Morgunblaðið - 10.08.1966, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10. ágúst 1966
Konan mín
SIGURBJÖRG S. ÞORSTEINSDÓTTIR
andaðist 8. þ.m. á sjúkrahúsi Hvítabándsins.
l’yrir mína hönd barna minna tengda og barnabarna.
Hermann G Hermannsson.
Faðir okkar og tengdafaðir
BJÖRN GUÐMUNDSSON
Skagfirðingabraut 23, Sauðárkróki,
andaðist í sjúkrahúsi Sauðárkróks 7. ágúst. Jarðsett
verður frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 13. ágúst
kl. 2.
Áslaug Björnsdóttir Kemp, Stefán Kemp,
Ingibjörg Björnsdóttir, Jónas Guðjónsson.
Útför sonar okkar,
JÓNS GUÐNA INGÓLFSSONAR
Álftamýri 6, Reykjavík
fer fram. frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 11. þ.m. kl.
10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað.
Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda.
Margrét Fjóla Guðmundsdóttir,
Ingólfur Jónsson.
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa
EINARS B. KRISTJÁNSSONAR
húsasmíðameistara, Freyjugötu 37,
verður gerð frá Dómkirkjunni föstucagir.n 12. ágúst nk.
kl. 10,30 f.h. — Útvarpað verður frá jarðarfcrinni.
Blóm vinsamlegast afbeðin.
Guðrún Guðmundsdóttir, börn og barnabörn.
Útför konu minnar, móður og tengdamóður
MÖGDU MARÍU JÓNSSON
(fæddri Balzeit)
Mjóstræti 10,
sem andaðist 4. ágúst fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 11. ágúst kl. 1,30 síðdegis.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum v/Suðurgötu.
Ágúst Jónsson, börn og tengdabörn.
'Útför
FRIÐRIKS HAFBERG
frá Flateyri,
sem lézt að heimili sínu 2. þ.m. fer fram frá Garða-
kirkju á Álftanesi fimmtudaginn 11. þ.m. kl. 2 e.h.
Bílferð frá B.S.R. í Lækjargötu kl. 1,30.
Vilborg Hafberg, börn, tengdabörn.
Hjartanlegar þakkir færum við öllum þeim. er auð-
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
SIGRÍÐAR HALLDÓRSDÓTTUR ÞORMAR
Sigmar Þormar,
synir, tengdadætur og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýr.da samúð við andlát og jarðar
för móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur
MARÍU GÍSLADÓTTUR
frá Auðkúlu Arnarfirði,
ennfremur þökkum við læknum, hjúkrunarfólki og
stofusystrum á Sólvangi.
Matthea J. Pederscn, Herbert Pedersen,
Guðrún Jónsdóttir, Gunnar Sigurðsson,
Páll Jónsson, Bergþóra Guðmundsdóttir,
Gísli Jónsson, Ólafur Jónsson,
barnabörn og bræður.
Innilegt þakklæti til hinna mörgu fyrir auðsýnda
samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför okkar
ástkæra sonar og bróður
GUNNARS GUNNARSSONAR
er lézt 28. fyrra mánaðar.
Kirsten og Gunnar Ingimarsson,
systir og bræður.
Hjartans þakkir til ailra þeirra sem auðsýnt hafa
samúð og hjálp við hið sviplega fráíall drengsins okkar
GUNNARS VILHJÁLMSSONAR
Steinunn Úlfarsdóttir, Vilhjalmur Gunnarsson,
Tunguholti, Fáskrtiðsfirði.
Sigríöur Halldórsdðttir Þormar
HIÐ fyrsta, sem mér kom í hug,
þegar mér barst andlástfregn frú
Sigríðar Þormar í útvarpinu,
voru nokkrar ógleymanlegar
sumarvikur á heimili hennar og
manns hennar, Sigmars Þormar
garðyrkjumanns, að Arnheiðar-
stöðum í Fljótsdal. Það voru liðn
ir meira en tveir áratugir síðan
ég kom þangað á heimilið, ókunn
ugur þeim hjónum báðum, og
dvaldist þar lengst af sumars.
Þegar ég fór undir haust var
mér löngu ljóst, að elskulegri
manneskjum, en þeim og börn-
um þeirra, hafði ég vart kynnzt.
Þaðan af hélzt vinátta og kynni
með okkur og Þormarshjónum,
þó að stopulir yrðu stundum
fundir, eftir að við fluttum í
Holt.
Já, þær urðu mér furðulega
ferskar, þessar sumarminningar.
