Morgunblaðið - 02.03.1966, Blaðsíða 30
30
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 2. marz 1966
KörfuknatUeiksmötið:
Armann vann IR 55-54
í hörkuspennandi leik
og KR hafði tögl og hagldir móti
KFR og vann 90—64
^ Á R M A N N SIGRARl f R í fslandsmólinu í körfu-
knattleik á mánudagf, og- KR sigraði KFR 90—64. Var viðureign
Ármanns og ÍR 'ein sú mest spennandi og harðasta sem sést hefur
í langan tíma milli íslenzkra liða og var hin bezta skemmtun, fyrir
áhorfendur. Leikur KFR og KR var hins vegar ójafnari og lauk
með stórum sigri KR 90—64.
ÍR—Ármann.
Taugaóstyrku-r einkenndi
fyrstu mínútur leiksins og þegar
tíu mínútur voru af leik, var
staðan 5—3 Ármanni í vil og
höfðu ÉR-ingar þá brennt af 7
vítaskotum, sem sýnir að eitt-
hvað hafa leikmennirnir verið
miður sín. Færist nú heldur líf
í lölkinn og ná Ármenningar
sex stiga forystu í hálfleik 25:19.
í síðari hálfleik var leikurinn
eirns og áður segir gífurlega
spennandi og jafn, og Skiptust
liðin á um forystuna, eitt og tvö
stig á víxl. Þ-egar fjórar mínút-
ur eru til leiksloka hafa ÍR-ing-
ar yfir 47—46, og Ármann kemst
yfir 52:47. Ein mínúta eftir stað-
an 54:53 fyrir Ármann, Birgir
tekur tvö vítaköst og hittir í öðru
55:53. Jón Jónasson ÍR fær tvö
vítaköst og tækifæri til þess að
jafna en hittir aðeins öðru skot-
inu 55:54, Ármenningar hafa
knöttinn og sækja upp völlinn,
fimm sekúndur eftir, ÍR nær
knettinum og senda fram Hólm-
ukíðaþing
á ísalirði 8. apríl
SKÍÐAÞING verður haldið á
fsafirði 8. apríl 1966, föstudaginn
langa. Málefni sem óskað er
eftir að tekin verði fyrir á þing
inu, skulu hafa borizt stjóm
SKÍ að minnsta kosti mánuði
áður, en þing hefst. (Frá SKÍ).
Belgiska liðið Anderlecht
vann Real Madrid á dögunum
með 1—0 í fyrri leik liðanna
í 8 iða úrslitum um Evrópu-
hikarinn. Leikurinn fór fram
í Brussel.
steinn er einn frammi við körf-
una en sendingin var handar
breidd of há og snerti fingur-
góma hans og útaf, og leiknum
er lokið. Þar má segja að ÍR
hafi haft fingur á sigrinum á
síðustu sekúndunum.
Ármenningar geta þakkað ein-
um manni þennan sæta sigur og
er það Birgir öm Birgis, sem
átti stórglæsilegan leik þrátt
fyrir meiðsli á handlegg. Hefur
ekki í langan tíma sést slík
frammistaða að Hálogalandi. Bar
hann af í þessum leik í sókn,
vörn, og fráköstum og skoraði
saimtals 2ð stig, einnig átti
Davíð góðan leik með 13 stig,
en Hallgrímur sem oft hefur
skorað mikið átti í erfiðleikum
gegn góðri vörn Sigurðar Gísia-
sonar í ÍR. Hjá ÍR átti Hólm-
steinn beztan leik og skoraði
21 stig. Dómarar voru Jón Ey-
steinsson og Einar Oddsson, og
gerðu mjög erfiðu hlu-tverki góð
skil.
