Morgunblaðið - 20.02.1966, Side 11
Sunnudagur 20. febrfiar 1966
MORG U N B LAÐIÐ
11
Hér situr danskur veiffimaður viff afla sinn, 9 bleikjur, sem
bann veiddi á skömmum tíma.
leitt er um klukkuíma sigl-
ing frá Narssruaq að veiði-
stöðunum út með firðinum,
en þetta er þó nokkuð breyti
legt eftir aðstæðum bverju
sinni.“
EKKI LAX
„Er þá alls ekki um veiði
í ám að rseða á þesssum tíma
árs?“
„Mér finnst rétt að taka
fram strax, til þess að firra
misskilningi, að um laxveiði
er hér ekki að ræða. Að vísu
mun lax ganga eitthvað í
tvær ár á öllu Grænlandi, en
þær eru langt norðan okkar
veiðisvæðis við Eiríksfjörð.
f>að hefur vuglað menn nokk
uð í ríminu að Danir kalla
yfirleitt allan vatnafisk, þar
á meðal Grænlandsbleikjuna,
„laks“, og hafa því margir
haldið að laxveiði vœri mikil
í Grænlandi. Laxveiðin, sem
til umræðu hefur verið í blöð
um að undanförnu, og talin er
ógua iaxastofninum í Evrópu,
fer eingöngu fram í net úfi
á hafi, fyrir utan SV-strönd
Grænlands. f>að er hinsvegar
ekki fiskur, sem gengur í
érnar á Grænlandi.“
„Sumir hafa og haldið, að
Grænlandsbleikjan sé sérstakt
í silungsafbrigði en svo er þó
ekki. Hér um að ræða sömu
bleikjuna, og gengur í ár hér
é íslandi (Salvelinus Alpin-
us). Veiðimenn, sem veitt
hafa í t.d. Fnjóská og Hafra-
lónsá í Þistilfirði, munu kann-
ast við hm skemmtilegu til-
þrif bleikjunnar á stöng.
Bleikjan við Grænland hefur
það umfram okkar bleikju, að
hún er þar í rni'klu meira
xnagni og er allverulega
*tærri.“
„1 ánum á Grænlandi er yf-
irleitt ágæt veiði frá apríl og
til maíloka, og síðan frá miðj
um ágúst og út september-
mánuð. Fyrir þessu eru tvær
ástæður, sem líklega standa
í nánu sambandi hvor við
aðra. 1 fyrsta lagi er það að
segja, að mest af fiskinum
gengur til sjávar síðast í maí,
og gengur ekki aftur í árnar
fyrr en í ágúst og septemiber.
Eitthvað er þó af fiski eftir
í ánum, og eitfhvað byrjar
að ganga í þær aftur þegar í
júlí, en hinsvegar er þá vatn-
ið í ánum yfirleitt eins og
versta leysingavatn, og sér þá
enginn fiskur agn, þótt því
væri fleygt í þær. Bergvafns-
ér eru ákaflega fáar á Græn-
landi, yfirleitt mjög vatns-
litlar og því um fremur tak-
markaða veiði að ræða í
þeim“.
VEITT í SJÓNUM
„Verður hér þá einvörðungu
um veiði í sjó að ræða?“
„Því er til að svara, að öll
hin skipulagða veiði verður
í sjó. Ef hins vegar einstakir
menn óska eftir því, að renna
í árnar, þá verður komið til
móts við þá í þeim efnum
eftir aðstæðum."
„Hvernig verður þessari
sjóveiði þá hagað, af bátum
eða frá landi?“
„Ætlunin er, að veiðimönn-
unum verði skipt í fjóra
hópa, allt að 12 menn í hverj
um. Hver hópur hefur bát til
umráða. Til gamans má geta
þess, að einn bátanna, sem við
komurn til með að hafa tjl
umráða, var eitt sinn lysti-
snekkja Hermanns Görings,
ríkismanskálks Þriðja ríkis
Hitlers. Farkosturinn heitir
nú Polar Star.“
„Hver veiðimannahópur fer
á ákveðinn stað morgun
hvern, og yfirleitt er veitt úr
landi, en hafi einhverjir á-
huga á því að veiða frá bátn-
um, er sá möguleiki fyrir
hendi. Aðal veiðitækið er
spónn.“
KYNNINGARKVÖLD
OG VEIÐIHORFUR
„1 sambandi við þetta hefi
ég hugsað mér, að halda í
vetur eða vor kynningarkvöid
með þeim mönnum, sem
hyggjast fara í þessa veiði-
ferð. Gefst veiðimönnunum
þar tækifæri til þess að spyrja
um veiðitæki og útbúnað,
veiðina sjálfa í smáatriðum,
og verða þeim einnig sýndar
bæði kvikmyndir og Skugga-
myndir frá veiðiferðum á
þessum slóðum.
„Og hvað má segja utm
veiðihorfurnar almennt?“
„Það er eins um Grænland
og aðra staði í heiminum. Það
þarf naumast að viðhafa mörg
orð um það við veiðimenn, að
hvergi er hægt að lofa mönn-
um með 100% vissri veiði,
og gildir það jafnt um beztu
veiðiár íslands og veiðina í
Grænlandi. Hinsvegar er það
reynsla mín af margra ára
veiðiskap í Grænlandi, að ég
hefi aldrei farið í veiðiferð á
réttum tíma án þess að fá
fisk. Stundum hefur veiðin
á þess-um tíma verið ofboðs-
leg, og menn verið í vand-
ræðum með að koma henni
heim, en stundum hefur þeim
vandræðum ekki verið til að
dreifa. Ég vil segja, að undir
öllum eðlilegum kringum-
stæðum megi menn fremur
en hitt búast við góðri veiði,
í dásamlegu umhverfi, sem
ég tel vera eitt af höfuðatrið-
um skemmtilegrar veiði-
mennsku. Grænland sem slíkt
burtséð frá allri veiði, er eitt
af þeim mest heillandi lönd-
um, sem íslendingar eiga kost
á að heimsækja," sagði Þor-
steinn Jónsson að lokum.
— h.h.
helztu veiffLstöffunum viff Eiríksfjörff, og þar hefur mörg bleikjan verið dregin.
Ameriskir
kjólar
Tökum upp á morgun
nýja sendingu af glæsi-
legum SÍÐUM og
STUTTUM
SAMKVÆMIS-
K J Ó L U M
Tízkuverzlunin
Rauðarárstíg 1
Sími 15077.
BÍLARAF SF.
Tilkynnir
Höfum flutt verkstæði vort frá Rauðarár-
stíg 25 að Höfðavík v/Sætún (gamla
netagerðin).
Innkeyrsla hjá Þresti v/Borgartún
einnig Sætúnsmegin.
Verkstæðið Höfðavík v/Sætún Sími 2-47-00
Verzlunin Hverfisgötu 108 Sími 2-19-20.
Bókari
Ungur maður óskast til bókarastarfa hjá fyrirtæki
1 Keflavík sem er með fiskvinnslu og útgerð. Tilboð
sendist blaðinu merkt: „Bókarl — 8587“.
Valhúsgögn auglýsir
MÁNASTÓLARNIR aftur fáanlegir
Góð fermingargjöf.
Verð aðeins
Kr. 1800,oo
Valhúsgögn
Skólavörðustíg 23 — Sími 23375.