Morgunblaðið - 31.07.1965, Side 2

Morgunblaðið - 31.07.1965, Side 2
2 MORGUN*' **>IÐ Laugardagur 31. júlí 1965 Aðstoð við bændur vegna kalskemmda SEM kunnugt er urðu gífurlega miklar kalskemmdir á túnum á Austurlandi í vor. Langvarandi óþurrkar í vor og í sumar höfðu það í för með sér. að spretta varð með minnsta móti og eru 'því allar líkur til þess, að hey- fengur verði með allra minnsta móti fyrir austan í sumar. Landbúnaðarráðherrann, Ing- „Polana“, þar sem hún liggur við bryggju á Akureyri með 7000 mál innanborðs. Polana með fullfermi af Hjaltlandsmiðum Akureyri, 30. júlí. M!S. POLANA, síldarflutninga skip Krossaness, kom hingað skömmu fyrir hádegi í dag með fyrsta síldarfarminn, sem til landsins berst af Hjalt- landsmiðum. Fréttamáður Mbl. fór um borð og hitti fyrir Sten Eng- berg 1. stýrimann eh skip- stjóri var þá farinn í land. — Við komum með 7000 mál, sem er fullfermi, sagði stýrimaður, og tókum það magn um borð á 20 klukku- stundum, byrjum að taka á móti á þriðjudagskvöld kl. 10 og höfðum fyllt skipið kl. 6 á miðvikudagskvöld. Héldum þá þegar af stað hingað. — Er aflinn af mörgum skipum? — Við skulum nú sjá. Hann er víst úr sjö skipum, Jörundi III., Heimi, Helgu Guðm., Snæ felli, sem losaði tvisvar, Krist- nesi, Sigurði Bjarnasyni og Þorsteini. — Hvernig gekk að dæla síldinni um borð? Það gekk ágætlega enda máttum við liggja í landhelgi á meðan, jafnvel inni í höfn- inni í Leirvík, gegn dálitlu gjaldi. Ætli það séu ekki svona 6—7 þús. krónur fyrir farminn í þetta skipti. — Hvernig gekk ferðin hing að? — Ágætlega. Við fengum gott verður þangað til í morg- un. Bryggjan í Krossanesi er svo stutt, að við getum ekki lagt þar, meðan þessi norðan- stormur er. Við reyndum þrisvar að leggjast í morgun en urðum frá að hverfa og verðum að bíða þangað til lægir. — Eruð þið ekki með fjöl- skyldur ykkar hér, yfirmenn- irnir? — í>að búa tvær fjölskyld- ur skipsmanna hérna á Akur- eyri í sumar. Svo var konan mín með okkur við Hjaltland. — Sv. P. Sten Engberg, 1. stýrimaður. Góð síldveiði við Hrollaugseyjar Skipin á heimleið frá Hjaltlandi ÁGÆTT veður var á síldarmið- á miðunum þar. Á miðunum við ■mitn við Hrollaugseyjar í fyrri- Hjaltland var bræla. Öll ís- nótt og fengu allmörg skip þar ( lenzku skipin eru hætt veiðum ágæta veiðL Nokkur skip voru þar og lögð af stað heim á leið. að veiðum um 160 mílur austur , Frá kl. 7 á fimmtudagsmorgun til norðurs frá Dalatanga, en til kl. 7 á föstudagsmorgun til- veiði var fremur treg og kaldi 1 * * 4 kynntu 26 skip síldarleitinni á Deila risin um næturþjónustu lækna i Keflavík og Njarðvíkum ólfur Jónsson hefur nú skipað nefnd til að kanna, á hvern hátt megi helzt bæta bændum þennan skaða. Formaður nefndarinnar er Pétur Gunnarsson, tilnefndur af landbúnaðarráðherra, og með honum í nefndinni eru þeir Gísli I Kristjánsson frá Búnaðarfélagi | íslands og Kristján Karlsson frá i Stéttarsambandi bænda. Óeirðir í Kalkútta Kalkútta, 30. júlí, (NTB) INDVERSKIR lögreglumenn gripu í dag til skotvopna til að dreifa mannfjölda, sem stöðvað hafði jámbrautarlest eina skammt frá stöðkini í Barrack- pore (sem er nokkrar mílur veg- ac frá Kalkútta) og grýtt hana. Tveir óeirðairseggjanna særðust í viðureigninni við lögreglumenn ina en 12 hinna síðamefndu lágu í valnum eftir grjóthríð hdnna. 