Morgunblaðið - 05.09.1965, Síða 12

Morgunblaðið - 05.09.1965, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 5. sept. 1965 Skúli Skúfason: Snarpasta kosningahríð í Noregi síðan fyrir stríð Nesbyen, 1. september: — SÍÐASTLIÐINN hálfan mán- uð hafa norsku stjórnmála- flokkarnir verið að kynna sig fyrir háttvirtum kjósendum í sjónvarpinu, 90 mínútur þrjú kvöld vikunnar. Þessum kynn ingarkvöldum er þannig hag- að, að sex flokkarnir eiga að garrga í skrokk á þeim sjö- unda með óþægilegum fyrir- spurnum um stefnu hans í ýmsum málum, en talsmaður flokksins að svara. Fyrsta kvöldið, 20. ágúst, var formað ur stjórnarflokksins, Trygve Bratteli í eldinum, næst kom vinstri, þá kristilegi flokkur- inn, þá hægri, en þar varð séra Per Lönning fyrir svör- um, því að fyrrverandi for- maður, John Lyng, settist 1 fylkismannsstólinn í Akurs- húsfylki I dag og er því orð- inn óvirkur í stjórnmálum, en nýi formaðurinn, Sjur Linde- brekke er á ferðalagi víðsveg ar um endilangt landið. Fyrir miðflokkinn (bænda) svaraði formaðurinn, Per Borten, en í kvöid' svaraði Leif Johan- sen prófessor fyrir kommún- ista. Þá er aðeins sósíalista- flokkurinn eftir, en þar verð- ur vitanlega Finn Gustavsen fyrir svörunum á föstudags- kvöld. Því að öllum öðrum fremur getur hann sagt: — „Flokkurinn, það er ég sjálf- ur“. Eiginlega hefur ekki verið mikið á þessum útvarpshnipp- ingum að græða. Stundum er spurt um svo líitlsverða hluti að manm liggur við að brosa, stundum um það, sem eng- inn mennskur maður getur svarað. Og stundum út í hött, en það getur líka haft áhrif á kjósandann, ef svarað er hnyttilega. Talsmenn borgaraflokkanna fjögurra hafa vitanlega gætt mestu nærgætni í spurning- um sínum ög svörum, hver til annars, til þess að styrkja trú kjósenda sinna á það, að ef þeir geti myndað stjórn eftir kosningarnar, mundi þar ríkja „eining andans í bandi friðarins-*. Öðru máli gegnir um vinstriflokkana þrjá. Tals maður kommúnista dró t.d. ekki dul á það, að flokkur hans hefði — til þess að hjálpa stjórnarflokknum — ekki boðið fram í fjórum kjör dæmum, og löngu áður óskað samvinnu við flokkinn um framboð, en verið hundsaður. Sósíalistaflokkurinn virðist vinsamlegri í garð stjórnar- flokksins, víst er um það. að ef kosningarnar færu svo, að þessir tveir flokkar næðu meirihluta saman, mundi Finn Gustavsen ekki láta sér detta í hug að leika hlutverk „kálfsins í postulínsbúðinni“. eins og hann gerði fyrir tveim árum, ei hann feldi Gerhard- sen. — Af þingstuðningi komm únista við væntanlega verka- mannastjórn er lítið talað, því að flestir eru þeirrar skoðun ar, að þeir fái engan mann kosinn, fremur en 1961, og muni hverfa úr sögunnL Þeir hafa að vísu kjörið sér nýjan formann, Reidar Larsen (ritstjóra „Friheten") í stað Emils Lövlien bónda í Löten á Heiðmörk, sem alla tíð eftir stríð hefur verið for ingi þeirra, en er orðinn aldr aður. Larsen, nýi formaður- inn, boðar stefnubreytingu hjá flokknum, meiri lipurð í túlkun stefnunnar, vináttu við allar þjóðir o. s. frv. — og telur Stalín skaðlegasta skemmdarverkamann Marx- stefnunnar. En hvort þetta stoðar nokkuð, er