Morgunblaðið - 10.08.1966, Page 24

Morgunblaðið - 10.08.1966, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ' Miðvikudagur 10. ágúst 1966 FÁLKAFLUG EFTIR DAPHNE DU MAURIER kærðuð yður um að líta inn til mín, eftir að hafa fengið að- gang að öðru eins húsi. Hverjir voru þar fleiri? — Það var eitthvert slangur af prófessorum, og þeirra með- al minn ágæti yfirboðari, hr. Fossi, ásamt ektamaka sínum. Ég lagði hæfilega áherzlu á gktamakann. Hún hló og við gengum áfram. — Vesalings Giuseppe! Ég get alveg séð hann fyrir mér í virðuleikahamnum sínum, út- blásinn af stolti yfir heimboðinu. En hvað fannst yður um hana Láviu okkar? — Mér fannst hún falleg. Og töfrandi. Æði miklu meir svo en ungfrú Rizzio. — Almáttugur minn. Var hún nú þarna líka? — Já, með honum bróður sín- um. Mér fannst þau bæði óþarf lega formleg í framkomu. — Já, það finnst víst flestum. Jæja, ég kalla yður hafa slegið yður upp, af aðkomumanni að vera, Armino Fabbio! Það verð- ur víst ekki auðvelt að stöðva yður héðan af. Til hamingju! Svona hefur mér ekki orðið ágengt á tveimur árum. Við snerum upp eftir Rossini- götu. Gangstéttirnar voru fullar fólki í búðarápi og stúdentum, sem voru að verða of seinir á fyrirlestrana sína. — Ekki vænti ég, að formaður Listaráðsins hafi verið þarna, fyrir einhverja tilviljun? Ég hafði nú þegar gengið nægi lega í augun á henni, án þess að þurfa að hreykja mér neitt. Og svo var líka betra að tala varlega. — Jú, hann leit inn sem snöggvast, sagði ég. — Ég var farinn á undan honum. Ég rétt talaði orð við hann yfir glasi af Campari. Hann var ósköp vin gjarnlegur, en ekki líkt því eins áberandi, svona lífvarðarlaus. Aftur þagnaði hún og glápti. — Ótrúlegt! Ekki búinn að vera nema þrjá daga í Ruffano og samt verið svona heppinn. Þér hljótið að vera göldróttur. Nefndi hann mig nokkuð? — Nei, sagði ég. — Það var nú varla tími eða tóm til þess. Ég held að hann hafi varla vit- að, hver ég var. — Það var illt að sleppa slíku tækifæri, sagði hún. — Hefði ég bara vitað af þessu! Þá hefðuð þér getað borið honum skilaboð frá mér. — Þér megið ekki gleyma þvi, að þetta var allt saman hunda- heppni og tilviljun ein. Hefði ég ekki farið í kirkju....... — Jú, það er krakkaandlitið á yður, sagði hún. — Reynið ekki að segja mér, að hefði ég farið í kirkju og hitt Liviu Butali, þá hefði hún gert sér það ómak að bjóða mér heim uppá glas. Ég býst við, að hún þyk- ist verða að halda uppi risnu í nafni háskólans, meðan maður- inn hennar er ekki heima, held- ur vel geymdur í sjúkrahúsi í Róm. Var Aldo Donati nokkuð að stíga í vænginn við hana? — Ekki svo að ég sæi, sagði ég. — Hún virtist þurfa miklu meira að tala við Rizzio prófess- or. Við skildum svo og ég gekk inn í hertogahöllina, en hún hélt áfram upp brekkuna til háskól- uns. Ekkert hafði verið minnzt frekar á neitt stefnumót með okkur. En ég fann samt á mér, að svo mundi verða. Þessi iðjuleysis-sunnudagur minn hafði gert það að verkum, að ég var heldur seinn í vinn- una. Þegar ég kom, sá ég, að all- ir hinir voru komnir á undan mér, þar með talinn yfirmaður minn, Fossi. Þau stóðu í hnapp og íöluðu sín í milli af miklum ákafa. Af einhverjum ástæðum var það ungfrú Catti, sem mesta athyglina dró að sér. — Það er enginn vafi á því, sagði hún. — Ég hef það frá ein- um stúdentinum — það er hún Maria Cavallini — hún var læst inni í herberginu sínu ásamt fjórum öðrum. Það var ekki fyrr en húsvörðurinn kom í morgun að athuga miðstöðina, að þær sluppu út, eða nokkrar hinna. — Þetta er frámunalegt hneyksli. Nú verður heljar-uppi stand, sagði Fossi. — Hefur þetta verið kært til lögreglunn- ar? — Það gat enginn sagt mér. Ég gat ekki staðið þarna og kjaftað. Þá hefði ég komið of seint í vinnuna. Augun ætluðu út úr höfðinu á Toni er hann hljóp til mín. — Hefurðu heyrt fréttirnar? sagði hann. — Nei, Hvaða fréttir? — Það var brotizt inn í kven- stúdentagarðinn í nótt, og stelp urnar læstar inni í