Morgunblaðið - 18.08.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.08.1966, Blaðsíða 3
MORCUNBLAÐIÐ 3 Fimmtudagur 18. ágúst 198® 33 íslenzkir málarar sýna í herbergjum Loftleiöahótelsins Fyrsto myndín seld fyrir 25000 krónur SNEMMA á þessu ári ákvað stjórn Loftleiða, að herberg' nýja Loftleiða- hótelsir.s skyldu prýdd málverkum eftir íslenzka listamenn, olíumyndum og vatnslitamyndum. Þar sem félagið taldi ekki hyggilegt að kaupa samtímis allar þær myndir, er síðar eiga að gefa hugmyr.d um ísl. myndlist, ákvað félagið að bjóða ís- lenzkum myndlistamönnum að hafa sölu og kynrúngar- sýningu á myndum sínum í herbergjum hótelsins. Leit- uðu Loftleiðir til forystu- manna íslenzku myndlistar- félaganna tveggja og nokk- urra listamanna utan þeirra með þessum skilmálum: „Myi.dirnar eru lánaðar Loftleiðum -til óákveðins tíma. Lofthiiðir skulu tryggja myndiiViar. Listamenn annást um val og uppsetningu í samráði við Loitleiðir. Mynoirnar eru allar til sölu. í herbergjunum verða upp lýsingar á íslenzku og ensku um feril listamanna, heimil- isföng og simanúmer, svo og hvert v.-entanlegir kaup- endur eigi að leita vegna verðs og kaupa þeirra mynda, .sem til sýnis eru. Listamenn láta Loftleiðum skriflega í té þær upplýsing- ar um sig, er þeir óska að gefa, en Loftleiðir koma þeim smekklega fyrir í her- bergjunum. Nú vill gestur kaupa mynd og getur hann þá gert það fyrir milligöngu mót- tökustjórnar hótelsins, sem biður listamanninn að láta nýja mynd í stað þeirrar, sem seld var. Hver listamaður ber ein- ungis ábvrgð á myndum í þeim herbergjum, þar sem hann sýnir, og er að því leyti sjálfstæður og óháður þeim, sem sýna myndir í öðrum herbergjum hótelsins. Gert er láð fyrir að sam- komulag verði um það milli Loftleiða og einstakra myndlistarmanna, hvort þeir sýni í einu, tveim eða annað hundrað myndir á 96 af 108 herbergjum hótels- ins. Eru myndirnar eins og fyrr segir allar til sölu og er verð þeirra frá 5000 — 25000 krónur. Fyrir skömmu seldist fyrsta myndin. Var hún eftir Svein Þórarinsson listmálara og sölu verð hennar 25.000 krónur. Kaupandinn var Pierre Ham- er, flugmálasíjóri Luxemborg valdið beinni sölu án þess að Loftleiðir viti um þa'ð. Lista- mennirnir eða trúnaðarmenn þeirra ráða algerlega tilhög- uninni, hvaða myndir þeir hengja upp, hvernig þeir koma -þeim fyrir og hvort þeir vilja skipta um með vissu millibili. Loftleiðir telja sér sóma í að sýna myndirn- ar og er það félaginu næg þóknun, sagði Sigurður. Blaðamanni Mbl. gafst kost ur á að koma inn í nokkur herbergjanna og skoða mál- verkin sem þar voru. Sáum við þar m. a. verk eftir Nínu Sæmundsson, Veturliða Gunn arsson, Örlyg Sigurðsson. Val- tý Pétursson og Svein Þórar- Bertha Jóhannsson, gjaldkeri Loftleiðahótelsins, afhendir Einari Olafssyni, stöðvarstjóra Loft- leiða í Luxemburg, myndina, sem hann fór með utan i gær. þrem binna 108 herbergja hótelsins Listamer.n fá verð mynda sinna greitt óskert við sölu þeirra“. Sigurður Magnússon blaða fulltrúi Loftleiða skýrði Mbl. frá því í gær, að undir tektir listamannanna hefðu verið mjög góðar. Alls sýna nú 33 listamenn talsvert á ar. Heitir myndin Vetur i Reykjavík. Eins og kunnugt er hefur fjöldi viðdvalargesta Loftleiða stöðugt farið