Morgunblaðið - 18.08.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.08.1966, Blaðsíða 2
2 MORGU NBLAÐIÐ Fimmtudagur 18. agúst 190 íslenzkt keramik og silfurmunir * fá góða díima í Israel í LOK júnímánaðar var haldin I um Norðurlandaþjóðunum. Héð- stór vörusýning í Tel Aviv í an frá íslandi voru sendar vör- ísrael og voru íslendingar þar ur frá fyrirtækinu Glit h.f. og þátttakendur í samfloti með hin- ' Framhald á bls. 17. Frá vinstri: Stefán Skaftason læknir, Vigdís Jónsdóttir, Friede Briem og Erlingur Þorsteinsson, læknir. Fyrirhuguð mikil stækkun á heyrn- arstöð Heilsuverndarstöðvarinnar Rætt við fru Friede Briem og Stefán Skaftason lækni í Svíþjóð HÉR á landi er staddur Stefán Skaftason, aðstoðaryfirlæknir við heyrnarstöð Centralsjúkrahúss- ins í Kalmar í Sviþjóð. Blaða- menn ræddu við Stefán Skafta- son og Erling Þorsteinsson lækni fyrir milligöngu Zontaklúbbsins fyrir fáeinum dögum. Fyrir til- stuðlan Zontaklúbbsins var opn- uð heyrnarstöð í Heisluverndar- stöð Reykjavíkur haustið 1962 og hefur Erlingur Þorsteinsson ver- ið læknir heyrnarstöðvarinnar frá uphafi. Frú Friede Briem, formaður Margrétarsjóðs, tjáði blaðamönn- um, að starfsemin hefði fyrst og fremst beinzt að smábörnum, að finna þau nógu ung, láta þau fá heyrnartæki og leiðbeina foreldr unum og brýna fyrir þeim hversu mikið riði á því, að talað væri vfð börnin. Með mikilli þol- inmæði og góðri þjálfun þyrfti svo að reyna að koma börnunum í leikskóla með öðrum talandi börnum og síðan í venjulegan barnaskóla með sérkennslu. í leikfimi, sundi og verklegum fög- um yrðu þau með hinum börn- unum í skólanum. Frú Briem sagði ennfremur, að nokkuð hefði áunnizt í málum heyrnardaufra síðan stöðin var opnuð. Takmarkið hefði frá upp- hafi verið að koma upp fullkom- inni heyrnarstöð með deild í sjúkrahúsi, þar sem hægt væri að leggja inn sjúklinga. Nú er fyrirhuguð mikil stækkun á heyrnarstöðinni, strax og Borg- arspítalinn í Heilsuverndarstöð- inni flytur í Borgarsjúkrahúsið í Fossvogi. Stefán Skaftason læknir sagði, að mörg börn fengju slæma heym snemma á skólaaldri og því væri nauðsynlegt að rann- saka heyrn allra skólabarna. — Væri í Sviþjóð ágæt skipulagning á slíkum rannsóknum. Eru öll börn prófuð með heyrnarmælum og komi heyrnardeyfa í ljós er línuritið sent til heyrnarstöðvar í léninu, sem Svíar nefna svo, en Svíþjóð er skipt í lén á sama hátt og íslandi er skipt í sýslur. Sama fyrirkomulagi mætti koma á hér á íslandi, sagði Stef- án, en þáð mundi reynast erfitt, ef ekki væri fyrir hendi nef-, háls- og eyrnadeild með fullkom inni heyrnarstöð. >á sagði frú Briem, að stefna bæri að því að fá íslenzka sér- fræðimenntaða lækna heim og veita þeim góð starfsskilyrði. fs- land mætti ekki við því, að missa svo dýrmæta starfskrafta, enda vissu allir að aðrar þjóðir sæktust eftir slíkum mönnum. í þessu sambandi sagði Stefán, að nú væru starfandi í Svíþjóð 6 nef-, háls- og eyrnalæknar og það væri heitasta ósk þeirra allra áð fá að starfa hér á landi, en slíks væri enginn kostur, meðan starfsskilyrðin væru ekki álíka og þeir hefðu vanizt í Svílþjóð. Þá skýrði frú Briem frá störf- um Zontaklúbbsins á undanförn- um árum. Klúbburinn auglýsti styrk úr Margrétarsjóði, en sjóð- urinn var stofnaður árið 1944 til styrktar málefnum heyrnar- daufra. Styrkurinn var veittur Birgi A. Guðmundssyni kennara, sem fór utan í ágústmánuði 1965 til náms í heyrnarmælingum. Þá var samþykkt á aðalfundi Zontaklúbbsins- í apríl sl., eftir tillögu stjórnar Margrétarsjóðs, Á kortinu hér að ofan er all djúp' lægð norðaustur undir Lófót í Noregi. Þaðan liggur lægðardrag suðvestur um sunnarvert ísland. Um suður og austur hluta landsins var því' hæg vestíæg átt, bjart- viðrl og 10—14 stiga hiti, én norðan og vestan lands var norðaustan gola eða kaldi, víða rigning og hiti 4—8 stig kaldast við Hornbjarg. ■ 1 dag mun veður haldast svipað, þó mun verða þurrt að mestu norðan og vestan lands. að gefa tvð símamagnarakerfi. Á