annað mál. Að minnsta kosti kemst for- maðurinn ekki á þing, sem 13. maður í Osló, því að til þess yrði flokkurinn að auka atkvæðatölu sína um ca. 110%. Hinsvegar vantaði Lövlien að eins 17 atkvæði þá, til þesa að ná kosningu í Heiðmörk, svo enn er hann eina vonin. í Noregi eru 20 stórþings- kjördæmi: Osló, Bergen og 18 fylkin, sem fram á þessa öld voru kölluð ömt, eins og heima. Nafnaskiptin urðu um líkt leyti og þegar Kristiania var endurskírð Osló fyrir 40 árum. Fram til 1949 voru kjör dæmin 29, og þannig skipt að fylkin 18 skyldu kjósa 100 fulltrúa á þing, en bæirnir 50. Þetta átti að miða að því að þingvaldið skiptist sem réttast milli kaupstaða og sveita. En stöðunum raskaðist hlutfallið milli sveita og bæja svo gífur lega, að þessu varð að breyta í það horf sem nú er, og er það þó orðið úrelt í dag. Þó Osló eigi 13 fulltrúa á þingi nú, er máttur kjósandans þar miklu minni en í flestum öðr- um kjördæmum, því að Osló vex hratt. — Og í Noregi eru engin uppbótarþingsæti til að jafna misfellurnar. Kringum 1750 eru í fram- boði við kosningarnar 12.—13. þ.m. (í mörgum kjördæmum verður aðeins kosið þ. 13., því að yfirkjörstjórnirnar ráða, hvort kosið verður daginn áð- ur, líka). — Við þessar kosningar bjóða flokkarnir fram, sem hér segir: Verkamannaflokk- urinn (stjórnarfl.) í öllum kjördæmum. Hægri sömuleið- is. Hinir flokkarnir bjóða ekki fram allstaðar, ýmist vegna þess að þeir hafa enga von, eða þá að þeir eru í opinberu eða leynilegu sam- Trygve Brattell var í eldinum bandi við einhvern annan flokk og vilja veita honum stuðning. T.d. eru hægri og kristilegi flokkurinn í þannig sambandi í Bergen (eins og 1961), miðflokkurinn og vinstri í Austfold en bænda- flokkurinn býður heldur ekki fram í Osló, til þess að dreifa ekki atkvæðum borgaraflokk- anna, í von um að þeir nái 7 þingsætum höfuðstaðarins (en stöðunum raskaðist hlutfallið 1961 fengu verkam.fl. 6 Og Sosíalistar fengu Gustavsen). I Osló býður fram nýr flokk- ur, sem kallar sig „Frihets- værnet“, en ekkert nafn kann ast ég við, sem er á lista hans, og tel ólíklegt, að hann komi manni að. Sama er að segja um annan flokk, sem kallar sig „Norges demokr.parti", sem hefur risið upp á Roga- landi, og hefur það til síns ágætis að það hefur ekki nema 3 menn á lista sínum, þó þingsæti fylkisins séu tíu. II. Hér hafa verið tiltíndar nokkrar upplýsingar almenns efnis, þó að þær séu tæpast þær, sem lesandinn vill helzt sjá en eru þó nauðsynlegar til þess að geta gert sér grein fyrir úrslitunum 13. sept. Ég vil helzt ekki taka að mér að gerast spámaður um þau, vegna þess að mér finnst tví- sýnan vera meiri nú, en hún hvjunn gegn Einari Ger- hardsen aldrei jafn hörð og nú hefur verið við nokkrar kosn- ingar í Noregi síðustu 30 árin, en síðan 1935 hefur verka- mannastjórn- verið ráðandi í Noregi, þar af 5 ár erlendis — hernámsárin. Enginn góður Norðmaður viðurkennir að lög leg stjórn hafi verið í land- inu frá 7. júní 1940 til 8. maí 1945. En um úrslitin núna er fyrst Og fremst að hafa það í huga, að við síðustu kosningar, 1961, voru vinstri — og hægri atkvæðin svo að segja hníf- jöfn, 