Morgunblaðið - 10.08.1966, Page 14
14
MORGU NBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10. ágúst 1966
JltaqpitMafrife
Útgefandi:
Framkvæmdastj óri:
* Ritstjórar:
Rits t j órnarf ulltr úi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 105.00
I lausasöiu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík,
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti i5. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
AKVARÐANIR FYRIR
FRAMTÍÐINA
Éfkvr&A
UTAN ÚR HEIMI
Ku Klux Klan ræðst
gegn Bítlunum
Segir þá „gífurlegt samsæri,
ættað frá Hfoskvu44
HIN heiiaga styrjöld, sem
margar bandariskar útvarps-
stöðvar heyja nú gegn Bítl-
unum brezku eftir að einn
þeirra, John Lennon, lét hafa
eftir sér í blaðaviðtali að
Bítlarnir væru vinsælli en
Jesús Kristur, og lærisveinar
hans hafi verið treggáfaðir
menn, hefur nú komizt á það
stig, að framkvæmdastjóri
söngvaranna síðhærðu ákvað
skyndilega fyrir helgina að
fljúga vestur um haf og
kanna málið. Hyggst fram-
kvæmdastjórinn, Brian Ep-
stein, revna að bera klæði á
vopnin áður en Bítlarnir
leggja upp í fyrirhugaða
hljómleikaför um þver og
endilöng Bandarikin á föstu-
daginn.
Epsteir. leit málið svo
alvarlegi.m augum, er hann
frétti um herferð útvarps-
stöðvanna í „Biblíubeltinu"
svonefnda gegn Bítlunum, að
hann ákvað að fara þegar í
stað tii Bandaríkjanna enda
þótt hann lægi sjúkur. Marg-
ar útvarpsstöðvar vestra h*afa
borið plötur Bítlanna á bál
og hvatt hlustendur sína til
að gera slíkt hið sama. Blað
eitt í London telur, að hljóm-
leikaför Bítlanna um Banda-
ríkin kunni að verða aflýst,
ef Epstein telur að öryggi
þeirra yrði stefnt í voða.
Brezkum blaðamönnum í
Bandarikjunum hefur verið
tjáð af þeim, sem þekkja til
staða á borð við Birming-
ham, Alabama og Jackson-
ville, Fiorida, að Bítlunum
yrði „að minnsta kosti“ tekið
með mótmælaaðgerðum á
þeim sióðum.
Eins og fyrr getur hófst
hin heiiaga styrjöld gegn
Bítlunum eftir að viðtal birt-
ist við einn þeirra, John
Lennon, í tímaritinu „Date-
book“ í New York. Þar lýsti
Lennon því yfir, að kristnin
myndi nverfa af sjónarsvið-
inu líkt og „rokkið" á sínum
tíma.
Útvarpsstöð í Birmingham
varð fyrst til að fordæma
yfirlýsingar Lennons. Hvatti
stöðin táninga í Alabama til
þess að afhenda allar bítla-
plötur sínar, myndir o. fl. svo
hægt yrði að bera þetta allt
á bál. Aðrar stöðvar sigldu
í kjölfarið, og ieið ekki á
löngu þar til tugir útvarps-
stöðva um þver og endilöng
Bandarikin -lógust í hópinn.
Flestar hafa stöðvarnar lýst
því yfir, að þær telji yfirlýs-
ingar I.ennons guðlast.
Síðan hefur stöðvunum
bætzt óvæntur, og trúlega
óvelkominn liðsauki. Robert
Sheldon, „keisaralegur töfra-
John Lennon
styrkur úr annarri svipaðri
átt. Forstjóri ríkisútvarps
Suður-Afríku, Piet Meyer,
hefur lýst því yfir, að sé rétt
eftir John Lennon haft í blöð
um, muni útvarpið þar í
landi „ekki leggja sitt fram
Þessir tveir útvarpsmenn skáru npp berörina gegn Bítl-
unum. Þeir heita Doug Leyton og Tommy Cbarles, og starfa
við útvarpsstöð í Birmingham, Alabama. Hér sjást þeir
með Bítlaplötu, sem skömmu síðar fór á bálið.
Robert Sheldon,
„keisaralegur töframaður“
maður“, þ. e æðsti maður Ku
Klux Klan ofstækisreglunn-
ar, hefur frá höfuðstöðvum
Kiansins i Mississippi sent út
yfirlýsingu urn „hina úrkynj-
uðu menningu" og jafnframt
lýst því yfir, að Bítlarnir
hafi verið „heilaþvegnir af
kommúnistaflokknum. Raun-
ar hefur Sheldon áður haldið
því fram, að Bítlarnir1 séu
ekkert annað en gífurlegt
samsæri af hálfu Moskvu,
sem stefni að því ,„að grafa
undan auðiegu heilbrigði
bandarísku þjóðarinnar og
siðferðiskennd hennar".
Þá hefur einnig bætzt liðs-
til þess að gera hópinn að
dýrlingum".
Flestar útvarpsstöðvarnar,
sem lierörina haia uppskorið
gegn Bítlunum, eru í Suður-
ríkjunum. Enda þótt almenn
andstaðá væri gegn Bítlun-
um væri. í Suðurríkjunum
mundi það þ'til áhrif hafa á
hljómleikaför þeirra, sem
hefst á föstiidag. Suðurríkin
eru þar ekki með á dag-
skránni, og hafa Bítlarnir
raunar aidrei farið þar um af
þeirri einföldu ástæðu, að
þeir hafa neitað að syngja þar
sem kynþáttaðskilnaður á sér
stað meðal áheyrenda.
