Morgunblaðið - 10.08.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.08.1966, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 10. ágúst 1960 MOKQU N B LAVItf o Sunnu-ferð að sumri með ,,Fritz Heckert" ÁKVEÐIÐ hefur verið, að ferða- Kkrifstofan Sunna taki á leigu í hálfan mánuð næsta sumar þýzka skemmtiferðaskipið „Fritz Heckert“ sem kom til Reykja- víkur í vikunni, — og verður þá farið með islenzka skemmtiferða- menn til Noregs, Danmerkur, Hollands og Englands. Skýrði forstöðumaður ferðaskrifstofunn- ar, Guðni Þórðarson, blaðamönn- lun frá þessu sl. mánudag og bauð þeim jafnframt að skoða Skipið. Að því er Guðni sagði, kemur skipið, hingað með ferðamenn frá Norðurlöndum um miðjan ágúst naesta sumar. Munu þeir hafa tveggja vikna viðdvöl á íslandi, xneðan Sunna hefur skipið á leigu. Verður siglt fyrst til Berg- en, þar sem höfð verður eins dags viðdvöl, þaðan siglt innan skerja til Oslóar, þar sem einnig er tanzað í einn dag; þá er siglt yfir nótt til Kaupmannahafnar og þar höfð fjögurra daga við- dvöl, síðan til Amsterdam, þar sem verður þriggja daga viðdvöl og ioks til London, þar sem stanzað verður í tvo daga. Búið verður um borð í skipinu allan tímann, eins og hótel veeri. Skipið tekur 367 farþega, en þar sem ætlunin er að nota alla klefa sem tveggja manna klefa, nema þar sem um fjölskyldur verður að ræða, verða aðeins 320 farþegar í þessari ferð. Kostnað- ur á mann verður eitthvað um 12.000,- krónur íslenzkar, að því er Guðni sagði, 50% afsláttur veittur börnum á aldrinum tveggja til tólf ára og fyrir börn innan tveggja ára greiðist 10% af kostnaðarverði. Hægt verður að nota íslenzka peninga til alls sem þarf um borð í skipinu og á hverjum viðkomustað munu koma menn frá bönkum til að annast skipti á gjaldeyri eftir því sem farþegar óska. SJ0UATRVGGT ER UEL TRYCGT SÍM111700 sjnafflAGiMsw „Fritz Heekert" er nýlegt skip — var smíði þess, að sögn Guðna, hafin árið 1960. Það er rúmar 8000 brúttólestir, búið vistlegum kiefum, stórum matsölum, setu- stofum, spila-herbergi, danssal, sóldekkjum og öðrum þægindum. Sundlaugar eru tvær í skipinu, önnur úti á sóldekki. Er sjór í báðum 23—25 stiga heitur og skipt um á hverjum degi. Þá er á skipinu spítali þar sem starfa læknir og tvær hjúkrunarkonur. Eru þar þrjár sjúkrastofur með sex sjúkrarúmum, skurðstofa og | fleiri lækningastofur. Loks má geta þess, að í skipinu er verzlun með tollfrjálsum varningi og bókasafn. að mestu þýzkar bæk- ur, en ferðaskrifstofur er taka skipið á leigu hverju sinni, geta bætt í safnið að vild bókum á viðkomandi tungumálum, til þess að nota meðan á ferðum þeirra stendur. í danssal skipsins ,sem tekur 120 manns í sæti leikur hljóm- sveit fyrir dansi á hverju kvöldi og er ætlunin, að í ferð Sunnu verði íslenzk hljómsveit og ís- lenzkir skemmtikraftar, sem sjá um að halda uppi gleðskap. þá er í skipinu aðstaða til kvik- myndasýninga. „Fritz Heckert“ hefur oft kom- ið til íslands á sl. þrem árum, í fyrsta sinn kom það með sænska kennara, er sátu hér kennaraiþing. Guðni Þórðarson sagði, að vel væri látið af skip- inu, mikið væri þar lagt í mat, til dæmis væri morgunverður kalt borð með 20—30 áleggsteg- undum. Ennfremur væri mikils- vert, að flestir klefar væru tveggja manna eða þá þannig úr garði gerðir, að auðvelt væri fyrir hjón að hafa hjá sér eitt eða tvö börn. Sagði Guðni að skipið væri eftirsótt mjög, — hann hefði lagt drög að því að fá það á leigu fyrir tveimur árum og þó aðeins fengið þessar tvær vikur. Skákmótið i Los Angeles: Spassky enn efstur Santa Monica, Kaliforníu, 9. ágúst (AP). í FJÓRTÁNDU umferð á Piatigorksi skákmótinu í Los Angeles lauk aðeins einni skák, ieika á jafntefli, en sigur óhugs- andi. Hin miður góða frammi- staða heimsmeistarans vekur hvað mesta athygli. Staðan eftir 14 umferðir: milli Spasskys og Portisch. L U J T Vinn Rússinn hafði hvítt og lék Spassky 13 3 10 0 8 spánska leikinn, en komst ekk- Fischer 13 5 5 3 7% ert áleiðis gegn Ungverjanum og Larsen 12 5 4 3 7 var samið jafntefli eftir 23 leiki. Najdorf 12 3 7 2 .6% Fischer hafði svart gegn Unzick- Unzicker 12 2 9 1 6 V2 er, sem fékk brátt yfirráð á mið- Reshevsky 13 1 11 1 6% borðinu og þjarmaði að Banda- Portisch 14 1 11 2 