Morgunblaðið - 06.05.1966, Síða 3

Morgunblaðið - 06.05.1966, Síða 3
Föstuðagur 6. maí 1966 MORGUNBLAÐtD 3 — Handritin Framhald af bls. 1 Starcke, fyrrverandi ráðherra, einn skeleggasti andstæðingur afhendingar handritanna, sem igerði sér tíðrætt við blaðamenn, imeðan á málflutningi stóð, sat, er dómur var upp kveðinn, á ibekk þeim, sem ætlaður var full- itrúum Árnasafns. Allir nefndar- anenn voru þarna mættir, með prófessor Westergárd-Nielsen í toroddi fylkingar. Prófessor Jo- hannes Bröndum-Nielsen var einnig viðstaddur dómsuppkvaðn inguna, og einnig var þar mætt- ■ur Christrup, hæstaréttarlögmað- iur, en Poul Schmith, hæstaréttar lögmaður, verjandi í málinu, sendi í sinn stað ungan lögfræð- ing, samstarfsmann sinn. Hast- rup, landsdómari, mætti einn í í réttinum, en meðdómendur hans, í Hörup og Tofthöj, voru ekki við dómsuppkvaðninguna. Forsendur dómsins Hastrup dómari hóf mál sitt með inngangsorðunum „Thi kendes for ret“ — f>ví dæmist rétt vera — og hélt svo áfram: „að ákærði, fræðslumálaráðu- neytið, ^ skuli sýknt saka af á- kæru Árnasafnsnefndar (Dánar- gjafasjóðs Árna Magnússonar). Hvor aðili um sig skal greiða sinn hluta málskostnaðar". Síðan las landsdómarinn for- eendur dómsins, sem hér fara á eftir orðréttar: „Rétturinn lítur iþannig á, að byggja verði á þeirri grundvallarforsendu, að handrit þau og skjöl, sem hér er ium að ræða, og aðrar eignir, sem ifrá stofnanda eru runnar, séu eign safnsins og, að þrátt fyrir náin tengsl þess við Kaup- mannahafnarháskóla, sé Árna- safn sjálfseignarstofnun, sem til er komin fyrir einkaréttarlega viljayfirlýsingu. Rétturinn tekur þó tillit til þess, að allir stjórn- armeðlimir stofnunarinnar, eru skipaðir af hinu opinbera, ellefu talsins, þar á meðal fimm hinna ókærðu, sem einnig velja for- jnann stjórnarinnar, og, að á- kærðu greiða einnig að mestu leyti kostnað af rekstri stofnun- arinnar. Þessar kringumstæður veita stofnuninni sérstöðu, sem hefur í för með sér, að ákærði hefur mikil áhrif á málefni stofn unarinnar. í ljósi þessa hefur á- kærði haft gott tilefni til að stuðla að framkvæmd laganna frá 26. maí 1965, sem koma til móts við óskir íslenzku þjóðar- innar um að eiga hluta nefndra handrita, og leysa með því mikið vandamál í sambúð Ðanmerkur og íslands. Þrátt fyrir það, að 1. kafli 1. greinar laganna feli í sér skiptingu stofnunarinnar í tvær deildir, sem beggja skal gæta og stjórna í samræmi við reglur skipulagsskrárinnar, dæmist afhending hluta hand ritanna og hluta af eignum stofnunarinnar til Háskóla ís- lands, gegn mótmælum stofn- unarinnar, í sjálfu sér nauð- ungarafhending. Yfirráð stofn unarinnar yfir eignum sínum teljast hinsvegar að mestu leyti óskyld eignarréttindum þeim, sem vernduð eru gegn eignarnámi, samkvæmt 73. grein stjórnarskrárinnar. Rétt urinn verður hér einkum að leggja áherzlu á þær veru- legu takmarkanir, sem stofn- uninni eru settar í yfirráðum sínum yfir eignunum, og eiga rót sína að rekja til þess, að tilgangur stofnunarinnar hef- ur ekki verið sá að starfa í þágu einstakra aðila, heldur eingöngu að varðveita hand- ritin, með það fyrir augum, að þau yrðu rannsökuð og gefin út, en þeim tilgangi má , ná, þrátt fyrir ákvörðunina , um afhendingu þeirra. Þegar ákvörðun er tekin um, hvort stofnunin skuli láta það viðgangast, að hluti handrit- anna verði afhentur, þykir rétt- inum tilhlýðilegt að benda á, að Árni Magnússon, sem var leynd- arskjalavörður, prófessor við há- skólann í Kaupmannahöfn, og erindreki konungs, hafði mikla möguleika til að komast í sam- Norrænir Lionsfélagar á fundi STÓRMÓT Lionsmanna stendur yfir hér í Reykjavík þessa dag- ana. í gær kom saman samstarfs mót umdæmisstjóra Lions á Norð urlöndum, og taka þátt í því um 20 umdæmisstjórar frá