Morgunblaðið - 06.05.1966, Side 11
FöstudagtfP 8. tnaí 1966
MORGUNBLAÐIÐ
11
Tvær starfskonur safnsins, sem annast útlán.
— Möhlenbrock minnist á
hljómplötusöfn í skýrslu sinni.
Hvernig yrði starfræksla
slíkra safna hér?
— Víða erlendis er komið
upp hljómplötusöfnum í sam-
bandi við bókasöfn, bæði til
útlána en einnig til afspil-
unar á staðnum. Þegar aðeins
er um afspilun að ræða er
hægt að komast af með frem-
ur lítið húsnæði. Má byrja
með þrjú til sex hlustunar-
tæki, en afspilunartæk.ið er þá
í borði hjá bókaverði, sem
annast alla a fgreiðslu fyrir
það. Kostnaðurinn af slíku
hljómplötusafni yrði því aðal-
lega stofnkostnaður. Væri
hentugast að koma upp slíku
safni í útibúinu við Sólheima
eða í aðalsafni borgarinnar.
Mörg fleiri verkefni má
nefna, m.a. stækkun safnsins
við Sólheima, talplötusafn til
útlána fyrir blinda, aldraða
og sjúka, útlán bóka með
blindraletri, menntun bóka-
varða og bókasafnsrekstur í
sjúkrahúsum og slíkum stofn-
unum.
Ýtarleg byggingaráætlun er
lögð fram fyrir það með upp-
lýsingum um húsrýmisþörf
og meginreglum um tilhögun
byggingarinnar. Hliðstæðar
uppiýsingar eru lagðar fram
fyrir bókasafnsútibúin, sem
lagt er til að hýsa eftir því
6em frekast er unnt í heppi-
lega staðsettum skólabygging-
um, þannig að starfsemi bóka
eafnsútibúanna tengist við
skólabókasöfnin.
d) Útlánsstörfin
f hagræðingarskyni er
lagt til að taka upp útláns-
eðferðir, sem spara vinnu,
með því að leggja alveg nið-
ur nokkur af núverandi verk-
efnum og taka upp einfaldari
aðferðir við skýrslugerð.
e) Bókakosturinn
Lögð er fram tillaga um
meginreglur við bókakaup
ásamt hagkvæmara fyrirkomu
lagi við bókaval og bókfræði-
lega og bókatæknilega með-
höndlun bókanna. Bókakost-
inn, bæði í aðalbókasafninu
©g útibúunum, þarf að auka
verulega, og eru lagðar fram
tillögur um það.
f) Starfsmannamál
Framtíðarþróun bókasanfs
reksturs í Reykjavík er al-
gerlega háð þjálfun starfsliðs.
Gerð er tillaga til langs og
skamms tíma um ráðningu og
þjálfun starfsliðs.
g) Skólabókasöfn
Koma ber upp bókasöfn-
um í öllum skólum í Reykja-
vík til notkunar við kennsl-
una. Gerð er tillaga um bráða
birgðaráðstafanir til úrbóta
þar til ráðizt er í almenna
aukningu skólabókasafnanna.
Mælt er með samvinnu við
Borgarbókasafnið bæði varð-
andi bókasafns-tæknileg atr-
iði og húsnæði.
h) Fjármál og
fjárhagsáætlanir
Gerð er, eftir því sem
unnt er, grein fyrir kostnað-
inum við framkvæmd þeirra
tillagna, sem lagðar eru fram
í álitsgerðinni. Lagt er til að
gera afkastaáætlun til viðbót-
«r venjulegri fjárhagsáætlun.
Meginhluti ofangreindra til-
lagna miða að frambúðarúr-
lausnum. Vissar ráðstafanir
er hins vegar nauðsynlegt að
gera nú þegar meðan beðið
er eftir varanlegum úrlausn-
um, og fylgja því hér drög að
framkvæmdaáætlun.
