Morgunblaðið - 10.08.1966, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10. ágúst 1966
Hjónin Gísli Arnkelsson og Katrín Guðlaugsdóttir ásamt börnum sínum (á myndina vant-
ar yngsta barnið). Myndin var tekin á samkomunni í húsi KFVM og KFUK sl. miðvikudags-
kvöld. —
Kristniboöið í Konsú
Rætt stuttlega við Gísla Arnkelsson, kristniboða
KONSÓ nefnist suð-vesturhluti
Etióphíu.'Þar er fjalllendi mikið
og fremur hr jóstugt. íbúarnir
tala amharísku, sem er semítiskt
mál. Þeir byggia flestir afkomu
sína á akuryrkju og grafa stalla
í fjallshlíðarnar til að nýta vatn-
ið. Þar rignir aðeins um regn-
tímann sem er tvisvar á ári, en
s.l. tvö ár hefur hann næstum
brugðizt og uposkera verið lítil.
Yfir miklum hluta landssvæðis
þessa grúfir myrkur heiðni og
fáfræðL
Nú eru liðin 12 ár síðan Felix
jÓlafsson, fyrstur íslenzkra
trúboða, hcf kristniboð í Konsó
ásamt konu sinni, Kristínu. Auk
þeirra hjóna hafa tvenn önnur
hjón starfað í Konsó á þessum
árum, þau Benedikt Jasonarson
og Margrét Hróbjartsdóttir og
núna síðustu fimm árin Gísli
Arnkelsson og Katrín Guðlaugs-
dóttir. Gísli og Katrín eru ein-
mitt nýkomin heim í árs hvíld-
arleyfi ásamt börnum sínum
fimm, Guðlaugi, Valgerði Arn-
dísi, Bjarna, (eina íslendingn-
um, sem fæddur er í Konsó),
Karli Jónasi og Kristbjörgu.
Mun Gísli starfa á vegum Kristni
boðssambandsins þetta ár og
ferðast um landið og segja frá
starfinu í Konsó. Hinn 3. þ.m.
. var þeim hjónum haldin fagnað-
arsamkoma í húsi K.F.U.M og
K.F.U.K. við Amtmannsstíg.
Fréttam. Mbl. hafði tal af Gísla
á dögunum og innti hann frétta
af staifi þeirra hjóna í Konsó.
— íslenzka kristniboðsstöðin
vinnur í nánu samstarfi við
norsku kristniboðsstöðina í
Konsó, seg.T GíslL — Á stöðinni
okkar hafa nú þegar verið
reistar 10 byggingar , þar á
meðal skóii, heimavist, nám-
skeiðshús, sjúkraskýli og ibúðir
fyrir starfsfólkið. Söfnuðurinn
okkar fer stækkandi með ári
hverju og telur nú um 440 full-
orðna og börn.
— í barnaskólanum, sem við
rekum hafa verið um 190 nem-
endur undanfarin ár, eru þeir
yfirleitt eldri en hér tíðkast í
barnaskólum. Drengir eru í
meiri hluta. Aðeins ein telpa
var t.d. í 6 bekk s.l. vetur og
tvær í 5. bekk. í vetur voru 30
drengir í heimavistinni og kom-
ust þar færri að en vildu. Hin
börnin ganga oft í lVz klst. til
að komast í skólann, því að
engir eru bílarnir. Við fylgjum
fræðslulöggjöf rikisins en erum
á undan ríkisskólunum í því, að
við höfum sex bekki en þeir
ekki nema fimm. — Þá
má geta þess að skólarnir okkar
geta þó kallast hús, en skólarnir
úti í þoipr.num eru flestir bara
strákofar. Innlendir kennarar
við skólann eru 7 að tölu, en
auk þeirra annast kona mín
handavinnukennslu. Skólakerfið
er ekki mjog frábrugðið því sehi
hér gerist en svinar þó meira til
bandaríska kerfisins. í I. bekk
kennum við lestur, skrift, reikn
ing og hedsufræði. Er mikil
áherzla lögð á heilsufræðina þar
sem Konsóbúar kunna lítt til al-
menns hreinlætis og þrifnaðar.
