp.
Hiún hefur hvorki sírenu né
rauð ljósmerki og eru vegfar-
endur vinsamlegast beðnir að
hliðra til fyrir henni í umferð-
inni.
Um staðsetningu vegaþjónustu
bifreiðanna sagði Magnús að 1
yrði í nánd vfð Neskaupstað, 1
í nánd við Seyðisfjörð, 1 nálægt
Húsavík, 1 við Akureyri, á Vest-
fjörðum verður 1 bíll í Vatns-
firði, 1 milli ísafjarðar og Vatns
fjarðar, 1 milli Bjarkarlundar og
Þorskafjarðarheiðar, 1 í Borgar-
fjarðarsýslu og Dalasýslu 1 í
Hvalfii'ði og Borgarfirði, 1 við-
gerðarbill á Þingvöllum ásamt
hjólibarðaviðgerðarbíil, 1 í ná-
grenni Laugarvatns, 1 á Kamba-
brún, 1 á svæðinu frá Stóru-
Mörk undir Eyjafjöllum vestur
eftir RangárvaMa- og Árnessýsl-
um og þar verður einnig hjól-
barðaviðgerðarbíll. Um síðustu
fcöldu bifreiðina er það að segja,
áð hún er frá Hjólbarðaviðgerð
Vesturbæjar og hefur einnig til
sölu hjóibarða. Sjúkrabifreiðin
verður staðsett fyrir austan fjall.
Magnús sagði svo frá, að í fyrra,
er hún var notuð í fyrsta sinn,
hefðu alls 15 veikir og slasaðir
verið fluttir með henni að aust-
an til Selfoss og Reykjavíkur.
Væri ómetanlegt gagn áð bif-
reiðinni eins og bezt hefði komið
fram um síðustu hvítasunnu, en
þá varð nærvera hennar til að
bjarga mannslífi.
Þá sagði Magnús að nauðsyn-
legt væri, að ökumenn hefðu
með sér nokkuð af varaihlutum,
þar sem tegundir væru allt of
margar til þess, áð FÍB gæti
legið með lager af varahlutum
í þær allar. Benti hann á, að
einkum væri nauðsynlegt að
hafa með sér viftureim, kveikju-
lok, kvei'kjuhamar, platinur og
svo auðvitað tjakk og felgulykiU
Og svo yrðu ökumenn auðvitað
að gæta þess vel, áð öryggistæki
bifreiðanna væru i fullkomnu
lagi, þegar lagt væri af stað I
ferðina.
Aðspurður sagði Magnús H.
Valdimarsson, að vegaþjónustan
væri órðin óhemjudýrt fyrirtæki.
Félagið nyti stuðnings þriggja
stærstu tryggingafyrirtækjanna
við reksturinn. Af félagsmönn-
um væri tekfð vægt gjaíd en
meira af öðrum. Hins vegar
gætu menn gengið í félagið þar
sem þeir eru staddir, þegar vega
þjónustuibíl ber að og notið þá
ódýrari viðgerðaþjónustu en ella.
Að lokum sagði Magnús, að
vegaþjónustan mundi hvergi
starfa inni á öræfum og hér sunn
an lands ekki austar en á Stóru-
Mörk undir Eyjafjöllum. Mark-
miðið, sem allir ættu að samein-
azt um að keppa að væri „Slysa-
laus verzlunarmannahe]gi.“
Akranesi, 28. júlí: —
SÍLD barst hingað af tveim bát
um í morgun. Höfrungur III
landaði 100 tunnum og Ólafur
Sigurðsson 75 tunnum. Síldin
veiddist vestur undir Jökli og
var hraðfryst. — Oddur.
Nökkrar bitreiðanna, sem aot aðar eru í vegaþjónustu FÍB.