46,8% hjá stjórnar- flokknum og 2,4 hjá Finn Gustavsen ,sem dró sjálfan sig og Asbjörn Holm inn í þingið, og 2,9% hjá kommún- istum, sem drógu engan í land, þó þeir væru liðsterkari en Finn. — Hinsvegar voru svo hægri, sem fengu 19,3 á „hreinum listum", kristilegi Á. með 9,3%, vinstri með 7,2. og miðflokkur (bændafl. með 6,8%. En á samlista borgara- flokkanna féllu samtals 5,1% atkvæðanna, þar af 4,1 á sam- lista miðflokksins og vinstri, en þeir voru í fjórum mjög áríðandi kjördæmum, hérum- bil þeim sömu, sem nú geta ráðið úrslitum á reiptoginu. Hvaða flokkum vex fylgi undanfarin þrjú kjörtímabil? spyr margur. Árið 1949 náði verkamannaflokkurinn mest- um þingmannafjölda, sem hann nokkurntíma hefur haft: 85 fulltrúa í þinginu, en við John Lyng orðinn óvirkur í stjórnmálum næstu kosningar hrapaði talan niður í 77, bætti svo við sig einum manni 1957, en missti svo.fjóra í síðustu kosningum og komst í minnihluta í fyrsta skipti eftir stríð. Það var Finn Gustavsen sem Olli því, en hann kom ekki við þann 4. mann, sem stjórnarflokkurinn hafði tapað, heldur aðeins helminginn, sem reyndist þó nógur til þess að sýna „mátt þúfunnar". — Hægri hafa ver ið í vexti á síðan 1953, og enda síðan 1945 og hefur fjölg að um fjóra á þingi, upp í 29. Kristil.flokkurinn hefir 15 þingsæti nú, í stað 14 árið 1953, og miðflokkurinn hefur bætt við sig einu þingsæti við þrennar síðustu kosningar og á nú 16 sæti á þingi, en vinstri 14 aðeins og má minn- ast betri daga, er hann var mestu ráðandi í Noregi í tíð Gunnars Knudsens og Joh. Ludw. Mowinkels, hins góða Islandsvinar. — Á því kjörtímabili sem nú er að enda hefur margt skeð. Borgaraflokkarnir hafa hnappast betur saman um sín gömlu ákærumál gegn Ger- hardsenstjórninni: seinlæti í sjúkrahúsa- og skólabygging- um, vegalagningum og þess háttar, eins og gerist og geng- ur í öllum lýðræðislöndum. Hjá kjósendum held ég, að það sem helzt gæti raskað at- kvæðafylgi kjósandans, miundi verða þetta: — Hva'ða skoð- anir hafa þeir' 4 árgangar nýrra kjósenda, sem komið haifa til sögunnar síðan 1961, á framrbíðarmálum þjóðarinn- ar? — Það er svo að sjá, sem þeir hugsi meir um Viet- Nam og Kasmir stundum, en þeir hugsi um hvernig Noregi skuili stjómað. — Eðli ung- menna og vei*ður alltaf þannig, að eina boðorðið heit- ir: að vera óánægður með allt! Og það er alls ekki sigurvæn- legt í neinu landi, „ef æskan vill (ekki) rétta þér örvandi hönd“ (hans Þorsteins Erlings sonair). En ekki veit ég hvernig æskan snýst við Ger- hardsen. Mér finnst á sumum ungmennum, sem ég tala við að þeim þyki hann of seinlát- ur. En hvort þetta er aðeins í nösunum eða í huganum er ainnað mál. — Eitt aðalmál kosning- anna núna er löggjöfin um la- menn eftirlaun (pension) fyrir alla þegna þjóðfélagsins. Á fundi í Sandefjord fyrir nær 20 d'ögum, gaf Einair Gerhard- sen í skyn, að ef borgaraflokk amir kæmust til valda mundu Vanefndir verða af þeirra háífu um að koma á þeirri eftirlaunalöggjöf, sem nú er fyrirhugu'ð í Noregi og undir búin af hálfu núverandi stjórn ar. En þetta kom í rauninni úr hörðustu átt, því að ein- mitt John Lyng hafði