Morgunblaðið - 06.11.1965, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ
tawgardtagur 8. ru5v. 1968
Langt yfir skammt
eftir Laurence Payne
dottið eitthvað nýtt í hug. —
Bíðið andartak. Það gleður mig
að geta frætt yður á því að á
þessum tíma var ég að halda
fyrirlestur.
— Halda hvað?
— Fyrirlestur. Ég var í Harr-
ow og stóð þar uppi á palli,
frarhmi fyrir hundruðum af leik
húsgestum og var að fræða þá
um hættur sjónvarpsins. Dugar
það sem fjarverusönnun:
Ég fór aftur að verða dauf-
ur í dálkinn.
— Hvað voruð þér þar lengi?
nauðaði ég og hafði enn ekki
gefið upp alla von.
—■. Ég hætti að tala ktukkan
10.45 og fór svo og fékk vel í
staupínu með nemendahópi. Ég
slapþ þaðan ekki fyrr en eftir
miðhætti. Svo að ég hefði varla
getað gert þetta, eða hvað?
—i í>að hefur enginn verið að
bera[ það uppá yður, urraði ég.
Ég : var nú búinn að bæta
hræddri mús við tileygða kött-
inn, og þau sátu hvort gegnt
öðru sitt hvorum megin við
tóma músagildru og horfðust í
augú. .
Ég sagði: — Kæmi yður það
illa,: ef ég liti inn til yðar ein-
hvern tíma seinnipartinn í dag?
— Ég þarf að fara í upptöku
klukkan hálffjögur.
—. Ég hringi bara og ef þér
eruð - ekki við. anzið þér bara
ekki, Eg ætla að eiga það undir
hepþninni, .hvort ég hitti yður
heirfia. , i
-U Gerið þér það, svaraði hann
dauílega og svo lofaði ég hon-
um að sofna aftur, og braut
heilann um, hvort hann mundi
verá í gýlltum náttfötum og
hefði svört lök í rúminu. Ég
starði á þerripappírinn minn ...
þarha var komið stórt spurn-
ingarmerki yfir músagildrunni.
Það var barið að dyrum og
Saunders kom inn.
— Halló! sagði ég. — Það var
gaman að sjá loksins einhverja
mannlega veru!
Hann var nú orðinn miklu
hressari og kvaðst hafa farið
að mínum ráðum og farið í rúm
ið og fengið sér toddí. Ég sá á
svipnum á honum, að hann var
DL
Heinísþekklar gæðavörur
fleliplasi
I Golfflisar
dehflex
GóíG og ýeggflísar
uiastino
.Vinyldúkur á kork
eða fift undirlagi
S Gátfdúkur
víif ýfir 100 litir
LeitíS. upidýsinja hjá
-S
býggingavöruverzlun yðar
4
spenntur að vita, hvort ég hefði
orðið fyrir einhverju misjöfnu
í Hásetaklúbbnum, svo að ég
sagði honum allt sem þar hafði
gerzt. Þegar frásögninni var lok
ið, sagði hann: — Og við vitum
ekki, hver þessi Tom er, eða
hvað?
— Ja, ekki veit ég það.
— Þig grunar, að hann geti
verið þessi T.T. á miðanum í
pennanum? Saunders var með
nákvæmasta móti í dag.
□---------------------------□
19
□---------------------------□
— Það er ekkert, sem bendir
til þess, að T.T. sé persóna, benti
ég honum á.......— það gæti
eins vel verið staður. Tiddling-
ton Terrace eða eitthvað álíka
ómerkilegt.
Ég kallaði á Fortescue. —
Finndu fyrir mig skýrsluna um
Yvonne Lavalle. Hún var sýkn-
uð af morði fy.rir sex árum. —
Okkur væri rétt að athuga hana
nánar, sagði ég við Saunders.
Ef hún skyldi geta gefið ein-
hverjar upplýsingar,- er ekki
verra að vita það, sem vitað
verður um hana, annað en það,
að hún hefur slæma ávana. Hef-
urðu nokkurntjma rekizt á mari
juana á þínum ferðum? Hann
kvað svo ekki vera og ég fleygði
í hann vindlingnum frá Yvonne.
— Kveiktu í þessu og vittu,
hvernig þér finnst það.
Hann tók það milli fingranna,
varlega eins og það hefði verið
sprengiefni og þefað af því.
— Til hvers er fólkið að
þessu? Það þætti mér gaman að
vita.