það að gera heyrnardaufum kleift að njóta hins talaða orðs, ef slíku magnarakerfi er komfð fynr. Þurfa menn þá að hafa heyrnar- tæki með símabúnaði, en nýjustu heyrnartækin hafa þann útbún- að. Var ákveðið að færa Leikfé- lagi Reykjavíkur slíkt kerfi að gjöf. Hitt kerfið verður sett upp í skólastofu einhvers barnaskól- ans í borginni, þar sem siðan verður hafin tilraun með kennslu heyrnardaufra barna, sem nota heyrnartæki. Stjórn Zontaklúbbs Reykjavík- ur skipa nú: Rúna Guðmunds- dóttir, formaður, Vigdís Jónsdótt ir, varaformaður, Sigríður Gísla- dóttir, Guðrún Helgadóttir og Jakobína Pálmadóttir. Stjórn Margrétarsjóðs skipa: Friede Briem, formáður, Ingi- björg Bjamadóttir, gjaldkeri, ag Auður Proppé, ritari. Á BRAUT UM- HVERFIS SÓLU Kennedyhöfða, 17. ágúst. — NTB — AP — BANDARÍKJAMENN skutu í dag gervihnettinum „Pioneer 7“ út í geiminn, en hann á að safna upplýsingum um hina svonefndu sólstorma", en það eru geislavirk „ský“, sem stafa frá sólu og geta reynzt geimförum framtíðarinn- ar banvæn. Flutti Delta-eldflaug „Pioneer“ á braut umhverfis jörðu síðdegis í dag. Gervihnött- urinn vegur 63,5 kg. „Pioneer 7“ var fyrst á braut umhverfis jörðu, en var þaðan sendur áleiðis á braut umhverfis sólu. Mun gervihnötturinn verða á braut umhverfis sólu á milli jarðar og reikistjörnunnar Mars. Frá sólinni stafar geislaorka, sem samsvarar því að margar milljónir vetnisprengja væru sprengdar I sömu andrá. Stund- um ber svo við, að sólin sendir geislavirk efni langt út í geim- inn. Er þau koma nærri jörðu verða þau fyrir áhrifum af segul sviði hennar, og þessi geislavirku efni geta reynzt geimförum hættu xeg. Eitt af hlutverkum „Pioneer 7“ er að leggja sitt af mörkum til þess að hægt veöði að sjá fyrir sólgosin með nokkurri vissu. f desember sl. sendu Banda- ríkjamenn annan gervihnött, „Pioneer 6“, á braut umhverfis sólu. Sendir þessi hnöttur enn upplýsingar til jarðar. Eftir að „Pioneer 7“ var send- •ur af braut sinni um jörðu var upplýst á Kennedyhöfða, að svo virtist sem gervihnötturinn væri á réttri braut. Hinsvegar mun nokkur tími líða áður en hægt verður að fullyrða það. Fjölmenn útför Ottós l\l. Þorlákssonar í GÆIR var gerð útför Ottós N. Þorlákssonar skipstjóra, frá Foss- vogskirkju. Séra Emil Björnsson flutti líkræðu. í kirkjunni voru fánar stofnfélaga Alþýðusam- bandsins. þ. e. Dagsbrúnar, Verka kvennafélagsins Framsóknar, —■ Hins íslenzka prentarafélags og Sjómannafélags Reykjavikur, en Ottó var fyrsti forseti Alþýðu- sarabands íslands. Fjölmenni var við útför hins látna. Sir Alec Guinnes til íslands? BANDARÍSKA dagblaðið „Daily News“ skýrði frá því sl. mánudag, samkvæmt fregn frá Hollywood, að brezki kvik myndaleikarinn heimsfrægi, Sir Alec Guinness, hafi í hyggju að koma til íslands til hvíldar. Blaðið hefur orðrétt eftir Guinness: „ísland er bezti staðurinn, sem ég get hugsað mér, til þess að njóta fullkominnar hvíldar og komast — burt frá þessu öllu. — Ég þarfnast hvíldar og næðis eftir hið erilsama starf mitt í kvik- myndinni „Dagbók Quiller’s“, og einnig til þess að búa mig undir enn erilsamara verk- efni, hlutverk Maobeth’s, en þar leikur Simone Signoret hina undirhyggnu eiginkonu mína. Leikritið verður sýnt í Konunglega hirðleikhúsinu í Lundúnum". Blaðið getur þess ekki hve- nær Sir Guinness muni vænt- anlegur til íslands, en furðar sig sýnilega á ákvörðun hans. Fréttina um hingaðkomu Guinness nefnir blaði'ð: „Kæl- ir sig — á íslandi". Systraféfagið Alfa í Reykja- vik og systrafélög þess í öðrum söfnuðum Aventista hér á landi senda í ár 60 stóra fatakassa til Grænlands, en þar munu sara- tök Aðventista útbýta fatn- aðinum meðal þurfandi lands- búa. Varnarlið Bandaríkjanna flytur kassana til Goodhab end- urgjaldslaust. Myndin er af köss unum þar sem verið var að hlaða þeim á flutningsbifreið við Ingólfsstræti 2, aðsetur Aðvent- ista í Reykjavík. (Ljósm. Mbl. Sveinn Þorm.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.