Morgunblaðið - 31.07.1965, Page 22

Morgunblaðið - 31.07.1965, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 31. Júlí 1965 KR vann Fram 1:0 - og nálgast titilinn IVIarkið skorað úr vítaspyrnu K R vann F R A M í gær- kvöldi í keppni 1. deildar með 1—0 og nægir nú liðinu jafn tefli í þeim tveim leikjum sem það á eftir í mótinu — gegn Akranesi og Keflavík til að verða fslandsmeistari. Hins veg- ar blasir nú fallið í aðra deild við Fram og eru ,ef“-in nokkuð mörg, ef það á að takast þeim að fá aukaleik um fallsætið við annaðhvort þeirra liða er næst iægst eru að stigum. Miklar rokhrinur gengu yfir Laugardalsvöllinn í gær og þegar þessum sömu leikmönnum gengur erfiðlega að sýna góðan leik við góðar aðstæðui; er skilj- anlegt að þeim takist illa upp þegar slíkt veður er — og sann- ast sagna var ekki hægt að leika knattspyrnu í gær. Að skrifa um knattspyrnu leiksins er því álíka og að skrifa um nýju fötin keis- arans. Eina mark leiksins skoraði Ellert Schram úr vítaspyrnu á 21. mín. fyrri hálfleiks. Hrannari Har^ldssyni framverði varð þá á að snerta knöttinn með hendi. Hættan var ekki ýkja mikil við mark Fram, en vítaspyrnan varð ekki umflúin — og Ellert dró ekki af skotinu. KR lék undan vindinum í fyrri hálfleik. Það liðu þó 17 mín. áður en fyrsta skotið kom á Frammarkið. Það var allgott1 skot Baldvins en Hallkell varði vel. Síðar varði Hallkell hörku- skot frá Jóni Sig. Fram átti langar sóknarlotur að marki KR í síðari hálfleik en tókst ekki að hemja knöttinn. Voru þeir þó mjög klaufalegir á stundum. t. d. átti Hallgrímur úth. ágætt færi á markteigs- horni — en skaut yfir. Og möguleikar KR-inga voru Pressuleikur- inn ú þriðjudug þrátt fyrir vindinn öllu hættu- legri en Framara í síðari hálf- leik. Baldvin skaut yfir af mark- teig snemma í leiknum og Anton bjargaði á marklínu á sömu mín- útu. Og síðast í leiknum hljóp Baldvin af sínum alkunna hraða upp með sendingu Sigurþórs — Og það var Hallkell markvörður sem forðaði fram frá því að leik lyktaði með 2—0. í spilinu átti Fram öllu meira, einkum í fyrri hálfleik. Fram- lína KR-inga var afar slöpp og sundurlaus. En leikmenn verða vart dæmdir eftir leik við þessar aðstæður. Það var heppnin sem mestu réði — og það var sannar- lega heppni KR-inga að fá þessa vítaspyrnu. — A.St. Landsliðið er mœta á Skotum í Clasgow valið Landskeppnin verður 21. áxgúst ÍSLENDINGAR og Skotar ganga til landskeppni í frjálsum íþrótt- um 21. ágúst nk. og fer keppnin fram í Edinborg. Verður keppt í bæði karla- og kvennagreinum, 10 greinum karla og 4 greinum kvenna. í liði íslands verða 15 karlar og 4 konur. Keppni þessi er nýstárleg fyrir margra hluta sakir, því hvorki er um fullkomna landskeppnisdag- skrá að ræða, né heldur um ven ju legar hlaupavegalengdir að ræða mældar I metrum; allt er mælt í yördum. Um sigurmöguleika okkar í þessari keppni vildu forráðamenn FRÍ Iítið segja í gær, en töldu þó Skota sigurstranglegri miðað við síðustu fréttir þaðan. 11 þeirra er í landsliði íslands keppa koma til Glasgow frá Norð urlandamótinu í Helsinki. Vegna fjárhagsörðugleika hefur FRÍ nú farið inn á þá braut að krefja þátttakendur í keppninni um ' fjárframlag. Þeir, sem fara bæði . til Helsinki og Glasgow greiða 2000 kr. upp í ferðakostnað, en hinir, sem fara beint til Glasgow greiða 1500 kr. Landslið fslands í Glasgow verður þannig skipa^' Karlar: 100 yarda hlaup: 1. Ólafur Guðmundsson, KR, 2. Ragnar Guðmundsson, Á. 220 yarda hlaup: 1. Ólafur Guðmundsson, KR, 2. Ragnar Guðmundsson, / Framhald á bls. 23 ) rVEIR MARKMENN — TVEIR KNETTIR. ÍÞessa sérkennilegu mynd tók 1 fSv. Þorm. af Ileimi Guðjóns-l Kyni á landsliðsæfingu nýlega. I Úrslit í 2. deild 14. úgúst URSLITALEIKURINN í 2. deiid — milli Þróttar og Vestmanna- eyinga verður leikinn laugardag- inn 14. ágúst kl. 4 síðdegis í Laugardal. Þessi tvö lið sigruðu hvort í sínum riðli í 2. deildarkeppninni. Þar hófu 10 lið keppni, en Skarp- héðinn dró lið sitt til baka að afloknum einum leik liðsins. PRESSULEIKURINN“, sem skýrt var frá í gær verður á þriðjudagskvöldið en ekki á fimmtudagskvöldið eins og ari breytingu svo ag landsliðið nefnd hefur óskað eftir þess- ari breytiinga svo að landsliðið hafi betri hvíld fyrir landsleik inn, sem verður annan mánu- dag. Lið íþróttafréttamanna var valið í gærkvöldi, en þegar var kunnugt um forföll, svo liðið verður ekki tilkynnt fyrr en í blaðinu á morgun. 