herbergjun- um sínum. Enginn veit, hvernig þetta gekk til eða hverjir þarna voru á ferð. Mennirnir voru með grímur. Hvað voru þeir margir, ungfrú? Hann sneri sér að ná- fölum ritaranum, sem hafði svo óvænt orðið fregnberi — og það merkilegra fregna. □----------------□ 37 □----------------D — Það voru einir tólf eða fleiri, sagði hún. — Enginn veit hvernig þeir brutust inn. Þetta skeði snögglega, rétt um það bil, sem V og H-stúdentarnir voru að koma heim. Þið vitið hvaða ógurlegan hávaða þeir gera með þessum skellinöðrum sínum? Þeir voru þarna notaðir fyrir hulu, meðan hinum var hleypt inn. Það má kannski kalla þetta sprell. En ég kalla það nú bara hneyksli. — Svona, svona, sagði Giu- seppe Fossi, en augun stóðu nú samt út úr honum af spenningi. — Að því er við bezt vitum varð engin stúlknanna fyrir neinu ofbeldi. Það er ekki svo voðalegt að vera lokaður inni í herberginu sínu — mér er sagt, að þær séu það alltaf. En ef hús- ið hefur verið rænt, gegnir öðru máli. Þeir verða að kalla á lög- regluna. Að minnsta kosti verð- ur Elia prófessor að svara til saka. Jæja, eigum við að fara eitthvað að gera? Hann óð svo að skrifborðinu sínu og kinkaði kolli til ritara síns. Hún elti hann með minnis- bók og blýant í hendi, og var uppleit. — Hversvegna á að kenna Elia prófessor um þetta? sagði Toni. — Það er ekki honum að kenna þó að V og H-stúdentarn ir hafi gaman af að gera sprell. En ég fæ nánar um þetta að vita, hjá vinkonu minni seinna í dag. Hún hefur áreiðanlega frétt hjá kunningja sínum, hvað raunverulega gerðist. Við gengum nú að morgun- verki okkar, en þó laus við alla einbeitingu. Hvenær sem sím- inn hringdi litum við upp og lögðum við eyrun, en jáin eða neiin hjá hr. Fossi gáfu okkur barna engar upplýsingar. Inn- brot í kvenstúdentagarðinn kom ekki bókasafninu við. Þegar formiðdagurinn var um það bil hálfnaður, sendi Fossi okkur Toni upp í nýbygginguna með bókakassa. Við fluttum þá í lítilli kerru, sem til þess var ætluð. Þetta var fyrsta heimsókn mín í nýja bókasafnið handan við háskólann, en það stóð uppi á hæð, skammt frá öðrum ný- legum húsum, verzlunardeild- inni og eðlisfræði-vinnustofunni. Þessi hús bjuggu ekki yfir töfr- um gömlu háskólabygginganna, en samt var stíll þeirra ekki óviðkunnanlegur og gluggarnir gáfu góða birtu þeim, sem þar unnu. — Og allt að þakka honum Butali prófessor, sagði Toni, — og svo yngri mönnunum í há- skólastjórninni. Rizzio gamli barðist gegn því, eins og hann var maður til. — Hvernvegna það? spurði ég. — Honum þótti það víst nið- urlægja mennta-andrúmsloftið, glotti Toni — og gera stúdent- ana hans að verksmiðjulýð. Sam kvæmt hans áliti átti háskól- inn í Ruffano að vera kennslu- stofnun, þaðan sem ungir menn áttu að geta dreifzt út um land- ið með klassísku menntunina sína til að fræða unglingana í skólum landsins. — Það geta þeir gert eftir sem áður. — Já, það geta þeir, en hví- líkur þrældómur! Nú, maður með hagfræðipróf getur fengið atvinnu á svipstundu hjá ein- hverju stórfyrirtæki og unnið sér inn á þremur mánuðum það sem kennari þarf ár til að vinna sér inn. Nei, þetta er engin fram tíð! Við tókum kassana út úr bíln- um. Málararnir voru ekki farnir úr húsinu fyrir meira en viku, sagði Toni mér. Há, björt og með hillum frá lofti til gólfs, mundi nýja byggingin verða æði miklu heppilegri fyrir safnið en gamli veizlusalurinn í hertogahöllinni. — Hvað fengu þeir peninga í þetta? .spurði ég. — En skólagjöldin frá Vog H! Hvað svo sem annað? Við skildum eftir kassana handa starfsliðinu þarna að taka upp úr, undir stjórn starfs- bræðra Fossis, en þó ekki fyrr en Toni hafði haft innbrotssög- una upp úr einhverjum sem þarna var að vinna. — Þeir segja, að Rizzio ætli að segja af sér, nema því aðeins Elia beiðist opinberlega afsökun ar fyrir hönd V og H-stúdent- anna, sagði hann með ákafa, er við gengum út. — Og þar verður nú barizt til úrslita, vertu viss! Ég held ekki, að Elia muni