Morgunblaðið - 10.08.1966, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.08.1966, Blaðsíða 27
Miðvíkuðagur 10. Sgúst 1966 MORCUnBLAÐIÐ 27 Tækin í Héðni reynast mjög vel — en ekki kominn full reynsla á sjókœlikerfið Leikararnir fyrir framan bifreiðsína. „Gestaleikhúsið“ á Akureyri 33 sýningar á „Bunbury" eftir Oscar Wilde á jafn mörgum dögum „GESTALEIKHÚSI®“ er leik- flokkur skipaður leikurum frá Þjóðleikhúsinu og Leikfélagi Reykjavíkur, sem verið hefur á ferðalagi um landið í rúman mánuð. Hefur flokkurinn haft daglegar sýningar á gamanleikn- um „Bunbury" eftir Oscar Wilde, og var 33. sýningin á Akureyri í gær, þriðjudag. Að loknum sýn- ingum á Akureyri verður haldið vestur á bóginn, og sýnt í félags- heimilinu Ásbyrgi í IVIiðfirði á fimmtudag, og síðan farið um Vestfirði. Til Reykjavíkur er flokkurinn væntanlegur hinn 18. þ. m. Brezki leikstjórinn Kevin Palm er setti leikinn á svið að loknu starfi hjá Þjóðleikhúsinu, en iþar setti hann á svið söngleikinn „Ó þetta er indælt stríð“. Hon- um til aðstoðar var Una Collins, sem teiknaði kvenbúninga og leikmyndir fyrir „Bunbury". — Skiðamót Framhald af bls. 26 Röðin varð þessi. 1. Jean C. Killy Frakkl. 1:37.22 2. Perillat Frakkl. 1:37.43 3. Karl Schranz Aust.r. 1:37.64 4. Tischhauser Sviss 1:37.96 5. Giovanoli Ítalíu 1:38.17 6. Mauduit Frakkland 1:38.95 Bezti Norðurlandabúinn var í 28. sæti, Olle Rohlen Svíþjóð á 1:43.75 mín og Norðmaðurinn Mjoen 30. á 1:43.96. — Landsleikur Framhald af bls. 26.' knattspyrnan tvískipt, allir þeir beztu í atvinnumennsku en hinir er minna æfa í áhugamannalið- um. Ætla má að ekki sé ýkja mikill munur á getu liðanna og. nái íslenzka liðið vel saman, má búast við sæmilegum baráttu- leik. —★— Ensku gestunum verður sýnd Reykjavíkurborg og farið verður með þá til Þingvalla og Hvera- gerðis. Þelr munu einnig sitja matarboð menntamálaráðuneyt- isins eftir leikinn. — Færeyingar Framhald af bls. 26 heimsótt íþróttafélag Klakksvík ur, keppt þar og dvalið í góðu yfirlæti og notið gestrisni. Nú hefur þessi vinátta orðið til þess að Klakksvíkingar heim- sækja Keflavík. Koma 15 leik- menn og 4 fararstjórar. Leikirn ir verða þrír. Sá fyrsti í kvöld, sem fyrr segir við ÍBK. Næsti er á föstudagskvöld á sama stað og tíma gegn KFK og síðasti leik urinn er á sunnudagskvöld í Njarðvíkum kl 5 síðdegis gegn UMFK. Leikritið „Bunbury“ er gam- an- og ástaleikur, og gerist í Bretlandi í lok 19. aldar. Að sögn Palmers leikstjóra nýtur leikritið sívaxandi vinsælda í Englandi, enda einstætt snilldarverk í gamanleikj ajbókmenntum. Meðfylgjandi mynd var tekin — Sýknaðir Framhald af bls. 1 bandarískum fullyrðingum um, að þeir hefðu sérstakt fingramál, sem þeir hefðu beitt varðandi sagnir gegn ítölsku sveitinni i heims- meistarakeppninni. Reese sagði, að einstök blöð á meginlandi Evrópu hefðu skýrt algjörlega rangt frá í frásögnum sínum af þessu máli og að þeir Bret- arnir myndu íhuga möguleik- ana á því að höfða meiðyr’ða- mál gegn sumum blaðanna. Bretland dró sig til baka úr heimsmeistarakeppninni • í fyrra vegna ásakananna um að hafa haft rangt við. — Júgóslavia Framhald af bls. 1 1 opnu bréfi til Titos forseta, sém birtist í Róm fyrr í þessum mártuði, hélt Mihajlov því fram, að hinn ráðgerði fundur myndi verða prófsteinn á, hvort komm únistar myndu standa við hina nýju stjórnarskrá landsins. Þar sagði Mihajlov enn fremur, að Tito og kommúnistaflokkurinn hefðu vald til þess að koma í veg fyrir fundinn með ólögleg- um lögregluaðgerðum. En ef það yrði gert, myndu þeir gera öllum heimi það ljóst, að orð þeirra