Morgunblaðið - 24.07.1966, Page 22
22
MORGU N BLAÐIÐ
Sunnudagur 24. júlí 1966
Hjartanlega þakka ég vinum og vandamönnum hlýjar
kveðjur, gjafir og heimsóknir á nhæðis afmæli mínu,
13. júlí sl. — Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Jónsdóttir
frá Hrútsstöðum.
Þakka öllum, sem glöddu mig á sjötugs afmæli mínu
13. júlí sl. með gjöfum, heillaskeytum og öðrum vinarhug.
Magnús Gunnarsson,
Ártúnum, Rangárvöllum.
Föstudaginn 22. júlí, 1966, lézt ástkær kona mín og
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGARETHE STANGELAND
(fædd Nielsen),
á 81. aldursári. — Jarðarför hennar fer fram miðviku-
daginn 27. júlí kl. 13, frá Stavangercemetarium.
Aanen Stangeland,
Ane og Anne Christine
og barnabörn,
Útför móður minnar,
KRISTÍNAR EIRÍKSDÓTTUR
er lézt 20. þ.m. verður gerð frá Dómkirkjunni mánudag-
inn 25. júlí kl. 3 e.h. —
Fyrir hönd okkar systkinanna.
( Guðrún Jensen.
Maðurinn minn og faðir okkar,
STEFÁN SVEINSSON
fornbóksali,
sem andaðist í Borgarsjúkrahúsinu þann 17. júlí sl.,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
26. júlí nk. kl. 10,30 f.h.
Athöfninni verður útvarpað. — Blóm vinsamiega af-
þökkuð.
Hulda Aradóttir og börn.
Maðurinn minn og faðir okkar,
GUÐBJÖRN ÁSMUNDSSON
Háteigi. Álftanesi,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju þriðjudaginn 26.
júlí, kl. 2 síðd.
Þórdís Sigurgeirsdóttir,
Ragnar Guðbjörnsson, Ásmundur Guðbjörnsson,
Jón Ágúst Guðbjömsson, Sigríður Guðbjörasdóttir,
Ólafur Guðbjörnsson, Ingibjörg Guðbjörnsdóttir,
Guðmundur V. Guðbjörnsson.
Útför föður míns,
GUTTORMS ERLENDSSONAR hrl.
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn
25. júlí kl. 10 f.h.
Jarðsett verður að Bessastöðum.
Þorfinnur Guttormsson.
Innilegar þakkir fyrir aUðsýnda samúð og vináttu
við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR MAGNÚSSONAR
Hólmavík.
Vigdís Guðmundsdóttir, börn,
tengdabörn og barnaböra.
Innilegt þakklæti öllum þeim sem sýndu samúð við
andlát og jarðarför móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu okkar,
SVEINLAUGAR HALLDÓRSDÓTTUR
Herjólfsgötu 6, Hafnarfirði
og viljum við sérstaklega þakka vinkonum hennar fyrir
alla þá vinsemd og tryggð sem þær jafnan sýndu henni.
Sjöfn Sigurðardóttir, Sigurður Baldvinsson,
Gylfi Sigurðsson, Batdvin E. Baldvinsson,
Baldvin Einarsson, Guðrún og Einar
Baldvinsson og synir.
Kveðjuathöfn um
GUÐMUND EINARSSON
frá Gröf,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudagiim 26. júlí kl.
10,30 f.h. — Jarðsett verður á óspaKseyri laugardaginn
30. júlí kl. 2 e.h. — Blóm afþökkuð.
Vandamenn.
— Tarsis
Framhald af bls. 11
eru að berjast fyrir frelsi okkar
í Víet Nam, hvernig sem okkur
líkar þær bardagaaðferðir. Raun
ar eru aðgerðir þeirra svertar í
fréttum hér, ef miðað er við frá-
sagnir af fjendum þeirra — inn-
rásaröflunum úr norðri, sem
þegar var farið að þjálfa fyrir
átta árum, er ég dvaldist í Rúss-
landi. Kennari minn einn í
Moskvu, sem ég gæti nafngreint,
talaði með tilhlökkun þegar ár-
ið 1958 um þá komandi daga,
þegar kommúnistar yrðu reiðu-
búnir að rjúfa Genfarsamþykkt
ina endanlega og leggja undir
sig gjörvallt Suður Vietnam,
þegar þeir hefðu nógu lengi
stundað neðanjarðarstarfsemi
sína í skjóli sáttmála, sem gagn-
aðilinn hélt í heiðri að mestu
eða öllu leyti. Kvað hann fjölda
íbúa Norður Vietnam senda á
laun inn í Suður Viet Nam,
þar sem þeir stjórnuðu greftri
á geysivíðtæku neti neðanjarð-
arganga og gerð skógarfylgsna,
sem verða myndu illvinnandi
vígi og skjól skæruhermanna
síðar. Siðan yrði hafizt handa
um hernaðaraðerðir, þegar und-
irbúningurinn væri orðinn nógu
mikill til að tryggja sigur.