1 Kalkútta kom einnig til óeirða í dag og þar réðust menn á spor- vagna og kveiktu í. Óeirðir þessar voru þáttur í mó'tmælaaðgerðum gegn áform- aðri hækkun á fargjöldum með sporvögnum og járnbrautum þar í héraði. Verzlanir voru flestair lokaðar í ífalkútta í dag og ekki unnið í verksmiðjum, og var I MBL. í dag er auglýsing frá Læknafélagi Reykjavíkur þar sem segir, að vegna ágreiniings um næturlæknisþjónustu í Keflavík og Njarðvíkum hafi samningar ekki tekizt við Tryggingastofnun ríkisins, og því yrði læknisþjónusta á þessu svæði innt af hendi ein- ungis gegn greiðslu sam- kvæmt gjaldskrá Læknafélags Beykjavíkur frá og með 1. ágúst nk. Varaformaður Læknafélags Beykjavíkur, Jón Þorsteins- son, skýrði svo frá í gær, að á þessu svæði væru starfandi 4 læknar og væru þeir með- limir í Læknafélagi Reykja- víkur. tbúafjöldinn væri milli 10 og 15 þús. manns og væri því næturlæknaþjónusta mjög umfangsmikil fyrir svo fáa lækna. Hann sagði, að samn- ingar hefðu runnið út hinn 1. apríl sl. og hefðu ekki tekizt á nýjan leik síðan. Þess vegna hefði verið ákveðið, að veita umrædda þjónustu aðeins sam kvæmt gjaldskrá Læknafélags ins, en eigi að síður héldi læknaþjónustan að sjálfsögðu áfram eftir sem áður. Blaðið hafði samband við þá Sverri J. Þorbjörnsson for- stjóra Tryggingastofnunar rík isins og Baldur Möller ráðu- neytisstjóra, og vildu þeir ekk ert segja um deiluna að svn komnu máli. Dalatanga um afla, alls 30,600 mál og tunnur. í gærkveldi var gott veður á miðunum við Hrollaugseyjar. Frá kl. 7 i gærmorgun til kl. 9 í gærkveldi var síldarleitinni á Dalatanga tilkynnt um afla 11 skipa, samtals 12950 mál og tunnur. Síld þessi er af svipaðri stærð og áður, þó ívið smærri. Síldarleitarskipin Ægir og Pétur Thorsteinsson lóðuðu í gær á all- mikla síld djúpt austur af Dala- tanga, en torfurnar voru dreifð- ar og smáar. Eftirfarandi skip tilkýnntu úm afla frá kl. 7 á fimmtudagsmorg- un þar til kl. 9 í gærkveldi: Náttfari ÞH 300 tn., Barði NK 1600 mál, Jón Þórðarson BA 850 mál, Elliði GK 1200 mál, Friðrik Sgurðsson AR 1000 mál, Arnkell SH 100 mál, Sigrún AK 100 mál, Reykjanes GK 1150 mál, Sæ- úlfur BA 900 mál, Halldór Jóns- son SH 600 mál, Mímir IS 700 mál, Jón Jónsson SH 600 mál, Sigurpáll GK 1400 mál, Viðey RE 1500 mál, Hugrún IS 1100 mál Gullberg NS 1600 mál, Akur ey RE 1600 mál, Svanur RE 800 mál, Faxi GK 1400 mál, Fákur GK 1700 mál, Manni KE 1100 tn., Einar Hálfdáns 300 tn., Gissur hvíti SF 1200 tn., Sigurður Jóns- son 1000 mál, Þorlákur 600 