Morgunblaðið - 02.03.1966, Blaðsíða 2
ar
2
MORCU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 2. marz 1966
Vatnsskortur
austan fjalls
Holti á Síðu 28. febr.
Veturinn hér í sveitunum
imilli sanda hefir verið kaldur
eins og annarsstaðar. Lítill snjór
en frosthart öðru hvoru. Vatns-
skortur er og hafa flestar heim-
ilisrafstöðvar, sem ganga íyrir
'vatnsafli, stöðvast. Enda flestar
orðnar ónógar og úr sér gengn-
ar þó að slíkt komi ekki til. Nú
liafa næstum allir umráðamenn
hygginga á þessu svæði snúið
sér til raforkumálastjóra og raf-
orkuráðs með áskorun um að
leyst verði rafmagnsþörf þessara
sveita og hafa eigendur einka-
stöðva skuldbundið sig til að
kaupa rafmagn frá samveitu.
Samgöngur hér innan héraðs
Ella syngur
aftur í kvöld
MISSAGT var í Mbl. í gær að
Ella Fitzgerald héldi sína síðustu
tónleika í gærkvöldi kl. 11.15.
Ella heldur aðra tónleika í kvöld
á sama tíma við sama lága verð-
inu, 300 kr.
A þeim fjórum tónleikum, sem
Ella Fitzgerald hefur þegar hald
ið á íslandi htfur söng hennar
verið tekið framúrskarandi
vel. Á morgun heldur
Ella síðan ásamt umboðsmanni
sínum og tríói Jimmie Jones til
Kaliforníu, þar sem hún ætlar
að hvíla sig, að því er hún sjálf
segir. Mun henni vafalaust ekki
veita af hvíldinni, en íslenzkir
blaðamenn hafa orðið þess á-
þreifanlega varir, að söngkonan
er mjög þreytt eftir erfiða hljóm
leikaför um flest þjóðlönd
Evrópu, þar sem henni hefur
verið tekið með kostum og kynj-
um af milljónum aðdáenda.
Söngkonan sem er kominn hátt
á fimmtugsaldur hefur gefið
það í skyn nokkrum sinnum á
síðustu árum, að hún muni brátt
hætta ferðalögum sinum og er
því bersýnilega um síðasta tseki-
færi að ræða fyrir íslenzka að-
dáendur Ellu, að sjá hana og
heyra í Háskólabíói í kvöld.
hafa verið góðar í vetur, en oft
samgönguerfiðleikar á Mýrdals-
sandi og austur Mýrdal.
Með staðsetningu hins nýlega
byggða vegar yfir Mýrdalssand
hefir verið gert verkfræðilegt
glappaskot, með því að fara með
veginn upp undir Hafursey, í
stað þess að fara niður í Álfta-
ver og þaðan svokallaða syðri
leið yfir sandinn í beina stefnu
á brúna á Múlakvísl. í>á hefir
það sýnt sig að hinn nýi vegur
yfir Skaftáreldahraun sem nú er
verið að leggja er og verður
ómetanleg samgöngubót, á hon-
um festir ekki snjó.
í sumar og vetur hefir verið
talsverður timburreki hér með
stdöndinni, en reki hefir verið
sem enginn undanfarin ár.
Fréttaritari.
Danska stjórnin náði
ekki samkomulagi í gœr
— um veitingu réttinda til flugs milli Fœreyja og Khafnar
Mohr Dam mœlir með Faroe Airways
Einkaskeyti til Mbl. frá Khöfn.
1. marz.
• Á hinum vikulega ráðuneyt-
isfundi sínum í dag ræddi
danska stjórnin um það, hverj-
um veita skyldi réttindi til þess
að halda uppi flugferðum á flug
leiðinni milli Kaupmannahafnar
og Færeyja — en stjórnin hefur
hallazt mjög að því að vcita þau
íslendingum einum.
• Ekki tókst þó samkomulag
innan stjórnarinnar í dag um
þetta mál svo sem vænzt hafði
verið — eru enn ýmis atriði, sem
þarfnast nánari athugunar, en
talið er víst, að henni verði
fljótt aflokið og ákvörðunin
verði tekin eftir fáeina daga.
