Morgunblaðið - 18.08.1966, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.08.1966, Blaðsíða 14
14 MORCUNBLADIÐ Fimmtudagur 18. ágúst 1966 Hjartans þakkir til bama minna, ættingja og vina fyrir gjafir, blóm og skeyti á 75 ára afmæJi mínu 12. þ.m. Jakob Narfason, Ullarnesi. Hjartans beztu þakkir fyrir ógleymanlega vináttu, sem ég naut margvíslega á 85 ára afmælinu 8. þ. m. Dagurinn var hlýr og bjartur bæði utan húss og innan og gat ekki verið yndislegri. — Guð og gæfan annist ykkur, kæru vinir. Emil Tómasson. LONDON DOMUDEILD Austurstræti 14. Sími 14260. LOIMDON, dömudeild Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, MÖGDU MARÍU JÓNSSON (f. Balzeit) Sérstaklega þökkum við íækni, Stefáni P. Björnssyni, systur Appalóníu og öðru starfsfólki á Landakotsspítala. Ágúst Jónsson, Geir Ágústsson, Torfi Ágústsson, Ágústa Ágústsdóttir, Helgi Ágústsson, Guðríður Ágústsdóttir, Gunnar Jónsson, Hans Ágústsson, Jóhanna Þórarinsdóttir, Jón Ágústsson, Hulda Jósefsdóttir, og barnaböm. Útför HRAFNHILDAR PÉTURSDÓTTUR sem andaðist 13. ágúst fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. ágúst kl. 13,30. — Blóm afbeðin. Sigríður Marta Sigurðardóttir, Ellert Guðtnundsson. Jarðarför eiginkonu minnar, SOFFÍU, fædd WEDHÓLM verður gerð frá Dómkirkjunni. laugardaginn 20. þ.m. kl. 10,30 f.h.. — Blóm afbeðin, en þeir, sem vilja minnast hennar eru vinsamlega beðnir að láta Krabba- meinsfélagið njóta þess. Maríus Jónsson: GUÐRÚN ÞORFINSDÓTTIR frá Brandsstöðum, verður jarðsett frá Bólstaðarhlíðarkirkju laugaröaginn 20. ágúst nk. — Athöfnin hefst kl. 2 e h. Vandamenn. HELAICA siðbuxur HELANCA skiðabuxur f ú r v a I i . — PÓSTSENDUM — Hilmor Þór Magnús son — Minning Átakanleg sorgarfregn eins og sú, sem blöðin flúttu þann 12. þ.m., er Hilmar Þór Magnússon fórst af slysförum í Kaupmanna höfn, lætur engan ósnortinn. Má þó geta nærri, hve sárt slíkt hlýtur að nísta nánustu ástvini og þá einkum foreldra, sem missa son á þeim aldri, er foreldrakær- leikurinn vakir með sérstakri um hyggju og stundum nokkrum kvíða yfir vegferð sonarins í eftirvæntingum, hvernig taka3t muni í umróti erfiðra æskuára. Við, sem starfað höfum meðal drengja og unglinga í KFUM, geymum margar myndir, — myndir efnilegra, bjartra, bros- mildía drengjaandlita, sem gáfu fögur fyrirheit um heillaríka framtíð, er skapa myndi þeim og lífsförunautum gæfu, ef komizt rrði skaðlaust framhjá skerjum, sem margur hefir því miður steytt fleyi sitt á á æskuárum. Hilmar Magnússon var fyrir um tveim árum kominn af „drengjadeildaraldri“ og á „Unglingadeildaraldur“ eins og við í KFUM skiptum starfsdeild um. Þá skilja oft leiðir, því líf og störf kalla. Sjaldgæft er þó að sjá á eftir drengjum á þess- um aldri inn um dyr dauðans og það eins sviplega og nú varð. Eftir er minningin um hressileg- an, ferskan dreng, sem alltaf var eitthvað gott og glaðlegt við mitt í atorku og ríkri athafnaþrá, en eitthvað á þá Ieið mæltist ein um starfsmanna KFUM, er hann heyrði um andlát þessa fimmtán ára unglings, Þessi fáu erð eru fyrst og fremst rituð til þess að færa for- eldrum samúðarkveðju í sárri sorg við fráfall Hilmars. Mann- leg orð verða alltaf fátækleg og lítilsmegnug við slíkar aðstæð- ur. Því er gott að mega benda á þann eina, sem með nærveru sinni og náð veitir huggun og leggur smyrsl á sárin. Drottinn Jesús Kristur er sá, sem er Guð allrar huggunar. Þess vegna er játningin hin sama í dag og um aldir frammi fyrir honum: „Jafnvel þótt ég gangi um dimrn an dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér.“ Það er ó- hagganlegur sannleikur, sem sannreynist á erfiðleikastund, er mannleg hjálp stoðar ekki. Við biðjum Guð allrar hugg- unar að hugga syrgjendur og blessa þeim minningu um elsk- aðan son. Bjarni Eyjólfsson. F. 21./7. ‘51. — D. 10./8. ‘66. Kveðja frá afa og ömmu. Við heyrðum helfregn þunga og húma virtist þá. Við sveininn okkar unga ei oftar megum sjá. En líkn má í því eygja ef örlög virðast köld. Þeir einatt ungir deyja, sem elska guðleg völd. f heljarhörmum þungum ei hulin skírast rök, því öldnum jafnt sem ungirn er opin feigðarvök, en sárabótin sanna er sigrar hel og gröf er máttur minninganna: sú mikla náðargjöf. Sú vissa vonargjafar má verma hrjáða lund að handan helju og grafar við hljótum endurfund. Á lífsins leiðarmótum hans lýsii- minning hrein. Og klökk við kveðja hljótum hinn kæra, ljúfa svein. J.B. Einur H. Hnligrímsson Kveðjn Vinur Krists er kvaddur, í Konungssalinn genginn. Við gullna strauminn staddur, á ströndu lít ég drenginn. Skáldið horfna, hljóða honum veginn greiddi. Vís hinn vegamóða í vinjar helgar leiddL Heill þér, horfni vinur hlýddir Drottins kalli. Ilmar æðsti hlynur. Efst á Guðafjalli rís hún borgin bjarta, blómin hlíðar skreyta. Þar með hugprútt hjarta heilags víns mátt neyta. Heim þú kvaddir hljóður, heyrðir sönginn óma. slíkur innri óður opnar helgidóma. Nyrst í heiði háu hrundi málið snjalla. Það frá bergi bláu barzt um heima alla. Námfús varst og verður, virtir Kristna Speki, svo af Guði gerður, gæddur hugarþreki. í launhelgunum ljúfur lind þú heyrðir niða. Horfðir, aldrei hrjúfur, til hærri stefnumiða. Dulur varst á verði, vaktir, hinir svéfu. Girtur sannleikssverði, sinntir réttri gáfu. Blessun hlauzt og hlýtur, helgast synir mildir. Lausnaranum lýtur, ljóma gullnir skildir. Draumsins dís þig leiði, dunar fossinn hái. Á jarðar beð þinn breiði blómstur, fræi sái. kærleikshönd, er hlúir. Hafnarfjörður megi eignast örn, sem trúir, á s — með jiýjum degi. __________Sigfús Elíasson. Kristín Oktovía Þor> steinsdóttir - Minning Fædd 18. október 1893. Dáin 12. ágúst 1966. — Kveðja frá sonardætrum - Við kveðjum milda móður, þín mund var hlý og traust. Þinn hugur heill og góður og hrein þín glaða raust, með tryggð og von í vörnum og viljans sterku lund, sem hlúðir barnabörnum við barm þinn hverja stund. Óskum að ráða reglusamar og röskar stúlkur (ekki yngri en 20— 25 ára) í sérverzlun í miðborginni, þurfa helzt að vera eitthvað vanar afgreiðslustörfum. Einnig ung an mann til sömu starfa o. fl. — Góð launakjör. Tilboð ásamt uppl. um aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgr. Mbl., merkt: „Framtíð 4638“. Þýzk verzlunnrbréf Viljum ráða stúlku til að skrifa þýzk verzlunarbréf eftir diktaphone. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. Árni Siemsen Austurstræti 17. Þú færðir allt til fórnar. Þú fannst með öðrum til og Guð, sem góðu stjórnar, han gaf þér líknar il. Við þökkum þínar dyggðir, við þökkum ótal margt. Þín störf og traustu tryggðir og trúarljósið bjart. L.S. ATHUGIÐ Þegar miðað er við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaöinu en öðrum blöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.