Dan- mörku, Finnlandi, Noregi og Sví þjóð auk íslenzka umdæmisstjór ans og fyrrverandi ísl. umdæmis stjóra. í dag verður sett að Hótel Sögu umdæmisþing íslenzkra Lions- klúbba, en þeir eru 33 víðsveg- ar um landið. Lionsmenn á ís- landi eru nú orðnir eitthvað á annað þúsund. Meðal hinna erlendu gesta, sem hér dvelja eru margir nafn- kunnir menn. Þeir dvelja hér fram á sunnudag og ferðast eitt hvað um suðvesturland og til Þingvalla. band við þá aðila, sem fáanlegir voru til þess að afhenda honum handrit sín. Ákvæði skipulags- skrárinnar um, að íslenzkir styrkþegar og skrifarar skyldu rannsaka og afrita handritin, benda greinilega til þess, að stofnunin hafi borið íslenzka hagsmuni mjög fyrir brjósti. Með tilliti til þeirra sérstöku kringumstæðna, sem hér er um að ræða, verður að telja, að ráð- stafanir laganna gagnvart Árna- safni falli ekki undir fyrsta kafla 73. greinar stjórnarskrárinn ar. Því skal ákærður sýkn saka. — ★ — Með þessum orðum lauk Hast- rup, dómari, upplestri dómsins, sem varð tilefni mikilla um- ræðna meðal áheyrenda. Nokkur stund leið áður_ en meðlimir stjórnarnefndar Árnasafns yfir- gáfu réttarsalinn, og héldu sína leið. Fréttaritari Mbl. spurði Westergárd-Nielsen um álit hans á málinu, en hann veigraði sér við því að láta það í ljós. Þegar í gærkvöldi hafði hann tilkynnt útvarpi og sjónvarpi, að hann myndi ekki ræða dóminn. Hér væri um að ræða málaferli nefnd arinnar, og því þyrfti að koma til umræðna með nefndarmönn- um, áður en nokkur skoðun yrði uppi látin. Umdæmisstjóri íslenzka Lions umdæmisins er Eyjólfur K. Sig- urjónsson, löggiltur endurskoð- andi. ÞAÐ gerðist fyrir nokkru er ein af farþegavélum Flugfélags íslands var að lenda á Reykjavíkurflug- vellí, að flugstjórinn tók skyndilega eftir krakkahópi á flugbrautinni fyrir fram- an flugvélina. Varð flugstjórinn að setja hreyfla flugvélarinnar á fulla orku til að ná henni upp aftur. Mátti þar litlu MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur: „Vegna þess að nú með vor- inu aukast að mun hvers konar framkvæmdir í borgarlandinu og nágrenni, vill Rafmagnsveitan vekja athygli á eftirfarandi: Á sl. ári varð kerfi Rafmagns- veitunnar fyrir meira tjóni af völdum verktaka og ýmissa aðila en dæmi eru til áður. Samkvæmt kostnaðaruppgjöri námu’ tjón á árinu 1965 alls um 1,7 millj. kr. Skemmdir á jarðstrengjakerf- inu urðu alls 194 að tölu og kostn Myndin er tekin á Hótel Sögu í gær, er samstarfsmót Norður- landaljónanna stóð yfir. muna að stórslys yrði. Það hefur iðulega komið fyrir, að krakkar hafi farið inn á flugbrautir, en það er að sjálfsögðu harðbannað vegna slysahættunnar. Mikil ásókn bama og unglinga er að flugvellinum og veldur það starfsmönnum þar erfiðleikum. Eru það til- mæli til foreldra að þau haldi börnum sínum þaðan. aður um 1,6 millj. kr., en á loft- línum urðu 42 skemmdir og kostn aður um 100 þúsund krónur. Kostnaður þessi lendir að sjálf- sögðu á þeim, er tjóninu veldur eða tryggingafélögum. Notendur verða fyrir verulegum óþægind- um vegna þessara bilana og kerf ið er að sjálfsögðu aldrei jafn gott eftir. Þá eru skemmdir þess- ar Rafmagnsveitunni þungar í skauti, þar eð mikið vinnuafl er bundið við stöðugar viðgerðir og tefur þetta fyrir öðrum frarft- kvæmdum". stúsThmr Að lofa því, sem búið er að efna í bréfi til blaðsins segir: „Elsku Tíminn verður heimi óttalegri og leiðinlegri mefS hverjum degi, sem líður. Og svona hefur honum hrakað át! eftir ár. Það má nú segja að w lengi getur vont versnað, og sannast það raunalega á þessu vesalings blaði, sem mókir svona í helfrónni og getur hvorki lífað né dáið, þrátt fyrir „gleðileg jól“ „gott og farsælt nýár“ „hamingju ríkt sumar" frá öllum sölubúð-* um Sambandsins, hverri fyrir sig eins oft og blaðið