6% ríkjamanninum, þangað til skák Petrosyan 13 1 10 2 6 inni var frestað eftír 41. leik. Donner 13 1 9 3 5% Fischer er talinn hafa veika mögu Ivkov 13 1 6 6 4 Heildarsíldaraflinn orð inn 191,2 lestir Rúmum 8 Jbiís. lestum minni söltun nú en / fyrra MBL. hefur borizt skýrsla um heildaraflinn um sömu tölu. Eitt sildveiðarnar norðanlands og íslenzkt skip lagði upp 186 lest- austan vikuna 31. júlí til 6. ir í Færeyjum. ágúst, sem Fiskifélag íslands Á sama tíma í fyrra var hefur tekið saman. Fer skýrslan heildaraflinn sem hér segir: hér á eftir: í sait 89.693 upps. tn. (13.095) í vikubyrjun voru flest skip- í frystingu 5.875 uppm. tn. in 20—60 sjómílur SSV og SSA (635 1.). af Jan Mayen. Lóðaði þar tals- í bræðslu 1.220.188 mál vert á síld en út úr því fékkst (164.725 1.). engin veiði. Á þessum slóðum Samtals nemur þetta 178.455 var veður y'y leitt leiðinlegt, lestum. oftast kaldi og kvika. 1 vikunni fékkst dálítið af góðri söltunar- Helztu löndunarstaðir eru síld um 150 sjómílur NA af þessir: Raufarhöfn og í vikulok var góð Lestir: veiði við Hrollaugseyjar, en Reykjavík 23.477 skip fá á þeim slóðum. Bolungavík 4.094 Aflinn, sem barst á land í Siglufjörður 2.556 vikunni nam 18.095 lestum. Ólafsfjörður 3.755 Saltað var í 11.339 tunnur, í Hjalteyri 2.165 frystingu fóru 86 lestir og 6.354 Krossanes 8.106 lestir í bræðslu. Heildarmagn Húsavík 2.770 komið á land á miðnætti laugar Raufarhöfn 33.024 dagskvölds var 191.203 lestir og Þórshöfn 507 skiptist þannig eftir verkunar- Vopnafjörður 10.621 aðferðum. Borgarfjörður eystri 591 í salt 34.229 upps. tn. (4.997 1.) Seyðisfjörður 41.365 í frystingu 168 lestir. Neskaupstaður 27.697 1 bræðslu 186.038 lestir. Eskifjörður 13.777 Reyðarfjörður 7.403 Ef landanir erlendra skipa Fáskrúðsfjörður 7.115 eru taldar með hækkar bræðslu Breiðdalsvík 1.002 síldaraflinn um 1.483 lestir og Djúpivogur 2.494 STALSTEIMR Skiptar skoðanir Alþýðublaðið hefur á ný vak- ið máls á fjárstuðningi af ríkis- ins hálfu við dagblöð eða stjórn málaflokka, og virðist blaðið nú fremur hallast að síðarnefndu leiðinni. Það er kannski vegna þess að slíkt er fordæmi sænskra jafnaðarmanna. En athyglisvert er að lesa í Alþýðublaðinu í gær grein eftir Ólaf Jónsson, bók- menntagagnrýnanda þess, sem að undanförnu hefur skrifaö nokkrar greinar um dagblöðin, en hann segir m.a.: „Fimm dagblöð eru augljós- lega of mörg blöð á íslandi. Með an útgáfuhættir haldast óbreytt- ir, eru að vísu litiar likur til að þetta breytist, en vanhugsað væri áreiðanlega að festa blöðin ó- breytt í sessi með því til að mynda að taka upp rikisstyrki til flokksblaða, eins og fitjað hefur verið upp á. Hins vegar virðist augljóst, að tvö allstór dagbiöð gætu þrifizt hér hlið við hlið, sem að sjálfsögðu yrðu að- eins að vera sjálfstæð, óháð blöð, óbundin einstökum stjórn- málaflokkum eða stofnunum." Miðað við þann mikla áhuga, sem Alþýðublaðið hefur sýnt styrkjum til blaða eða flokka, væri vafalaust gagn- legt fyrir forráðamenn þess blaðs að kynna sér rækilega greinar Ólafs Jónssonar um dagblöðin og þær niðurstöður, sem hann kemst að í Alþýðublaðinu í gær. Falskar forsendur Tíminn birtir enn í gær for- ystugrein, sem byggð er á al- gjörlega röngum forsendum. — Blaðið endurtekur skrif sín frá sl. sunnudegi um vísitölu kaup- máttar tímakaups og leggur út af þeim, en eins og bent var á í forystugrein Morgunblaðsins í gær er sú vísitala, sem Tíminn talar um miðuð við lægsta taxta Dagsbrúnar, sem er nú orðinn svo til óþekktur meðal verka- manna eða annarra launþega. Þess vegna eru allar þær álykt- anir, sem blaðið dregur af þess- ari vísitölu gjörsamlega mark- lausar og er nú tími til kominn að ritstjórar Tímans taki sig saman í herðunum og stundi heiðarlegri blaðamennsku og fréttaflutning, en þeir hafa að undanfornu gert. Fyiirspum Þjóðviljinn birtir enn eina i smið í gær um greinar Fn steins Þorbergssonar, sem bi hafa í Morgunblaðinu, segir þar meðal anna að blaðakona Morgunblaðs hafi lýst yfir því að hún t: lítið mark á Tarsis. Af þessu 1 efni vill Morgunblaðið bei þeirri fyrirspurn til Þjóðviljí við hvaða blaðakonu Morgi blaðsins er átt og hvar hún að hafa gefið þessa yfirlýsin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.