Tímnn leið, og innrásin kom
með aðstoð innfæddra skæruliða
sem heimskommúnisminn hafði
þjálfað. Stjórn Suður Viet Nam
fékk aðstoð Bandaríkjamanna og
annarra friðelskandi þjóða. Eft-
irleikurinn er flestum kunnur
af óljósum fregnum. Gömul og
vel útbúin skothreiður innrás-
araflanna voru illvinnandi og
miklu fleiri en Bandaríkjamenn
óraði fyrir í upphafi. En með
þrautseigju hefir Johnson for-
seta orðið mikið ágengt við vörn
Suð-austur-Asíu gegn ógnaröfl-
unum úr norðri og mest á óbein
an hátt. Hugleiðið t.d. friðun
stunda Rússa. Væri langt mál
Malaysíu og hreinsun Indónesíu,
sem Bandaríkin eiga ekki bein-
an þátt í, en þeir atburðir ger-
ast vafalaust að nokkru sökum
einbeittrar vamar Bandaríkja-
manna í þessum heimshluta.
Ekki ætla ég að verja aðgerð-
ir Bandaríkjamanna í Víet
Nam í einstökum atriðum.
Ætíð má deila um, hvaða gagn-
ráðstafanir eru heppilegastar
hverju sinni, þegar einhver verð
ur fyrir árás. Styrjaldir eru ætíð
hræðilegar og verða jafnt sak-
lausum sem sekum til ógæfu.
En þetta er styrjöld heimskomm
únismans fyrst og fremst, sem
hann hafði undirbúið í áratugi
á sviksamlega og djöfullegan
máta. Breytir þar engu um, þótt
þátttakendur í Víet Cong séu
margir raunverulega frá Suður
Víet Nahm, og hafi, jafnvel i
svo góðum dagblöðum sem Tím-
anum, hlotið hið fagra nafn —
Þjóðfrelsisfylking.
Lesendur góðir! Þótt ég mæli
ekki með lestri Morgunblaðsins
sérstaklega, nema hvað erlendar
fréttir og utanríkismál varðar,
hvet ég lesendur til að leita uppi
gömul eintök af því blaði, þar
sem endursagður er fyrirlestur
Tarsis og svör hans við fyrir-
spurnum þeim, sem fyrir hann
voru lagðar. Leggið þetta síðan
á minnið sem gagnlegan sann-
leika í höfuðatriðum. Sannleika
gamals, hugprúðs, frelsiselsk-
andi manns, sem fórnað hefir
flestu fyrir hugsjónir sínar —
frelsi og hamingju mannkynsins.
Slíkt gæti átt þátt í að verja
yður gegn ánauð og andlegri
þrælkun síðar. Munið samt eitt
— engan stríðsáróður. Vinnum
að friði, en verum viðbúin hinu
versta. Eflum vestræna sam-
vinnu — og samvinnu við Austr
ið, Sovézka þjóðin er smám sam
an að bæta stjórnarfar sitt, þótt
hægt fari. Hún vill sjálfri sér og
öðrum hið bezta, þótt undan-
tekningar finnist þar sem víðar
um einstaka stríðsæsingamenn.
Gagnbylting í Rússlandi verð-
ur naumast svo fljótt, sem Tars-
is vonar. Ef til vill verður að-
eins hægfara þróun til kapítal-
isma eða nú óþekkts framtíðar-
skipulags.
Freysteinn Þorbergsson.
Til sölu eru þessur íbúðir í
búsinu nr. 88 við Hruunbæ
Stærð á endaíbúð: 129,6 ferm. — 445 rúmm.
Stærð á 5 herb. íbúð: 111,5 ferm. — 391 rúmm.
Sex íbúðir verða í húsinu og fylgir herbergi í
kjallara hverri íbúð. — íbúðirnar seijast tilbúnar
undir tréverk og málningu með sameign fullfrá-
genginni og teppi á göngum. — Allat uppl. gefur:
FASTEIGNASALAN
Skólavörðustíg 30
Símar 23987 og 20625.
Skrifstofur borgurstjóru
í Austurstræti 16 og Pósthússtræti 9 verða lokaðar
mánudaginn 25. júlí, kl. 10—12 f.h., vegna jarðar-
farar Guttorms Erlendssonar, borgarendurskoðanda.
Smúrósótt sumurkjóluefni
Flunnel
margir litir — nýjung — má þvo.
★
Einlit sumurkjóluefni
má þvo — þarf ekki að strauja
★
Ciffon - Crepe - Georgette
mjög margir litir.
★
Jersey
sem má þvo — þarf ekki að strauja.
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 11.