Morgunblaðið - 05.09.1965, Síða 3

Morgunblaðið - 05.09.1965, Síða 3
Sunnudagur 5. sept. 19ffí MORGUNBLAÐID 3 Sr. Eiríkur J. Eiríksson: Jarðvegur Sviðsmynd frá „Eftir syndafallid. Fremst Rurik en 1 baksýn Helga og Yalur. „Eftir syndafalliö" Litið inn á æfingu hjá Þjóðleikhúsinu Nú streyma börnin 1 skólana, þar sem skólaskyldan naer til þeirra. Sveitabörninn bíða enn um sinn skólans, en nokkur bót er að stafrófskveri náttúrunnar, sem stendur þeim opið í ríkari maeli en börnum í þéttbýli. Hinir ungu nemendur munu einkum fást við lestrarnám. Von- andi hafa sem flestir foreldrar tök á að fylgjast vel með námi barna sinna, gleðjast yfir sigrum þeirra og hjálpa þeim yfir örðug- leikana. Lestrarnám felur í sér tileink- un og tjáningu í senn. Gegnum lestrarfærnina skynjar ungur nemandi nýjan, stóran heim, sem er utan hans ‘sjálfs og hið innra með honum einnig. Barnið verð- ur að láta af hendi rakna um leið og það nemur, tileinkar sér. Uppistaðan er varhugaverð, lygn og dauðleg, straumurinn verður að halda áfram, líf að vera og framrás, áin rennur fram til hafs ins. Oft er það svo, að fá böm 1 heilum bekk lesa „eftir efni“. Kennarar hafa fullan vilja til að bæta úr þessu. Er mönnum ljóst, að lesturinn má ekki v^ra dauð þula, heldur með manns- móti dg sálar þess, er les, og stuðli að sköpun og mótim persónuleikans sem á sér stað með viðtöku og áð í té sé látið. „Sá hinn daufi og málhalti", lesum við í almannakinu við þenna helgidag. „Og hann leit upp til himins, andvarpandi og segir við hann: Effat*.! Það er: opnist þu! Og eyru hans opnuðust og haft tungu hans losnaði, og hann tal- aði rétt“. Áður fyrr var guðspjallið tengt skírnarathöfninni Sá, sem skírði skyldi snerta eyru, munn eða nef hins skírða og segja um leið: „Effata". Snerting eyrnanna átti að tákna opnun hugans fyrir orði Guðs og sannleikans; snerting munnsins þýddi, að hinn skírði átti að útbreiða þann boðskap, er honum var fluttur. Voru lesin upphöf allra guð- spjallanna yfir hinurn skírða, að honum yrði kennt Guðs orð. Sú var merking þess. Nýlega var ég staddur á ágæt- um fundi skógræktarmanna. — Ungur vísindamaður flutti þar erindi. Þar skýrgreindi hann, hvað jarðvegur vaeri: Það er sú jörð, er getur borið gróður. Maðurinn er jörðin, stundum og of oft ekki jarðvegurinn, mót- tækUegur og ávaxtasamur. — Aitnen. XII. sunnudagur eftir trinitatis. Guðspjallið. Mark 7, 31-37. Ungur maður nokkur var mjög hrifinn af þjóðskáldinu Matthiasi Jochumssyni. _ Skáld voru hér áður fyrr í enn meiri metum en nú. Greindum unglingum fannst það gróði og ávinningur, varan- legur, að sjá skáld. Þeir námu staðar fyrir utan gluggann hjá þeim og veittu þim hálfgerða eftirför á götum úti líkt og unglingar nú dá unga menn með mikið hár, sem leika af leikni fyrir dansi. Unga manninum auðnaðist að vera á samkomu, þar sem Matt- hías Jochumsson sté í stólinn. Flutti hann ræðu af eldmóði og slíkri fljúgandi mælsku, að áheyrendum vöknaði um augu af hrifningu. Hinum unga manni fannst sem þjóðskáldið talaði enn, er hann var þotinn úr ræðu stólnum og hafði tekið sér sæti. Pilturinn vaknaði við, að skáldið sagði við sessunaut sinn: „Fannst þér mér ekki takast bara gróflega vel?