Morgunblaðið - 03.05.1966, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.05.1966, Blaðsíða 31
Þriðjudagur maí 1966 MORGUNBLAÐIÐ 31 tl Kanada beitir sér fyrir nýjum friðarumleitunum í Vietnam — stórsókn gegn Viet Cong við landamæri Kambodía —Alþingi Fratnhald af bls. 17. Við megum ekki horfa á einstök atriði samning- anna eingöngu heldur á þá í heild, sagði ræðumaður og vakti m.a. at- hygli á því að við fáum haf- skipahöfn í Straumsvík okkur að kostnaðar- lausu. Álbræðslan nýtur ekki for réttinda en tekur á sig ýmsar skyldur umfram það sem venju- legt er um atvinnurekstur. Óttast væri um vinnuaflsskort en get- ur ekki svo farið að álbræðslan veiti í framtíðinni atvinnu 450 heimilisfeðrum, sem ella mundu ekki hafa atvinnu? Stjórnarand- stæðingar kröfðust þess að ál- samningarnir yrðu felldir en til vara þjóðaratkvæðis en þeir töldu ekki ástæðu til þjóðarat- kvæðis ef frumvarpið hefði ver- ið fellt. Híkisstjórnin hefur fullt um- boð til að stjórna landinu í 4 ár og efna þati fyrirheit sem gefin voru 1963. Með álsamningunum er verið að gera skynsamlega til- raun til að hagnýta erlenda fjár- festingu. Þá ræddi Jón Þorsteinsson landbúnaðarmál og sagði að mik- ilvægar endurbætur hefðu verið gerðar á verðlagningu landbún- aðarafurða en ýmsu væri áfátt í þeim efnum enn. Kaupmáttur bænda hefur hækkað í tíð núver andi ríkisstjórnar sagði ræðumað ur en lækkaði þegar Framsóknar menn voru í stjórn með Sjálf- stæðisflokknum. Til lausnar verðbólgunni nefndi ræðumaður þrjú grund- vallarskilyrði: Einbeittan vilja ríkisstjórnar, ábyrga stjórnar- andstöðu og skynsamlega og raunhæfa stefnu hagsmunasam- taka. Ræðumaður sagði að lok- um að boðskapur Framsóknar- manna til þjóðarinnar væri: Fær ið oss völdin í hendur og vér munum afhjúpa töfralykil vorn, sem er allra meina bót. Ræður talsmanna Sjálfstæðis- flokksins við útvarpsumræðurn- ar verða birtar í heild í Morgun blaðinu síðar. Þjófnaðir og ákeyrsla IJM helgina fékk lögreglan þjófnaði og ákeyrslu á kyrr- stæðan bíl til meðferðar. Stolið var bíl af bílasölu, og gullarm- bandsúri og peningum af sofandi manni. Og skemmdur var kyrr- etæður bíll við Bergþórugötu. Aðfaranótt sunnudags tók lög- reglan ölvaðan pilt undir stýri. Kom í ljós að hann var á stoln- um bíl, sem hann hafði tekið á bílasölu. Þá sömu nótt hafði Færeying- ur lagt sig í herbergi, sem Fær- eyingur og Gréenlendingur hafa í Sænska frystihúsinu. Er hann vaknaði hafði verið stolið af hon- um veskinu og gullúri, er hann hafði á handleggjum. Á laugardagskvöld kl. 8 lagði maður bifreið sinni framan við heimiii sitt á Bergþórugötu 6. En hann kom að henni um hádegi á sunnudag, var búið að aka á hana, brjóta afturlukt, skemma stuðara og beygla afturbretti fram að hurð. Þetta er blá Mercedes Benz bifreið og bendir hæðin á skemmdurá til að Bronco eða önnur álíka há bif- reið hafi valdið þéim. Biður rannsóknarlögreglan þá, sem kynnu að hafa orðið áreksturs- ins varir að gefa sig fram við lögregiuna. Ottawa, Saigon, 2. apríl — NTB. LESTER PEARSON, forsætis- ráðherra Kanada, sagði í gær, að stjórn landsins hefði ákveðið að beita sér fyrir nýjum friðarum- leitunum i stríðinu í Vietnam. Sagði Pearson að stjórnmála- menn hefðu þegar hafizt handa um framkvæmd málsins. Lagði hann til, að samið yrði um al- gert vopnahlé meðan á samning- um stæði, og báðir aðilar drægju lið sín til baka eftir því sem