Morgunblaðið - 06.11.1965, Blaðsíða 17
Laugardagur 9. nftv. 1965
MORGUN BLAÐIÐ
17
Carl P. Sundby:
Lýðháskóiarnr dönsku
og íslenzku handritin
GREIN þessi birtist fyrir
skömmu í ..Kolding Folkeblad,“
og hefir höf. óskað þess að hún
yrði einnig birt í Mbl. Hefur
Helgi Valtýsson rithöfundur þýtt
hana.
„Mjög er nú i~„rætt um Lýðhá-
skólann í Askov í minningu þess,
að liðin eru 100 ár frá stofnun
ekólans. Ætti það að vera sönn-
un þess, að enn starfi skólinn
röggsamlega á sama vettvangi og
áður. Og vissulega hafa margir
ungir menn í áranna löngu rás
öðlast þar mikilvægan skilning
á mannlífinu og fyrirbærum
jþess. Ég ætla hér að minnast
manns eins, sem ég kynntist á
Askov-skóla fyrir fullum þremur
áratugum, en síðan hefir hann
í ræðu og riti, m.a. í mörgum
Ibókum verið ómetanleg hjálp
arhella öllum þeim, sem æskt
hafa að kynnast íslandi og menn
ingu þess^ið fornu fari og einnig
á vorum dögum.
Maður þessi er rithöfundurinn
Bjarni M. Gíslason, sem unnið
Ihefir mjög mikilvægt starf hér-
lendis með víðtækri og rækilegri
kynningu á sögu íslands frá önd-
yerðu.
Deilurnar um Handaritamá'lið
hafa nú hjaðnað, og bíður það
nú lokaúrlausnar. En síðasta bók
Bjarna Gíslsonar mun lenjý eftir
á verða Dönum ærið umhugsun-
arefni.
Bjarni Gíslason afhjúpar ekki
einhliða misbeiting Dana og mis
ferli í sögulegum viðskiptum
eínum við fsland* en lætur einnig
í ljós þakkarskuld sína við
danska lýðháskóla með því að
telja að þeim beri heiðurinn fyr-
ir hvert eitt spor í rétta átt í
handritamálinu.
Þá er hann hefir gert grein
fyrir ýmsum rangfærslum og öf-
ugmælum í garð íslands hjá
dönskum sagnfræðingum, segir
hann m.a. á þessa leið:
— Þess myndi tæplega þörf
fyrir danska sagnfræðinga að
kappkosta með fáránlegum út-
ekýringum áð ranghverfa vömlu
einokunarverzluninni og breyta
henni í mannúðlegt skipulag,
hefðu alþýðleg áhrif Danmerkur
á hin smáu Norðurlönd verið lát-
in njóta sín, eins og vera ber í
sögu þeirra, — og ekki sízt í sögu
íslands. Vakning sú hjá hverjum
einstakling til oersónulegs og
þjóðlegs lífs, sem var mergur
máls sögulegrar ættjarðarkennd-
ax hinnar rómantísku aldar, var
í engu öðru Norðurlanda en Dan-
mörku þroskuð og göfguð í ná
vígi gegn erfðahugtökum valds
og ofbeldis. Þess vegna er títt rak
inn til Danmerkur sá samfélags
legi alþýðleiki og menningar-
þroski, sem þjóðir Norðurlanda
eiga nú við að búa. —
Hérlendis er Bjarni Gíslason
einstæður um þekkingu í sameig
inlegri dansk-íslenzkri sögu og
hefur kynnt sér þau málefni
rækilega um margra ára skeið,
bæði frá menningarlegu sjónar-
miði og stjórnmálalegu. Hann
ræðir málin af mikilli þekkingu
og djúpum skilningi. Það virðist
ef til vill all erfitt hinum aka-
demisku sérfræðingum að iður-
kenna yfirburði hans á þessum
vettvangi, sem þeir munu telja
sérfræðingum einum heimilan.
Þetta kon. greinilega ljós
1957 með Askov-bæklingnum „ís-
land-Danmörk og handritamálið".
Kitstjórnin reyndi árangurslaust
að skora á sérfræðinga til and-
mæla gegn gagnrýni Bjarna
Gíslasonar á Nefndarálitinu frá
1951.
Það er ljóst öllum þeim, sem
fylgzt hafa með deilunum í hand-
ritamálinu, að andstæðingar af-
hendingar handritanna hafa ver-
ið mjög órólegir og uggandi söfc
um trausts þess sem Bjarni Gísla
son naut hjá þjóðinni. Enginn
hefir ráðizt jafn yfirlætislega
kotroskinn gegn honum sem pró-
fessor Chr. Westergárd-Nielsen.