KR-KFR.
f upphafi var leikurinn jafn,
KFR kemst yfir 7:3, en þá
breyta KR-ingar yfir í pressu-
vörn, þ.e. dekfca alveg frá enda-
mörkum vallarins. Kom þessi
vörn KFR alveg úr jafnvægi og
á skömmum tíma er staðan orðín
25:13 fyrir KR. í hálfleik var
svipaður munur 42:30. Síðari
hál'fleikur hófst með KFR sókn
og tekst þeim að minnka bilið
ofan í 54:45, eftir það var eins
og uppgjöf kæmi í vörnina og
KR-ingar síga hægt og örugg-
lega upp í 26 stiga mun í lokin
90—64, og notuðu síðari hlut-
ann unga og lítið reynda ann-
ars flokiks menn og sitóðu þeir
vel fyrir sínu, eins og Sigurður
sem sfcoraði 8 stig þann stutta
tíma sem hann var inná.
KR-ingar áttu flestir góðan
dag, einkum þó Kristinn og Kol-
beinn sem skoruðu 16 og 17 stig,
og réðu KFR-ingar ekkert við
Kristin, sem hirti fjölda frá-
kasta og átti ótal sendingar á
samherja sem skoruðu. KFR
liðið átti fremur s-lakan leifc og
var Þórir beztur þeirra með 25
stig og mörg fráköst, og var
hann sá eini sem sýndi góðan
leik. Dómarar voru Guðmundur
Þorsteinssons og Guðjón Magn-
ússon og dæmdu af hreinni
snilld
01-úrslitin sem aldrei sáust
ÞRETTÁN ára skólastúlka í
S-Afríku, Karen Muir, hefur
tvívegis á þremur dögum
bætt heimsmetið í 110 yarda
(101 m) baksundi.
1 gær sigraði hún á meist-
aramóti S-Afríku í Durban
og synti á 1:08.0 mín sem er
3/10 úr sek. betri tími en
heimsmet er hún setti á laug-
ardaginn í sömu laug.
Metið í gær var reyndar 3.
heimsmetið sem sett er á þess
ari vegalengd á 8 dögum. Að-
alkeppinautur Karenar litlu
landi hennar Ann Fairlie (17
ára) hóf leikinn með því að
synda á 1:08.6 mín í Durban.
Var það 1/10 úr sek betra en
heimsmet Karenar Muir sem
sett var í Blackpool í ágúst
sl.
Og nú hefur Karen Muir
launað Ann Fairlie lamihið
gráa. Iþróttafréttamenn í S-
Afríku líkja baráttu þeirra
Karenar og Ann á mótinu í
gær sem „Olympíuúrslitunum
sem ekki fengu að sjá dags-
ins ljós“. S-Afríka var nefni-
lega út af kynþáttamálum
neitað um þátttökurétt í OL í
Melborne.
M0LAR
Egyptaland vann Búlgaríu
2—1 í Iandsleik í knattspyrnu
í Kairo á sunnudaginn. í hálf
leik stóð 2—0.
Rússar unnu Finna 24—15
í landsleik í handknattleik á
sunnudaginn. Þetta var liður
í undankeppni heimmeistara-
keppninnar. Rússar og A-
Þjóðverjar komast í loka-
keppnina en Finnar eru úr
leik.
Frakkinn Michel Jazy setti
á sunnudag óstaðfest heims-
met á 1500 m hlaupi innan-
húss. Hann hljóp á 3:40.7.
Júrgen May A-Þýzka. átti
áður bezta tímann 3:41.9.
Sama dag, en á öðru móti
jafnaði A-Þjóðverjinn S. Her
mann bezta heimstímann í
30000 m hlaupi inni, hljóp
á 7:49.0. Hann átti sjálfur
hezta heimstímann áður, en
hann var 4.2 sek. lakari.
Sigri Hrafnhildar
ógnað í kvöld?
Pétur Kristjánsson aftur með
og sundfólk úr MA
í kvöld kl. 8.30 fer fram hið
árlega sundmót KR í Sundhöll
Reykjavíkur. KR-ingar munu að
venju vanda vel til mótsins og
m.a. er þar keppt um tvo fagra
bikara, „Flugfreyjubikarinn“
sem Rögnvaldur Gunnlaugsson
gaf til minningar um systur
sína er fórst í flugslysi og er
um hann keppt í 100 m skrið-
sundi kvenna og einnig er
keppt um „Sindrabikarinn" í
100 m. bringusundi karla.