samningaumleitunum liði. Kanada á aðild að alþjóða- eftirlitsnefndinni með stríðinu í Vietnam ásamt Póllandi og Ind- landi. Indversk sendinefnd er um þessar mundir í Hanoi og kann- ar möguleikana á að fá stjórnina þar til að taka þátt í samninga- viðræðum. Frá því var skýrt í Nýju Delhi í gær, að þessi sendi- nefnd hefði ekki fram að færa neinar nýjar tillögur, og þar sem nú andar fremur köldu milli Indverja og Norður-Vietnam- búa, er ekki búizt við að for INFLÚENSA sú sem gekk fyrir skömmu hér, var af A-stofni, samkvæmt niðurstöðum Margrét ar Guðnadóttur, læknis á Keld- um, sem hefur unnið að því að einangra og rækta þessa veiru. Þetta er þá sami stofninn sem gekk hér í fyrra og einnig árið 1963. Er því mikið ónæmi hér fyrir einmitt þessum stofni, enda gekk flensan fljótt yfir og varð ekki mikið úr henni. Á LAUGARDAGINN var einnig afgreitt sem lög frá Alþingi stjórnarfrumvörpin um heimild fjáfestingadeilna, ríkisreikning- urinn 1964, iðnfræðslu, veitingu rikisborgararéttar, vernd barna og ungmenna og vátryggingar- félag fyrir fiskiskip. Einnig var þingmannafrumvarpið um fisk- veiðar í landhelgi afgreitt sem lög. Þá hlaut frumvarpið um breytingu á umferðarlögum einnig afgreiðslu, en á því var gerð sú breyting að inn var sett heimildarákvæði til handa ráð- herra að ákveða hámarkshraða á vissum akbrautum allt að 80 km. á klst. á vissum árstímum. Hafði Ekið á best AKRANESI, 2. maí. — Það slys var í gærkvöldi, að bill ók á hest og varð að skjóta hestinn. Þetta gerðist síðdegis 1. maí á móts við vörubílastöð Akraness á Þjóðvegi 3. Telpa ein teymdi hest eftir götunni. Hleypur þá inn á vegiim annar hestur, sem Guðmundur Bjarnason átti, og á bíl, sem í sömu andrá brunaði eftir götunni. Áreksturinn varð svo harður að hesturinn -otaðist og var hann skotinn hið bráð- asta, en stór dæld kom á bil- inn. — Oddur. þessarar sendinefndar beri ár- angur. Bardagar héldu áfram i Viet- nam í dag. Bandarískar sprengju þotur af gerðinni B-52 gerðu ár- ásir á skotmörk í N-Vietnam, m.a. samgönguleiðir og eldflauga palla. Þá héldu mörg þúsund her- flokkar Bandaríkjamanna og S- Vietnammanna áfram sókninni inn í frumskóginn, sem liggur að landamærum Kambodíu, til þess að vinna eitt stærsta vígi Vietcong. Þessi sókn er álitin ein sú mikilvægasta sem gerð hefur verið síðan styrjöldin hófst. Herflokkarnir voru studdir af B-52 sprengiþotum, sem héldu uppi látlausum árásum á vígið. Vígi þetta hefur í tólf ár verið eitt helzta hæli Vietcong og er staðsett rétt við mikilvægasta vegasamband Vietcong við N- Vietnam, hinn svonefnda Ho Chi Minh veg, sem liggur í gegnum Laos og Kambodíu inn í S-Vietnam. Þetta er annar veirustofn en sá sem olli slæma inflúensufar- aldrinum í Bretlandi í vetur. Það var veira af B-stofni. Aftur á móti bar nokkuð á inflúensu af A-stofni, bæði í Danmörku og Bándaríkjunum seinni hluta vetr ar, en var á hvorugum staðnum faraldur. Og því líklegt að flens- an hér hafi borizt frá öðrum hvorum staðnum. Hér stakk hún sér niður í aðeins tvær vikur og var að mestu búin um páskana. komið fram breytingartillaga frá Matthíasi Á. Mathiesen um þetta efni og féllst nefndin á hana nokkuð breytta. Minningarsjóður um Aru Jósefsson STOFNAÐUR hefur verið minn- ingarsjóður um Ara Jósefsson, skáld, sem drukknaði sviplega 1964. Hafa nogkrir vinir Ara safnað fé í minningarsjóðinn, sem skal hafa það hlutverk að umbuna ungum