Morgunblaðið - 02.04.1966, Side 5
Laugardagur 2. apríl 1966
MORGU N BLAÐIÐ
UR
ÖLLUM
ÁTTUM
MBL. hefur borizt fréttatil-
kynning frá Stúdentaf'
Reykjavíkur varðandi kvöld-
vöku, sem félagið gengst fyrir
Frá hinum fjölsótta umræðufundi um áfengislöggjöfina, sem Stúdentafélagið gekkst fyrir í
febrúar. Umræðufundir félagsins hafa jafnan þótt tíðindum sæta og verið mjög fjölsóttir.
Stúdentafélagið heldur
kvöldvöku á miðvikudag
Fundur um dlsamninginn — Valery
Tarsis í heimsókn — Aldarafmæli
undirbúið
að Hótel Sögu miðvikudaginn
fyrir páska. í framhaldi af
því sneri Mbl. sér tii Aðai-
steins Guðjohnsens, verkfræð-
ings, formann félagsins, og
bað hann greina nokkuð frá
starfsemi félagsins í vetur, og
hvað framundan væri í þeim
efnum.
Stúdentafélagið var stofnað
14. nóv. 1871 — og verður því
100 ára eftir nokkur ár.
Stjórn félagsins hefur rætt
um að hefja nú í ár undir-
búning að því að minnast af-
mælisins, m.a. með þvi að fá
sögu félagsins ritaða. Til er
bók um Stúdentafélagið 50
ára, sem Indriði Einarsson,
rithöfundur, tók saman, sagði
Aðalsteinn.
Fyrsti formaður Stúdenta-
félagsins var síra Valdimar
Briem.en meðal annarra af
fyrstu formönnum voru Lárus
Halldórsson frá Hofi, Björn
Jónsson, ritstjóri, Indriði Ein-
arsson, rithöfundur, Einar H.
Kvaran, Jón Ólafsson, rit-
stjóri, Bjarni Jónsson frá
Vogi, Benedikt Sveinsson,
Sigurður Eggerz, Ásgeir Ás-
geirsson, o.fl.
Félagið á sér hina merkustu
sögu og er því full ástæða til
að vanda vel til 100 ára af-
mælisritsins.
Félagið gegnir að sjálfsögðu
©kki því hlutverki nú, sem
það gerði á fyrstu árum sín-
um. Vissar erfðavenjur móta
þó starfið. Félagið minnist
fullveldis íslands með hófi
og útvarpsdagskrá 30. nóv. og
1 ,des. ár hvert. Á sl. ári var
Fullveldisfagnaðurinn mjög
fjölmennur og hin ágætasta
samkoma. Almennir fundir
eru haldnir, ef á döfinni eru
þýðinganmikil mál sem talið
er gagnlegt að ræða á al-
mennum vettvangi. í sl. mán-
Aðalsteinn Guðjohnsen
uði hélt félagið, sem kunnugt
er, afarfjölmennan fund um
breytingar á áfengislöggjöf-
inni.
Á næstunni hyggst félagið
efna til fundar um Álbræðslu-
málið, gj»da þar um að ræða
eitt allra þýðingarmesta mál
sem á döfinni hefur verið um
lengri tíma. Fundur þessi er
þó ekki fullráðinn enn, en
verður að líkindum haldinn í 1
fyrstu viku eftir páska.
í>á má geta þess, að félagið
stendur, ásamt Almenna bóka
félaginu, fyrir boði til'handa
rússneska rithöfundinum Val- 1
ery Tarsis að koma hingað
til lands og flytja m.a. fyrir-
lestur á sérstökum fundi. Von
ir standa til, að hann komi
mjög bráðlega.
Ekki má gleyma þvi, að
Stúdentafélagið efnir til
kvöldvöku fyrir páska, þ.e. 6.
apríl n.k. Kvöldvökur félags-
ins hafa jafnan verið afar vin-
sælar og er ekki að efa að
fjölmennt verður að þessu
sinni. Kvöldvakan verður
haldin í Súlnasal Hótel Sögu
og verða þar ýmis skemmti-
atriði — m.a. mun skemmti-
legasti stúdentinn, Ómar
Ragnarsson, koma fram — en
auk þess verður háð magn-
þrunginn kappleikur milli
tveggja hópa (kvisazt hefur
út að nokkrir fyrrverandi for
menn verði í öðru liðinu —
en um hitt liðið er enn allt
á huldu). Haft er fyrir satt að i
val á þátttakendum í kapp-
leik þessum, svo og val á því
sem keppt er um ,tryggi það
að þetta verði skemmtun árs-
ins.
Stúdentafélagið hefur nú í
hyggju að koma á sambandi
við hliðstæð félög á Norður-
löndum og e.t.v. í Bandaríkj-
unum, m.a. til að auka fjöl-
breytni í félagsstarfinu hér
heima. Bréfaskriftir hafa far-
ið fram í þessum tilgangi, en
árangur er ekki kominn í ljós
enn sem komið er, sagði Áð-
alstein Guðjohnsen.