mál, Sunnutindur 900 mál, Árni Magn ússon 1100 mál, Stefán Árnason 1050 mál, Sæfaxi II 850 mál, Sól- fari 700 mál, Jón á Stapa 600 mál, Keflvíkingur 2200 tn., Bjartur 2550 mál Jón Eiríksson 1400 mál, Kambaröst 1150 mál, Arnar RE 4200 tn. Haraldur AK 2400 tn. Afli fimm síðast töldu skip- anna var fenginn á tveimur sól- arhringum. Sigmar í Sigtúni greiðir 221 þús. f YFIRLITI um þá gjaldendur í Reykjavík, sem greiða meira en 150 þús. í útsvör og aðstöðugjald mun hafa fallið niður nafn Sig- mars Péturssonar, veitingamanns í Sigtúni, en hann greiðir opin- ber gjöld til borgarsjóðs samtals kr. 221 þús. Leiðréttist þetta hér með. Gífurleg umferð austan fjalls LÖGREGLAN á Selfossí tjáði blaðinu, að gífurleg umferð hefði verið um þjóðvegina austan fjalls í gær og hefði hún aukizt með kvöldinu. Voru margir lang ferðabílar á ferð og voru flestir þeirra að fara austuir í Þórsmörk. Ekki var annað vitað en að allt hefði gengið slysalaust. hvorttveggja að undirlagi fram- kvæmdanefndar vinstri flokk- anna, sem unnið hefur gegn fasr- gjaldahækkuninni með ým íra ráðum í tæpa viku. Norðmenn fyrir innan en Islend- ingar utan EINS og skýrt var frá í blaS- inu í gær, hafa Norðmenn undanfarið verið að veiðum fjórum sjómílum fyrir innan 12 mílna landhelgina við Hjalt land, en aftur á móti hefðu íslenzk veiðiskip ekki fengið undanþágu til veiða innan landhelginnar. Blaðið hafði í gær tal af Davíð Ólafssyni fiskimálastjóra og spurðist fyrir um hvað þessu ylli. Davíð kvað skýringuna á þessu vera þá, að Norðmenn og Bretar hefðu gert sín á milli gagnkvæman samning, þannig að hvort landið mætti veiða fyrir innan lanlhelgi hins. Væri svo einrnig um ýms- i ar aðrar þjóðir en aftur á móti hefðu Íslendingar ekki gert neinn slíkan samning við Breta og væri það ástæðan til þess, að þeir yrðu að vera fyrir utan 12 mílna landhelg- ina. Þá var einruig skýrt frá því í blaðinu í gær að yfirvöldum í Skotlandi og Leirvík beri ekki saman, hversu innarlega íslenzku skipin megi veiða, en ekki gat blaðið aflað sér upp- lýsinga um í hverju sá ágrein- t ingur væri fólginn. MYND þessi sýnir, hvemig stundum endar fyrir þeim öku mönnum, sem eru í kappakstri um götur borgarinnar. Þetta atvikaðist þannig, að í fyrra- kvöld var ungur maður und- ir stýri þessarar bifreiðar og sat vinkona hans frammí hjá honum. Ökuþórinn var í kapp akstri við annan. Hraðinn var svo mikill, að ökuþórinn náði ekki smábeygju, sem þarna er. Afleiðingamar urðu þær, að bifreiðin kastaðist yfir steinkant, sem sést á myndinni og í gegn um vírgirðingu, sópaði einum girðingarstólp- anum með sér, týndi við það toppgrindinni og hlíf yfir framrúðu, og lenti að lokum í járnarusli úr gamalli mjöl- skemmu. Eins og myndin sýn- ir komst vinkona ökuþórsins ekki út úr bifreiðinni sín meg in vegna þess að einn girðing- arstólpinn lokaði hurðinni. (Ljósm.Mbl. Sv. Þonm.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.