Og frú Sigríður var kona, sem
ekki var aujvelt að gleyma.
Stór velgefin og giæsileg sýn-
um á meðan hún hélt heilsu og
kröftum, gestrisin, ástúðleg og
glaðvær, margfróð og glögg, eins
og hún átti kyn til, stórbrotin og
höfðinglunduð. Og einstakur vin-
ur og tryggðatröll.
Er að henni mikill sjónarsvipt-
ír, enda munu margir minnast
hennar bæði sem húsfreyja á
Skriðuklaustri og á Arnheiðar-
stöðum, og eins eftir að þau
hjóh fluttust til Reykjavíkur.
Frú Sigríður Þormar fæddist
að Skriðuklaustri í Fljótsdal ár-
ið 1889.
Hún var af stórmenni komin og
skörungur í báðar ættir og bar
þess glöggt mót. Faðir hennar
var Halldór Benediktsson bóndi
í Skriðuklaustri, er einn var
mestur framkvæmdamaður og
skörungur í bændastétt á Aust-
urlandi um sína daga. Hann var
sonur Benedikts, er síðast var
prestur að Heydölum, Þórarins-
sonar prests og skálds í Múla,
bróður Benedikts Gröndal yfir-
dómara og skálds. Móðir Hall-
dórs og amma Sigríðar var Þór-
unn dóttir Stefáns prests í
Kirkjubæ. Þorsteinssonar. Eru
þetta víðkunnar ættir og merk-
ar.
Móðir Sigríðar var Arnbjörg
Sigfúsdóttir, Stefánssonar prests
Árnasonar að Valþjófsstað. Voru
því foreldrar Sigríðar systkina-
börn. Arnbjörg húsfreyja á
Skriðuklaustri var hvorttveggja
í senn, valkvendi að mannkost-
um og forkur til allra búsum-
sýslu, kvenna fríðust og kunn-
áttusömust um allt það, er laut
lilinning
að hæversku og hýbýlaprýði
Frú Sigríður ólst upp á heim-
ili foreldra sinna að Skriðu-
klaustri við mikið ástríki. Efni
voru nóg og rausn mikil í búi.
Var þar miklu betur húsað en á
nokkrum bæ öðrum um nálægar
sveitir. Heimilið fjölmennt jafn-
an og þrotlaus gestagangur tig-
inna og ótiginna allan ársins
hring. Atorka, hagsýni og glað-
værð mörkuðu yfirbragð heim-
ilísins. Það var mál manna á
Austurlandi í þá tíð um heimilið
að Skriðuklaustri, að hvergi
væri skemmtilegra að koma gest
ur- og hvergi skemmtilegra að
vera hjú. Fór það þó ekki ævin-
lega saman, sém kunnugt er.
Varð þeim Skriðuklausturhjón-
um því jafnan vel til hjúa og
heimilið ávallt eitt hið fjölmenn
asta á Austurlandi, með traust-
um efnahag og grónum menn-
ingárbrag ytra og innra.
Úr þessum jarðvegi óx frú
Sigríður Þormar og bar þess
glögg merki ævilangt.
Árið 1919 giftist Sigríður
sveitunga sínum og æskuvini
Sigmari Þormar frá Geitágerði
í Fljótsdal. Hafði hann þá verið
utan og numið garðyrkju í Dan-
mörku. Með þeim mægðum
tengdust tvö forystuheimili í
menningu á Fljótsdalshéraðí því
að Sigmar Þormar, sem lifir konu
sína er sonur Guttorms Vigfús-
sonar búnaðarskólastjóra og al-
þingismanns, er þá bjó í Geita-
gerði og konu hans, Sigríðar Sig-
mundsdóttur bónda á Ljótsstöð-
um í Skagafirði. En næstu for-
feður Guttorms Vigfússonar
höfðu þá um langa hríð gert
garðinn frægan í Geitagerði og
á Arnheiðarstöðum, höfðings-
bóndinn Vigfús í Geitagerði og
faðir hans Guttormur Vigfússon
bóndi og Alþingismaður á Arn-
heiðarstöðum. Voru þeir feðgar
þrír um langt skeið forystulið
í menningar- og búnaðarskókn
Fljótsdalshéraðs.
Þau Sigríður og Sigmar Þorm-
ar gerðu fyrst bú í Skriðu-
klaustri og bjuggu þar til árs-
ins 1940, er þau seldu Gunnari
skáldi Gunnarssyni jörðina.
Fluttust þau þá að Arnheiðar-
stöðum í Fljótsdal, þar sem búið
höfðu áður forfeður Sigmars við
veg og rausn, og bjuggu þar til
þess, er þau fluttu til Reykja-
víkur árið 1945.