í 2. bekk bætist við landa- og
dýrafræði, í 3. bekk enska og í
6. bekk eðbsfræði og kirkjusaga.
Þá leggjum við miklu meiri
áherzlu á kristinfræðikennslu
en rikisskólarnir og kenn-
um biblíusögur í öllum
bekkjum. Kvöldkennslu erum
við með allan veturinn fyrir þau
börn, sem ekki hafa komizt í
barnaskólann af ýmsum orsök-
um, sem oft eiga rætur að rekja
til foreldranna. Þá höfum við
námskeið fyrir safnaðarmeðlimi
og þá, sem meðlimir vilja gerast.
í barnaskólonum, kvöldskólun-
um og á námsskeiðunum hafa
verið allt að 1500 nemendur,
þegar bezt íætur.
— Ýmiss konar kvennastarf-
semi höfum við einnig með
höndum og hafa Katrín kona
mín og Ingunn Gísladóttir,
hjúkrunarkona, séð um hana.
Halda þær saumafundi alltaf
öðru hverju og kvennafundi einu
sinni í viku Þá er handavinnu-
kennsla fyrir konur einu sinni
í viku.
— Við sjúkraskýlið starfar
Ingunn Gísladóttir, hjúkrunar-
kona, ásamt lærðum hjúkrunar-
manni en læknisheimsókn fáum
við einu sinni í mánuði. í sjúkra
skýlinu eru 11 herbergi og skurð
stofa. Þetta sjúkraskýli er ný-
byggt og erum við sérstaklega
fegin að vera nú loksins búin að
fá skurðstofu með nauðsynleg-
um tækjum, en engin skurðstofa
var í gamla skýljnu.
— Guðsþjónustur höldum við
á hverjum sunnudegi og sam-
komur 3svar í viku fyrir börn
og fullorðna í nærliggjandi
þorpum. Vikulega sýnum við
svo skuggamyndir hér heiman
að og frá öðrum löndum rétt
svona til að víkka sjóndeildar-
hringinn. Þá ferðumst við mikið
milli þorpa. Eru þetta allt upp
í 8 stunda ferðir enda farkost-
urinn múldýr og yfir fjalllendi
að fara.
— Starf þetta er bæði erfitt
og kostnaðarsatnt, segir Gísli að
lokum, og standa velviljaðir ein
staklingar hér heima mestan
straum af kostnaðinum. Því vil
ég nota tækifærið og þakka öll-
um þeim sem veitt hafa starfinu
í Konsó lið með gjöfum.
Kaupmenn og Kaupfélög
fyrirliggjandi úrval af KJÓLA,
PILSA og BLÚSSUEFNUM.
Kr. Þorvaldsson
heildverzlun Grettisgötu 6
Símar 24730 og 24478.
Fiskverzlun til leigu
Höfum til leigu fiskverzlun á góðum stað. Öll áhöld
fylgja. Stórt og gott vinnuplass inn af búðinni.
Bíll sérlega útbúinn fyrir fiskverzlun til sölu á sama
stað. — Upplýsingar á skrifstofunni.
STEINN JÓNSSON, lögfræðingur
Kirkjuhvoli.
FIFA
cuglýsir
Rýmingarsala hafin á öllum
sumarfatnaði, m.a.:
Stretchbuxur
Sundföt
Sólföt.
Skyrtur
Skyrtupeysur
o.fl. á börn og fullorðna
Verzlunin FIFA
Laugavegi 99
(Inngangur frá Snorra.braut).
Ein eða tvær
stúlkur óskast (Au pair) í sex
mánuði eða eitt ár til fjöl-
skyldu með þrjú börn, sér-
herbergi, skemmtilegt um-
hverfi. Vinsamlegast skrifið
til
Mavor
14 Kirklee Circus
Glasgow w. 2. Scotland.
