Morgunblaðið - 24.07.1966, Blaðsíða 28
28
MORGU NBLADtD
Sunnu'dagur 24. Júlí 1966
FÁLKAFLUG
•••••••••••••
EFTIR DAPHNE DU MAURIER
■*ir
COSPER
— Fljótur nú — það er spurning um mannslif. FáSu þá ul
þess að hlæja.
Hún hélt áfram að mæla mig
með augunum. Ég gat séð, að
Toni var að hlera ofan úr stig-
anum sínum. — Hvar borðarðu?
spurði hún.
— Á staðnum, sagði ég. — Þar
er ágætis matur. Og til þess að
gera fjarverusönnun mína enn
sterkari, bætti ég við: — Þessir
kunningjar mínir heita Pas-
quale — Paolo og Caterina Pas-
quale.
Hún yppti öxlum. — Ég kem
aldrei nærri þessum V og H
— stúdentum.
— En það var Toni, sem varð
til þess að koma upp um mig.
— Varstu að tala um Pasquale-
systkynin? spurði hann, ákafur
eftir að taka þátt í samtalinu.
— Já.
— Þá er ég hræddur um, .ajð al-
manakið hafi eitthvað ruglazt
hjá þér. Þau fara alltaf heim til
San Marino á laugardögum. Og
meira að segja sá ég þau leggja
af stað í dag, þegar ég var að
koma úr mat. Það var óheppi-
legt! Hann glotti og gekk svo
yfir þveran salinn til að ná í
frakkann sinn, og hélt, að hann
hefði verið að gera mér greiða.
— Gott! sagði ofsækjandi
minn. — Það þýðir sama sem,
að þú ert laus.
Ég sá sem snöggvast í anda
Giuseppe Fossi á sjúkrabeði sín-
um, en mundi þá, mér til mik-
illar huggunar, að hann var tals-
vert eldri en ég. Og þetta hefði
getað verið af óhollum mat hjá
honum. Ég setti upp fararstjóra-
brosið mitt.
— Já, ég er laus, sagði ég. —
Þá borðum við á Hertogahótel-
inu.
Hún lyfti brúnum. — Til hvers
er að vera að eyða stórfé í það?
Og auk þess verður nú búið að
loka þar, þegar við erum tilbúin
að borða.
Þessi athugasemd þótti mér
öll hin ískyggilegasta. Hún gaf
í skyn einhverja drepþreytandi
setu, án þess að fá svo mikið
sem eitt glas af einhverju, til að
fá matarlyst. Ég var ekki viss
um, að ég væri undir slíka
áreynslu búinn. En væri þetta
gamansemi — jæja, ég vil nú
sjálfur velja stundina til slíks,
og sú stund var ekki nú.
— Hvað þá spurði ég.
Hún lét augun reika til starfs-
fólksins, sem var að fara, og
beið eftir að ungfrú Catti kæm-
istt út úr dyrunum.
— Ég hef nokkuð í huga, sagði
hún varkárlega.
Við gengum saman út til dyr-
anna. Ungfrú Catti leit undan
og lokaði á eftir okkur og bauð
okkur góða nótt, kuldalega. Svo
gekk hún yfir húsagarðinn svo
að small í hælunum. Lagskona
mín beið þar til fótatakið heyrð-
ist ekki lengur. Svo sneri hún
að mér, brosandi, og ég varð var
einhverrar spennu, sem lagði
ekki einasta út frá augum henn-
ar og munni, heldur frá henni
allri.
;— Við erum heppin, sagði hún.
Ég hef tvo miða, sem veita a_ð-
gang að hertogasölunum. Ég
sníkti þá hjá sjálfum formanni
Listaráðsins. Það er mikill heið-
ur, því að hann er mjög vand-
látur.
Ég glápti á hana. Þetta var
einkennilegur snúningur. Eða
kannski hafði ég verið offljótur
á mér að geta til um hennar
hugmyndir um dægrastyttingu.
— Hertogasölunum? át ég eft-
ir. — Þá getur maður séð, hve-
nær sem er. Þú ferð þangað með
stúdentahóp daglega!
Hún hló og benti mér að gefa
sér vindling. Ég gerði það og
kveikti í hjá henni.