Brynjólfur Jóhannesson
skem-mtir Islendingum
BRIDGE
Islandsmótið í bridge árið
1966 verður háð í Reykjavík
um páskana eins og undanfar-
in ár. íslandsmótið hefst á tví-
menningskeppni n.k. laugardag
Ikl. 13.30 í Lídó. Þar munu spila
56 pör um titilinn íslandsmeist-
arar í tvímenningskeppni 1966.
Meðal keppenda eru meistarar
síðastliðins árs þeir Hilmar
Guðmundsson og Jakob Bjama-
son, auik margra annarra ágætra
spilara. Tvímenningskeppninni
verður haldið áfram á sunnu-
dagseftirmiðdag og iýkur á
sunnudagskvöld.
Sveitakeppnin hefst á mánu-
dagskvöldið 4. april kl. 20.00 að
Hótel Sögu. Þar munu keppa
6 sveitir í meistaraflokki og 16
sveitir í I. flokki, en I. flokkur
verður spilaður í tveimur riðl-
I um. Sveitakeppninni verður síð-
an haldið áfram á þriðjudags-
kvöld að Hótel Sögu. á miðviku-
dagskvöld verður spilað í Sjó-
mannaskólanum og hefst þá
keppnin í meistaraflokki kl. 19.00
og í I. flokki kl. 20.00. Á fimmtu
dag verður spilað að Hótel Sögu
kl. 14.00 og kl. 20.00 og á föstu-
dag á sama stað kl. 14.00 og kl.
20.00 og lýkur þá mótinu.
I meistaraflokki eru meðal
annarra sveit Gunnars Guð-
mundssonar sem varð íslands-
meistari árið 1965. Auk þeirrar
sveitar eru 4 sveitir frá Reykja-
vík og sveit frá Akranesi, þar
sem sveit Akureyringa sá sér
ekki fært að koma að þessu
sinni. í I. flokki verða sveitir
frá Hafnarfirði, Keflavík, Kópa-
vogi og Selfossi, auk sveitanna
frá Reykjavík.
Sýningartaflan verður í notk-
un á mótinu. Verða sýndir á
henni helztu leikir mótsins. Veit-
ir það áhorfendum miklu betra
tækifæri til að fylgjast með leikj
unum.
Nú eru um tveir mánuðir þang
að til Norræna bridgemótið
verður haldið hér í Reykjavík.
Þeir sem munu keppa í sveit-
um íslands eru meðal keppenda
á íslandsmótinu, svo fróðlegt
verður að fylgjast með því,
hvernig þeim mun takast nú,
en undanfarið hafa verði æfing-
ar hjá landsliðinu,
Gera má ráð fyrir, að það
verði margir, sem leggi leið sína
á spilastaðina í páskavikunni til
að fylgjast með þessu íslands-
móti, aðstaða er líka góð til að
fylgjast með keppninni í vist-
iegum húsakynnum.
Akranesi, 31. marz.
HÖFRUNGUR III. landaði hér í
morgun 2.500 tunnum af loðnu.
Norskt skip frá Osló tók hér
í dag hjá Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunni 325 tonn af loðnu
lýsi. — Oddur.
New York, 28. marz.
SÍÐASTLIÐINN föstudag hélt
Islendingafélagið í New York
fagnað á Hótel Delmonico á
Park Avenue. Mótinu stjórnaði
Stefán Wathne, í fjarveru for-
mannsins Sigurðar Helgasonar.
Eftir ávarpsorð fundarstjóra
tók heiðursgesturinn, og tilefni
mannfagnaðarins, Brynjólfur Jó-
hannesson, við völdum og ríkti
einráður það, sem eftir var
kvöldsins. Má örugglega segja,
að sjaldan.eða aldrei hafi þekkst
ástsælli einræðisherra. Hann las
upp úr Gullna hliðinu, 4. þátt
og lék svo vel, að unun var á
að hlusta. Voru undirtektir á-
heyrenda svo góðar og fagnað-
arlæti áheyrenda slík, að hið
gamla góða Delmonico hefur á-
reiðanlega aldrei upplifað neitt
þessu líkt.
Síðan söng hann nokkur gam-
ankvæði, í gamla, þjóðlega stíln-
um og neituðu áheyrendur að
sleppa honum fyrr en hann hafði
sungið aukalög.
Má segja, að sjaldan eða aldrei
hafi betri gest borið að garði í
New York og hafi hann þökk
okkar allra fyrir komuna.
Því næst sýndi Þorgeir Hall-
dórsson Surtseyjarkvikmynd ós-
valds Knudsens og þótti rr/inn-
um mikið til koma. Síðan var
drukkið kaffi .
Mótið var geysifjölmennt, eða
um 180 manns, sem er metað-
Framhald á bls. 27
HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Landsleikur í handknattleik fer fram í íþróttahölli nni í Laugardal í dag, laugardaginn 2. apríl kl. 17.
Dómari: HANS CARLSSON frá Svíþjóð.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlunum Lárusar Blö ndal við Skólavörðustíg og í Vesturveri og í íþrótta-
höllinni frá kl. 14. — Húsið opnað kl. 16. — Lúðra sveit Reykjavíkur leikur frá kl. 16,30.
Verð aðgöngumiða: Stæði kr. 125,00; barnamiðar kr. 50,00.
Kaupið miða tímanlega — Forðist biðraðir
Handknðttleikssamband íslands