Morgunblaðið - 07.04.1966, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 07.04.1966, Qupperneq 3
f’immtudagur 7. apríl 1966 MORCUNBLAÐIÐ 3 Þingvellir í vetrarskarti. Þingvallavatn er ísi lagt og á bökkum þess kúra sumarbústaðir höt'uðstaff- arbúa eins og fuglar í kjarri, hinir fremstu svo kaffenntir að rétt grillir í þökin. Bretar hef ja veiðar með kraftblökk Sr. Jón Auðuns, dómprófasfur: PASKAMORGUN Önnur vetrarmynd af Þingvöllum. Snævi þaktar greinar grenitrésins skyggja á reisulegar burstir Þingvallabæjar með kirkjuna sér á hægri Wind, hvíta með fagurrautt þak ber í Ármannsfell. (Ljósm. Snorri Snorrason). YFIR hljóða borg eru fyrstu geislar morgunsólarinnar að fær ast. Yfir borg, sem tveim dögum fyrr hafði orðið vettvangur mik- ils harmleiks og mestu sorgar, sem borin verður. Hver kann að meta, hver sorg er þyngst? Finnst ekki hverjum sem hennar sali gistir, sporin sín vera þyngst, harmurinn sinn heitastur? Er ekki harmur barns ins sem þú brosir að, barninu sjálfur sárastur harmur allra harma? En hér höfðu grátlegust örlög beðið einmitt hans, sem beztur hafði verið allra. Hér hafði það ljós með ruddalegu ofbeldi verið slökkt, sem öllum ljósum skærar hafði logað. Hér hafði verið leidd ur í kvöl og dauða hann, sem dýrari vonir höfðu verið bundn- ar við en nokkurn annan. Hlaut ekki sorgin eftir hann að vera sárust allra sorga? En nú var sólin risin. Frá gröf- inni héldu fagnandi konur inn í borgina. Þær skunduðu, þær hlupu, segir guðspjallið. Gleðin léði veikum fótum þeirra vængi. Hvað báru þær svo stórkost- legt frá gröfinni inn í Jerúsal- em? Þær báru boðskap, sem öllu breytti um lífsskoðun og trú. Þær báru á sínum veiku hönd- um bjargið, sem kristindómurinn er byggður á. Konurnar sögðu frá því, sem þær höfðu heyrt og séð, og vott- um fjölagið, unz 500 manns sáu Krist upprisinn samtímis. Á strætum og torgum, í hreysi og höll ómuðu með sívaxandi sig- urvissu þau þrjú orð, sem mátt- ugri hafa reynzt kristindómin- um en orðræður allar: KRIST- UR ER UPPRISINN. Hvílíkur fögnuður fylgdi þess- um orðum, — en sá fögnuður hefir fölnað. Skoðanakannanir í kristnum löndum leiða ískyggi- legar staðreyndir í Ijós. En deyi þessi sannfæring, dvíni þessi fögnuður, er voði fyrir dyrum kristni og kirkju. Sækja vslenzkan netagerðar- mann til að sjá um nóta- uppsetningu SEM KUNNUGT ER, fengu ís- lenzku síldveiðibátarnir mjög góðan síldarafla við Shetlands- eyjar í fyrrasumar. Kraftblakkar veiðar voru þá algerlega óþekkt fyrirbæri í Bretlandi, og vakti hinn gífurlegi afli íslenzku bát- anna að vonum mikla athygli brezkra sjómanna og útgerðar- manna. Hefur nú verið ákveðið þar í landi að hefja tilraunir með þessar veiðar. í þessu tilefni komu nýlega 2 fulltrúar hinna þekktu Gundrey netaverksmiðja til íslands, til að kynna sér uppsetningu kraft- blakkarnóta. Fengu þeir í .,ð með sér til Bretlands, Halldór Árnason netagerðarmeistara frá Akranesi til að hafa eftirlit og gefa ráðleggingar við uppsetn-. ingu fyrstu nótarinnar af þessari gerð. Blaðamaður Mbl. hitti þá H. W. Norman, R. Kerr og Halldór Árnason að máli hjá Ólafi Gísla- syni og Co. en það fyrirtæki hef- ur umboð fyrir Bridport-Gundny Ltd. hér á landi. Sagði hr. Norman m.a. að Gundrey hefði nú selt net og veiðarfæri til íslands í rúm 50 ár, en verksmiðjurnar eru þær stærstu á sínu sviði í Evrópu. Hann sagði ástæðuna fyrir því að þeir kæmu til fslands til að leita ráða, vera þá, að þeir teldu íslendinga langfremsta á sviði síldveiða. Nótin sem um er að ræða er upprunalega gerð eftir norskri teikningu, en hefur nú verið gerbreytt af islenzkum netagerðarmönnum. Skipið sem vérður