Morgunblaðið - 24.07.1966, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.07.1966, Blaðsíða 1
32 síður Kunnur lögfræðingur ver Richard Speck Dularfullt mál í Hollandi — Enginn skjólstæðinga hans hefur hlotið dauðarefsingu Hvað varð kínverska verkfræiingnum að bana? DXJLARFUL.l,T mál kom upp í Hollundi um síðustu helgi — mál, sem orðið hefur til þess, að kínverska sendiráðsfull- trúanum í Haag var vísað úr landi sl. sunnudag sem per- sónu „non grata“ og hollenzka sendiráðsfulltrúanum í Pek- ing hefur einnig verið vísað úr landi í hefndarskyni. Málavextir eru þeir, að sl. laugardag fannst kínverskur verkfræ'ðingur illa meiddur á götunni úti fyrir aðsetri kín- verska sendiráðsins í Haag. Var það einn af starfsmönn- um sendiráðsins, sem fann manninn og lét bera hann inn í sendiráðið. Síðan var kallað á lögregluna og þegar hún kom á vettvang, leyfðu starfs- menn sendiráðsins, að verk- fræðingurinn yrði fluttur í hollenzkt sjúkrahús, þar sem hann óskaði eindregið eftir því. Eftir fljótlega rannsókn var sú skýring talin líkleg, að maðurinn hefði sætt mis- þyrmingum, en ekki gafst læknum sjúkrahússins tóm til að kanna sár hans betur, því að hann hafði þar aðeins skamma stund verið, er nokkr ir menn frá sendiráðinu komu þangað og fluttu manninn brott með valdi, undir for- ystu annars ritara sendiráðs- ins, Liao Ho-shou. Hollenzka utanríkisráðu- neytinu var þegar tilkynnt um málið. Var þegar haft sam band við sendiráðsfulltrúann, Li En-shiu (þess er rétt að geta, að Hollendingar viður- Framhald á bls. 31 Mynd þessi var tekin sl. þriðj udag, er kínverski sendifulltrú- inn Li En-chiu og kona hans fóru frá Hollandi. Þau neituðu að svara spurningum fréttamanna á þeirri forsendu, að þau kynnu ekki ensku. Myndin var tekin á Schipol-flugvellinum í Amst- erdam. Saigon, Hanoi, 23. júlí, AP. Fregnir, sem borizt hafa til Saigon herma, að ýmislegt bendi til þess, að Kínverjar séu farnir að berjast í S-Víet- nam við hlið hermanna frá N-Víetnam. # Bandarískir fótgönguliðar hafa síðustu dagana átt í höggi — ásamt hermönnum S-Víetnam — við herdeild frá N-Vietnam og upplýsti fimmtán ára hermaður sem handtekinn var, að í þess- ari deild væru kínverskir ráð- gjafar. Aðrar fregnir, óstaðfestar, segja, að a.m.k. einn herflokkur Kínverja, sé í þessari deild N- Víetnam-manna. • Þá berast fregnir frá Da Nang þess efnis, að nýlega hafi fundizt fallnir hermenn úr liði N-Vietnam, sem allt bendi til að séu kínverskir. Hafi og nokkur Eg er bara þriggja ára, heiti Lárus Halldorsson og er kallaður Lalli. Þið haldið kannski að það sé ekki leiðinlegt að liggja á spítala, þegar sólin skín fyrir utan gluggann. Og þótt systurn- ar séu mér góðar, langar mig voðalega út að leika mér með hinum krökkunum. (Ljósm. ÓI. K. M.) Sjá frásögn og myndir af heimsókn í Landakot og grein á bls. 5 og 12). Chicago, 23. júlí — AP — Richard Speck sá er grunaður er um morðin á hjúkrunarnem- unum átta í Chicago í sl. viku, er nú á batavegi eftir slæma lungnabólgu og hjartaáfall, er hann fékk eftir að hann var handtekinn. Mál hyns verður tekið fyrir innan skamms og hef ur honum verið skipaður verj- andi, einn af kunnari málflutn- ingsmönnum Bandaríkjanna, Gerald W. Getty að nafni. Getty, sem er 46 ára, hefur verið verjandi í u.þ.b. 400 morð- málum, þar á meðal varið fjórt án menn, sem sekir voru fundn- ir en enginn þeirra var dæmdur til lífláts, heldur í lífstíðarfang- elsi. Hann hefur í tuttugu ár tekið að sér mál manna, sem ekki hafa haft fjánhagslegt bol- magn til að ráða sér verjendur og á þeim tíma fjallað um rúm- lega 2000 mál, ýmiss konar. Er hann til þessa skipaður og launaður af Ohicagoborg. Getty er eindreginn andstæðingur dauðarefsingar og hefur barizt ötulli baráttu fyrir afnámi henn ar í Illinoisríki. Þegar Speck hafði samþykkt að Getty fjallaði um málið, sagði lögfræðingurinn í viðtöl- um við blaðamenn, að þess bæri Klnverskir hermenn I 8-Vietnam? Vlsbendingar um að svo sé — Hanoistjórnin skipar nefnd til að fjalla um striðsglæpi „Bandarikjamanna4 brögð verið að því síðustu daga, að bandarískir hermenn kæmu Framhald á bls. 31. að gæta að Richard Speck hefði enn hvorki verið ákærður né sekur fundinn um morðin, svo sem þó mætti ráða af biaða- skrifum og ummælum lögregl- unnar. Er hann var að því spurð ur, hvort hann teldi mögulegt, að Speck fengi réttlátan dóm kvið- dómenda eftir ummæli biaða og lögreglu, svaraði hann því af- dráttarlaust játandi — kvaðst þess fullviss, að hægt væri að skipa kviðdóm greindra manna og hlutlausra, sem ekki létu slíkt 'hafa áhrif á sig heldur færu einungis eftir staðreyndum málsins. Framhald á bls. 31 Ný stjórn I Indónesiu eftir helgi Bogor, Indónesiu, 23. julí, AiP. FRÁ því var skýrt í Bogor í dag, að Súkarnó forseti Indónesiu muni skýra frá myndun nýrrar stjóraar landsins nk. mánudag. Forsetinn var hinn kátasti í morgun, er hann skýrði blaða- mönnum frá fyrirhugaðri stjórn- armyndun, en neitaði að gefa nokkrar upplýsingar um fjölda ráðherra. Súharto hershöfðingi og fimm aðrir valdamestu menn landsins dveljast í höll Súkarnos í Bogor yfir helgina til þess að leggja síðustu hönd ráðherralist- ann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.