Morgunblaðið - 05.11.1965, Síða 10
10
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur. 5. nóv. 1965
Flugslysið á Lund-
únaflugvelli
EINS og getið hefur verið í
fréttum fórst Vanguard þota
á Lundúnaflugvelli í siðustu
viku. Ekki hefur enn verið
komist fyrir um orsök flug-
slyss þessa, en sérfræðingar
vinna að rannsókn málsins
og beinast þær að athugun
á því, hvað getur hafa skeð á
þeim tíu sekúndum, sem liðu
frá því að samband við flug-
vélina rofnaði og slysið varð.
í þessar tíu sekúndur var
öll stjórn í höndum flugstjór
ans Normans Shackess, en
fram að þessum tíma hafði
flugturninn á vellinum að-
stoðað hann við aðflugið eins
lengi og þeim var unnt, eða
þar til flugvélin var í 400
feta hæð og 800 metr.i írá
brautarenda. Flugumferða-
stjórar álíta að skyggni hafi
verið viðunandi, eða yfir lág-
markinu 380 fet. sem sett er
fyrir Vanguard flugvélar.
Flugstjórinn virðist þó hafa
verið á annari skoðun í þess-
ari þriðju lendingartilraun,
því álitið er að hann hafi
gert tilraun til að „yfir-
fljúga“ en það ekki tekizt.
Um orsök slyssins koma ýms
ir möguleikar til greina,
skyndilegt haeðartap vegna
bilunar á stjórntækjum,
mælitækjum eða hreyflum.
Orsökin verður ekki kunn,
fyrr en lokið er við að setja
brakið úr vélinni saman og
rannsaka segulband það sem
staðsett var í stéli flugvélar-
innar. Mestar líkur benda til
þess að vélin hafi verið kom-
in of neðarlega og að flug-
stjórinn hafi verið of seinn
að lyfta henni upp aftur.
Mikilvægasta spurningin
Norman Shackell,
flugstjóri.
í þessu sambandi er sú,
hversvegna flugstjórinn varð
að lenda vélinni á eigin spýt-
ur og treysta á eigin augu í
þessari þoku, þegar nú eru
liðin tíu ár síðan tilraunir
heppnuðust með góðum
árangri við að lenda flugvél-
um með aðstoð sjálfvirkra
blindflugstækja af vellinum
sjálfum. Flugumsjónarmenn-
irnir á vellinum aðstoða vél-
arnar með ratsjám þar til
þær eru komnar niður í 400
fet en eftir það verða mæl-
ingar þeirra ónákvæmari.
Vanguard vélarnar eru ekki
útbúnar móttökutækjum fyr-
ir sjálfstýringu af vellinum,
en vélunum BEA Trident hef
ur verið lent á þennan hátt í
allt sumar. Flugmenn eru þó
sagðir veigra sér við að nota
þessa sjálfvirku stöð í slæmu
veðri, því þeir hafa engin tök
á að taka stjórnina í sínar
hendur ef stjórntæki vallar-
ins bila. Talið er að flugfélög
og ríkisstjórnir muni ekki al-
mennt viðurkenna notagildi
þessarar sjálfvirku stjórn-
tækja fyrr en sýnt er að þau
bregðast ekki nema einu
sinni í tíu milljón lending-
um. Þetta flugslys í síðustu
viku er það fyrsta í tíu ár á
Lundúnarflugvelli og er álit-
ið að það verði til þess að
meiri áherzla verði lögð á
tilraunir með blindflugstæki
vallarins en áður.
