Morgunblaðið - 29.07.1965, Page 12
r
12
MORCUNBLAÐIÐ
i
Fimmtudagur 29. julí iflSð
Úr fundarsalnum í félagsheimilinu Vogalandi í Króksfjarðarnesi.
Um síðustu helgi voru hér-
aðsmót Sjálfstæðisflokksins
haldin á tveimur stöðum vest
anlands; Patreksfirði og
Króksfjarðarnesi og einnig á
31önduósi. Hvarvetna var
geysimikil aðsókn að þessum
mótum. Þrír ræðumenn voru
á hverjum stað og hljómsveit
Svavars skemmti. Á öllum
mótunum talaði Jóhann Haf-
stein dómsmálaráðherra, en
auk þess þingmenn Sjálfstæð
isflokksins og fulltrúar ungu
kynslóðarinnar. Á Patreks-
firði talaði Sigurður Bjarna-
son alþingismaður frá Vigur,
£ Króksfjarðarnesi Matthías
Bjarnason alþingismaður og á
Blönduósi Einar Ingimundar-
son alþingismaður. Af hálfu
ungra Sjálfstæðismanna
fluttu ræður Þórir Einarsson
viðskiptafræðingur á Patreks
firði, Ragnar Kjartansson
frkvstj. í Króksfjarðarnesi og
Bragi Hannesson á Blöndu-
ósi.
Á PATREKSFIRÐI
Héraðsmótið á Patreksfirði
var haldið í Skjaldborg, sam-
komuhúsi Sjálfstæðisfélags-
ins Skjaldar á staðnum. Var
þar mikið fjölmenni og sóttu
mótið, auk Patreksfirðinga,
fjölmargir úr næstu byggðar-
lögum; Bílddælingar, Tálkn-
firðingar, Rauðsendingar og
fleiri. Mótinu stjórnaði Jó-
Aðalsteinn Aðalsteinsson,
skipasmiður í Látrum í Breiða
firði.
hani.es Árnason sveitarstjóri
Patrekshrepps. Þrjár aldnar
kempur, sem sópaði að komu
á mótið. Voru þar á ferð Há-
kon Kristófersson, fyrrum al-
þingismaður og bóndi í Haga,
Eiríkur Kristófersson fyrrum
skipherra og Jónas Magnús-
son sparisjóðsstjóri á Vatn-
eyri.
A mótinu hittum við að
máli einn mesta héraðshöfð-
ingja Rauðsendinga, Snæ-
björn Thoroddsen oddvita í
Kvígindisdal. Talið berst að
flugvallargerðinni hjá Sauð-
lauksdal.
— Okkar stærsta mál um
þessar mundir er flugvallar-
gerðin á Sauðlauksdalssönd-
um. f vor var byrjað að gera
þar fullkominn flugvöll, þar
sem stærstu vélar í innanland
flugi eiga að geta athafnað
síg. Aðalbrautin verður um
1400 metra löng og 50 metra
breið og krossbraut verður
allt að 600 metra löng og 30
metra breið. Þetta verk hef-
ur gengið vel og þegar er bú-
ið að ganga alveg frá helm-
ingi aðalbrautarinnar. Ix>kið
er að ýta upp báðum braut-
unum og nú er unnið að því
að keyra ofaníburð á þær.
Þessar framkvæmdir hafa
skapað mikla atvinnu, sem
héraðsbúar hafa að mestu
notið. í samgönguáætlun Vest
fjarða eru veittar á þessu ári
rúmar 6 millj. kr. og um 1
millj. kr. á næsta ári. Ég tel
að þessi flugvallargerð verði
ekki aðeins til að bæta sam-
gönguskilyrði við aðra slaði,
heldur einnig samgöngur okk
ar byggðarlaga við Patreks-
fjörð og innbyrðis með bættu
vegasambandi og vegavið-
haldi vegna samgangna við
flugvöllinn.
— Um vegina hér í ná-
grenni Patreksfjarðar vil - ég
segja, að ég tel þá nú með
betra móti. Hitt er svo annað
mál, að ég vil samt sem áð-
ur, að það komi fram, að ég
ætla að leiðin frá Láganúp
að Breiðdalsvík hafi verið tek
in í þjóðvegatölu fyrir einum
fjórum árum, en á þeirri leið
hefur ekkert verið unnið enn.
