Morgunblaðið - 19.07.1966, Qupperneq 2
2
MORCU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 19. júlí 1966
Síldarsöltun á 5 stöðum
norðanlands og austan
Sildin siór og falleg, en nýting ekki
góð, vegna hve gömul hún er orð/n
ÍLDARSÖL.TUN var á nokkr- aðfaranótt sunnudagsins,
SÍLDARSÖUTUN var á nokkr-
um stöðum á Norður- og Aust-
urlandi í gaer, og var að hefjast
á nokkrum öðrum til viðbótar.
Mbl. hafði samband við frétta-
ritara sína á fimm stöðum, Siglu
firði, Húsavík, Raufarhöfn,
Vopnafirði og Seyðisfirði, og
ara upplýsingar þeirra um síldar
söltunina hér á eftir:
Til Siglufjarðar kom Gjafar
frá Vestmannaeyjum í gærdag
með um 850 tunnur. Lagði hann
upp í síldarsöltunarstöðinni ísa-
fold, og voru söltuð úr skipinu
um 600 tonn, en afgangaurinn
fór í bræðslu.
Fyrsta síldin til söltunar barst
tli Húsavíkur í gær. Kom Héðin
J>á með 700 tunnur, Náttfari með
400 tunnur, og von var á Helga
Flóventssyni í nótt með um 700
tunnur. Síldin var stór og falleg,
en full langt að komin, svo að
minni hluti hennar er söltunar-
hæfur.
Til Raufarhafnar byrjuðu bát-
wnir að streyma af miðunum
Þrennt slosnst
í bílslysi í Borgarnesi
ÞAÐ slys vildi til í Borgar-
firðinum á 11. tímanum sl.
sunnudag að bifreið valt með
þeim afleiðingum að þrir af
fjórum, sem í bílnum voru slös-
uðust.
Bifreiðin, sem var frá Akur-
eyri var að koma fráBifröst, er
það óhapp vildi til að það sprakk
á framhjóli bifreiðarinnar með
þeim afleiðingum að hún fór
út af veginum, fór heila veltu
og lenti í hraungjótu.
Tvær konur og karlmaður,
sem ók bifreiðinni, slösuðust
nokkuð, og voru þau flutt með
sjúkrabifreið frá Borgarnesi í
sjúkra'húsið á Akranesi, og kom
þar í ljós að þau höfðu öll hlot-
ið nokkur beinbrot, þó ekki
mjög alvarlegs eðlis. Var gert
þar að sárum þeirra, en síðan far
ið með þau til Reykjavíkur.
aðfaranótt sunnudagsins, og
hafa verið að koma að fram að
þessu, með all góða söltunarsí'd.
Sagði Einar Jónsson, fréttaritari
Mbl. á Raufarhöfn, að síldin
væri framúrskarandi góð, er hún
veiddist, en 20 tíma sigling væri
til Raufarhafnar af miðunum, og
v.æri nýting hennar því ekki sem
Skyldi, eða um 30—40%, sérstak
lega þar sem veður hefði ekki
verið gott á leiðinni til lands.
En síldin væri, eins og fyrr seg-
ir, geysilega stór og bústin, og
hefði fitumagn hennar mælzt
26%. Hann sagði enfremur að
verið væri að salta á níu sölt-
unarstöðvum, en það gengi frem
ur hægt, vegna mikillar mann-
eklu á stöðvunum.
Von var á fyrstu síldinni til
söltunar á Vopnafirði kl. 4 í
nótt sem leið. Var væntanlegur
einn bátur, Jón Kjartansson
með 1200 tunnur til Auðbjargar
hf. Báturinn hefur kælingu í
lest, og stóðu því vonir til að
hægt væri að salta mestan hluta
veiðinnar, og þá væntanlega á
Finnlandsmarkað.
Reykjaborg kom aðfaranótt
mánudags með 800 tunnur af
mjög góðri síld til Seyðisfjarðar.
