Morgunblaðið - 19.07.1966, Qupperneq 5
f>rlðjudagur W. Jðll 1966
MORGU NBLAÐIÐ
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
KL. 9.15 í gærmorgun setti
borgarstjórinn í Keykjavík, Geir
Ilallgrímsson, mót Norrænna
brunavarða, er mun standa yfir
fram á n.k. föstudag. Viðstadd-
ár setningu mótsins voru 32 er-
endir gestir, svo og nokkrir
íslenzkir brunaverðir, en Island
á ]>rjá fulltrúa á mótinu, en
Þátttakendur á bílastæðinu fyrir framan Slökkvistöðina.
32 erlendir gestir sitja
mót Norrænna brunavarða
— Mótið hófst i gær og stendur til n.k. föstudags
auk þess geta allir meðlimir
Brunavarðafélags Reykjavíkur
setið mótið, eftir því sem ástæð
ur þeirra leyfa.
Mótssetningin fór fram í nýju
slökkvistöðinni við Reykjanes-
braut og að lokinni ræðu borg-
arstjóra flutti Tryggvi Ólafsson
formaður Brunavarðafélags
Reykjavíkur ávarp, svo og full-
trúar erlendu gestanna.
Eins og áður segir, sitja 32
útlendingar mótið. Eru það 12
Svíar, 6 Finnar, 6 Norðmenn, 6
Danir og 2 Bretar. Islenzku full
trúarnir á mótinu eru Sigurður
Þórðarson frá brunaliði Hafnar-
fjarðar, Gunnlaugur Búi Sveins
son frá Brunaliði Akureyrar og
Jón Guðmundsson frá brunalið-
inu á ReykjavíkurflugveUi.
Morgunblaðið náði tali af Gísla
Jónssyni er var ritari undirbún-
ingsnefndar mótsins, en auk
hans áttu sæti í nefndinni þeir
Finnur Richter, er var formað-
ur hennar, Jón Guðjónsson,
Brynjólfur Karlsson og Karl
Magnússon.
Gísli sagði, að þetta væri í
fyrsta skiptið er slíkt mót væri
baldið hérlendis og sennilega
yrði mót ekki haldið hér aftur
á næstunni, þar sem fsland væri
ekki aðili að Sambandi bruna-
varða á Norðurlöndum. Stafaði
það að því að Norrænum bruna-
vörðum þætti of langt og dýrt að
eækja mót til íslands. Gísli
eagði að undanfarin 10-12 ár
hefðu íslenzkir brunaverðir
eent 2 fulltrúa til þessara móta
sem haldin væru árlega til skipt
is á hinum Norðurlöndunum. I>á
væri einnig siður að bjóða til
mótsins 2 fulltrúum frá ein-
hverju öðru Evrópulandi og
hefði Bretland nú orðið fyrir val
inu. Mótin væru haldin til að
efla gagnkvæm kynni bruna-
varða, og skiptast á reynslu og
þekkingu á sviði brunavarna-
mála.
Gísli sagði, að upphaflega
befði verið gert ráð fyrir að
mót þetta færi fram hérlendis
árið 1964, en ekki hefði getað
orðið af því þá af ýmsum ástæð
um og þá sérstaklega fjárhagsörð
ugleikum. Undirbúningur að
mótinu hófst 1962, með því að
Brunavarðafélag Reykjavíkur
efndi til happdrættis, og hefur
staðið siðan. Sagði Gísli að
margir hefðu orðið til að sýna
málinu skilning og fyrirgreiðslu
og mætti sérstaklega tilnefna
borg og ríki.
Þá gat Gísli þess að í tilefni
imótsins hefði mótsstjórninni
verið falið að gera félagsfána
Brunavarðafélagsins og hefði
hún fengið Sigurð Karlsson til
að teikna hann. Hefði hann nú
verið afhentur formanni félags-
ins við setningu mótsins. Þá
hefði einnig verið gert merki
mótsins og væri það eins og
fáninn, að öðru leyti en því
að í stað orðanna Brunavarða-
félag Reykjavíkur stæði Bruna-
varðamót Reykjavík 1966. Var
eitt slíkt merki gert úr gulli
og það afhent bongarstjóra er
hann setti mótið.
í gær flutti svo Einar Eyfells
verkfræðingur erindi um bruna-
varnir í Reykjavík og gat hann
þess í upphafi máls síns, að
fyrsti vísirinn að eldsvörnum í
Reykjavík tnundi vera frá árinu
1773, en þá hefði verksmiðju-
stjórn Innréttinganna gefið út
auglýsingu þar sem fyrirskip-
að var að farið skyldi varlega
með eld og ösku og hótað við-
urlögum, ef út af væri brugð-
ið. Nokkrum árum seinna hefði
verið komið á næturvörzlu í
bænum og hefði það verið eitt
af verkefnum næturvarðarins
að gæta þess að farið væri var-
lega með eld og ljós.
Árið 1806 hefði svo bæjarfó-
getinn gefið út auglýsingu, þar
sem fólk var áminnt um að fara
varlega með eld og ljós, ösku
og annan úrgang, og á næsta
ári hefði danski stiftamtmað-
urinn gefið út auglýsingu um
sama efni, sem hefði þó geng-
ið lengra og verið ýtarlegri.