Hvað veldur? Brúin yfir Suð
ur-Fossá á Rauðasandi er að-
kallandi mjög, og ég harma,
að hún verður ekki byggð á
næsta sumri. Ég þakka fyrir
það, að horfið var að því
ráði að vinna meira en sam-
gönguáætlunin mælti fyrir
um á svokölluðum Nesjavegi
og einnig á Hálfdán, erfiðasta
fjallveginum á leiðinni milli
Patreksfjarðar og Bíldudals.
Mér fellur samgönguáætlun
Ingimundur Magnússon,
hreppstjóri í Bæ í Króksfirði.
Vestfjarða vel og fjárveiting-
ar til vegar með fjörðum, sem
svo er kallaður, og á að koma
í stað hins erfiða fjallvegar
yfir Þingmannaheiði. Ég tel
skynsamlegra að skipta því
fé, sem veitt er til vegafram-
kvæmda á fjórum árum, í
vinnu á tveimur árum, þótt
slíkt sé vitanlega erfítt í fram
kvæmd.
— Hvað um hagi fólks i
þínum hreppi, Snæbjórn?
— Fólkið er alltaf að fiytj-
ast burt, jarðir að fara í
eyði, en engum líður illa, en
hjá okkur er framleiðslan
meiri, þó að fólkinu fækkx.
Ræktun er mikil, en það, sem
ég tel að okkur skorti, eru
upplönd, og þau þarf að
rækta með dreifingu áburðar
úr lofti. Meira hefur verið
um sauðfjárbúskap en mjólk-
urframleiðslu, en þó hefur
verið mikil mjólkursala til
Patreksfjarðar, en síðan verð
á afurðum sauðfjár hækkaði,
sýnist mér hugur manna vera
aftur tekinn að snúast meira
til sauðfjárræktar. Fyrú-hug-
að er að setja upp mjóíkur-
stöð á Patreksfirði; henni hef
ur þegar verið valinn staður
og vélakaup eru í undirbún-
ingi og er henni ætlað að
taka við mjólk frá væntan-
legu samlagi, sem á að heita:
Mjólkursamlag Vestur-Barða
strandasýslu, en til þess
munu leggja mjólk bændur í
Barðastrandar-, Rauðasands-,
Tálknafjarðar- og Patreks-
hreppum. Skoðun mín er sú,
að nauðsyn sé á að koma þar
upp tækjum til að geril-
sneyða mjólk.
— í smíðum er nú heima-
vist fyrir barna- og jafnvel
unglingafræðslustig við fé-
lagsheimili okkar Rauðsend-
inga í Örlygshöfn. Eina fimm
undanfarna vetur hefur
kennslan verið í félagsneim-
ilinu og heimavistin verið á
tveim næstu bæjum. Akveðið
var á sínum tíma, að skóli
og heimavist skyldu byggð í
Sauðlauksdal, en var ekki
hægt af fjárhagsástæðum, og
hagkvæmara þótti að leysa
þetta vandamál með því að
nota félagsheimiiið sem
kennslustofur.
— Ég vil ítreka að lokum,
að í okkar hreppi tei ég, að
öllum líði vel, þar líður eng
inn skort og mér vitanlega
er fólk þar ánægt.
•
Næst tökum við tali Kristj-
án Þ. Ólafsson, bifreiðarst.ióra
frá Bildudal. Kristján stund-
ar sjóinn að vetrinum, en hef
ur nokkuð á anna.n áratug
starfað að vegagerð og hefur
þessa daga verið að bera of-
an í veginn á Barðaströnd-i
Við víkjum talinu að vega-
málunum og Kristján segir:
— Ég er mjög ánægður
með hiria nýju samgönguaætl
un Vestfjarða og vænti þess,
að hún verði til mikils hag-
ræðis fyrir okkur. Fyrirhugað
er að verja miklu fé til vega-
bóta yfir Hálfdán, sem í raun
inni hefur ekki verið annað
en ruðningur, en nú sj'áum
við fram á mikiar fram-
kvæmdir við veginn, og það
er von okkar, að þessi vega-
gerð gangi það vel, að í
haust verði hægt að vinna
við kaflann yfir háfjallið.
Jón Benediktsson,
bóndi í Höfnum á Skaga.
