Morgunblaðið - 06.11.1965, Side 5
l,aug«rðtagur 6. nðv. 1965
MORCUNBLAÐIÐ
5
E
S
S
II
Hofskirkja í Örfæfum. Annc.via £& Sandfeiiskirkju, — nú eina kirkjan í Öræfum.
A S U
Dómkirkjan
Messa kl. 11. Séra Jón Auð-
uns (Allra sálna messa).
Messa kl. 5. Séra Óskar J.
Þorláksson.
Grensásprestakall
sam
Barnasamkoma kl. 10:30.
Messa kl. 2. (Skátamessa).
Séra Felix Ólafsson.
Hallgrímskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 10 og
messa kl. 11. Séra Sigurjón
Þ. Árnason.
Elliheimilið Grund
Altarisguðsþjónusta kl. 10.
Séra Hjalti Guðmundsson
messar. Heimilisprestur.
Kópavogskirkja
Messa kl. 2. Bamasamkoma
kl. 10:30. Séra Gunnar Árna-
son.
Bústaðaprestakall
Barnamessa í Réttarhols-
skóla kl. 10:30. Guðsþjónusta
kl. 2. séra Ólafur Skúlason.
Keflavíkurflugvöilur.
Guðsþjónusta kl. 1.30 í
Grænási. Séra Bragi Friðriks-
son.
U D A G
Ásprestakall
Barnaguðsþjónusta í Laug-
arásbíói kl. 11. Almenn guðs
þjónusta í Hrafnistu (borð-
salnum) kl. 1.30. sr. Grímur
Grímsson.
Keflavíkurkirkja
Barnamessa kl. 11. Messa
kl. 2. Kolbeinn Þorleifsson,
stud. theol. prédikar. Stúdent
ar frá Guðfræðideild Háskól-
ans aðstoða. Séra Bjöm Jóns-
Jónsson.
Grindavíkurkirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 2. e.
h. séra Jón Árni Sigurðsson.
Fíladelfía, Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 8:30. Ás-
mundur Eiríksson.
Neskirkja
Barnasamkoma kl. 10. Guðs
þjónusta kl. 2, barnagæzla
iverður í kjallarasal kirkj-
unnar fyrir þriggja til sex
ára börn meðan á guðsþjón-
ustunni stendur. Séra Frank
M. Halldórsson.
Fíiadelfia, Keflavík
Guðþsþjónusta kl. 4.
Haraldur Guðjónsson.
Langholtsprestakall
Barnasamkoma í Safnaðar-
heimilinu kl. 10:30. Séra Áre-
líus Nielsson. Messa á sama
stað kl. 2. Séra Árelíus Niels-
son.
Fríkirkjan í Reykjavík
Messa kl. 2. Séra Þorsteinn
Björnsson.
Fríkirkjan i Hafnarfirði
Messa kl. 2. Séra Kristinn
Stefánsson.
Stóra-Núpskirkja
Guðsþjónusta kl. 2. Barna-
guðsþjónusta eftir messu. Sr.
Bernharður Guðmundsson.
Reynivallaprestakall
Messa að Saurbæ kl. 2.
Allra sálna messa. Séra
Kristján Bjarnason.
Háteigsprestakall
Barnaguðslþjónusta í Sjó-
mannaskólanum kl. 10:30. Sr.
Jón Þorvarðsson. Messa kl.
2. Séra Arngrímur Jónsson.
Laugarneskirkja
Messa kl. 2. Barnaguðs-
þjónusta kl. 10. Séra Garðar
Svavarsson.
Herferð gegn hungri. Tekið á
móti framlögum í bönkum útibú-
um þeirra og sparisjóðum hvar
sem er á landinu. I Reykjavík
einnig í verzlunum, sem hafa
kvöldþjónustu, — og hjá dag-
blöðunum, og utan Reykjavíkur
einnig í kaupfélögum og hjá kaup
mönnum sem eru aðilar að Verzl
unarsambandinu.
GAMALT og gott
Guðjón Korgur hét flækingur,
sem flakkaði öðru hverju um
Húnavatnssýslu og Skagafjörð.
Hann var feikilegur mathákur og
fékk viðurnefnið af því, að hann
var narraður til að éta kaffi-
korg, enda var hann talinn
heimskur.
Hann var úr Skagafirði, frá
Sölvanesi.
Eitt sinn kom hanh að Hofi
í Vatnsdal. Hann var settur þar
til borðs með öðrum og hætti
að snæða um leið og hinir, en
stóð ekki upp frá borðinu og
byrjaði svo aftur að éta-.
En í hléinu greip hann hend-
inni upp í hálsmálið undir skegg
sér, náði þar í væna lús, lagði
hana á borðið og drap hana á
nöglinni, svo áð small við hátt.
Einhver hafði orð á því, að
þetta væru ekki fínir mannasið-
ir við matborð.