25 þjóðir í heims- meistarakeppni í handbolta 25 ÞJÓÐIR höfðu tilkynnt þátt- töku í heimsmeistarakeppni karla er þátttökufrestur rann út. Sví- ar sjá um framkvæmd keppninrt- ar og mæta 16 lið til-lokakeppni í Svíþjóð í janúar 1967. Bikarkeppnin hefst ídag BIKARKEPPNI KSÍ hefst í dag og verður fyrsti leikurinn í Vest- mannaeyjum milli íþróttafélags- ins Þórs og B-liðs Keflvíkinga. Hefst leikurinn kl. 16. íþróttafé- lögin í Eyjum taka þátt í bikar- keppninni hvort í sinu lagi, en til 2. deildarkeppninnar mættu þau sameinuð. 14 félög taka þátt i bikarkeppn inni nú í ár og senda 20 lið til keppninnar. Er það met-þátttöku fjöldi, en 19 lið voru með í fyrra. A-lið 1. deildarfélaganna koma inn í keppnina í 4. umferð henn- ar í byrjun september. Bikarkeppnin er útsláttar- keppni og er það lið úr keppn- inni, sem tapar leik. Þessar þjóðir tilkynntu þátt- töku: Belgía, Danmörk, Frakk- land, Holiand, ísland, Júgóslavía, Noregur, Austurríki, A-Þýzka- land, Pólland, Rúmenía, Sví- þjóð, Sviss, Rússland, Spánn, Tékkóslóvakía, Ungverjaland, V- Þýzkaland, Finnland, Bandarík- in, Kanada, Japan, ísrael, Eg- yptaland og Túnis. 16 þjóðir verða í lokakeppn- inni. Þangað komast án keppni, Svíar og heimsmeistararnir Rúm- eníu. Á þingi- hahdknattleikssam- bandsins í Júgóslavíu var ákveð- ið fyrirkomulag undankeppninn- ar. Bandaríkin og Kanada keppa um „amerískt“ sæti í lokakeppn- inni, Egyptaland og Túnis keppa um „afrískt“ sæti þar. ísrael skal keppa við evrópskt lið um sæti í lokakeppninni, en Japanar kom- ast í lokakeppni án forkeppni. Evrópuliðunum verður skipt í riðla og komast sigurvegarar í hverjum riðli í lokakeppnina í Svíþjóð. Undankeppni fer fram á timabiiinu 1. okt. 1965 til 31. I marz 1966. V frjálsíþróttamenn til Norðurlandamóts ELLEFU íslendingar halda uppi merki íslands á Norðurlandamót- inu í frjálsum íþróttum, sem fram fer í Helsinki dagana 15., 16. og 17. ágúst. Verður haldið utan til Ósló hinn 8. ágúst og þar tekið þátt í alþjóðlegu frjáls- íþróttamóti 10. ágúst. Hinn 12. ágúst verður haldið áfram til Helsinki. Aðalfararstjóri verður Svavar Markússon, ritari FRÍ, en með í förinni vérður og þjálfari FRÍ, Bénedikt Jakobsson. Þessir frjálsíþróttamenn hafa verið valdir tii fararinnar: Jón Þ. Ólafsson, ÍR, keppir í hástökki. Valbjörn Þorláksson, KR, keppir í tugþraut og 4x100 m boðhlaupi. Ólafur Guðmundsson, KR, keppir í 100 m, 200 m, 400 m, 4x 100 m bhl. og 4x400 m. Kjartan Guðjónsson, ÍR, kepp- ir í tugþraut og 4x100 m bhl. Kristleifur Guðbjörnsson, KR, keppir í 3000 m hindrunarhlaupi og 5000 m hlaupi. Guðmundur Hermannsson, KR, keppir í kúluvarpi. Erlendur Valdemarsson, ÍR, keppir í kringlukasti. Halldór Guðbjörnsson, KR, keppir í 800 m, 1500 m hl. og 4x 400 m boðhlaupi. Kristján Mikaelsson, Á, keppir í 400 m grindahl., 400 m hl„ 4x 100 m bhl. og 4x400 m. Björk Ingimundardóttir, U. M. S. B„ keppir í fimmtarþraut. Halldóra Helgadóttir, KR, keppir í 100 m. hl. og 400 m hþ Landsmútum yngri flokka að ljúka LANDSMÓTUM yrtgri flokka í knattspyrnu er nú senn að ljúka. Er riðlakeppni í öllum flokkum lokið, að undanskildum einum leik í öðrum riðlinum í 2. flokkL í 3. flokki sigraði KR í A-riðli, Fram í B-riðli og Breiðablik í C- riðli. Þessi lið keppa til úrslita. Leika fyrst sigurvegarar í B- og C-riðli, eða Fram og Breiðablik, og sigurvegari í þeim leik leikur gegn KR. í 4. flokki sigraði Fram í A- riðli, en Keflavik í B-riðli. í 5. fl. sigraði Valur í A-riðli, en Víkingur í B-riðlL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.