En dramb hans og rembilæti af-
hjúpar einmitt þann sannleika,
að hér berst hann hikandi og
órólegur* gegn hójttulegum and-
stæðingi.
í „Álborg Amtstidende" 6. nóv.
1964 lýkur nrófessorinn einni
blaðagrein sinni gegn Bjarna
Gíslasyni með þessu þreytu and-
varpi:
„En hvenær verður danskur al
menningur svo vel viti borinn,
að hann hætti að treysta tilvitn-
ana-vafningum og vífilengjum
Bjarna Gíslasonar?“ Hann beitir
hér orðatiltækinu: „danskur al-
menningur“ og viðurkennir þar
með — gegn vilja sínum — hin
víðtæku áhrif Bjarna Gíslasonar
á alla viðburðarás handrit. máls-
ins.
Þar eð Bjarni Gíslason l.efir í
öllu sínu starfi að handritamál-
inu borið það traust til dönsku
þjóðarinnar og þjóðarvilja, að
hún muni fús til að taka höndum
saman við fslendinga um réttláta
úrlausn þessa málefnis, ættum
við Danir að vera menn til að
viðurkenna, að án rækilegrar
fræðslu hans hefði danskur þjóð-
arvilji ekki verið jafn fær til að
ráðast gegn þröngsýnni Háskóla-
fylkingunni á þessum sérstæða
vettvangi!
Því hefir verið haldið fr m, að
það hafi verið herkænskuibragð
Bjarna Gíslasonar að samræma
skoðun sína á afhendingu hand-
ritanna skoðun oinna dönsku lýð
háskóla. Þessu er þó í raun og
veru alls ekki þannig varið.
Bjarni Gíslason var þegar frá
sínum fyrstu árum nemandi Ask
ov-sköla gagntekinn þeim alþýð-
leik, sem er algerlega andstæður
og andæfir hverri tegund þjóð-
ernis-gorgeirs og hroka. Ég var
Askov-félagi hans árin 1935-36 og
það er minnisstæður atburður
frá þeim árum sem veldur því,
að ég hefi fylgzt með starfi hans
síðan. —
Bjarni Gíslason gaf út fyrstu
bók sína um ísland 1937, „Glimt
fra Nord“, og var þá þegar vel
fær í dönsku. Skömmu eftir út-
komu bókarinnar í Danmörku
fékk hann tilboð frá útgáfuf jlagi
í Hamborg um þýzka þýðingu
bókarinnar. Ég geymi enn úr-
klippu úr dönsku blaði, þar sem
hinn hamingjusami Askov-nem-
m.a. að hin skrumkennda þýzka
hugsjóhafegrun „norrænna hetju
dáða og ættstofnsins“ sé aðeins
ranghverfur heilaspuni, og hann
segir ennfremur á þessa leið:
„Þegar mikilvæg fortíð nær tök
um á þjóðarhuganum, sem henni
er raunverulega tengdur, þá eru
það ekki vanhugsaðir sigurvinn-
ingar, sem þar rísa upp á ný og
gnæfa hæst, heldur þjóðarandinn
sjálfur. Allt annað hefir molnað
sundur og horfið eins og ryk og
reykur. Hinir sönnu „flytjendur“
hinna norrænu hugsjóna birtast
manni í þroskaðri stillingu og
geðstjórn, sem minnir á Njál
hinn vitra á Bergþórshvoli. Átök
andans eru i því fólgin að bæla
niður tilhneigingar þær, sem æpa
á blóð og tortímingu, og það er
að lokum hinn gullni þáttur hins
forna andlega lífs Norðurlanda!“
Sá sem þannig er innrættur,
hlaut brátt að finna hljómgrunn
hugar síns á vettvangi hinna
dönsku lýðháskóla og hrífast af
sjónarmiðum þeim, sem verið
hafa aðal-einkenni alþýðlegs
dansks stjórnmála-andófs í ald-
anna rás.