“ Þessi orð verkuðu á piltinn eftir alla hrifninguna líkt og kalt bað. Var þetta þá leikur? Nei. Matthíasi var alvara. EftiT ræðuna hljóp í hann einhvers konar galsi. Skýringin var, að skáldið hafði með ræðu sinni fullnægt djúpri sammannlegri þörf. Hann hafði fengið tilfinningum sínuin útrás, tjáningarþörfinni var sval að. Ræðuefnið hefur safnazt fyrir í huganum svipað og er stíflu- garður myndar uppistöðu ár, og svo brestur stíflan og áin mynd- ar foss. Flutningur ræðu getur, verið líkur hnífi í læknis hendi. ígerðin hverfur og sjúklingnum léttir, grátur snýst í hlátur. Sú líking er raunar gölluð. Uan útrás meinsemdar var ekki *ð ræða. Matthías Jochumsson v«r gæddur næmri skynjun sjáand- ans og spámannsins eins og öll mikil skáld. Þörfin hefux verið rík að tjá meðbræðrunum skáld- legar opinberanir og guðlegar. „Gef mér dag í dauða, dag yfir alla heima, sjón, er allt það sannar, sem mig gjörði dreyma; veröld fulla vizku, vitund heilla Þjóða, vilja og sál hins sanna, sjón og heyrn þess góða!“ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ mun um næstu helgi taka til meðferð- ar leikritið „Eftir syndafall- ið“ eftir bandaríska Ieikrita- skáldið Arthur Miller. „Eftir syndafallið" er eitt af síðustu leikritum Millers, það var frumsýnt í fyrravet- ur 1 New York og vakti það geysilega eftirtekt. Hefur síð- an verið mikið ritað og rætt um leikritið. Hafa margir álit ið að það fjallaði að miklu leyti um -einkalíf og sambúð höfundarins og fyrrverandi eiginkonu hans, kvikmynda- leikkonunnar frægu Marilyn Monroe, en allir vita hver ör lög hún hlaut. Miller hefur aftur á móti sjálfur neitað því, að leikritið fjalli að nokkru leyti um einkalíf þeirra og þó segja fróðir menn, að furðumargt sé líkt með aðalkvennpersónu leik- ritsins Maggie og svo Marlyn Monroe. Það hefur verið svo, allstað ar þar sem leikrit þetta hefur verið tekið til meðferðar, að mikið hefur verið rætt um það, hvaða leikkona ætti að leika þetta vandasama hlut- verk. Hér hefur Herdísi Þor- valdsdóttur verið fengið þetta hlutverk en aðalkarlhlutverk ið, Quentin, er í höndum Rúriks Haraldssonar. Það er álit margra, að fyrirmyndin að því hlutverki sé höfund- urinn sjálfur. Leikstjóri er Benedikt Árnason en leikend ur eru 16 talsins. Leikmynd- ir gerði Gunnar Bjarnason, en þýðandi er Jónas Krist- jánsson. Vart þarf að kynna Arthur Miller fyrir íslenzkum leik- húsgestum, því að hann hef- ur eitt stærsta nafnið í leik- húsheiminum undanfarin 15 ár og „Eftir syndafallið" er fimmta leikritið sem sýnt er hér á landi. Hin fyrri eru: „Sölumaður deyr“, sem var sýnt hér í Þjóðleikhúsinu 1951, en þar lék Indriði Waage aðalhlutverkið og var jafnframt leikstjóri. „Allir synir minir“, sem var sýnt í Iðnó fyrir nokkrum árum, en þar léku þau Brynjólfur Jó- hannesson, Helga Valtýsdóttir og Jón Sigurbjörnsson