Mun báðum þeim hjónum hafa
verið næsta óljúft að kveðja átt-
haga og æskubyggð, þar sem
bæði áttu svo djúpar rætur, þó
að ýmsar knýjandi ástæður
drægju til. Hitt mun ekki of-
mælt, að þau hafi flutt með sér
meira af Austurlandi, en séS
varð í fljótu bragði, auð minn-
inga, rótgróna tryggð til ætt-
ingja, vina og byggðar og menn
ingarsvip hins traustasta, s ím
þar hafði þróast í lífsviðhorfi og
heimilisháttum. Og heimili þeirra
í Reykjavík varð samkomustað-
ur fjölda Austfirðinga, þar sem
uppi var haldið rausn og glað-
værð, þó að því yrði þrengri
stakkur skorinn um húsrúm og
umsvif, en í átthögunum. Kom
þar og enn til það, sem miklu
mun hafa valdið um flutning
þeirra hjóna til Reykjavíkur, að
frú Sigríður átti löngum við
þungbæra vanheilsu að etja.
Varð hún af þeim sökum hvað
eftir annað að yfirgefa heimili
sitt og leggjast í sjúkrahús. Með
furðulegu innra þreki tókst henni
þó hvað eftir annað að rétta við,
varð þá aftur, þó árin færðust
yfir eins og ungfrúin, sem forð-
um heillaði alla í föðurgarði á
Skriðuklaustri, síglaðvær,
skemmtileg í viðræðu, aðsóps-
mikil og tiginmannleg í fram-
göngu. En það veit ég, að frú
Sigríður myndi sízt vilja gleym-
ast láta nú að leiðarlokum, að
það, sem hvað eftir annað og
bezt hjálpaði henni yfir örðug-
leikana, var þrotlaus þolinmæði,
nærgætni og ástúð eiginmanns
hennar. Svo frábærlega reyndist
henni æskuvinurinn, sem hún
hafði gefizt ung, þegar mótviðri
lífsins tóku að blása að þeim.
Börn þeirra frú Sigríðar og
Sigmars Þormar eru:
Halldór bifreiðastjóri I Reykja
vík, kvæntur Unni Eiríksdóttur
Kjerúlf frá Hamraborg í Fljóts-
dal.
Sigurður verkfræðingur i
Reykjavik.
Atli fulltrúi hjá Landssíman-
um, kvæntur Maríu Nielsen frá
Seyðisfirði.
Valgeir, bifreiðastjóri í Reykja
vík, kvæntur Sigurlaugu Péturs-
dóttur frá Galtará í Gufudals-
sveit.
Um leið og við hjónin kveðj-
um frú Sigríði og biðjum henni
blessunar Guðs og friðar, send-
um við og eiginmanni hennar og
sonum og tengdadætrum inni-
legar samúðarkveðjur okkar í
Holti.
Þegar ég leiði fram í huga
mér mynd frú Sigríðar Þormar,
stendur mér einnig Fljótsdalur-
inn fyrir hugarsjónum sem um-
gjörð um þá mynd, og einkenni-
lega samofin henni.
Við sitjum úti í yndislega trjá-
garðinum á Arnheiðarstöðum,
Það er að kvölda, Lagarfljót
spegilslétt fram undan grænum
túnbrekkum og víðibollum, rökk
ur að síga á Hallormsstaðaskóg
hinum megin, blánandi fjöll að
baki.
Við spjöllum um lífið, sem
hefúr verið lifað á þessum slóð-
um, og hún þekkir út og inn.
Ég er spurull, Sigríður greið úr-
iausna. í lifandi frásögn segir
hún frá mönnum og konum, ein-
Frámhald á bls. 21
Einlægar hjartans þakkir fyrir hlýjar kveðjur og
góðar óskir á sjotugsafmæli mínu.
BRYNJÓLFUR JÓHANNESSON, leikari.
t,
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar
HÖRÐUR GUNNARSSON
rafvirki, Nökkvavogi 42,
lézt 8. ágúst.
Jóhanna Jónsdóttir og körnin.
Eiginkona mín
ALDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Litlu Sandavik,
lézt að heimili sínu Bankavegi 4, Selfossi, 9. ágúst sl.
Kristinn Vigfússon.
Hjartkær eiginmaður, faðir og tengdafaðir
FRITZ HENDRIK BERNDSEN
lézt 8. þessa mánaðar.
Elísahet Berndsen,
börn og Sengdabörn.