Guðjón svaraði:
„Það er nú barnsvani frá Sölva
nesi að láta þær ekki sieppa lif-
andi, þegar maður nær þeim“.
Sunnftinaaftkóíar
Stúlka óskast
til vélritunar- og skrif-
stofustarfa. Góð kunnátta í
ensku og dönsku nauðsyn-
leg. Tilboð sendist af-
greiðslu Morgunblaðsins,
merkt: „Verzlun—2875“,
fyrir 11. nóv. n.k.
Sunii„„„ó^>n.oii K.r .li.M. og ]
K. í Reykjavík og Hafnarfirði
hefjast kl. 10.30 í húsum félag-
anna.
Sunnudagaskóli Fíladelfíu
hefst kl. 10.30 á þessum stöðum;
Hátúni 2, Hverfisgötu 44 og
Herjólfsgötu 8, Hf.
Sunnudagaskóli Hjálpræðis-
hersins.
Öll börn hjartanlega velkomin
sunnudag kl. 14.
sá NÆST bezti
Maður kom eitt sin.i með reiKning inn í búð til Stefáns Jónsson-
ar. kaupmanns á Norðfirði.
Stefán segist ekki geta greitt réikninginn.
Hinn kveður hann haía lofað því að greiða hann fyrir páska.
>á segir Stefán:
„Hvað er þetta, maður! Heldurðu, að það komi ekki páskar
aftur?“
AIHUGIÐ
að borjð saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
( Morgunbiaðinu en öðrum
biöðum.
Frá IMausti
í hádegi í dag og næstu daga bjóðum við
gestum vorum ljúffengt „kalt borð“,
ásamt einum heitum rétti, auk hinna
venjulegu fjölbreyttu rétta á matseðli
vorum.
MALST
Eldridansaklúbburinn
. heldur Gömlu dansa í kvöld kl. 9
í BRAUTARHOLTI 4.
ATH.: Borð ekki tekin frá.
Húsið opnað kl. 8.
ELDRIDANSAKLÚBBURINN.
Leiguíbúðir við
Kleppsveg
Hér með eru auglýstar til leigu 54 íbúðir við Klepps-
veg 66 — 76. íbúðir þessar eru í eigu byggingarsjóðs
Reykjavíkurborgar og eru sérstaklega byggðar til út-
rýmingar heilsuspillandi húsnæðis.
Úthlutunarreglur eru, sem hér segir:
1. Ibúðir þessar eru ætlaðar til útrýmingar heilsuspill-
andi húsnæðis. Að öðru jöfnu ganga þeir fyrir um
úthlutun íbúða, sem búa í heilsuspillandi húsnæði.
2. Umsækjendur skulu hafa verið heimilisfastir í
Reykjavík s.l. 5 ár. Heimilt er að gera undantekn-
ingu, ef umsækjandi hefur um stundarsakir á um-
ræddu 5 ára tímabili flutt í nágrannasveitir Reykja-
víkur vegna húsnæðisvandræða. Búseta í Reykjavík
er þó ætíð skilyrði.
3. Barnafjölskyldur skulu ganga fyrir við úthlutun
íbúða þessara. Lágmarksfjölskyldustærð skal vera
sem hér segir:
2 herbergja íbúð 3 manna fjölskylda, þar af 2 börn
3 herbergja íbúð 6 manna fjölskylda, þar af 3 börn
4 herbergja íbúð 7 manna fjölskylda, þar af 4 börn
4. Eigendur íbúða koma ekki til greina, nema um sé
að ræða algerlega óhæfar og heilsuspillandi íbúðir.
5. Að öðru leyti skulu umsækjendur úppfylla skilyrði
þau, sem sett eru í reglum um leigurétt í leiguhús-
næði Reykjavíkurborgar.
6. Leigumáli skal aðeins gerður til 2 ára í senn Væntan-
legir leigjendur skulu þá vera skuldbundnir til að
rýma íbúðina, ef þeir ekki uppfylla þær reglur, sem
kunna að veba í gildi um leigurétt í leiguhúsnæði
Reykjavíkurborgar. Húsaleiga skal reiknuð eftir
gildandi ákvæðum um hámark húsaleigu. Verði
ákvæði þessi felld niður setur borgarráð reglur um
greiðslu húsaleigu eftir íbúðir þessar.
7. Settar eru reglur um umgengni og reglusemi í íbúð-
um þessum og verður strangt eftirlit með því, að
reglum þessum verði hlýtt. ítrekuð brot á reglum
þessum skulu varða uppsögn.
Umsóknir skulu hafa borizt til húsnæðisfulltrúa skrif
stofu félags- og framfærslumála, Pósthússtr. 9 5. hæð
eigi síðar en mánudag 15. nóvember.
* Askilinn er réttur til tilfærslu úr leiguhúsnæði borg-
arinnar og herskálum.
Borgarstjórinn í Reykjavík.