1. Húsnæði aðaibókasafnsins
Núverandi alltof naumi
húsakostur aðalbókasafnsins
aftrar gersamlega áframhald-
andi þróun í sjálfri útláns-
starfseminni og hlutverki þess
sem miðstjórnarstöð bóka-
safnsrekstrar borgarinnar. —
f>að þarf þes vegna að ráðast
sem allra fyrst í byggingu nýs
bókasafnshúss.
Ráðstafanir: Ákvörðun tek-
in um staðsetningu bókasafns
hússins í miðbiki fyrirhugaðs
nýs miðborgarhverfis. Endan-
leg byggingaráætlun gerð á
Snorri Hjartarson,
fyrrv. borgarbókavörður
grundvelli þeirrar áætlunar,
sem lögð eru drög að í álits-
gerðinni. Arkitekt er tilnefnd-
ur til þess verkefnis að leggja
fram nauðsynlegar teikningar
til þess að gera nákvæma
kostnaðaráætlun. Ákvörðun
tekin um byggingu nýs bóka-
safnshúss og nægilegt fjár-
magn veitt til þess. Sem bráða
birgðalausn þröngbýlisins í
núverandi húsnæði er lagt til
að deildin fyrir börn og ungl-
inga verði flutt frá aðalbóka-
hafninu í annað rúmbetra hús
næði annað hvort í tengslum
við lestrarsal í skóla nálægt
miðbænum eða í annað hús-
næði sem tekið yrði á leigu.
Aðkallandi aukning á bóka-
kosti deildarinnar komi til
framkvæmda.
2. Húsnæði útibúanna
Áriðandi er að fylgzt sé
með mögulegri samhæfingu á
húsnæði útibúanna og skóla-
bókasafnanna, þannig að kom
ið verði á réttri staðsetningu.
3. Bókasafnsbíll
Sem bráðabirgðalausn á
aukningu útibúastarfseminnar
og skólabókasafnanna er lagt
til að koma upp bókasafns-
bíl. Keyptur verði bíll, sem er
sérstaklega útbúinn til þessar-
ar starfsemi og jafnframt afl-
að nauðsynlegs bókakosts.
Bókasafnsbíllinn hafi við-
viðkomu á hverri biðstöð
einu sinni í viku með 1—2
klst. útlánstíma á hverri bið-
stöð.
4. Hagræðingaraðgerðir
Ákvörðun tekin um að
taka upp einfaldari útlánsað-
ferðir, sem hafi í för með sér
afnám sérstaks útlánsgjalds,
notkun lántakandaspjald-
skrár, bókaspjalda við útlán-
in, sundurliðaðar útláns-
skýrslur, sérstakar skýrslur
um útlán bóka eftir íslenzka
höfunda, upptöku einfaldari
aðferða við frágang bóka og
innheimtu útrunninna út-
lána.
Ákvörðun tekin um að taka
upp einfaldari aðferðir við
undirbúningsvinnu að bóka-
kaupum o.s.frv., sem hafa ber
í för með sér notkun hag-
kvæmari eyðublaðatækni, af-
nám bókakaupsskráa, notkun
véla við fjölföldun spjald-
skrárkorta, vissa verkaskipt-
ingu með sérhæfingu.
5. Fræðslustarfsemi
Teknir verði upp samning-
ar við Statens biblioteksskole
í Osló um inntöku nokkurra
íslenzkra nemenda í skólann.
Vissri eigin fræðslustarfsemi
verði komið á fót innan Borg-
arbókasafnsins með kennur-
um bæði úr starfsliði safnsins
og utan þess.
6. Starfsmannamál
Vissri verkaskiptingu verði
komið á í sambandi við eigin
fræðslustarfsemi. Lauk verði
samræmd við starfshæfni og
verkefni. Stofnað verði starf
aðstoðarborgarbókaverðar
með verkefnum, sem greint
er frá í tillögu að erindis-
bréfi.
