Morgunblaðið - 08.03.1966, Page 28
Langstæista og
fjölbieyitasta
blað landsins
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
VE strandaði
88 kassar af bjór
úr Mánafossi
Óljósf live mikið er lögmæt eign
ÞEGAR Mánafoss kom til
Reykjavikur fyrir helgi tóku toll
verðir í land úr skipinu 88 kassa
af erlendum bjór. Þar eð skipið
hafði verið tollafgreitt úti á
iandi og skjöl ekki enn borizt
tollafgreiðslunni hér, áttu toll-
verðir erfitt með að greina að
hve miklu leyti hér væri um
smygl að ræða eða hve mikið af
bjórnum gæti verið lögmæt eign
skipverja.
Mánafoss hafði hér stutta við-
dvöl og var farinn út á land, er
tollskjöl bárust. Þessvegna ligg-
ur ekki enn ljóst fyrir um hverj-
ir væru eigendur að bjórnum. En
skipverjar þurfa væntanlega að
svara fyrir það, er skipið kemur
aftur til Reykjavíkur.
Það er vart hægt að lá lögregl uimi að hún skyldi vera ofurlítið tortryggin á ferðir þessara vera
við bakdyr Útvegsbankans sl. laugardagskvöl. (Sjá nánar á bls.3) — Ljósm: Sv. Þonnóðsson.
á Faxaskerí
SMpshöfnin komst yfii í Lóðsinn
í GÆRKVÖLDI strandaði Vest-
mannaeyjabáturinn Eyjaberg
VE 130 á vestanverðu Faxaskeri,
sem er rétt norðan við Heimaey.
7 menn voru á bátnum og kom-
ust þeir á gúmmíbát yfir í Lóðs-
inn. Eyjaberg var heilt á strand-
stað er skipverjar yfirgáfu það,
e.n búizt við að það mundi
höggva sig niður í nótt og eyði-
leggjast.
Þetta gerðist kl. 19.40, er Eyja
berg var að koma úr róðri með
12 tonn af fiski eftir daginn. Fór
Eyjabergið venjulega siglinga-
leið inn milli Heimaeyjar og
skersins eða um Faxasund,
ásamt fleiri bátum. Dimmt var
yfir og slydduhríð. Tilkynntu
skipverjar hvernig komið var og
fór Lóðsinn út til þeirra. Komust
þeir í gúmmíbát sínum yfir í
Lóðsinn, allir heilir, enda ágætt
sjóveður. Skipstjóri á Eyjabergi
er Sigurður Guðmundsson. En
eigandi hans er Sigurður Þórð-
arson, útgerðarmaður.
Stýrisútbúnaöur bilaður
Fréttaritari blaðsins náði
snöggvast tali af skipstjóranum,
er hann var kominn heim til sín.
Hann vildi lítið um þetta segja
umfram það sem vitað var.
Sagði að þeir hefðu verið að
koma úr róðri vestan við Eyjar
og farið venjulega siglingaleið.
Hafi þeir séð að þeir mundu
vera full nærri Faxaskerinu og
ætluðu að beygja frá áður en
þeir komu að því, en þá hafi
stýrisútbúnaður ekki verkað.
Báturinn var á fullri ferð og var
strandi því ekki afstýrt.
Skipstjórinn sagði að gott
hefði verið í sjóinn og fóru skip-
verjar í gúmmíbátinn, eftir að
þeir höfðu gert aðvart. En þar
sem myrkur og slydduhríð og
viðbúið að báturinn mundi
höggva sig niður, þá þótti ekki
ráðlegt að þeir væru þar um
kyrrt. Höfðu þeir taug í gúmmí-
bátnum, sem föst var í Eyjaberg
Skákneistari Norðlendinga Jónas
Halldórsson í fjórða sinn
SAUÐÁRKRÓKI, 7. marz
Skákþing Norðiendinga, sem
fram fór á Sauðárkróki í síðustu
viku, lauk sl. sunnudag. Skák-
meistari Norðlendjnga varð Jón-
as Halldórsson. er hlaut 5 vinn-
inga. Er þetta í fjórða sinn sem
Jónas hefur borið sigur af hóimi
á Skókiþingi Norðlendinga. í
öðru og þriðja sæti í Meistara-
flokki urðu Hjörleifur Halldórs
son og Haildór Einarsson með
4% vinning. í 4—6 sæti Baldvin
Kristjánsson, Björgóifur Einars-
son og Hjálmar Theodórsson með
4 vinninga. í 5. flokki var efstur
Valgarð Valgarðsson með 4%
vinning af 5 mögulegum. í 2
flokki var efstur Rögnvaldur
Áina.son með 4% vinninga af 5
möguiegum. Hraðskákmeistari
Norðlendinga varð að þessu sinni
Jónas Halldórsson. Hlaut hann
83/i vinning af 9. Annar Jón
Hannesson með 6% vinning og
þriðji Halidór Einarsson með 6
vinninga — Jón.
inu og slepptu henni ekki fyrr
en þeir höfðu náð Lóðsinum. En
þangað létu þeir sogið bera sig
og réru sjálfir. .Varð þeim ekki
meint af, enda steinsnar inn til
Vestmannaeyjarkaupstaðar.
Faxasker er iágt sker, og eng-
inn gróður á því. En þar er skip-
brotsmannaskýli.
Eyjabérg er stálbátur, 94 lestir
að stærð, byggðúr í Austur-
Þýzkalandi órið 1959.
Eyjaberg VE 130, sem strandaði í gær.
