Morgunblaðið - 18.08.1966, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
' Fimmtudagur 18. ágúst 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
Daggjald kr. 400.
Kr. 3,50 per km.
SÍMI 34406
SENDUM
MAGNÚSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
eftir lokun simi 40381
Volkswagen 1965 og ’66.
/ífj;
<
RAUÐARÁRSTtG 31
S(M I 22022
LITLA
bíloleignn
Ingólfsstræti 11.
Volkáwagen 1200 og J300.
Sími 14970
33324
22-1-7S «
Sparifjáreigendur
Avaxta sparifé á vinsælan og
öruggan hátt. Uppl. kl. 11—12
f. h. og 8—9 e. h.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3 A.
Sími 15385 og 22714.
BOSCH
Þurrkumótorar
24 volt
12 volt
ö volt
/
mt
Brœðurnir Ormsson
Laágmúla 9. — Sími 38820.
Bekkir á Öskjuhlíð
og Skúlagötu
Undanfarna daga hefir ver-
ið milt veður og gott hér í
höfuðborg okkar og einkum
hafa kvöldin verið fögur og
kyrrlát. Á vesturloftinu hefir
verið fagur sólbjarmi og hefir
verið unun að sitja og horfa
á þar sem aðstaða er til. Marg-
ur borgarbúinn hefir því tekið
sér kvöldgöngu til að horfa á
sólarlagið og kvöldroðann. All-
margir hafa lagt leið sína upp
á öskjuhlíðina og notið útsýn-
isins. Við viljum vinsamlegast
benda borgaryfirvöldum ,eða
þeim, sem annast um opin
svæði í borginni, að þarna væri
einkar þægilegt að hafa bekki
fyrir fólk til að setjast á. Segja
má að vísu að einstaka grastó
sé í Öskjuhlíðinni til að tylla
sér á, en þar er þó meira um
möl og grjót, einkum kringum
hitaveitugeymana, og þar uppi
væri einmitt tilvalið að koma
fyrir bekkjum.
Það hefir áður verið drepið
á það hér að mjög vel ætti við
að setja bekki meðfram Skúla-
götunni og snúa þeim þannig
að sá, er þar vildi hvíla lúin
bein, gæti virt fyrir sér ytri
höfnina, eyjarnar og sundin. Á
kyrrlátum kvöldum er unun að
ganga meðfram sjónum og gott
að geta tyllt sér niður af og til.
Það er ekki allt fengið með því
að fara í bíó eða á skemmtistað
og okkur finnst of lítið fyrir þá
gert, sem vilja njóta fegurðar
okkar stutta sumars og hrífast
af iðandi lífi því, er hvarvetna
blasir við okkur við bæjarvegg
inn. Heiðruðu borgaryfirvöld.
Sinnið vinsamlegast kvöld-
göngufólkinu.
Sigling um sundin
Þá er annað sem vel mætti
taka til athugunar fyrir Slysa-
varnafélag íslands. Það er jafn
an fjárþurfi og gæti kannske
önglað saman einhverjum pen-
ingum með því að nota sinn á-
gæta farkost, Gísla Johnsen,
eða Sæbjörgu til kvöldferða inn
á Sundin og hér um nágrenni
Reykjavíkur. Það mætti gjarn-
an bregða sér suður í Hafnar-
fjörð og renna inn á Skerjafjörð
inn í leiðinni, eða bregða sór
upp í hinn undurfagra Hval-
fjörð. Það mætti vel hugsa sér
að margur vildi taka sér slíka
kvöldsiglingu á mildu ágúst-
kvöldi. Hvað um að gera til-
raun, næst þegar vel lítur út
með veður?
-fa Leigubílar spilla
næturfriði
Og svo er hérna ofurlítið
nöldur út í leigubílstjóra. Það
er hvimleiður og ljótur vani
hjá sumum leigubílstjórúm að
þenja flautur sínar um nætur,
er þeir hafa verið kvaddir að
einhverju húsi í bænum. Okk-
ur finnst raunar að af leigu-
bílstjórinn getur ekki gengið út
úr bíl sínum og gert vart við "
sig eins og siðuðu fólki sæmir
með því að kveðja dyra, annað
hvort með bjöllu eða banki, þá
sé rétt fyrir þann hinn sama að
fá sér heldur fiskvinnu. Ann-
ars verður það að segjast með
öllum rétti að margir leigubíl-
stjórar eru þægilegir menn og
liprir og einkar kurteisir, en
því miður vill verða hjá þeim
eins og svo víða annars staðar,
að það er misjafn sauður í
mörgu fé .Nokkrir eru óvaldir
ruddar, sem enga mannasiði
kunna. Svo er okkur nær að
halda að það sé ekki heimilt
að þenja bílflautur um nætur,
nema lífsnauðsyn sé.
Nóg um þetta að sinni.
Hvað eru „falsaðar
ávísanir?
Hér kemur bréf um fals-
aðar ávísanir, frá ónefndum
bréfritara. Það eru vinsamleg til
mæli Velvakanda að þessi bréf
ritari láti nafns síns getið, því
við höfum fengið fleiri bréf frá
honum, en þau birtum við ekki
nema vita nafn hans. Þetta hef-
ir verið margendurtekið hér í
dálkunum. Nafn bréfritara er
ekki getið, ef þeir segja dul-
nefni undir, en hins vegar er
nauðsynlegt að vita nöfn þeirra.