— Það er öðruvísi á kvöldin,
inn úr borginni eða háskólanum,
sem forstjórinn býður ekki sér-
staklega. Ég skal segja þér, að
þetta er sérstakur heiður fyrir
okkur.
Ég brosti. Þetta var ágætt.
Það, sem í hennar augum var
hátiðleg athöfn, var ekki annað
eða meira en það, sem pabbi
hafði gert á kvöldin, viku eftir
viku. Mér þótti vænt um, að
einn gamall siður, að minnsta
kosti, skyldi hafa verið varðveitt
ur. Þegar ég var krakki, hafði ég
einstöku sinnum farið með Aldo
eða mömmu og hlustað á pabba
útskýra fyrir völdum vinahóp
það sem eftirtektarverðast var í
þessum sal eða hinum.
— Hvað gerist þarna? spurði
ég. — Stendur maður bara og
steinþegir meðan forstjórinn set-
ur fram einhverja kenningu?
— Það get ég ekki sagt þér.
Það er einmitt það, sem mig
langar svo til að komast að. Ég
býst við, að í kvöld ætli hann
að gefa okkur einhverskonar for
smekk af hátíðinni.
Hún leit á miðana tvo, sem
hún var með í hendinni. — Hér
stendur hálfátta, sagði hún— en
ég hugsa, að okkur sé óhætt að
fara upp. Við getum alltaf beðið
á svölunum ef dyrnar eru ekki
opnar.
Ég hafði hálfgaman af því, að
boð frá forstjóra listaráðsins
skyldi hafa svona mikil og há-
tíðleg áhrif á fyrirlesara við há-
skólann, og hann jafnveraldar-
vanan og Carla Haspa var. Hún
hlaut að vera í einhverju lægra
metorðastigi en ég hafði haldið.
Hún minnti mig mest á skemmti
ferðamenn, sem ná sér í að-
göngumiða að áheym hjá páfa.
Hér vantaði ekkert nema and-
litsblæjuna. Við gengum upp
stigann og upp á svalimar fyrir
ofan.
— Hvað er þessi hátíð eigin-
lega spurði ég.
— Kektorinn stofnsetti hana
fyrir nokkrum árum. Listadeild-
in hérna við háskólann var lítil
og á sér engan formlegan for-
stöðumann, svo að hann hefur
hana undir sinni stjórn. Svo
heldur hann hátíðina í sam-
vinnu við forstjóra Listaráðsins.
Hún hefur verið afskaplega vel
heppnuð. Á hverju ári velja
þeir eitthvert sögulegt efni, sem
stúdentamir leika svo í hertoga-
sölunum, eða húsagarðinum, eða
í gamla leikhúsinu fyrir neðan
höllina. En í ár er rektorinn
veikur, svo að hátíðin hvilir al-
farið á herðum forstjóra Lista-
ráðsins.
Við vorum komin fram á stiga
gatið. Þegar var dálítill hópur
samansafnaður við dyrnar inn í
hásætissalinn. Þetta voru allt
unglingar — sjálfsagt stúdentar
— flestir af karlkyninu. Þeir
skröfuðu saman lágt og meira
að segja stillilega, og þarna var
ekkert af þessari uppskrúfuðu
kæti, sem venjulega fylgir stúd-
entahópum. Carla Raspa gekk að
og heilsaði tveimur eða þremur
með handabandi, Hún kynnti
mig og íagði mér frá hlutverki
þeirra. '
— Þetta eru allt þriðja- og
fjórðaárs stúdentar, sagði hún.
— Enginn er boðinn fyrr en á
þriðja ári. Hvað margir ykkar
eiga að leika á hátíðinni?
— Við erum allir sjálfboðalið-
ar, svaraði einn þeirra, síðhærð-
ur og með barta og vafalaust
hefðu Pasqualesystkinin flokk-
að hann undir listadeildina. —
En forstjórinn velur úr. Ef mað-
ur uppfyllir ekki kröfurnar, er
manni sparkað.
— Og hvaða kröfur eru gerð-
ar? spurði ég.
Sá síðhærði leit á félaga sína.
Þeir brostu allir.
— Það er aðallega seiglan.
Við verðum að vera vel á okkur
komnir líkamlega, meðal ann-
ars þurfum við að kunna að
skylmast. Hversvegna. Ekki veit
ég. Það er ný fyrirskipun.