Stjórnarfrumvarp um ráð-
stafanir vegna sjávarútvegs
I GÆR var lagt fram á Alþingi
stjornarfrumvarp um ráðstafan-
ir vegna sjávarútvegsins. Helztu
ákvæði frumvarpsins eru þessi:
1. Á árinu 1966 greiðir ríkis-
sjóðu.r fisikseljendum 25 aura
verðuppbót á hvert kíló línu- og
handfærafisks. Þessi upphæð
kemiur til skipta milli sjómonna
og útvegsananna, samikv. samn-
ingum um hlutaskipti.
2. Rikisf-jóður leggur fram 50
millj. kr. á árinu 1966, er verja
skal til framleiðsluaukningar
frystihúsa og annarra endurbóta
í framileiðslu frystra fiskafurða.
Stofnlánaleild sjávarútvegsins út
hlutar fé þessu til tiltekinna
Landsbanika íslanids og Útvegs-
banka íslands, eftir reglum, sem
sjávarútvegsmálaráðiherra setur.
3. Á árinu 1966 heimilast að
greiða úr ríkissjóði til skreiðar-
framJeiðenda 10 millj. kr. til
verðuppbóta á útflutta skreiðar-
framleiðsJu, eftir regium, sem
sjávarútvegsmálaráðherra setur.
4. Stjórn Aflatryggingosjóðs
er heimilt að ákveðz, að bætur
til togara úr sjóðnizm vegna afla
brests 1905 skuli miðast við út-
framikvæinda f samráði við
haldstíma þeirra á því ári, svo
og að sutjz um þetta nánari
reglur, með samþykki sjávar-
útvegsmálaráðherra.
1 greinargerð frumvarpsins
kemur eftirfarandi fram:
Undanfarin tvö ár hefur ríkis-
sjóður greitt framlaig ti'l fram-
ieiðniaukningar og annarra end-
urbóta í framleiðsiu frystra fisk
afurða. Nam þetta framiag 43
millj. kr. á árinu 1064, en 33
millj. kr. á árinu 1965. Upphaf-
iega var ákveðið að greiða þetta
framlag með til'liti til mikiha
Framhald á bis. 8
Nestismál skólabarna könnuð
— ogj iiiíiiarrædi þeirra á morgnaiia
FRÆÐSLURÁÐ hefur ákveðið
að láta fara fram könnun á venj-
um skólanemenda varðandi
morgunverð og nesti, og hefur
Ragnari Georgssyni fulltrúa hjá
Fræðslumálastjóra verið falið að
undirbúa könnunina. Er þetta
gert í sambandi við athuganir á
brauðsölu í skólunum og þörf-
inni fyrir hana.
Nestismál nemenda hafa oft
veirð rædd í fræðsluráði, og í
vetur hefur aðstoðariæknir borg
ariæknis hvatt mjög til rann-
sóknar á því. Fól fræðslustjóri
nefnd að gera athuganir á þessu
og skiiaði hún áliti á síðasta
fræðsluráðsfundi. En þá var
ákveðið að láta fyrrnefnda könn
un fara fram í öilum barnaskól-
um.
Er ætlunin að útbúa spurninga
lista, sem verða ópersónulegir,
þannig að fóik geti svarað hik-
laust spurningum um persónu-
legar venjur á heimiiinu. Með
því á að kanna hve mörg börn
neyta ekki morgunverðar eða
lítils áður en þau fara í skólann,
hve mörg koma með nesti, í hve
ríkum mæli þau nota sér brauð-
sölu, þar sem hún er á boðstól-
um o. fl. Verður sennilega aðeins
miðað við morgunverð barna
sem eru í skólanum fyrir hádegi
í þetta skipti, en ekki farið út
í að kanna hvaða áhrif á matar-
ræði barnanna það hefur hvað
margir hafa nú fært stærstu mál
tíðir dagsins fram á kvöldið.
Þessi könnun á matarræði
barnanna er mjög fróðleg, og að
sjálfsögðu undirstaðan undir það
hvernig skipa megi nestismálum
í skólunum.
B}örguniarmenii-
irinpr fá
arnarniyncfl
ÞEIR Bjarní Þórðarson og
Skúli Alexandersson á Heili.s-
sandi björguðu ungum erni i
fjörunni hjá Heiiissand s'l. des-
emiber, svo sem skýrt var frá.
Var örninn fiuttur að Keldum,
þar sem hann hresstist fljótt og
18. des. var flogið með hann aft
ur vestur á Hellissand. Fyrst
átti hann erfitt með flug. en náði
sér og sást um jólin á flugi yfir
Gufuskálum.
Fuglaverndarfélagið hefur nú
sent hvorum ofangreindum
manna mjög faiiega ijósmynd af
ungum erni, tekna af Birni
Björhesyni frá Norðfirði með
skrautritun er Halldór Pétursson
listmáiari gerði.
Ósamið við
verzlunarmenn
SÁTTAFUNDUR hófst kl. 8.30
gærkvöldi hjá sáttasemjara með
fuJltrúum kaupmanna og verzl-
unafóiks og lauk kl. 11:30,
án þess að samkomulag hafði
náðst.
Matvörubúðir voru opnar i
gær í Reykjavík, en næstikom-
andi mánudag hefur verið boðað
allsiherjarverkfall hjá verzlunar
fólki bæði í Reykjavík og úti á
landi, þar sem bæði VR og Lands
samband verzlunarmanna standa
að verkfallsboðuninn'L