um lýðræði og virðingu fyrir lögum og stjórnarskránni væru ekki í samræmi við verk þeirra. Samkvæmt orðum Mihaj lovs tryggir stjórnarskrá lands- ins fullt skoðana- funda- tján- ingar og félagafrelsi til handa öllum þegnum landsins. í viðtali við austurrískt tíma- rit fyrir nokkrum dögum sagði Mihajlov, að júgóslavneski stjórnmálamaðurinn, Milovan Djilas sem nú situr í fangelsi, myndi fyrr eða seinna taka við af Titó sem forseti landsins og leiðtogi kommúnistaflokksins. — 1200 kr. stolið Frafnhald af bls. 2 um 1200 kr. í peningum. Síðari hluta dags i gær fannst svo task an í lyftu i húsi í Tryggvagötu, en þá hcfðu allir peningarnir verið hirtir. Biður rannsóknar- lögreglan þá ,sem kynnu að geta gefið einhverjar upplýsingar um þennan þjófnað að snúa sér til sín. af leikendum „Gestaleikhússins' á Austurlandi fyrir nokkru, en á myndinni efú, talið frá vinstri: Rúnar Guðmundssön, Bríet Héð- insdóttir, Kristín Anna Þórarins- dóttir, Sigríður Þorvaldsdóttir, Karl Guðmundsson, Helga Val- týsdóttir, Bjarni Steingrímsson og Arnar Jónsson. MBL. sneri sér í gær til Jóns Héðinssonar, framkvæmdastjóra útgerðarfyrirtækisins Hreyfi, sem gerir út v.b. Héðin frá Húsavík. Sá bátur er, sem kunn- ugt er, einn nýjasti báturinn í síldveiðiflotanum, og er hann út- búinn ýmsum nýstárlegum tækj- um til þeirra veiða. Spurðist Mbl. fyrir um reynslu þessara tækja. Jón kvað útgerðina vera mjög ánægða með reynsluna sem hefði fengizt af þvérskrúfunum — það hefði sýnt sig að betra væri að athafna sig og þægilegt a'ð vinna með þeim. Hann kvað hina nýju gerð síldarleitartækja, sem notuð væri á Héðni, og er eina síldveiðiskipið. hér sem not- ar þetta tæki, hafa sömuleiðis reynzt mjög vel. Hann gat þess að. um 40 síldveiðiskip hefðu beygt botnstykkið á tækjum sín- um í sumar, venjulega með þvi að rekast á rekavið, og því orð- ið að skipta um þau. A Héðni væri stálhjúpur utan um ,botn- stykkið, sem ver þa'ð fyrir öllu hnjaski. Þá sagði Jón, að ABAS-nótar- vindan í Héðni hefði reynzt mjög vel, og sýnilegt að það mætti fækka tveimur mönnum um borð, én á hinn bóginn væri samningar ekki fyrir um að hafa færri um borð. Þá gat Jón þess að ennþá hefði ekki gefizt tækifæri til þess að fullreyna sjókælikerfið í bátnum vegna ýmissa truflana á síldveiðunum í sumar. - Síld Framhald af bls. 28. FREMUR óragstætt veður var á síldarmiðunum við Jan Mayen s.l. sólarhring. Allmörg skip voru á miðunum við Hrollaugseyjar eða á leið þangað, og sömuleiðis tilkynnti síldarleitarskipið Otur um síld ca. 120 — 130 mílur aust ur af Gerpi. Voru sildarskip á leið á þær slóðir, en þar var veður gott. S.l. sólarhring tilkynntu 12 skip um afla, samtals 860 lestir. Raufarhöfn. lestir Guðrún Jónsdóttir IS 30 Skarðsvík SH 70 Sigurður Bjarnason EA 55 Guðrún Þorkelábóttir SU 95 Héðinn ÞH 80 Þorleifur ÓF 50 Ingiber Ólafsson, II GK 60 Jón Garðar GK 70 Lómur KE 70 Bjarmi II EA 50 Dalatangi. Skirnir AK Bára SU 90 140 íslandsdeild alþjóðasombands hljómplötuframleiðenda verður Sigurður Reynír Péturs- son, hæstaréttarlögmaður. Á fundinum var einróma sam- þykkt að skora á ríkisstjórn og Aíþingi að logfesta þegar á næsta þingi frumvarp dr. júris Þórðar Eyjólfssonar til nýrra höfundalaga. Einnig að fullgilda milliríkjasáttmála þann, sem gerður var í Róm 26. okt. 1961 um vemd listflytjenda, hljóð- rita-framleiðenda o.fl. (Frétt frá fslandsdeild Alþjóðasambands hljóm- plötuframleiðenda). HINN 8. ágúst s.I. var stofnað félag íslenzkra hljómplötufram- leiðenda, en félagið verður deild í hinu alþjóðlega sambandi hljómplötuframleiðenda (Feder- ation of the Phonographic Ind- ustry). Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna meðlima sinna á inn- lendum og erlendum vettvangi svo og að vinna að framgangi stefnumála alþjóðasambandsins hér á landi. Meginverkefni íslenzku deild- arinnar verður að knýja fram í félagi við listflytjendur samn- inga við útvarp, sjónvarp og skemmtistaði um greiðslur fyrir hljómplötuafnot á sama hátt og tíðkast í öðrum löndum. Einnig að vinna að setningu nýrra höf- undalaga, sem félagið telur, að dregizt hafi mjög úr hömlu. f stjórn félagsins voru kjörn- ir: Haraldur Ólafsson, formaður, Svavar Gests, ritari, og Helgi Hjálmsson, meðstjórnandi. End- urskoðendur voru kjömir Sveinn Guðmundsson og Árni Ragnarsson. Lögmaður alþjóðasambands- ins og íslenzku deildarinnar Tolstoy. Var hann endur- skoðunarsinni? — Tolstoy Framhald af bls. 1 ennfremur frá ummælum, sem líffræðingur einn við vísinda- akademíuna í Peking hefur viðhaft um tónlist Beethovens, en þar sagði líffræðingurinn, að hugmyndafræðileg sann- færing sín hefði orðið fyrir hnekki við að hlusta á 9. sinfóníu tónskáldsins. Sagði líffræðingurinn, að sú ást til mannanna, sem lofsungin væri í lokakór sinfóníunnar, hefði vakið með honum tálvonir, sem ekki væru í samræmi við veruleikann. ,,En“ bætti hann við, „vegna þeirrar menntun- ar sem ég hef hlotið í sófiíal- Beethoven. Tónverk hans lama byltingarviljann. istískri menningu, varð mér ljóst, að áhugi á vestrænni, sí- gildri tónlist getur bara orðið til þess að lama byltingar- viljann“. Þá er ópera Bizet, Carmen, skilgreind sem tilraun til þess að koma á framfæri persónu- frelsi borgarastéttarinnar, kyn þokkamenningu og ein- staklingshyggju. Hvað klass- ískan ballet snertir er sagt í kínverskum blöðum, að hann miði að sáttum milli þjóð- félagsstétta og komi rotnum hugmyndum inn hjá æsku- fólki. Um Victor Hugo er sagt, að lokatakmark hans með verkum sínum hafi verið að efla hið borgaralega þjóð- félag. — Indónesia Framhald af bls. 1 um að láta af fjandskap s-ínum gegn Malaysíu er talinn mikill sigur fyrir Malik utanríkisráð- herra, sem hefur hvað eftir ann- að sagt, að friður við Malaysíu væri forsenda þess, að Indónesía yrði að nýju virt á alþjóðavett- vangi. Þar til niú hefur Sukarno forseti verið eindregið mótfall- inn þvi, að látið yrði af fjand- skapnum við Indónesíu. Frfður milli ríkjanna mun hafa það í för m.a., að mikilli fjárhagsbyrði vegna hernaðarút- gjalda verður af þeim létt. — Stuðlar, strik Framh. af bls. 15 sögur herma — nægja að horfa á draumadísina ungu afhýða kartöflur úti undir húsvegg. Svo fór sirkusinn til næsta bæjar og greifinn gleymdi stúlkunni litlu með bláu aug- un 0g ljósa hárið. En svo var það nokkrum ár- um síðar að sirkusinn kom til heimabæjar greifans, Kristian- sand og þá dró skjótt til tíð- inda. Greifinn kom þar á frum- sýningu, sá Elviru og hreifst óðara af henni aftur og það svo að hann þóttist ekki mega án hennar vera. Ekki fer mikl- um sögum af viðskiptum þeirra fyrstu dagana, en áður en vika var liðin frá frumsýningu hvarf Elvira Madigan. Hún hafði skroppið út að verzla með kröfu meðferðis og kraf- an kom að vísu aftur til skila en Elvira ekki og fannst hvergi. Sparre greifi tók hana með sér suður til Danmerkur og fóru þau þar úr einum stað í annan, því allt var sem aður um fjárreiður greifans. Loks hrökkluðust þau til eyjarmnar TSsinge og þraukuðu þar nokk- urn tíma nær félaus en er fok- ið var í öll skjól greip Sparre greifi skammbyssu sína og lauk þar ævi þeirra beggja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.