í þessu bréfi er vakið máis á
efni, sem er athyglisvert og er
raunar aðeins verið að leita
upplýsinga, sem mörgum evu
nauðsynlegar, og munum við
því birta það.
„Ég heyri mikið talað um
„falsaðar ávísanir“, en annars
ekki gerð nánari grein fyrir,
hvað með þessu er meint. Skilst
mér að allt séu kallaðar „fais-
aðar ávísanir", ef ekki er nægi-
leg innstæða í viðkomandi
banka til að innleysa þær. —
Þetta þarf nánari skýringa við,
finnst mér.
Ef ég hefi yfirdráttarlán í
banka og gef út ávísanir á
þennan reikning, getur svo íar
ið að ég eigi ekki ætíð nægiiegt
inni til að mæta þeim ávísun-
um, sem ég hefi gefið út. En
þetta eru ekki „falsaðar ávís-
anir“. Minnist ég þess að ensk
ur kunningi minn sagði einu
sinni: „Nú þarf ég að bæta við
trygginguna, því mér var gert
aðvart um að ég væri búinn að
yfirdraga reikning minn.“ Þetta
taldi hann ekki, og enginn ann
ar, „falsaðar ávísanir“. Mér er
nær að halda að ekki sé gerð-
ur greinarmunur hér á landi á
beinum falsávisunum og yfir-
drætti fastra, vel stæðra við-
skiptamanna, á ávísanareikning
um þeirra. Þetta nær engri átt
og skil ég ekki að Seðlabanki
íslands leggi þetta að jöfnu.
Sjálfsagt er að vinna gegn
hverskonar óreiðu í fjármálum
og viðskiptum manna á milli.
Og að sjálfsögðu ættu verzlanir
og veitingahús að krefjast þess,
að þeir sem greiða með ávisun-
um leggi fram fullnægjandi
sannanir fyrir því, að þeir eigi
innistæður til að mæta útgefa-
um ávísunum.
xx“
Hér er að sjálfsögðu mikill
skilsmunur á. Fyrir nokkru
voru gefnar út mjög nákværnar
reglur um notkun ávísana og
mun bréfritari geta fengið þær
í hverjum banka. .
★ Hver á að borga?
Ferðalangur ritar okkur
eftirf Arandi bréf.
„Um helgina 6/8. — 7/8.
skeði sá atburður, að milli 20
og 30 manna hópur karla og
kvenna frá Keflavík gekk frá
Skógum undir Eyjafjöllum og
ætlaði yfir í Þórsmörk. Svo
illá vildi til að hópurinn fór aC
réttri leið og lenti í sjálfheldu
og kom þar af leiðandi ekki
fram á réttum tíma. Bílstjórin'i,
sem var með fólkið, og beið
eftir því í Þórsmörk, óskaði nú
eftir aðstoð og hafði skálavörð-
ur Ferðafélags íslands í Þórs-
mörk samband við Gufunesrad-
ió, og bað um að senda flugvél
tafarlaúst til leitar. En hvaS
skeður. Rúmlega klukkustund
ar þras um það hver bæði una
leitarflug og bver myndi borga
það!
„Já, hver á að borga?“. Þessi
setning kvað við í talstöðinni.
Þegar búið var að þrasa um
þetta í röska klukkustund, var
tilkynnt að ekki væri hægt að
senda flugvél, sökum þess að
hún yrði varla komin á staðina
fyrir myrkur. Sem betur fer
gat fólkið komizt upp úr þvi
gili, sem það hafði í lent og
komizt að bíl sínum, mörg-
um klukkustundum á eftir á-
ætlun, þreytt, kalt og svangt.
Það sem ég vildi gjarna fá
að vita og vona að hið opin-
bera geti veitt skýr svör við er
eftirfarandi: „Hafa flugmenn
og flugfélög leyfi til að koma
þannig fram, þegar mikið liggur
við? Er mannslífið virkilega svo
lítils, virði að þjóðin hafi efni
á að láta stóran hóp manna týn
ast, en leita þeirra ekki?
Geta tryggingarfélög ekki
tekið á sig þá ábyrgð að greiða
leitarflug, úr því það eitt stend
ur i vegi fyrir að hægt sé að
leita að týndu fólki?
Ég vona að ég þurfi ekki að
heyra það oftar, að ekki sé
hægt að ieita að fólki vegna
greiðslufyrirkomulags.
Ég vona að hið opinbera taki
þetta föstum tökum og veiti
mér og öðrum góð og skýr svör
við spurningum mínum.
Ferðalangur.“
Höfum opnuð teiknistofu
að Brautarholti 4
undir nafninu
LAGIMIR HF.
Önnumst teikningar á hita-vatns-
og skolplögnum.
Sími 24244.
Fíot hlífðoróklæði
voru að koma. — Fallegir litir. —
Einnig gólfmottur í ýmsum litum.
Davíð Sigurðsson hf.
Laugavegi 178. — Símar 38888 og 38845.
Skrifstofustúlka
Óskum eftir vélritunarstúlku. Ensku- og íslenzku
kunnátta nauðsynleg. — Laun samkvæmt kjara-
samningi opinberra starfsmanna.
Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Konica myndavél
merkt fullu nafni tapaðist sl. föstudag. — Vin-
samlegast skilist gegn fundarlaunum.
GUNNAR BJARNASON, skólastjóri.
Víðimel 65. — Símar 12255 og 23766.
VerzKinarhúsnæði óskast
við innanverðan Laugaveg, 40—80 ferm. —
Tilboð sendist á afgr. Mbl. merkt: „777 — 4639“.