'C’ftir tæpa tvo áratugi verða
íslendingar orðnir 275
þúsund talsins, og um alda-
mótin er áætlað að fjöldi
landsmanna verði orðinn um
400 þúsund. Mikilvægar
ákvarðanir, sem teknar eru í
dag á ýmsum sviðum, svo
sem í atvinnumálum, sam-
göngumálum og menntamál-
um hafa mikla þýðingu fyrir
~þá, sem byggja þetta land að
nokkrum áratugum liðnum.
Það liggur því í augum
uppi, að þær ákvarðanir, sem
nú eru teknar á sviði lands-
mála verður að miða við þær
breyttu aðstæður, sem mik-
ill fólksfjöldi, á okkar mæli-
kvarða, mun skapa hér á
landi síðar á þessari öld.
Á sviði samgöngumála
skiptir t.d. miklu máli að
menn geri sér nokkra grein
fyrir líklegri skiptingu fólks
eftir landshlutum á næstu
áratugum og hvernig þróun
verður í hinum ýmsu þáttum
samgöngumála. Á sviði
menntamála og skólabygg-
inga og fyrirhugaðra breyt-
inga á skólakerfinu skiptir
miklu að gera sér grein fyrir
líklegri skiptingu fólks eftir
námsgreinum og við atvinnu
uppbyggingu verður að taka
tillit ti'l þess, að hér þarf að
halda uppi 400 þúsund manna
þjóð að nokkrum áratugum
liðnum.
Þessar fyrirsjáanlegu stað-
reyndir undirstrika nauðsyn
þess, sem rætt var um í for-
ustugrein Mbl. í gær og Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri
hefur bent á, að gerð verði
landsáætlun um sennilega
þróun byggðar í landinu á
næstu áratugum. Ákvarðan-
ir, sem hafa munu víðtækar
afleiðingar á næstu áratug-
um, en teknar eru í dag, verð
ur að byggja á slíkum áætl-
unum, ef vel á að vera. Og
stjórnmálaflokkarnir, sem
bera mikla ábyrgð á þróun
mála á flestum sviðum þjóð-
lífsins, verða í stefnumótun
sinni að gera sér grein fyrir
hinurh öru breytingum, sem
verða á nútímaþjóðfélagi og
þeir verða að miða stefnu
sína ekki aðeins við líðandi
stund og næstu ár, heldur
næstu áratugi og nýja öld.
SANNGJÖRN ÓSK
Chðar í þessum mánuði munu
^ fulltrúar ríkisstjórna ís-
lands, Danmerkur, Horegs og
Svíþjóðar koma saman til
fundar til þess að ræða beiðni
Loftleiða um að fá að nota
RR-400 flugvélar félagsins á
flugleiðum til Norðurlanda.
Eins og skýrt var frá í Morg-
unblaðinu í gær hefur tölu-
vert verið um mál þetta rætt
í dönskum blöðum, og verð-
ur ekki séð, að þau ræði það
af sanngirni né hófsemi.
Kjarni þessa máls er auð-
vitað sá, að Loftleiðir vilja af
eðlilegum ástæðum nota hin-
ar nýju og stóru flugvélar
sínar á ölilum flugleiðum,
þannig að farþegar þeirra frá
Norðurlöndum þurfi ekki að
skipta um vélar hér á landi.
Það gefur auga leið að það
mundi auka þægindi farþega
og hagkvæmni í rekstri Loft-
leiða. Loftleiðir fara ekki
fram á neina aukningu á
starfsemi sinni á Norðurlönd
um, og mál þetta hefur enga
þýðingu fyrir fargjöld þeirra
né SAS.
Þegar þessar staðreyndir
eru hafðar í huga hljóta ís-
lendingar að vonast til að ná-
grannar okkar og frændur á
Norðurlöndum taki þessari
málaleitan hins íslenzka flug
félags með skilningi og af
sanngirni, og fallist á þessa
beiðni, enda er eins og fyrr
er sagt ekki farið fram á
neina aukningu á starfsémi
hins íslenzka flugfélags á hin
um Norðurlöndunum.
ÖHREKJANLEG
STAÐREYND
jóðviljinn ræðir enn í gær
um viðtal það, sem blað-
ið birti fyrir nokkru við Eð-
varð Sigurðsson og segir:
„Eðvarð var einmitt að
leggja áherzlu á, að alrangt
sé að tala um, hvort heldur
væri styttingu vinnutímans
eða lengt orlof, sem kaup-
hækkun til verkamannsins.
Styttur vinnutími sé tvímæla
laus kjarabót, en þýði ekki
auknar tekjur. Fleiri dagar í
sumarorlofi sé líka mikils-
verð kjarabót, en gefi heldur
ekki auknar tekjur“.
Eins og Mbl. hefur bent á
sagði Eðvarð Sigurðsson orð-
rétt í viðtali við Þjóðvilj-
ann:
„Ef tekin eru þessi tvö
atriði, stytting vinnutímans
og aukið orldf og það reikn-
að til hækkunar á tímakaup-
inu, þá hækkar það tíma-
kaupið á þessum tveimur ár-
um um 10%%.“
Þetta er auðvitað kjarni
málsins. Þegar vinnutími
styttist, en kaupgjald helzt
óbreytt, liggur í augum uppi,
að kaup á hverja unna stund
hækkar verulega og þá jafn-
framt kaupmáttur tímakaups
hverrar unnar stundar. Þetta
er svo augljós staðreynd, að
um hana þýðir ekki að deila,
enda hefur formaður Dags-
brúnar í viðtali við Þjóðvilj-
ann viðurkennt þessa stað-
reynd, og allar tilraunir
kommúnistablaðsins tiil þess
að komast framhjá því, eru
gjörsamlega þýðingarlausar.