— S.l. tvö sumur var unn-
ið við svokallaðan Trostans-
fjarðarveg, og með honum
fengum við Bílddælingar
beint samband við Vestfjarða
leiðina. Þessi vegur styttir
okkur leiðina til Reykjavík-
ur um 45 km og til ísafjarðar
enn meir. í Suðurfjörðum og
þó sérstaklega í vestanverð-
um Trostansfirði og í Reykja
firði er vegur mjög erfiður
jrfirferðar og þyrfti lagfær.
ingar við.
— Afkoma manna á
Bíldudal er yfirleitt sæmileg,
en atvinna er þó árstíðabund-
in, og margir fara úr byggð-
arlaginu í atvinnuleit að sum-
arlagi. Okkur er það mikið
áhugamál, að hreppsfélagið
verði stutt eftir föngum til
að ljúka byggingu barnaskól-
ans, enda gamla barnaskóla-
húsið orðið mjög gamalt og
úr sér gengið.
— Vatnsveitu er verið að
leggja á staðnum og vænt-
um við þess, að hún leysi úr
vatnsskortinum, sem háð hef-
ur bæði atvinnurekstri og
einstaklingum.
— Við þurfum nauðs.vniega
bætta aðstöðu við höfnina og
mjög er óþægilegt að þurfa
oftast að hafa bátana úti við
legufæri eða þurfa að flytja
þá frá bryggju, þegar strand
ferða eða flutningaskip koma.
Úr þessu er nú að rælast, þvi
í samgönguáætlun Vestfjarða
er veitt rífleg fjárveiting til
hafnargerðar á Bíldudal, sem
leýsa mun okkar vanda til
frambúðar.
•
Aflakóngurinn Finnbogi
Magnússon, sem stýrir þeirri
happafleytu Heigu Guð-
mundsdóttur, er landskunnur
maður að verðleikum, en ii-tt
þekktari er félagi hans í út-
gerðinni, Kristinn Jónsson út
gerðarmaður. Þeir stofnuðu
fyrir fáum árum fyrirtækið
Fiskiver h.f. og við spyrjum
Kristin um rekstur þess:
— Við i höfum fengið afla
af Helgu Guðmundsdóttur og
Jóni Þórðarsyni, sem hingað
var keyptur í fyrra. Helga
mun hafa fengið um 1460
lestir og Jón um 1260 lestir á
vetrarvertíðinni og verkuðum
við allan þennan afla, að und
anteknum 300 lestum, 1
skreið og salt og lítils háttar
var fryst. Um 180 lestir af
þessu aflamagni var línufisk-
ur, en hitt allt netafiskur.
Við spyrjum Kristin um
álit hans á útgerðaraðstöðu á
Patreksfirði.
— Ég tel aðstöðu til útgerð
ar héðan mjög góða og þá
beztu á Vestfjörðum. Á neta-
veiðunum er .afli Vestfjarða-
báta að mestu sóttur á
Breiðafjarðarmið, og bátarnir
okkar hafa oftsinnis getað
landað hér daglega í vetur,
því að þeir eiga styttra aij
fara en aðrir bátar Hé? u>
gengu í vetur 4 stórir bátar,
en ég tel, að leikandi sé hægt
að gera út miklu fleiri báta.
— Hér er nú starfandi eitt
frystihús; annað er á staðn-
um, sem ekki er starfrækt, eu
ég álít lífsnauðsyn fyrir
byggðalagið að það taki til
starfa og sömuleiðis síldar-
og fiskimj ölsvei ksmiðj an hér.
Við höfum orð ð að flytja öll
bein og fiskúigang úr pláss-
inu bæði til 1 aJknafjarðar og
jafnvel alla ltið til Bolung-
arvíkur, sem er mjög kostn-
aðarsamt og skapar útgerð-
inni hér mikla örðugleika.
Bæði þessi fyrirtæki hafa átt
í fjárhagsvandræðum a und-
anförnum árum, en þau
vandamál verður að leysa, ef
takast á að tryggja blomlegt
atvinnulíf hér á staðnum til
frambúðar.
Jón Isberg,
sýslumaður Húnvetninga.
— Hér er ekki einungis að-
staða til að vinna fiskinvjöl,
heldur einnig skilyrði til að
bræða mikið síldarmagn, ef
verksmiðjan væri starfrækt
og síldin ger.gi vor og haust
á miðin út af Jökli, en af
þeim er jafn iangt og st stund
um styttra hirgað til Patreks
fjarðar en til Faxaflóahafna.
— Ég tel að lausn þessa
vanda í útgerðarmálum okkar
Patreksfirðinga sé meira að-