skáldum eða öðrum listamönnum fyrir lofs- verð verk. Hafa þegar safnast um hundrað þúsund krónur í sjóðinn, og verður enn tekið á móti framlögum. Nefnd sú sem hóf söfnunina, skilar nú af sér störfum í hendur sjóðstjórnar, en í henni eiga sæti: Arnfríður Jónatansdóttir frá Rithöfunda- félagi íslands, Ásmundur Sigur- jónsson frá ritstjórum og blaða- mönnum Þjóðviljans Árni Björnsson frá Samtökum her- námsandstæðinga, Kristinn Jó- hannesson frá félagi stúdenta í íslenzkum fræðum við Háskóla íslands og Guðmundur Sverrir Jósefsson fyrir hönd ættingja og venzlamanna Ara. Af hálfu bandarískra hernað- aryfirvalda er sagt, að Vietcong- menn veiti enga verulega mót- spyrnu og hörfi undan hægt og sígandi í gegnum frumskóginn, og að áliiið sé að þeir búi sig undir að hefja bardaga á ein- hverjum vissum stað, og berj- ast þá til síðasta manns, eða að þeir ætli að gera tilraun til að sleppa yfir landamærin til Kam- bódíu. Sjúkrahúsið á Akranesi fær góðar gjafir AKRANESI. 2. maí. — A 10 ára afmæli sínu. 22. apríl gaf Ljóna- klúbburinn hér fjórðungssjúkra- húsinu dýrmætar gjafir, sem kostað höfðu 82 þúsund kr. Gjafirnar voru súrefnistjald og öndunartæki. En frá uppha.fi hefur Ljónaklúbburinn gefið sjúkrahúsinu lækningatæki fyrir 212 þús. kr. Formaður Lyons— klúbbsins hérna er Magnús Guð- mundsson. Hagnaður af rekstri Fjórð- ungssjúgrahússins hér á Akra- I nesi árið 1964 nam 224 þús. kr. Utankjörstaðakosning Þeir sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýslumönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta. Erlendis er hægt að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og ræðis- mönnum sem tala íslenzku. Kosningaskrifstofa borgarfógeta í Reykjavík er í Búnaðar- félagshúsinu við Lækjargötu. — Skrifstofan er opin sem hér segir: Alla virka daga kl. 10—12, 2—6, 8—10 og sunnudaga 2—6. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Hafnarstræti 19, 3. hæð, veitir allar upplýsingar og aðstoð í sambandi við utan kjörstaðaatkvæðagreiðsluna. Skrifstofan er opin daglega frá kl. 10—10. Símar: 22637 og 22708. Upplýsingar um kjörskrá eru veittar í síma 22756. Kosningaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur kosningaskrifstofnr utan Reykjavíkur á eftirtöldum stöðum: AKRANESI Vesturgötu 47, sími: 2240 opin kl. 10—12 og 14—22. ÍSAFIRÐI Sjálfstæðishúsinu II. hæð, sími: 507 og 232 opin kl. 10—19. SAUÐÁRKRÓKI Aðalgötu 5, sími 23 — opin kl. 10—18. . SIGLUFIRÐI ^ Sjálfstæðishúsinu, sími 71154 opin kl. 13—19. s AKUREYRI Hafnarstræti 101, sími 11578 opin kl. 10—12, 14—18 og 20—22. VESTMANNAEYJUM Samkomuhúsinu, Vestmannabraut 19, sími 2238 opin kl. 10—22. SELFOSSI Hafnartúni, sími 291 opin kl. 9—17 og 19,30—21 KEFLAVIK Sjáifstæðishúsinu, sími 2021 opin kl. 10—19. HAFNARFIRÐI Sjálfstæðishúsinu, sími 50228 opin kl. 9—22. GARÐAHREPPI Lyngási 8, sími: 51690 — 52340 — 52341 opin kl. 15—18 og 20—22, laugardaga og sunnudaga kl. 14—18. KÓPAVOGI Sjálfstæðishúsinu, sími: 40708 opin kl. 9—22. Inflúensan var af A-stofni Var væg og gekk tljótt yfir 8 frumv. að lögum fyrir ríkisstjórnina að gerast að- ili að alþjóðasamningi um lausns> Kosningasjóður D-listons FRAMLÖGUM í kosningasjóð D-listans er veitt mót- taka í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðis- húsinu við Austurvöll og í Valhöll við Suðurgötu 39 (sími 17100).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.