nokkurn tíma taka það í mál. — Mér var sagt, að ég mundi koma í dauðan bæ, sagði ég. — Hafið þið kannski eitthvað svona spennandi á hverjum degi? — Nei, ekki er nú því að heilsa, sagði harin, — en ég skal segja þér, hvernig þetta allt er í pottinn búið. Þegar rektorinn er fjarverandi, nota þeir Elia og Rizzio tækifærið til að bíta hvorn annan á barkann. Þeir hatast, og þarna er tækifærið þeirra. Þegar við vorum að koma skrjóðnum fyrir úti fyrir her- togahöllinni um klukkan þrjú kortér í eitt, sá ég, að Carla Raspa kom út úr hliðardyrum ásamt hópi af listastúdentum. Hún sá mig og veifaði hendi. Ég veifaði á móti. Hún sendi hópinn áfram, en beið mín, að ég slæg- ist í för með henni. — Ætlið þér nokkuð sérstakí í hádegisverð? spurði hún. — Nei, svaraði ég. — Farið þér þá í veitingahús- ið, þar sem við hittumst fyrst, flýtti hún sér að segja. — Pant- ið þér borð handa tveimur. Ég má ekki tefja núna, ég verð að koma þessum hópi heim. Nú er öllum bannað að stanza nokkurs staðar, eftir það, sem gerðist í gærkvöldi. Þér hafið heyrt frétt irnar? — Já, þetta innbrot. Það hef ég heyrt. — Ég get sagt yður dálítið meira, sagði hún. — Það er næstum ótrúlegt. Hún þaut á eftir hópnum sín- um, en ég hélt áfram niður Rossinigötu. Veitingahúsið var yfirfullt, eins og fyrri daginn, en mér tókst nú samt að ná í borð. En þarna voru engir stúdentar. Staðurinn virtist vera uppáhalds samkomustaður þeirra kaup- sýslumanna í Ruffano, sem fóru ekki heim til sín í mat. Carla Raspa kom fljótlega. Hún smelti fingrunum til þjónsins og pant- aði mat, en síðan brosti hún til mín. — Út með það, sagði ég. — Ég get þagað yfir leyndarmál- um. — O, þetta er svo sem ekkert leyndarmál, svaraði hún, en leit samt fyrst um öxl. — Það er víst þegar komið út um allan háskólann. Ungfrú Rizzio hefur verið nauðgað. Ég starði á hana vantrúaraug- um. — Það er satt, sagði hún með áherzlu og hallaði sér fram. Ég hef það frá hennar eigin þjón- ustufólki. Þessir piltar, hverjir sem það nú hafa verið, snertu ekki við stelpunum. Þeir læstu þær allar inni í herbergjunum þeirra, en réðust svo á garðinn þar sem hann var hæstur. Er þetta ekki alveg dásamlegt? Hún ætlaði alveg að kafna i hlátri. Mér var ekki nærri eins skemmt. Maturinn, sem var fyr ir framan mig, gerði mig alveg lystarlausan. Hann leit út eins og innýfli. — Þetta er ekki nema alvana legur glæpur og handa lögregl- unni að fást við, sagði ég. — Sá seki er góður með tíu ára fang- elsi. — Nei, sagði hún. — Það er sagt, að unfrúin sé alveg að sleppa sér á taugum og vilji láta þagga málið niður. — Það getur aldrei orðið, sagði ég. — Það leyfir réttvís- in aldrei. Hún réðst að fullum matar- diskinum sínum með beztu lyst og stráði muldum osti á káss- una. — Réttvísin getur ekkert aðhafzt ef enginn kærir, sagði hún. — Það hljóta piltarnir að hafa gert sér ljóst og skákað i því skjólinu. Auðvitað verður hræðilegt uppnám út af innbrot inu. En það sem ungfrú Rizzio verður fyrir, er hennar mál. Ef hún neitar að kæra fyrir árás, og bróðir hennar stendur henn- ar megin getur enginn neitt gert. Hafið þér pantað vín? Það hafði ég og hellti í hjá henni. Hún slokraði það eins og kverkar hennar væru skrauf- þurrar. — Það er ekki eins og henni hafi verið neitt misþrymt, hélt hún áfram. — Mér skilst, að það hafi alls ekki verið um neitt slíkt að ræða. Engin barsmíð. Bara sýnt, hvernig þetta gengur fyrir sig. — Hvernig vitið þér þetta? spurði ég. — Jæja þannig gengur sagan. Þetta segja stúlkurnar í kven- stúdentagarðinum. Nú þegar þær eru búnar að jafna sig af hræðslunni við grímuklædda menn — en sleppa sjálfar ósnert ar — þær sem þá hafa verið þar fyrir — þá geta þær ekki stillt sig. Að þetta skyldi hafa komið fyrir sjálfa frökenina! Maður verður nú að dást að þessum V og H-piltum. Þeir eru ekki huglausir, hvað sem annars má um þá segja! — Ég trúi þessu nú ekki enn, sagði ég.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.