Morgunblaðið - 02.04.1966, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
I
Laugar'dagur 2. apríl 1966
BÍLALESGAH
FERÐ
SÍMI 34406
SEN DU M
LITLA
bílaleigan
Ingólfsstræti 11;
Volkswagen 1200 og 1300.
Sími 14970
MAGNÚSAR
SKIPHOLTI21 símar 21190
eftirlokun simi 40381
S,MI 311-60
mnif/m
Volkswagen 1965 og '66.
BiLALEICAN
LUR P
RAUÐARÁRSTÍG 31
SÍMI 22022
BIFREIMLEIGAtt
VEGFERÐ
Grettisgötu 10.
Sími 14113.
Straumlobur
í enska, þýzka og
ameriska bíla.
Simi 11984.
Varahlufaverzlun
Jóh. Olafsson & Co.
Brautarholti l
Sími 1-19-84.
BO S C H
Háspennukefli
6 volt.
12 volt.
Brœðurnir Ormsson
Laágmúla 9. — Sími 38820.
'k Keramik
Ég rakst inn í húsgagna-
verzlun Reykjavíkur í fyrra-
kvöld, en þar var sýning á
nýjum munum frá Gliti, hraun-
keramik í nýrri mynd. Þetta
eru sérkennilegar veggmyndir,
margar mjög skemmtilegar, eða
öllu heldur fallegar. Ekki er
langt síðan Glit hóf að fram-
leiða slíkar veggmyndir, en
mér kæmi ekki á óvart þótt
sú framleiðsla ætti eftir að
aukast.
Myndirnar, sem þarna voru
sýndar, eru eftír Þorbjörgu
Höskuldsdóttur og Hring Jó-
hanneson, en áður hafa sézt
veggmyndir úr hraun-keramik
eftir þá Hring og Ragnar Kjart
ansson. Þær voru sýndar í Hót-
el Holti. Þessar, sem sýndar eru
þarna í Húsgagnaverzlun
Reykjavíkur, erú með öðru
sniði, nonfigurativar.
Stærri sali
Það er ánægjulegt að sjá
hve Glit hefur dafnað undan-
farin ár — og þarna í húsgagna
verzluninni er einmitt gott úr-
val þeirra hluta, sem fyrir-
tækið framleiðir. Einar Elías-
son, framkvæmdastjóri Glits,
sagði a.m.k. að úrvalið væri
hvergi meira, enda tekur lang-
an tíma að skoða þessa fallegu
munL
Þegar ég var að virða fyrir
mér stóra og smá vasa, skálar,
bollastell, risastóra gólflampa
og alls kyns borðlampa auk
veggmyndanna fyrrnefndu
vaknaði sú spurning, hvort
ekki væri tímabært að reisa
hér sérstök húsakynni til sýn-
ingar og sölu á leirmunum og
öðrum handunnum munum,
sem mundu flokkast undir list-
sköpun. Ljóst er, að Glit eitt
gæti með sóma skreytt stóra
sali án aðstoðar annarra fram-
leiðenda — og það er í raun-
inni slæmt, að þurfa að hrúga
þessum fallegu munum inn í
tiltölulega lítil húsakynni —
þar sem þeir njótá sín ekki
jafnvel og ella.
'Ar Sameiginleg
miðstöð
Að fiskinum frátöldum
er það ekki allt of margt, sem
okkur hefur tekizt að fram-
leiða til útflutnings. En Glit
er eitt þeirra fyrirtækja sem
þreifað hefur fyrir sér á er-
lendum markaði með góðum á-
rangri — og þess vegna ber
að styðja þá starfsemi, ekki
aðeins þessa eina fyrirtækis,
heldur listgreinina í heild.
Styðja hana til aukinnar þró-
unar og þroska.
Islenzkir leirmunir eru að
verða girnilegustu hlutirnir,
sem erlendir ferðamenn sjá
hér í vezlunum — og kaupa
til þess. að hafa með sér heim.