Var þetta stórsíld, í kringum 32
cm. að lengd, mjög jöfn, og fitu-
magn í kringum 21—23%. Var
nýtingin í kringum 50%, enda
þótt þetta væri um 30 tíma göm-
ul síld. Er ástæðan fyrir þessari
góðu nýtingu eflaust sú, að skip
verjar stráðu^ís á hana, þannig
að hún lét mun minna á sjá en
ella. Til Seyðisfjarðar kom einn
ig annar bátur af sömu slóðum
á sama tíma. Var síldin úr þeim
bát mjög svipuð, en nýtingin
margaflt verri, enda hafði afl-
inn þar ekki verið ísaður. Von
var á tveimur eða þremur bát-
um til Seyðisfjarðar í gær eða
í nótt serti leið, og stóðu von-
ir til að einnig yrði mögulegt
að salta hana.
Guttormur Erlendsson Iútinn
Rúnar Bjarnason,
slökkviliðsstjóri.
GUTTORMUR Erlendsson,
hæstaréttarmálaflutningsmaður,
formaður framtalsnefndar
Reykjavikurborgar andaðist í
Landakotsspítalanum sl. sunnu-
dagsmorgun. Banamein hans var
heilablóðfall.
Guttormur Erlendsson var
fæddur að Breiðabólsstöðum á
Álftanesi 13. apríl árið 1912. Var
hann þvi aðeins 54 ára gamail
er hann lézt. Foreldrar hans
voru Erlendur Björnsson, hrepps
stjóri og kona hans María Sveins
dóttir.
Guttormur varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík ár
ið 1932 og útskrifaðist lögfræð-
ingur frá Háskóla íslands 28.
maí 1938. Ennfremur lagði hann
um skeið stund á framhaldsnám
í lögfræði í Danmörku, Þýzka-
landi og Englandi. Hann var
skrifstofustjóri hjá Félagi ísl.
iðnrekenda frá 1939 til 1941. Síð
an réðizt han til Reykjavíkur-
borgar og gegndi ýmsum störf-
um í þágu borgarinnar. Var m.a.
aðalendurskoðandi reikninga
borgarinnar frá 1942 og til dauða
dags. Hann átti sæti í niðurjöfn-
unarnefnd Reykjavíkur frá 1952
til 1962 og formaður hennar frá
1956. Þá var hann kosinn í fram
talsnefnd Reykjavíkur 1962 og
Margir æfl&iðu
tiS Grænlands
MIKILL fjöldi ferðamanna ætl-
aði um heigina að fara héðan til
Kulusuk á Grænlandi, en kom-
ust ekki vegna slærnra lending
arskilyrða á Grænlandi. T.d.
varð flugvél frá Loftleiðum,
sem fór frá Akureyri til Græn-
lands, að snúa við. Sömuleiðis
munu tvær feiðir Flugfélags ís
lands hafa faliið niður.
Rúnor Bjornason skipnður
slökkviliðsstjóri borgarinnar
RÚNAR Bjarnason, verkfræð-
* ingnr, hefur verið skipaður
slökkviliðsstjóri Reykjavíkur frá
og með 1. ágúst.
Rúnar Bjarnason lauk stúd-
entsprófi frá MR 1951, en nam
síðan efnaverkfræði við K.T.H.
í Stokkhólmi, og lauk því 1955.
Hann starfaði síðan sem aðstoð-
arkennari við K.T.H. 1954—55.
Hann réðst til Áburðarverk-
smíðju rlkisins síðari hluta árs
1955, og hefur verið þar ávallt
síðan fastur starfsmaður. Vann
hann þar fyrst að rannsóknar-
störfum, en hefur síðan gegnt
fjölmörgum trúnaðarmannsstörf-
um fyrir verksmiðjuna.
Auk þessa hefur Rúnar kennt
við Menntaskólann í Reykjavík
síðan 1957 og við Vélskólann frá
1957—60. Prófdómarastörfum við
Tækniskólann hefur hann gegnt
síðan 1965. Hann hefur kennt á
námskei'ðum og fengizt við athug
anir á sprengihættu á vegum
Slökkvistöðvar Reykjavíkur.
Rúnar Bjarnason tekur við af
Valgarð Thoroddsen, sem verður
rafveitustjóri ríkisins.
var formaður hennar. Ymsun
öðrum trúnaðarstörfum gegndi
hann í þágu borgarinnar.
Guttormur Erlendsson var
ágætlega greindur maður, prýði
lega menntaður og starfhæfur.