Forstjóri BEA flugfélags-
ins, Henry Marking, var á
IATA ráðstefnunni í Vín þeg
ar flugslysið varð, en flaug
samstundis til Englands. Við
fréttamenn á flugvellinum
sagði hann eftirfarandi: ,,Svo
virðist sem flugstjórinn
Shackell hafi haft í hyggju
að „yfirfljúga“ í þessari lend
ingartilraun, en af einhverj-
um ástæðum mistókst það. |
Shackell var mjög reýndur j
flugmaður og mundi ekki
hafa gert tilraun til að lenda
ef hann hefði álitið það
hættulegt. Ef svo hefði verið *
mundi hann hafa flogið til l
Manchester. Eftri því sem (
við bezt vitum var Vanguard
vélin í fullkomnu lagi og 1
með nægilegt eldneyti. Þrátt
fyrir þetta flugslys höfum (
við ekki í hyggju að taka
Vanguard vélarnar úr urn- 1
ferð, því síðan við tókum vél i
ar þessar í notkun árið 1961, |
höfum við flutt 26 milljón
farþega án nokkurra óhappa. ^
Hálfri klukkustund áður en |
flugslysið varð, höfðu flug- i
umferðastjórar vallarins að-
stoðað aðra Vanguard vél við i
lendingu á sömu flugbraut og |
voru þá öll stjórntæki vallar- i
ins í fullkomnu lagi.“
Shackell og flugáhöfn hans |
höfðu verið á vakt í sex og |
hálfa klukkustund og þar af ,
á flugi í þrjá tíma áður en
slysið varð, en yfir vellinum I
sveimuðu þeir í 40 mínútur, |
og gerðu tvær lendingartil- ,
raunir áður en óhappið skeði
í þeirri þriðju.
Eitt málverkanaia á sýningunni, Suðurströndin.
Ágætur árangur við
borun í Sælingsdel
10-15 I af 41 stiga heitu vatni
í SÆLXNOSDAL í Dalasýslu er
verið að bora eftir heitu vatni,
vegna skólans á Laugum, sem
mikið hefur verið stækkaður og
hefur of lítið heitt vatn. í fyrra
var boruð rannsóknarhola, sem
gaf þann einn árangur, að ástæða
þótti til að dýpka hana. Nú í
haust hefur það svo verið gert,
Fyrir fáum dögum, er borinn
var kominn niður á 150 m dýpi,
hafði sá árangur náðst að komn-
ir voru 10—15 1 á sekúndu af
vatni, sem var 41 stiga heitt, að
því er Jón Jónsson, jarðfræðing-
ur tjáði blaðinu. Þó vatnsmagnið
sé ekki mikið, er hitastigið á
vatninu það hátt, að það á
að duga fyrir skólann og miklu
meira en það, að því er Jón
sagði. *Og er þetta því ágætur
árangur. Sá möguleiki er þó fyrir
hendi. að vatnsmagnið minnki
fyrst í stað aftur, því stundum
þarf vatnið nokkurn tíma til að
ná jöfnu rennsli.
Áður en byrjað var að bora
hafði skólinn aðeins 2% 1. á sek-
úndu af 52 stiga heitu vatni tií
afnota, en það vatnsmagn nægir
engan veginn. Haldið er áfram
að bora dýpra.
Ólafsfirði, 3. nóvember.
Bátar byrja á línu
Bátar hér eru að búast á línu.
Einn stór bátur byrjaði að róa
í gær og fékk 4 tonn í fyrsta
róðri.
Engin síld hefur komið hing-
að lengi enda of langt í burtu
frá síldarmiðunum. Var af þeim
sökum dauft yfir síldinni í sum
ar. Þó voru brædd upp undir
30 þús. má]»í verksmiðjunni hér
og saltað í um 8 þús. tunnur.
— Jakob.
Málverkasýning Magnusar A. Arnasonar
Félag íslenzkra myndlistar-
manna hefur boðið Magnúsi Á.
Árnasyni að efna til yfirlitssýn-
ingar á verkum sínum, í tilefni
af sjötugsafmæli hans, sem var
að vísu í desember síðastliðnum.
