Morgunblaðið - 29.07.1965, Side 26
26
MORCU N BLAÐIÐ
Fimmtudagur 29. júlí 19ff3
...... ....................................... i -.■***+*.,*»,' , .............
F.H. Islandsmeistari '65
~ í útiha ndkna ttleik
*
10. áríð í röð sem félagið verður Islandsmeistari
1 GÆRKVÖLDI lauk á HörSu-'
völlum í Hafnarfírði, Islands-
meistaramóti í útihandknattleik
karla. Voru leiknir tveir leikir,
Haukar léku við Ármann og sigr
uðu Haukar með 25 mörkum
gegn 14. Síðari leikurinn var á
milli F.H. og 'Vals og var um
hreinan úrslitaleik að ræða.
Bæði liðin voru jöfn að stigum.
F.H. hafði unnið sína leiki með
meiri markamun, en Valur unn-
iS sína leiki á ákveðnum leik þó
Birgir (efri) og Ragnar, íslands-
meistarar í útihandknattleik 10
ár í röð.
þeir væru oft undir í byrjun.
Margir höfðu spáð því fyrir leik-
inn að þetta yrði hörkuleikur og
sú varð líka raunin. I*að var
ekki laust við að aðdáendur F.H.
Ole Madsen
varð að skila
aitur 50 þús.
mörkum
DANSKA knattspyrnustjarn-
an Ole Madsen skrifaði und-
ir samnirig, sem atvinnumað
ur í liði F. C. Köln á dögun
um eins og skýrt var frá hér
á síðunni. Fékk hann greiddar
’ 200 þús. d. kr. fyrir undir-
skriftina. Hluti af þessu fé,
eða 50 þús. þýzk mörk eru
greidd „fyrir að skipta um fé-
Þýzka knattspyrnusamband
ið hefur umsvifalaust gripið í
taumana og segir, að þar sem
danskir knattspyrnumenn
séu áhugamenn, geti ekki ver
ið um að ræða greiðslu „fyrir
að skipta um félag“ — því*
sjík greiðsla eigi að ganga til
félagsins, sem leikmennirnir
voru í fyrir.
Því hefur þýzka sambandið
fyrirskipað að Ole Madsen
verði að skila aftur þessum
•. 50 þús. mörkum til F. C. Köln.
yrðu fyrir vonbrigðum í upphafi,
en F.H. tókst að snúa taflinu við
og vinna 10. árið í röð.
Leikurinn var eklki mínútu
gamall þegar knötturinn leridir
í marki F.H. Valsmenn eru greini
lega ákveðnir í að láta ekki hlut
sinn auðveldlega. Geir jafnar
fyrir F.H. og Örn nær forystu
2:1 fyrir F.H. Það er greinilegt
að þetta verður hörkuleikur.
Valur jafnar 2:2, en Ragnar nær
‘3:2 og fimm mínútur búnar af
fyrri hálfleik.
Valsmenn eru mjög ákveðnir
og eru ófeimnir við að skjóta.
Hermann gerir nú 3 mörk í röð
fyrir Val og standa leikar þá 6:4
fyrir Val. Bjuggust menn nú við
stórtíðindum, en F.H. skorar og
nær að jafija. Geir mistekst víti
og Hermann bætir við einu
marki fyrir Val. Páll nær for-
ystu fyrir F.H. 8:7. Hermann
jafnar fyrir Val 8:8. Bræðurnir
Örn og Geir Hallsteinssynir skora
9 og 10 markið fyrir F.H. og
þannig endar fyrri hálfleikur
10:8 fyrir F.H.
Síðari hálfleikur. Örn byrjar á
að skora í seinni hálfleik og
Kristján skorar 3 mörk í röð. Þá
er staðan 14:8 fyrir FH. Var nú
sýnt áð hverju stefndi, að FH
myndi vinna 10. árið í röð. Um
miðjan síðari hálfleik fær FH tvö
víti með stuttu millibili, sem
bæði nýttust og rétt á eftir fær
Valur einnig tvö víti og skorar
Bergur Guðnason örugglega úr
báðum. FH skorar svo 3 síðustu
mörkin. Voru þar að verki, Páll,
er skoraði 21. markið og Ragnar
Jónsson, en hann skoraði 22. og
23. markið og átti þar.með síð-
asta orðið í þessum leik.
Eins og framan getur er þetta
10. árið í röð, sem FH sigrar í
þessu móti og ég held að allir
séu sammála um það, að þeir
eru vel að sigrinum komnir. —
Þeir hafa unnið alla keppinauta
sína með yfirburðum, svo mikl-
um yfirburðum, að stundum var
lítið gaman að horfa á leikina.
Þessi síðasti leikur var skemmti-
legur og spennandi og er ég viss
um að Vals-liðið á eftir að velgja
fleiri liðum á komandi innanhús-
móti í vetur.
FH-liðið sýndi í þessu móti
mikla yfirburði. Valur var eina
liðið, sem veitti þeim einhverja
keppni. FH-liðið hefur í þessum
leikjum skorað 123 mörk en feng
ið á sig 37 mörk. Tveir leikmenn
FH-liðsins eru búnir að vera með
óslitið í þessi 10 ár, en það eru
þeir Ragnar Jónsson og Birgir
Björnsson, báðir/ heimsfrægir
handknattleiksmenn.
Ásbjörn Sigurjónsson, formað-
ur HSÍ, sleit mótinu og afhenti
sigurvegurunum sigurlaunin, en
það er stór og mikill bikar, sem
hann gaf á sínum tíma.