Hefðu þar m.a. verið allströng
ákvæði um ýmsan atvinnurekst-
ur, sem eldhætta þótti stafa af.
Var hér sett á bann á bann ofan,
svo mönnum þótti nóg um, og
hefði auglýsingin verið kölluð
„bannauglýsingin“. Rakti Einar
síðan sögu eldvarnaeftirlitsins í
Rvík svo og núgildandi lög og
starfshætti slökkviliðsins.
Eftir hádegi flutti svo dr. Sig-
urður Þórarinsson erindi og
sýndi Surtseyjarkvikmynd sína
og Arne Nilsson flutti erindi
um brunavarnaskipulag í Gauta
borg. Sagði hann m.a. í erindinu
að Gautaborg væri skipt í þrjú
svæði, hvert með tvær slökkvi-
stöðvar. Hverju svæði væri
stjórnað af svæðisbrunavarna-
verkfræðingi; sem til aðstoðar
hefði einn brunavarnaverkfræð
ing. Svæðisstjóri og aðstoðar-
menn hans sæju um öll erindi,
sem tilheyrðu svæðinu. Gat Arne
Nilsson þess í lok erindis síns
að bruna- björgunar- og vernd-
arkvaðningar í Gautaborg hefðu
Taugaveiki
i Bonn
BORIZT hefur tilkynning um,
að taugaveiki hafi komið upp í
nágrenni Bonn í Þýzkalandi. 27
manns hafa þegar veikzt, og 27
tilfelli eru grunuð. Mönnum, sem
hafa í hyggju að ferðast til
Bonn eða nágrennis, er ráðlega
að láta bóiusetja sig gegn tauga-
veiki. (Frétt frá landlækni)
— Heildaraflinn
Framhald af bls. 2
Siglufjörður 935
Hjalteyri 411
Húsavík 1.994
Vopnafjörður 9.873
Seyðisfjörður 38.389
Eskifjörður 13.216
Fáskrúðsfjörður 7.008
Djúpivogur 1.762
Bolungavík 3.157
Ólafsfjörður 2.767
Krossanes 6.325
Raufarhöfn 22.549
Borgarfjörður eystri 591
Neskaupstaður 26.608
Reyðarfjörður 7.022
Breiðdalsvík 879
Borgarstjóri áva. par mótið.
— Varðberg
Framh. af bls. 3.
funda herrnar eru þau. falin 5
manna framkvæmdastjórn.
VARÐBERG er aðili áð At-
lantic Assoeiation of Young Poli
tical Leaders, samtökum ungra
áhugamanna um vestrænt sam-
starf í 15 Atlantshafsrikjum.
Fulltrúi félagsins í fram-
kvæmdastjóm þeirra samtaka er
Björgvin Vilmundarson.
— Moröinginn
Framh. af bls. 1
inn frá 1963. Ekki var vitað
með vissu hvenær hann var
látinn laus aftur.
Mjög lítið er enn vitað um
yfirheyrslur lögreglunar, og
hefur hún neitað að láta
blaðamönnum í té upplýsing-
ar um málsmeðferð, og ljós-
myndarar hafa ekki fengið
leyfi til myndatöku.
verið samtals 2208 árið 1965.
Þar af vegna bruna 1834, björg-
unar 289 og verndar 85.
Sjúkraflutningar á sama
tíma hefðu verið 40.315, þar af
vegna slysa 5814.
í gær var svo farið með gest-
ina í kynnisferð um borgina og
nágrenni hennar og í gærkvöld
var haldin kvöldvaka.
í dag verða m.a. flutt erinidi
um launaimál brunavarða og um
samvinnu á vinnustöðum. Þá
verður einnig farið til Þingvalla.
Á mongun flytja m.a. Valgarð
Thoroddsen og Rúnar Bjarna-
son erindi; á fimmtudag verður
flogið til Akureyrar og ekið
þaðan að Mývatni og á föstu-
dag munu gestirnir skoða
Aburðarverksmiðjuna, hitaveit-
una og fl. og þá fara einnig
fram mótsslit.
Skrifstofustjóri - Fulltrúi
Ungur maður með rnargra
ára starfsreynslu óskar eft-
ir góðri stöðu við iðin- eða
innfluitningsfyirirtæki. Van-
ur bókhaldi og eriendum
bréfaskriftum. Getur unnið
algerlega sjálfstætt, og séð
um daglegum rekstur fyrir
tækja. Tilfboð sendist í
póstíhólf 1324.
íbúð óskast
Ung reglusöm hjón, bæði við
nám í læknisfræði, óska eftir
2ja—3ja herbergja íbúð, helzt
í Vesturbænum, nú þegar eða
fyrir 1. okt. Uppl. í síma
16329 eftir kl. 8 næstu kvölid.
Bíll — Stöiívarpláss
Til sölu er sendiferðabill, ár-
gerð ’64. Verður til sýnis að
Kleppsveg 120 frá kl. 20-22.30
næstu kvöld. Uppl. 5. hæð til
hægri. — Sími 34704.
4