Morgunblaðið - 24.07.1966, Blaðsíða 5
Sunnudaguv 24. júlí 1966
MORCU NBLAÐIÐ
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
Á Norðurlöndum, sem víð-
ar, áttu trúar- og líknarfélög
drýgstan þátt í því, að þar
varð til hjúkrunarstétt. Hér-
-lendis er þessu á annan veg
farið, aðallega er hér um að
ræða einkaframtak ungra
kvenna, er eygðu leið til þess
að afla sér, í nágrannalöndum,
þekkingar og hsefni til hjúkrun
V',^ N.. . . •' ■ •■•..• •• ■■■-•-
QsTERTnO
Peningaskápar
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur sjúklingum sjúkrahússins til skemmtunar
Myndin mun vera tekin um 1920.
á Landakotstúni.
70 ára starf St. Jdsefssystra
nrstarfa og skapa sér verðugt
framtíðarstarf.
Kaiþólskar nunnur hafa þó
unnið hér mikilsvert hjúkrun-
arstarf í sjö áratugi, og urðu
íyrstar lærðar hjúkrunar-
kvenna til að hefja starf hér
á landi. Framan af höfðu þær
engin samskipti við aðrar stétt
arsystur, og hljótt var í um-
heiminum um einstaklinga og
etörf þeirra í samræmi við
aldagamlar klausturvenjur.
Fjórtánda júlí 1896 sigldu
fyrstu St. Jósefssysturnar,
fjórar talsins, áleiðis til Is-
lands, með gufuskipinu Láru
og komu til Reykjavíkur 25.
júlí. Nunnurnar voru þessar:
Systir Epihrem, og var hún
príorinna, systir Justina, syst-
ir Clemence og systir Thekla.
A þessum árum stunduðu
Sjúkrahús St Josepihssystra á Fákrúðsfirði 1896-97. Fyrir utan húsið eru franskir sjómenn.
brigðis- og hjúkrunarmála, þá
er augljóst að íslenzka þjóðin
er í mikilli þakkarskuld við
St. Jósefssystur. Við þessi tíma
mót vill íslenzka hjúkrunar-
téttin þakka þeim fyrir þeirra
ágætu störf, ánægjuleg kynni
og gott samstarf, og óska þeim
farsældar í framtíðinni.
María Pétursdóttir.
Ingólfsstræti 1 A. Sími 18370.
JÖHANNFS L.L. HELGASON
JÖNAS A. AÐALSTEINSSON
Lögfræðingar
Klapparstig 26. Simi 17517.
Peningalán
Útvega peningaián:
Til nýbygginga.
— íbúðarkaupa.
— endurbóta á íbúðum.
Uppl. kl. 11-12 f.h. og 8-9 ei».
Sími 15385 og 22714.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3 A.
Sparifjáreigendur
Avaxta sparifé á vinsælan og
öruggan hátt. Uppl. kl. 11—12
f. h. og 8—9 e. h.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3 A.
Sími 15385 og 22714.
Guijón Styrkárssnn
hæstaréttarlögmaður
Hafnarstræti 22. — Siml 18354,
Þorsteinn Júlíusson
héraðsdómslögmaður
Laugavegi 22.
Landakotsskóli, Landakotsspítali og Landakotskirkjan gamla.
franskar skútur hér miklar
handfæraveiðar, og verkefnið,
■em beið nunnanna, var að
hjúkra sjúkum fiskimönnum
um borð í þessum frönsku
ekútum, nema þeim sem allra
veikastir voru, en þeim var
komið fyrir í gamalli kirkju
í Landakoti, sem notuð var
sem sjúkraskýli á sumrin, en
þar var ein sjúkrastofa með
sex rúmum.
Árið eftir fluttu tvær nunn-
ur til Fáskrúðsfjarðar til að
hjúkra á aðalvertíðinni, sem
þá var frá marzmánuði og fram
í ágúst. Á Fáskrúðsfirði létu
St. Jósefssystur byggja sjúkra-
skýli, en þar var sex manna
sjúkrastofa og önnur minni
fyrir smithættulega sjúklinga.
Jafnframt því að hjúkra
frönsku fiskimönnunum, önn-
uðust þær einnig hjúkrun í
heimahúsum eftir því sem við
varð komið, á sama hátt og í
Reykjavík.
Árið 1902 létu systurnar
byggja þriggja hæða sjúkrahús
á Landakoti í Reykjavík, handa
40-50 sjúklingum alls. Var það
stór og mikil timburbygging á
þeirra tíma mælikvarða, en
framkvæmdir allar gengu svo
vel, að byggingu hússins var
lokið á tæpum sex mánuðum,
því að homsteinn var lagður
26. apríl, en sjúkrahúsið var
vígt 16. október sama ár. Hús
og útbúnaður þótti mjög vand-
aður, til marks um það má
nefna, að þar voru tveir gler-
skálar ætlaðir berklasjúkling-
um, og að grafinn var dýpsti
og vandaðasti brunnur sem þá
var hér á landi, mjög svo full-
komið vatnsból til að full-
nægja þörfum sjúkrahússins
um gott neyzluvatn. 7-8 nunn-
ur unnu þá við hjúkruarstörf.
Tæpa fjóra áratugi voru St.
Jósefssystur einar um hjúkrun
í Landakoti, en 1935 varð sú
breyting á, að þangað var ráð-
in íslenzk hjúkrunarkona og
síðan hafa margar íslezkar og
erlendar hjúkrunarkonur unn-
ið þar ásamt systrunum. í>ær
hafa yfirleitt lokið hjúkrunar-
námi frá hjúkrunarskóla St.
Jósefssystra í Kaupmannahöfn
og flestar farið síðan til fram-
haldsnáms við Arósaskólann í
Danmörku.
I>að var ánægjulegur viðburð
ur fyrir íslenzku hjúkrunar-
stéttina þegar St. Jósefssystur
gengu í hjúkrunarfélag íslands
1960, en þær eru nú 13 í félag-
inu. Gamli spítalinn er horf-
inn, en í hans stað komið mjög
fulkomið og stórt sjúkrahús,
sem vitnar glögglega um smekk
og hagkvæmni í öllu fyrir-
komulagi. f>á hefur verið starf
rækt sjúkrahús á þeirra veg-
um í Hafnarfirði, frá árinu
1926. Einnig er vert að geta
þess, að í Stykkishólmi hafa
um margra ára skeið systur
úr reglu heilags Frans frá
Assisí starfrækt sjúkrahús og
barnaskóla, að öllu leyti án
nokkurs styrks frá bæ eða ríki,
nema ókeypis lóð undir bygg-
ingu. Starfsemi þessi er mikils
metin á þeim slóðum og marg-
ir leita þar ráða og aðstoðar.
Sé haft í huga þetta mikla
framlag systranna til heil-
Hinar fyrstu fjórar nunnur af reglu St. Josephs, er komu tðl
Islands. Talið frá vinstri, systir María Justina; príorinnan,
systir Maria Ephrem; systir Thiekla og systir Clemence.