Þegar við Bjarni Gíslason vor-
um samtíða í Askov-skóla á dög-
um nazista-hættunnar, var títt
af • þeim sökum leitað siðfræði-
legrar brynjunar í sögu vorri og
minnisstæðum atburðum.
er minnisstætt erindi sem flutt
var um Skamlingsbakka-fundina
og framkomu Hjort Loren- ens á
stéttarþinginu slésvíska. Og er
kennarinn sagði: Hánn mælti
framvegis á danska tungu, vék
máli sínu að Bjarna Gíslasyni og
spurði:
„Hafið þið á íslandi nokkuð
sambærilegt að vísa tir ‘ Og
Bjarni svaraði tafarlaust:
„Já, í Njáls-sögu, þar sem sagt
er frá, er Gunnar á Hlíðarenda
leit aftur og mælti: — Fögur er
hlíðin, og hefir „ún mér aldrei
fegurri virzt, bleikir akrar og
slegin tún, og mun ég snúa heim
aftur og hvergi fara. — Þetta
hefir í aldanna rás verið skorin-
orð játning íslendings um tengsl
hans og samband við fósturjörð
ina!---------
Til er margt manna hérlendis,
sem ekki skilja né bera skyn
alþýðleik á þessum vettvangi, og
þó er eflaust rétt sú skoðun
Bjarna Gíslasonar, er hann full-
yrðir, að meðal allra stjórnmála-
flokka Danmerkur sé einmitt hið
alþýðlega undirstöðuatriði
danskrar réttsýni og löghlýðni
Hin sterku bönd sem tengja
mann við náttúru lands síns,
tungu og þjóðminningar, birta
oss í framanskráðu svari, hvers
virði handritin séu íslendingum,
Þar er engum vafa undirorpið
að þau eru líftaug menningar-
þjóðar,_— og sú spurning verður
þá harla nærgöngul og áleitin
hvort íslendingum sjálfum sé
ljóst, hve mikið þeir eigi Bjarna
Gíslasyni að þakka fyrir að beina
úrlausn handritamálsins í rétta
átt. (Leturbr. þýðanda).
Sjálfur hefir Bjarni Gíslaso»
Mér. ríka tilhneigingu til að þakka
allt þetta lýðiháskólunum dönsku
og alþýðu Danmerkur .Sannleik-
urinn er þó frekar sá, að lýðhá-
skólarnir og dönsk alþýða hefðu
ekki staðið jafnföst fyrir og sam-
taka án hinnar víðtæku fræðslu-
starfsemi hans og söguþekkingu!
★
Bjarni M. Gíslason hefir nú átt
heima í Danmörku um 30 ára
skeið sem góður vinur lands og
þjóðar, .en með bergmál orða
Gunnars á Hlíðarenda stöðugt
hljómandi í hjarta: Fögur er
hlíðin.........
Carl P. Sunov.
Belgrad, 4. nóv. — NTB.
• Leiðtogi pólskra kommún-
ista, Wladislav Gomúlka og
forsætisráðherra Póllands,
Josef Cyrankiewics, fara í
opinbera heimsókn til Júgó-
slavíu um miðjan nóvember.
Washington, 4. nóv. NTB.
TAGE Erlander, forsætisráð-
herra Svíþjóðar . kom í gær-
kveldi til Washington. Mun
hann dveljast þar nokkra
næstu daga og ræða við
bandaríska ráðamenn, m.a.
Hubert Humphrey, vara-
forseta; Dean Rusk, utanríkis
ráðherra og John T. Connor
viðskiptamálaráðherra. Er-
lander sagði á flugvellinum
í New York við komuna þang
að, að tilgangur fararinnar
væri fyrst og fremst að ræða
viðskipti Svia og Bandaríkja
manna. Hann mun m.a. fara
til Chicaco, Detroit og aftur
til New York.
andi segir skoðun sína um þýð-
ingu bókarinnar á þýzku. Þýð-
andi .var þýzkur norður-slésvík-
ingur í Haderslev, H. Chr. Han-
sen að nafni, og á þýzku átti bók-
in að heita: „Leuohtende Lland“.
Bók Bjarna kom samt ekki út
á þýzku af sérstæðri ástæ”u. Er
þýzka þýðingin var albúin til
prentunar, fékk höfundur langt
bréf frá ,,Hinu þýzka menningar-
gagnrýni,“ þar sem farið var
fram á vissar breytingar í bók-
inni, og var þar á móti heitið
stóru- upplagi bókarinnar.
Bjarni Gíslason sagði: Nei!
— Ég minnist þess, að þetta nei
var ótvírætt: Æsktu þeir að gefa
bók hans út, yrðu þeir að sætta
sig við hana, eins og hún kom
frá hans hendi með hina nor-
rænu menningar- og frelsishug-
sjónir sem þungamiðju.
Um sama leyti hafði Bjarni
Gíslason mikinn áhuga
„Hinni ungu landamæra-vörn
Hann skrifaði þá allmargar grein
ar í „Folkungbladet,“ m.a. and-
mælti hann hinni þýzku lögleysu
og óhæfu þar syðra.
