Morgunblaðið - 10.08.1966, Page 26
ZD
mUKbU N b LJAU IV
Miðvikudagur 10. ágúst 1966
Átta nýliðar í íslenzka lands-
liðinu gegn Wales
Fyrsti Izndsleikur Oandanna
í Laugardal á mánudag
Á MÁNliOAG verður háður
landsleikur í knattspyrnu milli
Íslendinga og áhugamanna frá
Wales. Kr það í fyrsta sinn, sem
þessi lönd kcppa í íþróttum.
Alls koma hingað þrettán leik-
menn og sjö aðrir. Kemur hóp-
urinn á föstndagskvöld en held-
ur heim á þriðjudagsmorgun.
8 nýliðar
Landslið íslands hefur
verið vaíið og er nú landsliðs
nefndin m.iög djörf í breyting
um sínum. Fru 8 menn í lands
liðinu nú sem aldrei hafa leik
ið áður í A-landsliði, en hins
vegar léku nokkrir þeirra í
„ungiinga-leiknum við Dani
fyrr í sumar. En aldrei hefur
svo nýliðum pakkað lið mætt
á knattspyrnuvelli, sem iands-
fulltrúar.
Landsliðið íslenzka er þannig
skipað:
Markvörður: Einar Guðleifs-
son, Akranesi
Bakverðir: Arni Njálsson Val
©g Ársæli Kjaitansson KR.
Framverðir: Magnús Torfason
Keflavík, Ánton Bjarnason Fram
©g Sigurður Albertsson, Kefla-
vik.
Framherjar: Reynir Jónsson,
Val Hermann Gunnarsson, Val,
Jón Jóhannsson, Keflavík, Ellert
Schram, KR og Gunnar Felixson
KR.
Varamenn eru: Sigurður Dags-
son, Val, Jóhannes Atlason, Fram
Baldur Scheving, Fram, Ingvar
Elísson, Val og Hörður Markan
KR.
Aðeins þrír áðurnefndra aðal
manna hafa leikið í landsliði
áður, Árni Njálsson, sem hefur
17 landsleiki að baki og verður
nú fyrirliði landsliðsins í fyrsta
sinn, Ellerr Schram, sem leikið
hefur 12 lanrisleiki og Gunnar
Felixson, sem leikið hefur 6
landsleiki.
ýý Hvernig fer?
Um getu líðsins verður að
sjálfsögðu engu spáð, en það er
ekki vandalaust að velja lands-
lið nú því jafnan eða aldrei hafa
jafn sárafáir skarað fram úr og
nú í knattspvi nunni og menn átt
eins misjafna leiki.
Um getu welsku áhugamann-
anna er heldur ekkert vitað. Þar
sem annars staðar í Bretlandi er
JTamh&ld á bls. 27
Davíð
Guðmundur
Guðmundur og Davíi taka
þátt í EM í sundi
TVEIR íslendingar verða meðal
þátttakcnda í Evrópumeistara-
mótinu í sundi sem fram fer í
Utrecht í Hollandi og hefst síð-
ari hluta næstu viku. f»að verða
I þeir Guðmundur Gíslason ÍR og
Davíð Valgarðsson ÍBK. Farar-
stjóri verður Torfi Tómasson,
en auk þess fer einn af stjórnar
mönnum SSÍ, Siggeir Siggcirs-
son og situr þing sundsambands
Heimsmót skíðamanna:
Frakkarnir tveir enn í
fyrstu sœtunum
fyrri hluta stórsvigsins
í GÆR var heimsmeistaramóti
skíðamanna haidið áfram í há-
fjöllum Chile og hafin keppni í
stórsvigi karia. Er keppni í
þeirri grein þannig háttað, að
keppt er í einni braut í dag en
annari og erfiðari á miðvikudag
og ræður samanlagður tími í
báðum brautum úrslitum.
f dag voru það enn Frakkam-
ir sem létu að sér kveða — en
nú kom forysta þeirra ekki á
óvárt, því þeir hafa verið „ó-
krýndir konungar“ svigsins und-
anfarin ár. Frakkarnir skipa sem
sagt tvö efstu sætin eftir fyrri
hluta keppninnar.
Það voru dálitið erfiðar keppn
isaðstæður í gær, skýjað og þoka
á stundum. Brautin var 1390 'm
löng og hæðarmismunur 464 m.
