Morgunblaðið - 07.04.1966, Page 23
Fimmluðagut T apríl 1966
MOHGUNBLAÐID
23
Stúlka
Rösk stúlka óskast í bókaverzlun. Góð enskukunn-
átta nauðsynleg. Umsóknir er tilgreini aldur,
menntun og fyrri störf sendist í pósthólf 124.
Skrifstofustjóri
Viljum ráða mann til að veita forstöðu skrifstofu
verktaka við Búrfell.
Alhliða reynsla á viðskiptasviði og góð ensku-
kunnátta er áskilin.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Almenna
byggingafélagsins h.f., Suðurlandsbraut 32.
Svenska Enterprenad AB SENTAB
E. Phil & Spn
Almenna byggingafélagið h.f.
Starfsfólk
Vegna framkvæmda við Búrfellsvirkjun vilja verk-
takar ráða skrifstofufólk, verkstjóra og iðnaðar-
menn.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Almenna
byggingafélagsins h.f., Suðurlandsbraut 32, á venju-
legum skrifstofutíma. Fyrirspurnum ekki svarað
í síma.
Svenska Enterprenad AB SENTAB
E. Phil & Sen
Alntenna byggingafélagið h.f.
AÐALSKOÐUN
bifreiða í lögsagnarumdæmi Keflavíkur árið 1966
fer fram við hús Sérleyfisbifreiða Keflavíkur dag-
ana 12. apríl til 10. maí n.k. kl. 9—12 og kl.
13—16:30, svo sem hér segir:
Þriðjudagin 12. apríl Ö- 1 til 100
Miðvikudaginn 13. apríl 0-101 — 150
Fimmtudaginn 14. apríl 0-151 — 200
Föstudaginn 15. apríl Ö-201 — 250
Mánudaginn 18 apríl 0-251 — 300
Þriðjudaginn 19. apríl Ö-301 — 350
Miðvikudaginn 20. apríl Ö-351 — 400
Föstudaginn 22. apríl Ö-401 — 450
Mánudaginn 25. apríl Ö-451 — 500
Þriðjudaginn 26. apríl Ö-501 — 550
Miðvikudaginn 27. apríl Ö-551 — 600
Fimmtudaginn 28. apríl Ö-601 — 650
Föstudaginn 29. apríl Ö-651 — 700
Mánudaginn 2 maí Ö-701 — 750
Þriðjudaginn 3. maí Ö-751 — 800
Miðvikudaginn 4. maí Ö-801 — 850
Fimmtudaginn 5. maí Ö-851 — 900
Föstudaginn 6. maí Ö-901 — 950
Mánudaginn 9. maí Ö-951 — 1026
Þriðjudaginn 10. maí 0-1026 og þar yfir.
Sömu daga verða reiðhjól með hjálparvél skoðuð.
Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild
ökuskírteini, sýna ber og skilríki fyrir því, að bif-
reiðaskattur og vátryggingargjöld ökumanna fyrir
árið 1966 séu greidd og lögboðin vátrygging fyrir
hverja bifreið sé í gildi. — Hafi gjöld þessi ekki
verið greidd verður skoðun ekki framkvæmd og
bifreiðin tekin úr umférð þar til gjöldin eru greidd.
Ennfremur ber að sýna ljósastillingarvottorð.
Kvittun fyrir greiðslu afnotagjalds útvarpstækis
í bifreið ber að sýna við skoðun.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoð-
unar á réttum degi, án þess að hafa áður tilkynnt
skoðunarmönnum lögmæt forföll með hæfilegum
fyrirvara, verður hann látinn sæta sektum sam-
kvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt
og bifreið hans tekin án fyrirvara, hvar, sem til
hennar næst.
Bæjarfógetinn í Keflavík
31. marz 1966.
VOGUE, RISLAN, sérsakur þráður af
frönskum uppruna, skyldur nælon.
Þær sem ekki þola nælon geta auð-
veldlega notað RISLAN-luxussokka,
parið 94,00.
'TJogue
Skólavörðustíg 12, Laugavegi 11,
Strandgötu 9, Hafnarfirði.
VOGUE NÆLON SOKKARNIR eru nú líka komnir til íslands. Þeir cru þekkt
sænsk gæðavara og sérlega vandaðir í framleiðslu og því líklegir til að duga leng-
ur. Þegar þér kaupið VOGUE sokka borgið þér örlítið meira en þá eruð þér að
greiða fyrir gæði.
• Aðeins er notaður dýrasti þráður, sterkur með miklum teygjanleik og silkimýkt.
• Vakað er yfir hverri lykkju og hver so kkur fer gegnum 20 skoðanir til að hindra
galla • Snittið á VOGUE sokkunum er m iðað við fætur Norðurlandakvenna og •
fitin er prjónuð úr Ban-Lon-Crep þræði með miklum teygjanleika og heldur því
ekki fast að, né hindrar blóðrásina (en þ að veldur þreytu og þrota í fótum) •
VOGUE-sokkarnir ganga gegnum FABRI NOL efnameðhöndlun, sem gerir þá sterk-
ari gegn lykkjuföllum, silkimjúka og gefu r þeim matta silkiáferð. • Sérstök styrk-
ing í hæl og tá. Allt þetta kostar aukalega , en ótrúlega lítið, og það tryggir yður það
bezta, sem völ er á á heimsmarkaðnum. Það getið þér reynt sjálfar.
TEGUNDIR:
VOGUE, ALL ROUND, 30 den tilvaldir VOGUE, BALLERINA, 20 den til
til daglegrar nolkunar, parið 67,00 _ kvöldnotkunar, parið 63,00
VOGUE, DOUBLÉ 2x20 den, hlýir,
mjúkir crepsokkar, parið 94,00
VOGUE, BARE LEG 420/20 den,
mjúkir, þunnir, klæðilegir crepesokkar
parið 78,00
VOGUE, SANDALETT 20 den sokkar
fyrir opna skó, parið 63,00
VOGUE, LYCRA, þunnur, elegant
sjúkrasokkur, sem heldur þó full-
komlega að fætinum, parið 230,00.