En þannig æxlaðist það til, að
þá var ekki hægt að halda þessa
sýningu, vegna þess meðal ann-
ars, að Magnús var þá á förum
til Mexico. En betra er seint en
aldrei, og nú stendur þessi sýn-
ing Magnúsar yfir í Listamanna-
skálanum. Magnús Á. Árnason
hefúr lagt gjörvá hönd á margt,
og má í því sambandi minna á,
að hann er afkastamikið tón-
skáld, yrkir Ijóð, stundar þýð
ingar og mótar í leir jöfnum
höndum og hann málar mál-
verk sín. Samt hugsa ég, að
Magnús sé afkastamestur í
málverki sínu, og hann hefur
haldið fjölda sýninga á verk
um sínum bæði hér í Reykjavík-
urborg og víða um land. Hann
er með afburðum vinsæll mað-
ur, og hver sá, er kynnist Magn-
úsi kemst fljótlega að þeirri nið-
urstöðu, að hann sé einn af fá-
um heiðursmönnum, sem raun-
verulega rísi undir því engelska
heiti „Gentleman". Hann er ó-
latur við að hefja baráttu fyrir
listamenn, ef honum virðist hall-
að máli þeirra og sérlega er
honum annt um félagsskap
þeirra. Munu flestir, er til þekkja
vera sammála um það, að sann-
gjamari og hleypidómalausari
persónuleika en Magnús sé vart
hægt að finna.
Þegar þessi sýning Magnúsar
er skoðuð, sér maður strax, að
hann er mikill náttúruunnandi
j og hefur sérstakt lag á því að
! finna sér fyrirmyndir í sérkenni
legu landslagi. Hann málar í
1 eyjum úti og inni á afréttum,
t og ég held, að hann sé nokkuð
| sérstæður í vali sínu með við-
fangsefni, sem oftast koma hon-
um í rómantíska snertingu við
liti og form.
Á sýningu Magnúsar eru tæp
hundrað verk og þar af 15 högg-
, myndir. Aðeins er þar ein vatns-
litamynd, gerð 1917 af Hólum í
j Hjaltadal, og mun það vera síð-
asta mynd, er Magnús gerði með
vatnslitum. Einnig eru á sýn-
ingunni þrjár l'itlar teikningar
gerðar með bleki og k|ffi, og
veit ég kki til, að aðrir íslenzkir
listamenn hafi notað þá aðferð
að nokkru ráði, en Magnús sagði
mér sjálfur, að hann hefði gert
um hundrað slíkar myndir, á ár-
unum eftir að hann kom heim
frá Ameríku 1930. En Magnús
dvaldist þar í landi um lengri
tíma til tekið í 12 ár samfleytt.
Hann kom þaðan úr álfu með
höggmyndir sinar, en engin mál-
verk, og grunar mig, að fjár-
hagurinn hafi ekki leyft, að hann
ferðaðist með mikinn flutning
yfir Atlantshafið á þeim árum.
Ef ég veit rétt þá fór Magnús
Á. Árnason ekki á mis við byrj-
unarörðugleika fremur en marg-
ir aðrir, en hann hafði þrek til
að standast átökin og má sann-
arlega muna tímana tvenna.
Það er ýmislegt, sem ég gæti
fundið að þessari sýningu Magn-
úsar, en það verður ekki gert
hér. Persónulega árna ég honum
allra heilla, og stéttarfélag hans
vill með þessum atburði þakka
Hinn nýi sendiherra Spánar, herra Juan Serrat afhenti ny-
lega forseta íslands trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum, að viðstöddum utanríkisráðherra.
honum fyrir sérlega farsælt starf
í þágu listamanna og um leið
votta honum virðingu sína. Það
væri ánægjúlegt, að sem flestir
sæju yfirlitssýningu Magnúsar Á.
Árnasonar í Listamannaskálan-
um. Hann er einn þeirra manna,
sem orsakað hafa það, að mynd-
list er til á íslandi, og það eitt
í sjálfu sér er ótrúlegt þrek-
virki, þegar maður lítur um öxl
og gerir sér grein fyrir, við hvaða
aðstæðu þessi listgrein festir
rætur í íslenzku þjóðlífi.
Valtýr Pétursson.
Rya teppi
Síðasta sendingin fyrir jól er
komin. Örfá teppi ólofuð í
etfirtöldum mynstrum: Brazi-
lía, Congó, Elddansinn, Græn-
land, Gullregn, Pompej, ■—
Rökkur.
H O F, Laugavegi 4.
Ung stúlka
óskar eftir atvinnu. Helzt
símavörzlu. Hefur gagnfræða-
próf og vélritunarkunnáttu.
Upplýsingar í síma 21943 í dag
og á morgun, milli kl. 2—5.