Þó þessi fyrri braut sé miklu
léttari hinni sem á miðvikudag-
inn verður farin, fengu margir
fall í dag, en engin alvarleg
meiðsli. Meðal hinna óheppnu
var sá Austurríkismaður er mest
ar líkur var talinn hafa til að
sigra Frakkana, Egon Zimmer-
mann. Hann missti jafnvægið í
brautinni, sleppti hliði og var
siðar dæmdur úr leik.
Framhald á bls. 27.
Evrópu. Halda þeir utan n.k.
þriðjudag. •
ir Keppnisgreinar
Guðmundur Gíslason keppir I
tveimur greinum á mótinu 400
m fjórsundi og 200 m flugsundL
Guðmundur hefur sýnt miklar
framfarir í þessum greinum að
undanförnu og verður góður
fulltrúi íslands þó ekki hafi
hann sigurlíkur eða verði í
verðlaunasæti.
Davíð Valgarðsson tekur þátt
í 400 og 1500 m skriðsundi en
lengri vegalengdir í skriðsundi
eru hans „sérgrein“.
Á Innanfélagsmót
Sundráðið gengst fyrir innan-
félagsmóti í Sundlaug Vestur-
bæjar á fimmtudag og föstudag.
Verður þar keppt í 200 m skrið-
sundi karla, 400 m skriðsundi
karla, 200 m flugsundi karla,
400 m fjórsundi karla og 100 m
baksundi kvenna. Meðal kepp-
enda verða þeir Guðmundur og
Davíð.
Færeyskir knatt:
spyrnumenn í boði ÍBK
f DAG koma hingað til lands
færeyskir bnattspyrnumenn og
dvelja hér fram yfir helgi í boði
Keflvíkinga. I.eika þeir hér þrjá
leiki og er hinn fyrsti i kvöld kl.
8 á grasvellimim í Njarðvík gegn
liði ÍBK.
Hér er um sð ræða íþróttafé-
lag Klakksvíkur Hafa Keflvík
ingar undanfarin ár verið í
tengslum við B-36 í Thorshavn
og tvívegis dvalið í Færeyjum.
í bæði skiptin hafa Keflvíkingar
Framhald á bls. 27
Seldi soninn fyrir 1200 kr.
PEDRO ROCHA heitir 23 ára
gamall Uruguaymaður, sem
var innherji í landsliði Uru-
guay á heimsmeistarakeppn-
inni nýafstöðnu. Landar hans
hika ekki við aff fullyrða að
hann sé bezti innherji heims
— og eftir að hafa séð hann
leika í Englandi hafa marg-
ir komizt á sömu skoðun. Og
flestir sem hann hafa séð
minnast hans lengi fyrir góð-
an leik.
Hann hóf atvinnuferil sinn
í Unattspyrnu þegar faðir
hans sem var bláfátækur,
seldi hann til hins stóra fé-
lags Pinarol í Montevideo
fyrir sem svarar 1200 ísl. kr.
1 dag er Pedro Rocha ekki
falur fyrir neina smáupp-
hæð. Fyrir heimsmeistara-
keppnina bauð félag eitt í
Argentinu um 15 millj. ísl.
kr. fyrir hann. En eftir heims
meistarak. hefur hann enn
hækkað í verði, enda sýndi
hann þar, að hann er í flokki
með Pele, Haller, Schnelling-
er og Eusebio og öðrum þeim
hinum frægustu knaltspyrnu
stjörnum.
19 ára gamail var Pedro
Rocha í liði lands sins í
heimsmeistarakeppninni í
Chile. Þá sáu allir að mikið
efni var .á ferðinni. Nú er
landslið Urugua^ byggt upp
umhverfis hann.
Rocha sparkaði fótknetti
fyrst i smábænum Salto.
Frægðarsögur af honum sem
ungum dreng bárust til
Montevideo.
Sérstakur „njósnari" var
sendur á vettvang og hann
varð svo hrifinn af fimleik
og getu þessa unga manns að
daginn eftir komu tveir fram
kvæmdastjórar Pinarol til
Eutropia föður Pedros og
komust að samkomulagi við
þann bláfátæka mann að „fá
son hans fyrir 1200 krónur“.
í dag hefur Pedro Rocha
konungleg laun hjá Pinarol.
Hann lifir hamingjusömu lifi
„leikur“ sér í sportbílum
sínum og hefur keypt hús
fyrir sig og foreldra sína.
Þannig iðrast Eutropia alls
ekki gerða sinna er hann lét
drenginn af hendi fyrir 1200
kr. Málið fékk farsælar lykt-
ir.