í sinni • stuttu stjómartíð fyrir 2 ár- um lagt áherzlu á, að flýta framkvæmd eftMaumalag- amna. — En það sem er efst á baugi í kosningabaráttunni núna, eru kærur stjómarand- stæðinga útaf ýmsum grein- um atvinnumálanna. Iðna'ðar- málaráðuneytið hefur sannan- lega verið í vanhirðu hjá ríkis stjóminni. Tvær rannsóknar- nefndir hafa verið starfandi í þeim málum, en sá sem réð stjóminni þar og sumir kalla „syndebukken" (amakeflið) er nú austur í Japan, ti'l þeSs að semja um hlutdeild Nor- egs í hvalveiðum. Kjelfl Holler var sem sé íðnaðarmálaráðherra á þeim táma, sem mestu misflellumar urðu á starfsemi þeirrar stjórn ardeildar, og þær misfellur þýða vafalaust mörg þúsund atkvæða tap fyrir verka- mannastjórnina 13. sept. Beitt vopn borgarflokkanna þessa dagana eru: eftirlitsleysi með f j ármunum 'ríkisins, en sá sem það var "falið, situr nú í gæzlu varðhafldi, — samningar við Husnes-fyrirtæki, sem er að byggja aluminumsgerð í utan ver'ðum Hardangursfirði, fyrir öyggjuleysi um undirbúning ýmsra fyrirtækja, svo sem koksbrennzlu Svalbarðaskola sem síðan reyndust óbrúkleg til þess að vinna koks úr þeim, o.ffl. o.fl. — Ríkisstjórnin hef- ur viðurkennt, að undirbún- ingur sumra þessara fyrir- tækja hafi gerð af fljótfæmi oig án nógu mikils undirbún- ings. Nú, eftir að fór að „sjóða upp úr pottinuim“ hefur nýtt mál bætzt við — lika frá iðn- aðarmálaráðumeytinu. Það er viðvíkjandi námuteigum á Svalbarða, sem ameríikanska olíufélagið Galtex hefir fengið leyfi tiil að nýta. Eftir því sem mér skilst átti þetta að beraat undir utanríkisráðuneytið, en tvísöngnum ber saman um, um, að það hafi gleymzt. Þetta miáfl er mjög svertuimilkið í fyrirsögnum noraku blaðanna undanfarna daiga. Upplýsingar eru hinsvegar fyrir um þaf, mS gerðir samningar uim námu teiga á Svaibarða séu fyrir- liggjandi, bæði við Caltex og rússneskt olíufélag og hdjóði báðir upp á það, aS norska rikið fái 10% af brúttóógóða fyrirtækjanna í landekuld (eða það sem kallast • frroy- aity“ — í milflilandasamning- um). Sóknin gegn Einari Ger- hardsen hefur aildrei verið jafn hörð og hún er þessa dag- ana. Og ég gæti vei hugsað mér, að flökkur hans fengi ekki nema 68—70 þingsæti nú. Hvort Finn Gustavsen bætir við sig einu eða tveim, skiptir engu máli því að þá eru borg- araflokkarnir orðnir ráðandi og verða að sýna, í fram- kvæmd, að þeir geti orðið sam mála um að framfcvæma sem flesfl af því, sam nú er lofað í kiosningahitanum. — Hér er svo mikill rugl- ingur milli flokka, að ég veit varla í hvaða flokki ég er, sagði gamall maður hér á Nesbyen í fyrradag, er við tók um tal saman. „Ég hef greitt Gerhardsen atkvæði síðan 1845, en nú veit ég ekki hvað ég á áð gera. Hvað gerir þú? sagði Einar gamli Bolsta — (það er á íslenzku sama sem Bólstaður). Ég sagði honum, að síðan 1929 hefði ég ekki haft kosningarrétt neinsstað- ar í veröldinni, en þá sagði hann bara: „hvílík guðsbless- un fyrir þig!“ — En hvað sem öðru líður þá finnst flestum norskum kjósendum það guðsblessun, er þeir vakna 14. september að kosningarhríðinni er lok- Framh. á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.