Á Hvað skeður hjá nöfnunum.
Það verður án efa mjög gam-
Rúmenar burstuðu Norðmenn 19-8
Sýndu frábært samspil af meistaraklassa
66
99
RÚMENSKU heimsmeistar-
arnir í handknattleik léku í
gær síðasta leik sinn áður en
þeir mæta ísl. landsliðinu í
íþróttahöllinni í Laugardal á
laugardag og sunnudag. Léku
Rúmenar nú aftur við Norð-
menn og fór síðari leikurinn
fram í Osló í gær. Nú náðu
Rúmenar algjörum tökum á
leiknum og unnu með rótar-
bursti 19—i.
í hálfleik stóð 7—2 og
höfðu Rúmenar algera yfir-
burði, einkum þó í síðari hálf
leik. Hið unga og tiltölulega
óreynda lið Norðmanna megn
aði aldrei að veita þá mót-
spyrnu, sem það gerði í fyrri
leiknum í Sandefjord um
helgina sem lauk með rúm-
enskum sigri 17—12.
Mörk Rúmena skoruðu nú
Ioan Moser 5, Cheorge Gruia
5, Cornel Otea 3, Iosif Iacob
2, Mircia Costache 2 og Mihai
Marinescu og Gezar Nica sitt
hvort.
Mörk Norðmanna skoruðu
Graff-Wang 2, Cappelen 2,
Svhönfeldt Per Graver, T Han
sen og JE Utberg eitt hver.
Bæði lið skoruðu 1 mark
úr vítakasti.
NTB segir að eftir já-
kvæða frammistöðu í fyrri
leiknum hafi „nýja norska
landsliðið valdið miklum von
brigðum. En rúmenska liðið
sýndi allt annan og betri leik,
vel æft spil af meistaraklassa,
svo vel útfært og svo ná-
kvæmt að vörnum varð varla
við komið.
Fréttamaður NTB segir að
ekki sé hægt að segja að
nokkur Norðmannanna hafi
brugðizt, en þeir hafi ekki
mátt sín betur gegn
rúmönsk meisturunum. Hann
bendir þó á að norska
liðið hafi misst af mörgum
gullnum tækifærum til aó
skora og þar hefðu skotmenn
með leikreynslu nýtt færin.
Svíinn Lennart Larsson
dæmdi leikinn.
an að sjá viðureign þeirna nafn-
anna Hrafnhildar Guðmundsdótt
ur ÍR og Hrafnh. Kristjónsdóttur
Á í 100 m. skiðsundinu. Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir hefur
v&rið hand'hafi Flugfreyjubikars
ins lengi, enda verið ókrýnd
drottning kvennasunds hér.
En nafna hennar Kristjáns-
dóttir hefur tekið mjög miklum
framförum og á siðasta móti
var munurinn á þeim svo lítill
að allt virðist geta skeð varð-
andi úrslitin.
f bringusundi karla eru meðal
keppenda þeir Árni Þ. Kristjáns
son Hafnarfirði, Reynir Guð-
mundsson Á nýbakaður Rvikur-
meistari og Gestur Jónsson SH
náði beztum tíma á síðasta móti.
Þetta ætti að vera trygging fyrir
góðri keppni.
í 100 m skriðsundi berjast
þeir Guðmundur Gíslason ÍR
og Davíð Valgarðsson IBK —
en að auki bregður Pétur
Kristjánsson si gamli garpur,
sér enn á ráspallinn og þó
hann blandi sér e.t.v. ekki í
stríðið um 1. sætið mun hann
án efa sýna tilþrif
Þá er auk annars keppt í 50
m. baksundi karia og mætast
þessir þrír þar aftur auk fleiri. •
Það ber til nýlundu að
Menntaskólanemar frá Akur-
eyri verða með í ýmsum grein
um mótsins sem gestir, en
þeir eru á leið til skólamóts-
ins sem haldið verður á mið-
vikudaginn. Auk þess senda
þeir tvær sveitir í síðustu
keppnisgrein mótsins 4x50 m.
skriðsund karla.