vaxandi og þar af leiðandi verða margir til að sjá verk íslenzku lista- mannanna. Sagði Sigurður að talsverð eftirspurn hefði ver- ið eftir myndunum frá erlend um gestum, og getur það haía insson. Annars sýna þar eins og fyrr segir 33 listamenn á öllum aldri í mesta bróð- erni. Setja myndirnar óneitan lega mikinn svip á vistleg her- bergi hótelsins. Þess má að lokum geta að Loftleiðahótelið er líklega mest sótta listasafn íslands. en tala gesta frá því að hótel- ið var opnað 1. maí sl. mun nú vera-um 10.000. Þota steyptisf niður í þorp 24 óbreyttir borgarar týndu Eífi „Kafbáturinn reynd- ist farþegaflugvéi" 1 Saigon 17. ágúst — NTB. - AP. A.m.k. 24 Vietnambúar biðu bana i dag er bandarísk þota, hlaðin sprengjum, steyptist til jarðar í þorpi einu skömmu eft- ir að hún hafði hafið sig til flugs af Da Nang-flugvelli. Tvær 450 kg. sprengjur sprungu um leið og flugvélin skall í jörðina og hluti skotfærabirgða hennar hélt áfram að springa í hálftíma eftir sÞsið. Flugvélin náði að- eins um 45 m hæð áður en hún steyptist til jarðar. Flugmann- inum tókst að bjarga sér i fall- hlíf. Þetta var í sjötta sinn í þess- um mánuði að óhöpp varðandi bandarískar flugvélar valda dauða óbreyttra borgara í S.- Vietnam. Nýir bardagar þlossuðu upp í dag við landamæri S-Vietnam og Cambodia. Réðst flokku-r skæru- liða Viet Cong á sveit hermanna Saigonsstjórnar um 3 km. frá landamærunum. í morgun gerðu skæruliðar kommúnista sprengjuvörpuárás á ástralska liðssveit, sem kom til S-Vietnam fyrir þremur mán- uðum. 4,500 manns eru í áströlsku sveitinni. Kom árás þessi eins og þruma úr heiðskíru lofti, en að- eins nokkrar mínútur liðu þar til bandarískt, nýsjálenzkt og ástralskt stórskotalið hafði þagg að niður í skæruliðum. Þá gerðu skæruliðar sprengju- vörpuárás á bílageymslu Banda- ríkjahers skammt frá flugvellin- um í Saigon í morgun. Banda- rískur talsmaður sagði síðar i dag að skothríðinni hefði þegar verið svarað. Sagði talsmaður- inn að einn Vietnambúi hafi beð ið bana af völdum skæruliða og nokkrir særzt. Enginn Banda- ríkjamaður féll eða særðist, eú hinsvegar skemmdust nokkrir bíla-r litillega. Talsmaður kanadisku lögregl- unnar hefur skýrt frá því, að maður sem að öllum líkindum „er Joseph Papp“ hafi verið far þegi um borð í flugvél, sem fór frá Montreal til Amsterdam 10. ágúst sl. Joseph þessi Papp, Kanada- maður af ungversku bergi brot- inn, fannst í gúmmíbát í höfn- inni í Brest í Frakklandi á föstu dag. Kvaðst hann hafa farið yfir Atlantshafið á heimatilbún- um kafbát. — Ættingar Papps í Helsingfors. — Kekkonen Finnlandsforseti heldur í næstu viku til Sovét- ríkjanna í nokkurra daga einka heimsókn í boði Kosygin, forsæt isráðherra. Hyggst Kékkonen stunda dýraveiðar og stangaveiði í förinni. | Montreal segja að hann hafi farið heiman frá sér 10. ágúst. Frysti börnin Tofield, Alberta, Kanada, 17. ágúst — AP 22 ÁRA gömul ógift kona, Patricia Florence Brown að nafni, hefur verið ákærð fyrir að hafa falið barnslík eftir að móðir hennar hafði fundið lík þriggja ungbarna í frystikistu niðri í kjallara. Segir lögreglan, að eitt barnslíkanna hafi verið í frystinum í allt að þrjú ár. Lög- reglan segir, að börnin hafi öll verið vafin í brúnan umbúða- pappír, og þau háfi