Bygging Alman navarna í Mosfellssveit
Almannavarnir reisa
hús í Mosfellssveit
UNNIÐ ER nú að byggingu fyr
ir Almannavarnir Reykjavíkur
fyrir ofan og sunnan Reykjahlíð
í Mosfellssveit. Byggingin verð
ur 560 fermetrar að stærð, og
verður á einni bæð. Verður hún
að mestu leyti neðan jarðar,
nema rétt framhliðin. í bygging
unni eiga að verða aðalgeymsl-
ur fyrir Almannavarnir Reykja
víkur, og cr búizt við því, að
það verði tekið í notkun á hausti
komanda.
Þessi geymslubygging er önn-
ur af byggingarframkvæmdum á
vegum Almannavarna Reykja-
víkur, því að tilhlutan almanna-
varnaneíndar var fenginn hluti
af kjallara nýju slökkviliðsstöðv
arbyggingarinnar. Var hann
styrktur sérstaklega með tilliti
til þess að þar yrði stjórnarstöð
fyrir almannavarnir borgarinn-
ar. Er það húnsæði nú alveg tiL
Almannavarnanefnd hefur
ennfremur gengizt fyrir því, að
tveir menn. varaslökkviliðsstjóri
og einn brunavörður, voru send-
ir á almannavarnaskóla danska
ríkisins. Voru þeir sérstaklega
sendir út með tilliti til þess að
þeir gætu þjálfað hér heima við
almannavarnastörf.
Vaxandi efnahags
vandræði Breta
- Búizt við ströngum ráðstöfunum Wilsons
til styrktar pundinu
London, 18. júlí. — NTB—AP
• Mikið verðfall varð á kaup-
höllinni í I.ondon í dag og er
nú margt ritað og rætt um efna-
hagsvandræði þau er steðja að
brezku þjóðinni. Er búizt við, að
Harold Wilson, forsætisráðherra
leggi alveg á næstunni frans
nýjar tillögur, er miði að þvi
að styrkja sterlingspundið. Jafn.
framt er óttazt, að afleiðingarna)
Framh. á bls. 12
Heildaraflinn orðinn tæpum
40 þús. lestum meiri en í fyrra
Vikuaflinn nam 26 þús. lestum, nær allur í bræðslu
MBL. hefur borizt yfirlit Fiski-
félags íslands um síldveiðarnar
norðanlands og austan vikuna
10.—16. júlí 1966. Fer hún hér
á eftir:
Sunnudagurinn 10. júlí var
bezti afladagur vertiðarinnar til
þessa. 42 skip tilkynntu síldar-
leitinni 9.085 lesta afla, sem
fékkst um 100 sjómílur SA af
Jan Mayen. Fékkst talsverður
afli á þessum slóðum næstu
daga, en seinni hluta vikunnar
gerði brælu og var veiði sára-
lítil af þeim sökum.
Aflinn sem barst á land í síð-
ustu viku nam 26.281 lestum. Fór
það magn í bræðslu, nema 25
lestir sem fóru í salt.
Heildarmagn komið á land á
miðnætti laugardagskvöld var
161-155 lestir og skiptast þannig
eftir verkunaraðferðum:
í salt 390 lestir
í frystingu 22 —
f bræðslu 160.824 —
Á sama tíma í fyrra var heild
araflinn sem hér segir:
í salt 48.745 upps. t.
( 6.581 1.)
í frystingu 3.124 uppm. t.
( 337 1.)
í bræðslu 837.868 mál
(113.112 1.)
Samanlagt nemur þetta
120.030 lestum.
lestir
Reykjavjk 17.476
Framh. á bls. i
SV-ÁTT var ríkjandi um allt
land í gær, og einnig á mið-
unum norður undir Jan Ma-
yen. Úrkomulaust var um
allt land, noma EINN dropi
eða svo á Stórhöfða um há-
degið. Urðu áhrif smálægðar
innar fyrir sunnan landið
ekki meiri en þetta. — Ný
lægð fór dýpkandi yfir
Labrador og stefndi hingað,
en mun þó varla gera hér
neinn usla í dag. Ágæt sumar
hlýindi voru austan og norð
an lands í gær 19 stig á Eg-
ilsstöðum, en 18 á Akureyri
og Raufarhöfn.