□----------------□
24
□----------------□
Carla Raspa greip nú fram i.
— Síðasta hátíð, sem rektorinn
stjórnaði, var alveg dásamleg.
Þá var leikinn heimsókn Klem-
ensar páfa til Ruffano og Butali
prófessor lék sjálfur páfann. Þá
voru aðaldyrnar opnar út í húsa-
garðinn, og stúdentarnir, sem
voru búnir eins og varðlið páfa,
urðu að bera páfann inn, þar
sem hertoginn og hertogaynjan
tóku móti honmp. Frú Butali
lék hertogaynjuna og Rizzio
prófessor, deildarstjóri kennslu-
deildarinnar lék hertogann.
Svo gekk allt í skrúðgöngu gegn
um salina. Það var alveg stór-
kostlegt.
Við færðum okkur öll nær
hásætissalnum, þegar við heyrð-
um lyklinum snúið í skráargat-
inu. Svo var vængjahurðunum
hrundið upp. Einn stúdent — sem
ég hélt vera — stóð við dyrnar
og skoðaði aðgöngumiða okkar.
Sá hlaut að hafa staðizt líkams-
kraftaprófið. Hann var hold-
grannur, hörkulegur og minnti
mig á einn atvinnu-knattspyrnu-
manninn okkar frá Torino.
Kannski hafði Listaforstjórinn
ráðið hann til að fleygja okkur
út, ef við yrðum ekki Skikkan-
leg.
Við gengum inn í hásætissal-
inn og svo inn í kerúbasalinn,
en þaðan heyrðist suða af raanna
sagði hún— Þá hefur almenn-
ingur ekki aðgang, né heldur
óviðkomandi stúdentar, og eng-
an okkur. Andrúmsloftið þarna
líktist nú enn meir þvi sem er
við páfaáheyrnir og við dyrnar
á kerúbasalnum stóð enn einn
dyravörður, og sá tók af okkur
miðana. Mér féll þétta illa, því
að miðinn veitti einskonar rétt-
indi, rétt eins og merki í jakka-
horninu. En þá sá ég, mér til
hálfgerðrar skelfingar, að raf-
magnsljósin í kerúbasalnum voru
slökkt. Salurinn var lýstur með
blysum, sem vörpuðu óhugnan-
legum Skuggum á loft og veggi
og gáfu því einhvern skugalegan
blæ, miðaldalegan en um leið
einkennilegan og æsandi. Heljar-
mikill viðareldur logaði í stóra
arninum, undir hinni ómetan-
legu arinhillu, sem var talin hei-
lög í tíð föður míns. Og eld-
blossarnir drógu að sér allra
augu eins og seguU járn.
Kyndlalogarnir og eldbloss-
arnir, sem vörpuðu skuggum á
veggina, lýstu aftur á móti ekk-
ert upp þá, sem þarna voru
staddir, svo að gestir urðu ekki
greindir frá gestgjöfum. Allir
virtust ungir og næstum allir
karlmenn. Það lítið þarna var af
kvenfólki, virtist fremur líðasi
þarna en leyfast.
Smámsaman fylltist stóri saÞ
urinn, en þó varð þar aldrei
troðningur, og þegar augun i
mér höfðu vanizt kyndlaljósinu,
sá ég, að við og nokkrir fleirij
Sterkir, fallegir sokkar
ARWA sokkarnir, sem eru mjög vel þekktir á meg-
inlandinu, fást nú í fyrsta skipti á íslandi. Eru
komnir í flestar tízkuverzlanir, verðið afar hagstætt.
Nýjung i sokkaframleiðslu:
ARWA STRETCHLON — fínlegir, þægilegir og
fallegir stretchsokkar. — 20 den.
ARWA PLUS 30 — 30 den.
ARWA JEUNESSE — 20 den.
Sokkarnir eru í tízkulitunum SOLERA og
BAHAMA og eru með sléttri lykkju.
Arwo þýðír ftdlegri fætnr
Umboð: Andvari h.f. — Laugavegi 28.
IMATIONAL RAFHLÖÐIJR
Attkið ánægjuna í sumarleyfinu.
Notið National i ferðatækin.
Öruggustu rafhlöðurnar á markaðnum.
Heildsölubirgðir:
G. Helgason & IMelsteð hf.
Rauðarárstíg L — Sími 11644.