— Það finnur víst til áhrifa
af því. Ef þú ert góður sölu-
maður dreifirðu þessu meðal
unglinga. Sumir þeirra vilja
gera hvað sem er vegná pen-
gera hvað sem er vegna spenn-
ingsins og ef það er andstæt-t
lögunum, því betra. Marijuna
er í sjálfu sér ekki hættulegt,
er mér sagt, það kemur fólki til
að hlæja, og það „eykur fýsn-
ina, en spillir fyrir framkvæmd-
um“, ef þú skiiur, hvað ég á
við. En það getur verið áfangi
að öðru og meira. Og það gefur
góðan arð, held ég, afþví að
það er dýrt að venja sig á það,
og að því getur komið, að mað-
ur selji öskuna hennar ömmu
sinnar fyrir eitt drag af því, en
askan af ömmunum er annars
ekki í háu verði nú á dögum.
Ég tók vindlinginn aftur og
setti hann í umslag ,til þess að
láta rannsaka hann seinna.
— Ef mér ekki skjátlast, er
það þetta, sem frúin mun tala
við okkur ixm í dag, og ég hef
von um, að geta handsamað ein
hvern, sem fyrir því stendur og
það væri. sex mánaðarkaupa
virði.
Saunders var íbygginn á
svipinn. — Þú heldur, að þessi
klúbbur sé við þetta riðinn, er
það ekki?
— Jú, það geturðu bölvað þér
upp á. Það var þessvegna, sem
hún gat ekki sagt alla söguna í
gærkvöldi. Veggirnir í klúbbn-
um eru með eyru allsstaðar. Og
ef hún segir frá einhverju, þarf
hún að fá lífvörð, býst ég við,
og ég er að hugsa um þennan
hr. Herter með uppgerða amer-
íska hreiminn. Það er sleipUr ná
ungi, ef slíkur er annars til.
Þú ættir að hitta hann, það get-
ur verið lærdómsríkt — ef hann
klappar þér með flauelslopp-
unni aii&ii, ertu atovtdauður.
En ef við mixuuunst á þef,
sagði Saunders, — þá er ég bú-
inn að koma honum fyrir mig,
þessum, sem var í íbúðinni hans
Dane. Konan mín gusaði honum
á mig í gærkvöldi. Ég leit á
hann, fullur áhuga. Það er eitt
af þessum sótthrennsunarlyfj um,
sem fást í sprautuflöskum og
heitir Bonk eða Honk, eða eitt-
hvað þvílíkt.
Ég kinkaði kolli hugsi. — Það
kemur heim. Hann gusar þessu
um allt, opnar svo glugga og
við fáum allir frískt loft.
— Mér þætti gaman að vita,
hvað það var, sem hann var að
reyna að losna við, sagði Saund-
ers.
— Er það? sagði ég, stuttar-
lega, og augu okkar beggja
hvíldu á umslaginu með mariju-
anavindlingnum í.
Málið „Réttvísin gegn Lav-
alle“ var .eftirtektarvert lestrar-
efni. Við lásum það nú ekki allt
enda var það mila á lengd Við
lásum aðeins glefsur.
Yvonne og maðurinn hennar
sem var leikhúss-umboðsmaður,
bjuggu á efstu hæð í ieiguhúsi
nokkru í Knightsbridge, og sam
kvæmt framburði hinna og
þessara manna og kvenna, sem
bjuggu samhliða þeim eða neð-
ar í húsinu, höfðu þau verið
býsna fjörugir nágrannar. Svo
virtist sem þau hefðu átt í á-
flogum, minnst þrisvar á viku
hverri, og þá fleygt ýmsu laus-
legu hvort í annað, en þegar
þau voru ekki í áflogum, léku
þau óperutónlist á radíófón, sem
var beint uppi yfir svefnher-
bergi vitnis að nafni Macaulay
Hoover, sem gerði ýmist að
hringja til'þeirra og kvarta yf-
ir hávaðanum eða grafa höfuð-
ið undir koddanum, eða berja í
loftið með gömlu kústskafti,
sem hann hafði við rúmið í
þeim tilgangi einum. Hann kall
aði sjálfan sig trésmið, sem yrði
að fara snemma á fætur til að
komast í vinnuna, og væri ekk-
ert hrifinn af tónlist, allra sízt
af þessu „óperuglamri“ ....
— Þú skilur vonandi afstöðu
hans, er það ekki? sagði Saund
ers.
Þetta kvöld, sem um vár að
ræða, sagði frú Lavalle rétt-
inum, var maðurinn hennar ó-
•venju veldrukkinn og hafði
„vaðið á hana“ og skammað
hana fyrir „þetta venjulega“,
sem virtist vera framhjáhald,
hórdómur, fjárkúgun, drykkju-
skapur óhæfni til allra húsmóð-
urstarfa .... og gæti hvorki ver-
ið ástmey, eiginkona né....
söngkona. Og það var nú það
allra meinlegasta. Þarna hafði
verið heitt um kvöldið og dyrn-
ar út á svalifnar opnar. Hann
hafði slagað__út í myrkrið og
stungið sér beint yfir grindverk
ið. Sækjandinn hélt því fram,
að grindverkið væri svo hátt, að
þetta gæti illa staðizt og að
þurft hefði snarpá hrindingu í
bakið til þess að koma honum
niður. En þá bar Yvonne það
fram, að þarna hefðu margir
bjórkassar verið á hvolfi upp
við grindverkið, og manni henn-
ar hefði tekizt að detta af ein-
um þeirra og yfir það.