með nótina er 80 tonna tréskip, og nótin því talsvert minni en næturnar sem íslend- ingar nota. Sagði hann að Bretar byndu miklar vonir við þessar veiðar, og nægur markaður væri fyrir aflann í Bretlandi, og að allt benti til að kraftblökkin ylli 'byltingu í brezkum síldveiðum. <3>- Vfir 200 manns fjyggja á Öræfaferð AÐ VENJU nota margir páska helgina til að fara í Öræfasveit- ina. Guðmundur Jónasson fer með á annað hundrað manns og Úlfar Jakobsen með álíka stór an hóp. Og venjulega fá ferða menn að fylgjast með á sínum eigin fjallabílum yfir árnar. Vegna ófærðar er ekki um margar leiðir að ræða til fjalla- ferða á páskum. En einkahópar munu þó ætla í Þórsmörk, í Tind fjöllin og á Langjökul, þangað sem farið verður í 3 snjóbílum. Menn glíma við þessa gátu. Þeir geta ekki annað. Um óra- aldur hafa menn talið vissar dul- arfullar tjáningar og fyrirbæri renna stoðum undir trú á ódauð- leika. Margir fagna hverju því, sem styrkir trú manna á fram líf sálarinnar, enda er hér mikið í 'húfi, sjálfur grundvöllur krist- indómsins og ekkert minna. Eða getum við með þann marg- breytta örlagavef, sem við sjáum ofinn, með ótal mótsagnir og misræmi fyrir augum og mis- skiptingu gæða og gæfu, talað um réttláta tilveru, gæzku, al- mætti og kærleika, ef gröfin er lokamið alls, ef dauðinn er dauði? Ég vil ekki gera lítið úr hug- boðum viturra manna, sýnum sjáenda og skálda. Ég vil ekki gera lítið úr þvi, sem hámennit- aðir menn í sálarrannsóknum eða dulsálarfræði telja sig hafa sannreynt, að með manninujm búi eiginleikar, sem sterklega bendi til framlífs og undursam- legra framtíðarmöguleika mann- sálarinnar. Úr engu þessu er skynsamlegt að gera lítið. Sízt ættu boðendur kristindómsins að gera það, jafn höllum fæfi og þeir standa á hólmi í dag gegn afneitun og efnishyggju. Heils- hugar ber að fagna hverju því, sem rennir stoðum undir mik- ilvægasta málið, ódauðleikasann- færinguna. Hvar stöndum við með boðun kristinnar trúar, ef grundvöllinn vantar, sannfær- ingu um byggð á bak við heljar- strauma? Það hefir stórskaðað siðræna trú og' hugsun á Vesturlöndum, hve mjög túlkendur kristni hafa reynt að slita Krist úr eðlilegu samhengi við mannfélagsheild- ina, manninn. Hann var ekki Guð, hvað sem kirkjuþing og kirkjufundir samþykkja. Hann var einn af okkur. Þú veizt jafnlítið um uppruna hans og innstu veru og ég. Um það er barnalegt að deila. En hann er vaxtarbroddur mann- kyns og bendir fram til þeirrar myndar, sem manninum er ætl- að að bera. Og hann kom uppris- inn yfir dauðans djúp tii að sanna og sýna, að í eilífð Guðs verða þau stóru örlög ráðin. Frá vinstri R. Kerr, Halldór Árnason og H. W. Norman Það bíður þin að ganga þenn- an veg, og Kristur hefir varðað vegirm. Þú væntir ekki þess, að þar stundir þú skrúðgfingu með sálmasöng. Þú vonast ekki eftir skartklæðum og endalausum slíkum barnaleikjum, heldur lifi með átökum, erfiði og starfi, lifi sem gefur þér möguleika til að binda í heild það, sem þú veizt að enn er hjá þér í molum. Þú væntir ekki þess, að framlífið verði helgra manna hljóðlát iðja ein, heldur markviss sókn á margvíslegum leiðum til að vinna úr möguleikunum, sem blunda innra með þér, unz. myndin þín verður að veruleika, sú mynd af þér, sem enginn hefir séð, nema Guð. Veginn hefir Kristur gengi Fyrir vini þína, sem hurfu þ< sjónum og þú átt að hugsa ui á þessari hátíð, fyrir þá og fyr þig hefur Kristur varðað hir mikla veg. Hugleiddu þetta á upprisuhi tíðinni, hátíðinni sem á að vei þér dýrastur dagur allra dag morgninum, sem af öllum morg um öðrum ber. GLEÐILEGA PÁSKAHÁTÍÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.