Poul Andersen, skrifstofu-
stjóri í samgöngumálaráðuneyt-
inu upplýsir, að meðal þeirra
atriða, sem athuga þurfi nánar,
séu þær hugsanlegu afleiðingar,
sem það kann að hafa fyrir aðr-
ar innanlandsflugleiðir Danmerk
ur ef erlendu flugfélagi — þ.e.
íslenzku — verða veitt réttindi
til Færeyjaflugsins. Önnur at-
riði þurfa einnig athugunar við,
en Andersen vildi ekki segja nán
ar, hver þau væru.
Svo virðist sem Kai Lindberg,
samgöngumálaráðherra, hafi þeg
ar í síðustu viku sagt forstjóra
Faroe Airways, Jörgen Peder-
sen, að stjórnin hallaðist að því
að veita íslendingum flugréttind
in. Pedersen hefur sagt, að fái
íslendingar þau, muni Faroe
Airways leggja málið fyrir um-
boðsmann danska þingsins og
kvarta yfir þessari stjórnarihlut
un, því að algert vafamál sé,
hvort stjórnin geti með nokkru
móti réttlætt þá ráðstöfun að
taka flugleyfið af Farœ Air-
ways. Félagið hafi haft það í
Gífurlegt fannfengi er um allt Hérað, eins og þessi mynd frá Egilsstöðum sýnir gleggst.
Tjón af fannfergi á Héraii
Egilsstaðir, 1. marz.
FNDANFARNAR vikur hefur
kyngt niður snjó hér um slóðir,
og er nú svo komið að jafnvel
snjóbílum er illfært á milli.
Mjólkurflutningar fara nú fram
með sleðum, sem tengdir eru
aftan í snjóbílana. Unnið er dag
nótt, ef þvi er að skipta, til að
halda flugvellinum opnum, enda
er flugið nú eini samgöngu-
möguleikinn sem við á Egils-
stöðum og í Fljótdalshéraði eig-
um nú kost á.
, Tjón hefur orðið á búfénaði
og mannvirkjum af fannkyng-
inu. Eru gripahús í hættu víða
um hérað og hafa menn undan-
farið verið að ryðja snjónum af
húsum, en ekki hefur það nægt,
því á Skeggjastöðum í Jökul-
dal hrundi 230 kinda hús undan
snjóþyngslunum, en það bjarg-
aði fénu, að þakið staðnæmdist
á milligerðum og görðum. Var
kindunum komið fyrir í íjárhús-
um nágrannabæjanna. í Grænu-
hlíð í Hjaltastaðaþingá hrundi
þak á fjárhúsi undan snjónum
og drápust fimm kindur og
fleiri meiddust. Nú fer að verða
olíuskortur á mörgum bæjum á
Héraði, þar sem olían er notuð
til upphitunar.
Færðin er mjög þung í Hjalta-
staðaþinghá og um alla Ut-
mannasveit, Hróarstungu og
Jökulsárhíð.
í kvöld er byrjað að rigna
lítilsháttar og greiðist þá vænt-
anlega brátt úr samgönguerfið-
leikunum hér. Verður beðið með
að ryðja vegi ef hlákan helzt
næstu daga. — Steinþór.
tvö ár og lagt í miklar fjárfest-
ingar, m.a. várið miklu fé í skipu
lagningu, vegna þess að það hafi
vænzt þess að fá leyfið endur-
nýjað.
Það er, sem kunnugt er, frá
landsstjórninni færeysku sem
óskin um að veita íslendingum
réttindin er komin. Er haft eft-
ir stjórninni, að málið hafi ver-
ið lagt fyrir formenn stjórnmála-
flokkanna á færeyska lögþing-
inu, — en í dönskum dagblöðum
hefur komið fram, að a.m.k.
Mohr Dam, formaður flokks
færeyskra sósíaldemókrata, hef-
ur ekki fjallað um málið, og að
hann hefur, með bréfi til sam-
göngumálaráðuneytisins, mælt
með því, að Faroe Airways fái
heimild til flugsins, þar sem það
félag eitt hafi haldið uppi flug-
ferðum til Færeyja að vetri til.
— Rytgaard.