■ Framkvæmdir með hliðsjón
af skýrslu Möhlenbrocks
— Hverjar verða fram-
kvæmdirnar, sem gerðar
verða með hliðsjón af þessari
skýrslu, Jónas?
— Um það veit ég ekki
gerla enn, enda mun hinn
nýi borgarbókavörður, sem
tekur við embætti í vor, vinna
að því, að hrinda þeim í fram-
kvæmd með borgarráði. En
ég hef myndað mér skoðanir
á því, sem gera þarf og hef
ég ritað borgarstjóra bréf þar
að lútandi, sem nú hefur ver-
ið lagt fyrir borgarráð. Ég
tel nauðsynlegt að þegar stað-
setning .aðalborgarbókasafns-
ins í væntanlegum nýjum mið
bæ hefur verið ákveðin verði
arktitekt fenginn til að teikna
húsið. Hins vegar er rétt, að
nú þegar verði hafist handa
um nauðsynlegan undirbún-
ing, sem sé varðandi húsnæð-
isþörf og rekstrarfyrirkomu-
lag. Allt of þröngt er nú um
barnadeildina í Borgarbóka-
safninu við Þingholtsstræti og
þarfnast hún nýs húsnæðis.
Þá þarf að hefjast handa um
undirbúning að starfrækslu
‘bókabifreiðar, en hún þarf að
geta tekið í hillur um 2500
bindi. Reikna má með að nota
megi gamlan strætisvagn, 10
—11 metra á lengd og 2,5
metra á breidd. Verði þessari
bifreið ætlað að annast útlán
í nýjum hverfum borgarinn-
ar áður en útibú eru reist þar
og einnig í þeim hlutum borg-
arinnar ,sem vegna fámennis
bera ekki útibú.
Aðstaða útibús Borgarbóka-
safnsins í Vesturbæ er ófull-
nægjandi og þarf að útvega
rúmgott húsnæði þar. Annað
hvort þarf að byggja yfir safn
ið eða fá húsnæði leigt. At-
hugandi væri einnig hvort
bókabifreið gæti ekki sinnt
þörfum hverfisins að ein-
hverju leyti, þar til rýmra
húsnæði fæst.
Starfsemi Borgarbóka-
safnsins 1965
í skýrslu um starfsemi
safnsins má sjá, að heildar-
útlán Borgarbókasafnsins ár-
ið 1965 voru samtals 266.898
bindi, en það er 8378 bindum
meira en árið áður. Lánþeg-
um fjölgaði á árinu 276 og
gestum lesstofu aðalsafns um
203. Aftur á móti fækkaði
gestum á lesstofum barnaskól-
anna um 563.
Eftirtektarvert er hve útlán
bókakassa til skipa hefur auk
izt, en á árinu voru lánaðir
117 kassar (í hverjum kassa
eru 40 bækur) í stað 92 árið
áður, eða 27 fleiri.
Árið 1965 voru keyptar 1
bókasafnið 8793 bækur fyrir
samtals kr. 1.218.413.11. Af
þessum bókum voru 6425
skáldrit á íslenzku og 266
skáldrit á erlendum tungum.
Bækur um fræðileg efni voru
2102, þar af voru um 303 á
erlendum málum. Meðalverð
keyptra bóka i safnið á árinu
var kr. 138.50, en árið 1964
var það kr. 114.00.
Bókaeign safnsins í árslok
1964 var 89.506 bindi. Árið
1965 voru sem fyrr segir
keypt 8793 bindi, 71 afskrif-
uð bók kom aftur: samtals
8864. Á árinu voru 240 bæk-
ur afskrifaðar sem tapaðar,
og 5650 bindi urðu ónýt, sam-
tals: 5890 bindi. Aukning
binda á árinu varð því 2974
bindi. f árslok 1965 bókaeign
safnsins alls 92.480 bindL
x-
Hér lesa skólanemendur undir próf í ró og næði.
»
U K
BORGIMIMI U
GINNI