Ein sameiginleg miðstöð fyrir
þessa listgrein — svo og silf-
ur- og gullsmíði og annað hlið-
stætt mundi áreiðanlega verða
öllum þessum listgreinum mik-
il lyftistöng. Vonandi taka ein-
hverjir góðir menn saman
höndum um að þoka því áleið-
is.
'k Úti í horni
í framhaldi af þessu
mætti drepa á annað, skylt
málefni. Þar er um að ræða
farþegaafgreiðsluna á Kefla-
víkurflugvelli. Sem betur fer
virðist ástandið nú allt annað
en áður var þarna syðra. Eftir
breytingarnar, sem þar hafa
verið gerðar, er þessi leiðin-
legi og drungalegi afgreiðslu-
salur orðinn bjartur og vist-
legur. Fríhöfnin hefur fengið
þokkaleg og miklu rýmri húsa-
kynni en áður — og adlt er
þetta mjög til bóta.
Eitt er þó enn óbreytt —
og það er hornið, sem Ferða-
skrifstofa ríkisins hefur til um-
ráða til sölu á íslenzkum mun-
um, bókum og bæklingum og
öðru þess háttar. Verzlunarað-
staðan þarna er algerlega ófull-
nægjandi. Þar ægir öllu saman,
enda eru þrengslin í horninu
það mikil, að engin leið er
að veita flugfarþegum fullnægj
andi þjónustu.
Nóg af peysum
Vitánlega er ekki hægt
að teygja endalaust úr gólfinu.
En ein endurbót krefst annarr-
ar — og ljóst er, að þessi af-
greiðsla þarfnast aukins hús-
rýmis. Æskilegt væri að koma
fyrir á miðju gólfi nokkrum
glerskápum þar sem íslenzkir
listmumr, keramik, silfur og
annað þvílíkt, væri til sýnis
— og ennfremur þyrftum við
að geta sýnt útflutningsvöru
okkar þarna, a.m.k. einihvern
hluta hennar — og þar á ég
við niðursuðuvöruna.
Kunningi minn sagði mér,
að bandarískur vinur hans
hefði fyrir skemmstu verið
staddur hér á ferð til Evrópu.
Langaði hann til þess að kaupa
niðursoðna síld til þess að hafa
með sér heim — en taldi fyrir-
hafnarminna að gera það í heim
leiðinni í stað þess að vera
að rogast með varninginn til
Evrópu. Á vesturleið kom hann
við á Keflavíkurflugvelli — og
taldi eðlilegt, að þar væri hægt
að fá niðursuðuvörur keyptar;
Fiskvinnsla er þó aðalatvinnu-
vegur okkar og ekki ætti að
vera b/örgull á niðursuðunni.
A.m.k. skilst okkur, að ekki
hafi gengið of vel að selja hana
erlendis.
En Bandaríkjamaðurinn fékk
ekki mðursuðuna á Keflavíkur-
flugvelli. Honum voru boðnar
lopapeysur í staðinn.
Enginn áhugi
— Það fyrsta, sem hann
gerði, þegar hann kom heim,
var að skrifa hinum íslenzka
kunningja sínum og spyrja,
hvort hann mundi geta komið
því við að senda sér nokkrar
dósir af síld og rækjum. Þessi
íslenzka framleiðsla væri ekki
fáanleg í alþjóðlegu flughöfn-
inni í Keflavík. Lýsti útlend-
ingurinn furðu sinni yfir þessu,
enda ekki óeðlilegt. Allar aðr-
ar þjóðir nota aðstöðuna til
þess að ota framleiðsluvörum
sinum að útlendingum í flug-
höfnum til hins ýtrasta.
En þeir, sem sjóða niður
síldina okkar, eru e.t.v. enn
að bíða eftir því að Lúðvik
og 3resnev dragi upp budduna.