Eftir samveru okkar í Askov
sendi Bjarni Gíslason mér í febr.
1941 eintak af þessu blaði með
ritstjórnargrein um „Nordisk
Renæssance“. Þar segir hann
Nokkrir af stofnendum félagsins sem mættir voru á samkomunni. Talið f. v. Steini Guðmundsson,
Magnús Eiríksson, Magnús Blöndal, Ellert Eggertsson, Kristín Jónsdóttir, Hannies Guðbrandsson,
Sigurjón Ingvarsson og Þorgils G uðmundsson.
50 ára afmælis Drengs minnst
YALDASTÖÐUM 20. október. —
UMF Drengur í Kjós minntist 50
ára starfsafmæli síns 16. okt. með
samkomu í Félagsgarði. Form.
félagsins Haraldur Jónsson á
Fremra-Hálsí setti samkomuna
og stjórnaði henni.
Á samkomunni voru ræður
fluttar og ávörp og inn á milli
almennur söngur sem Oddur
Andrésson stjórnaði. Fyrstur tal-
aði Ólafur Ág. ólafsson Valda-
stöðum. Rakti hann í stórum
dráttum sögu félagsins og tildrög
að stofnun þess. Stofnendur voru
31, þar af 2 konur. Munu 19
þeirra enn á lífi. Þorleifur Guð-
mundsson síðar ráðsmaður á
Vífilsstöðum var einn af aðal-
hvatamönnum að stofnun félags-
ins. Er hann látinn fyrir allmörg-
um árum.
Fyrsti form. félagsins var Þor-
gils Guðmundsson frá Valdastöð-
um. Aðrir í stjórn með honum
voru þeir Ellert Eggertsson á
Meðalfelli og Halldór Jónsson í
Káranesi. Einnig hann er látinn.
Þá fluttu ræður sr. Eiríkur J.
Eiríksson og Þorgils Guðmunds-
son. Sr. Eiríkur færði félaginu
að gjöf bláhvítan borðfána frá
UMFÍ.
Mörg ávörp voru flutt og
gjafir færðar félaginu. Form.
Átthagafélags Kjósverja Sigur-
bergur Elentinusson, færði félag-
inu 40 þús. kr. að gjöf frá Átt-
hagafélaginu er varið skal til
iþróttamála innan félagsins. —
Einnig færði hann að gjöf Ijós-
mynd frá fyrsta íþróttamóti sem
haldið var á Kollafjarðareyrum
milli Aftureldingar og Drengs
1918. Eyjólfur Magnússon form.
UMF Aftureldingar færði félag-
inu skeiðklukku að gjöf. Gísli
Snorrason form. UMF Kjalarness
færði blómakörfu að gjöf. Úlfar
Ármannsson form. UMF Kjalar-
nessþings flutti ávarp og færði
klukku með áletrun að gjöf.
Steini Guðmundsson á Valda-
stöðum gaf félaginu málverk
eftir Jón Stefánsson. Oddur
Andrésson flutti ávarp af hálfu
Bræðrafélags Kjósarhrepps og
frú Unnur Hermannsdóttir á
Hjalla flutti árnaðaróskir frá
Kvenfél. Kjósarhrepps. Þá flutti
Ólafur Andrésson oddviti i
Sogni árnaðaróskir og afhenti fé-
laginu ávísun frá Kjósarhrepp
að upphæð 10 þús. kr. Félaginu
barst skeyti frá Bjarna Ólafssyni
frá Vindási og fylgdi þar ávísun
að upphæð 5 þúsund kr. Var
Bjarni eitt sinn form. Drengs og
einn af fremstu hlaupurum fé-
lagsins. Fleiri skeyti bárust.
Eftir að salurinn hafði verið
rýmdur, hófst dansinn. Félagið
á vistlegt félagsheimili að Félags
garði. Hafa miklar umbætur
verið gerðar á húsinu í haust og
er það nú allt hið vistlegasta.
Húsið var byggt 1945.
Drengur hefur átt ýmsum góð-
um iiþróttamönnum á að skipa 1
frjálsum íþróttum og glímu og
einnig í öðrum greinum íþrótta.
Núverandi stjórn félagsins
skipa: Haraldur Jónss. Fremra-
Hálsi, Ólafur Ág. ólafsson Valda
stöðum, Hreiðar Grímsson Gríms
stöðum, Hulda Þorsteinsdóttir
Miðdal og Karl Karlsson frá
Hvammi.
St. G.