öll verið nokkurra mánaða gömul. — Patricia Brown starfaði í Ed- mohton, um 40 km. frá Tofield, en faðir hennar er bóndi þar. STAKSTEINAK F iskveiðilögsagan Landhelgismálið er eitt þeirra hagsmunamála islenzkrar þjóðar, sem miklu skiptir að full sam- staða sé um milli stjórnmála- v flokkanna allra. Öllum er enn í fersku minni það hættuástand, sem ríkti á fiskimiðunum undan ströndum Islands frá því 12 milna fiskveiðilögsagan tók gildi og þar til landhelgissamningarnir við Breta voru gerðir 1961. Það ástand var svo alvarlegt, að hvenær sem var gat til þess komið, að íslenzkir sjómenn týndu lífinu vegna ofbeldisað- gerða Breta. Núverandi rikis- Stjórn tókst að koma á slíkum samningum við Breta 1961, að það var samdóma álit allra sann- gjarnra manna, að þar hefði mik- ill sigur unnizt fyrir Islands hönd, einn stærsti stjórnmálasig- ur, sem íslendingar nokkurn tíma hafa unnið. En þótt full viðurkenning hafi fengizt á 12 % mílna fiskveiðilögsögu íslend- inga, er enn óunnið verk á sviði landhelgismála, en það er að framfylgja yfirlýstum vilja Al- þingis um rétt íslands til land- grunnsins alls. Skaðvænleg skiif Málgagn Framsóknarflokksins hefur að undanförnu rætt um landhelgismálin á þann veg, að það verður einungis talið skað- samlegt fyrir málstað íslands í þessu þýðingarmikla hagsmuna- máli þjóðarinnar. Nú er aftur tönnlazt á þeim áróðri, sem hafð- ur var uppi gegn landhelgissamn- ingunum við Breta 1961, sem tryggðu okkur fulla viðurkenn- ingu á 12 mílna fiskveiðilögsög- unni og rangtúlkuð þau ákvæði samningsins að ef ágreiningur verði milli íslands og Bretlands um frekari útfærslu fiskveiði- lögsögunnar megi visa þeim ágreiningi til Alþjóðadómstólsins í Haag. Er þó erfitt að skilja af hverju Íslendingar eiga að skor- ast undan því að leggja mál sín undir úrskurð Alþjóðadómstóls- ins. Ætti það að vera smáþjóðum sérstakt kappsmál, að ágreinings- efni milli þjóða verði almennt lögð fyrir hann, enda hafa ailir meðlimir hinna Sameinuðu þjóða skuldbundið sig til að hlýta úrskurði Alþjóðadómstólsins i hverju því máli, sem þeir eru aðilar að. Málið undirbúið Auðvitað munu Islendingar halda áfram að undirbúa aðgerð- ir til þess að afla viðurkenning- ar á rétti íslendinga til land- grunnsins alls. Unnið hefur ver- ið að rannsóknum á fiskstofnum á miðunum í kringum ísland, og eru þær rannsóknir einn þáttur í baráttu okkar fyrir landhelgis- málinu. Annar þáttur þess er sá að kynna mál okkar og afla skilnings annarra þjóða á þeim aðgerðum, sem við kunnum að telja nauðsynlegar » framtíðinni. En við höfum þegar orðið áþreif- anlega varir við það, hve miklu máli skiptir að allar að- gerðir í Iandhelgismálinu séu vel undirbúnar, og þess vegna verður að skírskota til ábyrgðartilfinn- ingar stjórnarandstöðuflokkanna, og ætti að mega ætlast til þess, að þeir geri nú ekki tilraun til * þess að gera landhelgismálið að flokkspólitísku máli, heldur verði samstaða milli stjórnmálaflokk- anna um þær aðgerðir sem nauð- synlegar verða í framtíðinni. Landgrunnið er takmarkið. Það er yfirlýst stefna, bæði Alþingis og ríkisstjórnar, en hyggilegt er að undirbúa það mál vandlega áður en til raunveruiegra að- gerða kemur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.