Hingað til hafa dollararnir
þótt jafngóðir og rúblurnar.
jb
Hjartastyrkjandi '
„Það væri tilvalið að hafa
Mimisbar að Hótel Sögu opinn
til klukkan 1 eftir miðnætti
á fimmtudögum“, sagði maður
nokkur, sem hringdi tíl Velvak
anda. „Sinfoníutónleikar eru
haldnir í Háskólabió annan
hvern fimmtudag — og þeim
lýkur klukkan 11. Margir
mundu kunna því vel að geta
gengið inn í næsta hús og set-
ið í ró ognæði yfir glasi stund-
arkorn eftir tónleikana“, sagði
hann. Ég veit ekki hvort sá,
sem talaði, er einn úr hljóm-
sveitinni. Ef svo er, finnst mér
eðlilegra, að þeir reyni enn-
frem að styrkja sig fyrir tón-
leikana en eftir.
-Ar Þá er f jandinn laus
Annars er vínsullið í leik
húsunum sem betur fer með
minnsta móti hér á landi —■
og á ég þar auðvitað við þá
hliðina, sem að leikhúsgestum
snýr. Um hitt veit ég ekk-
ert.
Þótt vínveitingar séu í Þjóð-
leikhúskjallaranum fara tiltölu
lega fáir leikhúsgestir á bar-
inn í hléi, láta nægja að fá sér
gosdrykk eða öl frammi í and-
yri.
í Englandi, a.m.k. í London,
þjóta allir á barinn í hléum.
Þar er mikið um að vera — og
afgreiðslumenn og konur láta
hendur standa ótrúlega langt
fram úr ermunum til þess að
uppfylla óskir allra á svip-
stundu. í Englandi virðast
menn aldrei verða drukknir og
þessvegna setur þessi drykkja
ekki svip sinn á salinn eftir hlé.
Hér virðist fólk yfirleitt ekki
þola lykt af tappa úr flösku
þá er fjandinn laus.
En úr því að minnzt er á
anddyri Þjóðleikhússins. Þetta
er ekki reglulega skemmtileg-
ur veitingasalur — og þyrfti
í rauninni að finna viðeigandi
herbergi í húsinu til hinna á-
fengislausu veitinga. Mér finnst
virðuleikablærinn fara af stofn
uninni, þegar farið er að selja
kók upp úr kassa úti í hornL
Ekki sízt vegna þess, að hér
er ekki beinlínis um góðgerðar-
starfsemi að ræða.
TAKIÐ EFTIR
Opnum í dag verzlun að Snorrabraut 22, Reykjavík.
Höfum fyrirliggjandi úrval Duro-Chrome hand-
verkfæra til bíla- og vélaviðgerða frá stærsta hand-
verkfæraframleiðanda Bandaríkjanna. Einnig ensk
ar Victoria farangursgrindur fyrir flesta bíla. —
Væntanlegar á næstunni ódýrar Victoria farangurs-
grindur fyrir Ford Bronco, einnig Land-Rover og
Austin Gipsy með áfestri varahjólsfestingu, svo og
fleiri vörutegundir. Útvegum einnig beint frá er-
lendum seljendum alla algenga byggingavöru, svo
sem mótatimbur, smíðatimbur, lyftaraflekaefni,
bryggjutimbur, steypustyrktarjárn, þakjárn, stál-
gridarhús, hreinlætistæki, þilplötur o. fl.
Heildsala — smásala — umboðssala.
Gjörið svo vel og reynið viðskiptin.
Ingþór Haraldsson hf
Snorrabraut 22 — Reykjavík.
Óskum að ráða nú þegar
stulku til vélritunarstarfa
Umsækjandi þarf að vera gagnfræðingur eða hafa
aðra hliðstæða menntun.
Skrifstofumann
til afgreiðslustarfa, umsækjandi þarf að hafa verzl-
unarskólamenntun eða aðra hliðstæða. — Nánari
uppl. gefur skrifstofuumsjón og liggja umsóknar-
eyðublöð þar frammi. Uppl. eru ekki gefnar í síma.
SAMVl N N UTRYGGINGAR
Bezt ú auglýsa í Morgunblaðinu