Leiðrétling
í minningargrein um Magnús
Magnússon kaupmann hér í blað
inu í gær, féll niður lína í sjöttu
málsgrein, er olli ruglingi. Birt-
ist því mólsgreinin hér eins og
hún átti að hljóða:
Árið 1903 fór Magnús alfar-
inn að heiman. Lagði þá leið
sína til Reykjavíkur. Hann fékk
fljótlega starf við verzlun Er-
lendar Erlendarsonar í Aðal-
stræti 9. En á næsta ári réðist
hann til starfa í Edinborgar-
verzlun. Fyrst á Akranesi, en
síðan í Reykjavík. En brátt réð-
ist hann til verzlunarinnar Ó. L.
Lárussonar & Co, er sendi hann
til ísafjarðar, til þess að stofna
þar útibú frá verzluninni.
Akureyri
Opið í kvöld, miðvikudag, frá
kl. 8 í Sjálfstæðishúsinu niðri.
Kvikmyndasýning og dans.
Hinir vinsælu Comet leika.
Aukið úrval leiktækja.
Framkvæmdanefndin.
FÉLAGSHEIMIU
Opið hús
í kvöld
HEIMDALLAR
Slys m
í Borgarfirði
Síðdegis sl. sunnudag varð
1 hörmulegt bifreiðaslys á Staf
holtstungnavegi í Borgarfirði,
eins og frá var skýrt í blað-
iu í gær. Beið bifreiðastjór-
inn, Birgir Vestmann Bjarna-
* son, bana er Fordbifreiðin,
I sem hann stjórnaði, og í voru
sex manns, valt á veginum
’ skammt frá brúnni við Norð-
' urá og stakkst síðan fram af
tveggja metra hárri vegar-
I brún. Annar maður í bifreið-
inni, Barði Erling Guðmunds-
1 son slasaðist lífshættulega og
I var fluttur í Landakotsspítala j
í sjúkraflugvél. Var líðan
I hans í gærkvöldi svipuð og
daginn áður. Fjórir aðrir
menn, sem í bifreiðinni voru,
sluppu minna meiddir. Mynd-
in er tekin á slysstað í gær-
I dag.
— Samningar
Framhald af bls. 32.
Þeir 40 sem greiddu atkv. gegn
tillögunni lutu á fundinum for-
ustu Kjartans Helgasonar og
Eggerts Þorbjarnarsonar og
vilja neita allri samvinnu viS
samstarfsaðila Sósialistaflokks-
ins innan Alþbl. og gengu þeir
undir nafninu „óða liðið“.
Langvinnt samningaþref.
Fundur þessi er liður í lang-
vinnu samningaþrefi, sem staðið
hefur innan Alþbl. um stofnun
Alþbl. félags í Reykjavíik en
mörg slík félög hafa verið stofn-
uð út á landi. Fyrir nokkru tók-
ust níu forustumenn kommúnista
í verkalýðshreyfingunni það verk
efni á hendur að reyna að sam-
eina Sósíalistafélag Reykjavíkur
og Málfundafélag Jafnaðarmanna
um stofnun Alþbl.félags í Reykja
vík, sem staðið gæti að sameig-
inlegu framboði þessara aðila i
borgarstjórnarkosningunum i
vor. Guðmundur J. Guðmundsson
hefur haft á hendi forustu fyrir
þessum mönnum. Sósialistafélag
Reykjavíkur hefur lengi þybb-
ast við að taka þátt í stofnun
slíks félags en hefur nú fallizt
á það, ef aðilar hins nýja Alþbl.
félags verða Sósíalistafélagið og
Málfundafélag jafnaðarmanna
sem slík en ekki einstaklingar
innan þeirra. Þessu hafa viðsemj
endur Sósíalistafélagsins algjör-
lega hafnað og eru þessar samn-
ingaviðræður nú algjörlega
strandaðar, þar sem almennur
félagsfundur Sósíalistafélags
Reykjayíkur hefur lýst samþykki
sínu við stefnu félagsstjórnarinn
ar í málinu. Er því allt á huldu
um það enn, hvernig háttað
verður framboði Alþbl. í Reykja
vík í vor eða hvort Sósíalista-
flokkurinn verður að ganga einn
til leiks að þessu sinni án stuðn-
ings samstarfsaðitja hans í Al-
þýðubandalaginu.