vantar peni inga. En þrátt fyrir það að fjárhags-* grundvöllurinn sé nú svona og svona heiðarlega fundinn, er mál efnagrundvöllur blaðsins sízt betur fenginn. Eins og allir vita, hafa Framsóknarmenn aldrei haft neitt stefnumál og því orðið að bjargast við það í orði, sem aðr- ir áttu ógert á borði. Er nú svo *- komið þeirra sálarlífi, að þei* hafa ekki annað til málanna að leggja, en að lofa því upp á æru og trú að berjast nú hatrammri baráttu fyrir því, sem búið e» að gera. Þetta kemur glöggt fram á loforðalista Framsóknarflokks- ins til borgarstjórnarkjörs. Þeir bjóðast að visu til að laga hita- veituna í trausti þess, að enginn muni það lengur, að það voru Framsóknarmenn, sem töfðu framkvæmdir hitaveitunnar I áratug. Reykvíkingum og öllum íslendingum til ómetanlegs skaða og tjóns. Einhvern tíma lét Tómas Guð- mundsson skáld þau orð falla, að það gæti hent alla flokka að hafa rétt fyrir sér nerna Fram- sóknarflokkinn. Reynslan hefur löngu staðfest sannleiksgildi þessara ummæla skáldsins.“ * Fjdrskortui fyrir tækja, en hallir Framsóknarmaddaman hefur að undanförnu öðru hvoru bros- að blítt til atvinnurekenda og sýnilega vonað að þeir stígju í vænginn við sig. Hitt veifið hef- ur þó gamla snjáldrið blasað við. Og þannig var það í útvarpsum- ræðunum; annað veifið var hún uppveðruð, hitt veifið ygld. Þannig var t.d. eitt augnablikið um það talað, hve skelfilcga illa væri búið að atvinnufyrirtækj- um fjárhagslega. Þau væru yfir- Ieitt öll á horriminni og fengju ekkert fjármagn til að standa undir rekstri sínum, og því síð- ur til fjárfestingar. En í hinni andránni var tekið að tala um, hve skelfilegt væri að horfa upp á það, að ýmis fyrirtæki hefðu byggt yfir starfrækslu sína í Reykjavík, talað um „skrifstofu- hallir“ og annað í þeim dúrnum. Auðvitað er sannleikurinn sá, að flest íslenzk fyrirtæki eiga við fjárskort að búa. Framfarahugur inn er mikill og menn fjárfesta eftir því sem unnt er. En jafn- fráieitt er að fjargviðrast yfir því, að fyritækin geti bætt starfs aðstöðu sína og þar með komið við betri vinnubrögðum, og búið starfsfólki sínu betri starfsað- stöðu. En öfundin brýst fram hjá Framsóknarmaddömunni, þó að hún láti blíðlega eitt og eitt , augnablik. Álbræðsla stóri vinningurinn — sagdi FramsÖknarþingmað- urinn Hjörtur E. Þörarinssan HJÖRTUR E. Þórarinsson varamaður Gisla Guðmunds- sonar 3. þingmanns Norður- landskjördæmis eystra tók sæti á Alþingi nokkru fyrir þingslit. Svo er að sjá, að þar fari maður með einarðar skoð- anir, sem ekki hafi látið flokksforing jann, Eystein Jóns son, segja sér fyrir verkum. Er frumvarpið um kísilgúr- ▼erksmiðju við Mývatn kom til 2. umræðu í neðri deild í fyrradag tók Hjörtur til máls. Sagði hann þá, að sérstök ástæða væri nú fyrir íbúa Norðurlands að taka vel öllum heiðarlegum tilraunum til stofmunar atvinnufyrirtækja, þar sem sá landsfjórðungur hefði nú misst af stóra vinn- ingnum, sem væri álbræðslan. Hvað sem um hana væri sagt, væri það staðreynd að fyrir- tæki sem hún hlyti að vera feikmaleg lyftistöng fyrir at- vinnulif hvar sem hún væri selt niður. Lauk Iijörtur máli sínu með því að segja að með tilliti til skýrimga sem samninga- nefud um kísilgúrverksmiöj- una hefði látið uppi, væri það álit sitt, að þingmenn yrðu að taka þær goðar og girdar og rétt væri aö samþykkja frum- varpið eins og paö lægi fyrir. Við atkvæðagreiðslu greiddi síðan Hjörtur atkvæði með frumvarpinu, ásamt þrem öðr- um þingmönnium Framsóknar- flokksins i deildinni, þeim Birni Pálssyni, Jóni Skafta- syni og Ingvari Gíslasyni. Flugstjðranum tókst að forða stórslysi Barnahöpur á flugbrautinni er flugvélin var að lenda Skemmdir á rafveitukerf- inu námu 1,7 millj. kr. ’65 t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.