-<&
Halldóra Helgadóttir KR færði Reykjavíkursveitinni í 4x100
m. boð hlaupi kvenna sigur á endaspretti boðhlaupsins. Hér
sést hún í lokasporinu. Sveit sænsku stúlknanna varð að láta
í minni pokann. (Myndir Mbl. Sv. Þorm.)
fslandsmet í 400m. hlaupi kvenna
og dr. og ungl.met í kringlukasti
á frjálsíþrótfamóti i fyrrakvöld
í FYRRAKVÖLD var haldið á
Melavellinum frjálsíþróttamót
með þátttöku þeirra \ útlendinga
er hér hafa dvalizt á vegum KR.
Keppnin var skemmtileg og mjög
hörð í nokkrum greinum. Ár-
angur varð allgóður en nokkuð
misjafn. — Halldóra Helgadóttir
setti íslenzkt met í 400 m hlaupi,
64,1, en átti sjálf eldra metið,
64.8. Þá setti Erlendur Valdi-
marsson, ÍR, drengja- og ungl-
ingamet í kringlukasti og sigraði
þar gamalreynda kringlukastara.
Er afrek hans ljós vottur hvers
vænta má af honum í þessari
grein.
Keppnisveður var mjög óhag-
stætt til hlaupa, en árangur fer
hér á eftir:
80 m grindahlaup kvenna
Bramer, Svíþjóð, 13,2 sek.
Linda Ríkharðsdóttir, ÍR, 13,6,
Þingeysk stúlka ísl.
meist í fimmtaþraut
SIRÚN Sæmundsdóttir, HSÞ,
varð fslandsmeistari í fimmtar-
þraut kvenna, en keppninni
lauk á þriðjudag á Laugardals-
vellinum. Sigrún hlaut alls 3207
stig, sem er rúmum 300 stigum
lakara en íslandsmet Sigríðar
Sigurðardóttur. Ragnheiður Páls
dóttir, HSK, veitti Sigrúnu all-
harða keppni lengi vel, en hiaut
rúmum 100 stigum minna.
ÚRSLIT:
Sigrún Sæmundsd. HSÞ, 3207 st.
(kúluvarp: 7,94, hástökk: 1,42,
200 m: 29,3 sek., 80 m gr.: 14,3
sek. og langst.: 4,78 m.)
Ragnheiður Pálsdóttir HSK, 3101
(10,7 - 1,30 - 29,2 - 14,4 - 4,39)
Ólöf Haraldsdóttir HSK 2947 st.
(9,24 - 1,30 - 30,3 - 15,4 - 4,35)
Sigrún Ólafsdóttir UBK 2879 st.
(7,10 - 1,30 - 23,8 - 15,2 - 4,59)
Linda Ríkharðsd. ÍR 2760 st.
(6,10 - 1,30 - 29,8 - 14,3 - 4,39)
Sigurlína Guðmundsd. HSK 2666
(5,80 - 1,35 - 30,3 - 15,6 - 4,47)
1. deild
NÆSTl leikur í íslandsmóti 1.
deildar verður á föstudagskvöld-
ið ag mætast þá Fram og KR í
Laugardal. Þessum lei'k var áður
frestað samkv. fyrri niðurröðun.
2. deild
í KVÖLD fer fram í Hafnarfirði
leikur í 2. deild á milli F.H. og
Í.B.V. Hefst leikurinn kl. 20.
E. M. Johansen, S., 13,7.
100 m hlaup kvenna
Bramer, S., 13,7 sek.
Áse Davidsson, S., 14,2.
100 m hlaup
ÓlafurGuðmundssori, KR, 11,6,
Ragnar Guðmundsson, Á, 11,7,
Andersson, S., 11,1,
Jón Ö. Arnarson; Á, 12,4.
400 m hlaup
Ólafur Guðmundsson, KR, 50,8,
Ómar Ragnarsson, ÍR, 53,4,
Jón Ö. Arnarson, Á, 54,7.
1000 m hlaup
H. Nielsen, Danm., 2:31,2 mín.
Halld. Guðbjörnss., KR, 2:33,0,
Þórður Guðm., UBK, 2:39,4, •
Halldór Jóh., HSÞ, 2:39,8,
Þórarinn Arnórsson, ÍR, 2:41,0,
B. Hein, D., 2:46,6,
N. Olsson, S , 2:46,6.
400 m hlaup kvenna
K. Christensen, D., 61,5 mín.,
Halldóra Heigadóttir, KR. 64,1
met,
M. Larsson, S., 65,3.
Ólafur Guðmundsson kemur að
marki í 4x100 m. boðhlaupi.
Hann sigraði einnig í fimmtar-
þraut karla kvöldið áður og
setti unglingamet.
Erlendur Valdimarsson slgraði í
kringlukasti 48.57 sem er nýtt
drengja og unglingamet.
Hástökk
Jón Þ. Ólafsson, ÍR, 1,97 m,
Valbjörn Þorláksson, KR, 1,75,
Sigurður Lárusson, Á, 1,75.
Kringlukast
Erlendur Valdimarss., ÍR, 48,75
m (dr,- og unglmet).
Þorsteinn Löve, ÍR, 46,10,
Friðrik Guðm., KR, 40,56,
Guðm. Hermannss., KR, 40,30.
Kúluvarp
Guðm. Hermannss., KR, 16,17,
Erlendur Valdimarss., ÍR, 13,30,
Arnar Guðm., KR, 12,58.
4x100 m boðhlaup karla
Sveit KR, 45,0 sek.
4x100 m boðhlaup kvenna
Reykjavik, 54,1 sek.
(Linda, Sólveig, María, Hall-
dóra),
GKIK, 54,2,
Dönsk-sænsk sveit, 56,2,
Utanbæjarsveit, 58,0.