aðal- hlutverkin. „í deiglunni", sem var sýnt í Þjóðleikhúsinu 1955, og þá fóru Rúrik Har- aldsson og Regína Þórðardótt ir með aðalhlutverkin. Að lokum var svo „Horft af brúnni", sem var sýnt hér árið 1959. Aðalhlutverkin voru þá leikin af þeim Ró- bert Arnfinpssyni, Helga Skúlasyni og Regínu Þórðar- dóttur. Við brugðum okkur í Þjóð- leikhúsið í fyrradag til þess að fylgjast með æfingu-á „Eft ir syndafallið“. Heldur var lítið um að vera, þegar við náðum þangað, því að þar hafði rafmagnsbilunin herjað á sem á öðrum stöðum. Hún hefur þó líklega á fáum stöð- um komið sér verr, því þessi æfing byggðist að miklu leyti upp á ljósabreytingu. Þó log- ið væri og sagði að þeir sem vildu fara út, gætu farið út, en þeir sem vildu bíða, gætu setið í myrkrinu og gert það, Benedikt Árnason leikstjóri þungt hugsi sem þá langaði. Vakti þetta óskapa kátínu meðal fólksins. Enn var beðið góða stund og loks kom rafmagnið. Leik ararnir flýttu sér fram á svið ið en við fengum okkur sæti úti í salnum og fylgdumst með því, er fram' fór. Leik- tjöldin eru ákaflega einföld. Á sviðinu er einn stóll, en að öðru leyti er enginn húsbún- aður í venjulegri merkingu, engir veggir eða skilrúm. — Sviðið er allt samansett úr misháum pöllum. Sannast sagna, þá gekk okkur heldur erfiðlega að skilja innihald leikritsins, en við höfum þó þá afsökun, að leikritið var hafið, áður en rafmagnið fór og við komum. Við sáum Rúr ik Haraldsson í gerfi Quentin sitja á þessum eina stól, er á sviðinu var og stara út í sal inn, meðan ýmsar persónur birtust fyrri aftan hann á hinum misháu pöllum, þar .sem þær ræddust við, rifust eða hrópuðu út í salinn. Við sáum Quentin í heiftaríegri þrætu við konu sína Louise og við sáum Quentin lenda í ör-. litlu ástarævintýri með stúlk unni á skiptiborðinu, henni Maggie. En við vorum engu nær, enda kannski ekki víst, að mergurinn málsins hafi þegar verið kominn þegar í fyrsta þætti, því vegna raf- magnsbilunarinnar var ekki lengra komizt þetta kvöldið. En við sáum þó að ljósin gegndu veigamiklu hlutverki í leikritinu. Til þess að fá forvitni okkar svalað, fórum við til Rúriks og báðum hann að lýsa leikritinu fyrir okkur í'fáum orðum. — Leikritið gerist allt í hug arheimi Quentins, segði hann. — Það koma fram ýmsar myndir, sem eru minningar frá æsku, um svik og ástir. Framhald á bls. 31. Rúrik og Herdís aði ljós á nokkrum stöðum og var svo fyrir að þakka vara rafgeymum, er voru þar til staðar. Það var vel tekið á móti okkur og við þegar fóðr- aðir á sögum um rafmagnsbil anir, er gerzt hefði þegar sýn ingar stóðu yfir. T.d. var það eitt sinn, þegar verið var að sýna óperu hér og draga átti tjaldið frá, að rafmagnið fór, og kolniðamyrkur varð í hús inu. Guðmundur Jónsson söngvari smeygði sér þá fram fyrir tjaldið, skýrði leikhús- gestum frá því hvernig kom- Leikararnir ppa af“ í kaffi. Frá vinstri: Baldvin Halldórs- son, Þóra 1 .riksdóttir, Helga Valtýsdóttir og Valur Giisla- son. : I i.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.