Það var enginn vafi á því,
að hún hafði virzt mjög trú-
verðug í vitnastúkunni og haft
áhrif á kviðdóminn. Sjálfur
dómarinn hafði þegar hann gaf
yfirlit, bent á, að sannanir
skórti þarna mjög, og að sækj-
andinn • hefði lítið
við að styðjast. Kviðdómurinn
hafði ekki þurft néma sex mín-
útna umhugsunartíma.
— Jæja, hvað finnst þér?
sagði ég.
Saunders stangaði úr tönnun-
um í sér með eldspýtu.
— Hún var sýknuð. Ólíkir
skapsmunir voru ástæðan til
missættis þeirra, mundi ég
segja. Þau hefðu átt að losa* sig
hvort við annað.
— Hún virðist hafa verið á
sama máli, sagði ég þurrlega.
— Ég á nú við, að þau hefðu
átt að skilja.
Ég glotti til hans. — Þú gleym*
ir því, kall minn, að þau flug-
ust ekki á nema þrisvar á viku.
En ég spyr sjálfan mig, hvað
þau hafi verið að gera undir
hulu þessarar óperutónlistar,
það sem eftir var vikunnar.
— Erfði hún nokkuð eftir
hann?
— Allt, sem hún fékk eftir
hann var þessi skrifstofa, sem
virðist hafa verið steindautt fyr-
irtæki. Hann var ekki einu sinni
líftryggður.
— Þarna sérðu. Hún gat ekki
einu sinni haft neinn hag af
þessu. Og hvaða tilgang gat hún
þá haft?
Ég horfði á hann alvarlegur.
— Hann var búinn að segja, að
hún gæti ekki sungið, var ekki
svo?
— Og þessvegna. ...
— Og þessvegna hrinti hún
honum niður af svölunum.........
Svona fólk tekur sjálft sig há-
tíðlega, skilurðu. Þú skyldir
aldrei vanmeta stolt listamanns.
Þetta gaf honum nægilegt
umhugsunárefni, eftir að hann
hafði lokið við að stanga úr
tönnunum og lagt eldspýtuna ~ í
öskubakkann.
— Ég kem nú víst aldrei til
að skilja þá ... aldrei! Stundum
fer ég að hugsa um, hversvegna
ég sé yfirleitt að fást við þetta
verk.
— Segjum tveir, sagði ég
huggandi. Það er ekki okkar að
spyrja um ástæðurnar, heldur
berjast þar til yfir lýkur.
fyrr verður það víst ekki, sagði
hinn ágæti Saunders ... sjálfum
sér til mestu furðu.
Klukkan var að slá ellefu þeg
ar ég stillti á númerið hennar
Yvonne, og hún sló kortér yfir
þegar ég gafst upp. Það gat ver-
ið um þrennt að ræða: hún gat
verið sofandi, hún gat verið
fjarverandi og hún gat verið
dauð. Saunders, sem stóð hinu-
megin við borðið, var líka á-
hyggjufullur.
— Kannski hún hafi bara
skroppið út eftir brauði? sagði
hann heldur en ekki neitt.
Ég stikaði til dyra og skipaði
Fortescue að ná í bíl hánda okk
ur.
— Hvar er Freemantle?
— Hver?
— Freemantle. Bjálfinn á
símanum.
— Ég held hann sé í Chelsea.
— Sláðu upp Yvonne Lav-
alle í bókinni og finndu, hvar
hún á heima.
Ég fór í frakkann. Einhver ó-
skiljanleg vonzka hafði jripið
mig, Hví í skrattanum hafði ég
ekki fylgt henni heim í gær-
kvöldi? Það var alveg greini-
legt, að Herter hafði heyrt nokk
uð af samtali okkar. Ég þaut
gegn um ytri skrifstofuna og
Fortescue stakk að mér blaði.
— Já, þar til yfir lýkur...
DAM3PFIX — gufukatlar
Einkum hentugir fyrir:
Efnalaugar
Niðursuðuverksmiðjur
Mjólkurbú
Sútunarverksmiðjur
Sjúkrahús
Hjólbarðaverkstæði
Bifreiðaverkstæði
Afköst 125—1000 kg af gufu pr. stund við 10 kg
vinnuþrýsting á fercm. Full afköst eftir 2—3 mínút-
ur. — Veitum verkfræðilega aðstoð.
JÖTIiNN HF.
Hringbraut 119, sími 20500.