Tækifæriskaup
Sumarkápur á kr. 1000,00,
áður kr. 2800,00. Sumar-
kjólar á kr. 300,00, áður
kr. 800,00—1'500,00. Pils á
kr. 300,00, áður kr. 800,00.
Tricil-kjólar á kr. 600,00,
stór númer. Laufið, Lauga-
vegi 2.
Aukavinna - Bifvélavirki
Bifvélavirki með meistara
réttindi, óskar eftir auka-
vinnu á kvöldin og um
helgar. Fleira en bifreiða-
viðgerðir kemur til greina.
Tilboð sendist afgreiðslu
blaðsins fyrir mánudags-
kvöld, merkt: ,,62110—4617“
ÖTSALA
Útsalan á Rauðarárstíg 20
heldur áfram.
Fatnaður á börn og fullorðna.
ÚTSALAM
Rauðarárstíg 20
horni Rauðarársst. og Njálsg.
Atvinna óskast
Reglusamur maður utan af
landi óskar eftir vellaunaðri
vinnu í Reykjavík eða ná-
grenni. Vanur akstri og með-
ferð vinnuvéla. Þeir sem vildu
sinna þessu vinsamlega hringi
í síma 14018.
NÝ 2ja
herb. íbúð
með húsgögnum, til leigu í
1 ár. Fyrirframgreiðsla. Nafn
og símanúmer sendist Mbl.
fyrir 16. þ.m., merkt: „Góð
umgengni—2H3 — 4732“.
Rauða myllan
Smurt brauð, heilar og náliar
sneiðar.
Opið frá kl. 8—23,30.
Sími 13628
Vandaðar
2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir
hæðir og einbýlishús fyrir
góða kaupendur.
Til sölu
3ja herb. glæsilegar íbúðir í
smíðum. Ennfremur nokkr-
ar íbúðir í smíðum af öðr-
um stærðum.
4ra herb. ný og glæsileg íbúð
á 4. hæð í Vesturborginni.
Teppalögð með vönduðum
innréttingum. Góð kjör.
4ra herb. rishæð 110 ferm. I
timburhúsi. Stórar svalir.
Verð kr. 650 þús. Úbb. kr.
250 þús.
4ra herb. rishæð við Fram-
nesveg. 110 ferm. Sérhitav.
Útb. kr. 350 'þús.
4ra herb. hæð í steinhúsi við
Ásvallagötu. Nýjar innrétt-
ingar. Sér hitaveita.
2ja til 3ja herb. ódýrar íbúðir
í bonginni. Útfo. frá kr. 200
til 350 þúsund.
AIMENNA
FASTEIGNflSALAN
IINDARGATA 9 SlMI 21150
TIL SÖLU
Tvibýlishús við
Kambsveg
I húsinu eru 3
og 4 herb. ibúðir
Ólafui*
t> orgrfmsson
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
Fasteigna- og verðbréfaviöskifti
Ausfurstrafeti 14. Sími 21785
Hafnarfjörður
TIL SÖLU MJV.:
Lítið og snoturt einbýlishús
við Köldukinn.
3ja herb. íbúð við Mánastíg
og Holtsgötu.
Fokhelt raðhús með tvöföldu
verksmiðjugleri við Smyrla
hraun.
Hrafnkell Asgeirsson,
héraðsdómslögmaður
Vesturgötu 10, Hafnarfirði.
Simi 50318.
Opið kl. 10—12 og 4—6.
til leigu
bílskúr í miöbænum. Hentug-
ur sem geymsluhúsnæði. Upp
lýsingar veittar í síma 14600.
Seljum í dag
Ford Zephyr ’64
Fiat 1800 ’60.
Gypsy, bensínbíll ’64.
Land Rover diesel ’62.
Volkswaegn ’65.
Commer sendiferðabifreið ’65
bilflaalfl
GUÐMUNDAR
Öergþórugotu 3. Blmat 19032, 2001«
JÓN FINNSSON
hæstaréttarlögmaður
Sölvhólsg. 4 (Samb.hús, 3. h.)
Símar 23338 - 12343.