Morgunblaðið - 18.08.1966, Page 11
Fimmtudagur 18. Kgúst 1966
MORGU N BLAÐIÐ
11
TollskýliD hjá Straumi
hefði ekki brunnið, ef það hefði verið
byggt úr eldtraustum VEDEX-krossviði
frá oss.
Birgðir uppseldar í bili.
Tökum á móti pöntunum í næstu sendingu.
Einkaumboðsmenn á íslandi fyrir:
VEDEX - Dansk Skovindustri a/s, Næstved,
Hannes Þorsteinsson
heildverzlun. — Sími 24455.
Laxveiði
3 stangir til leigu í Blöndu 25., 26., 31.
ágúst og 1. september.
Upplýsingar gefur Haukur Ármannsson,
sími 2001, Akranesi.
Rei'hestar
2 glæsilegir reiðhestar svo og reiðhestaefni til sölu.
Verða til sýnis á Skeiðvelli Fáks föstutíaginn 19.
ágúst frá kl. 20—23.
Skrifstofumaður
Vanur skrifstofumaður óskar eftir góðri atvinnu.
Er vanur bókhaldi, söiumennsku, verðútreikning-
um o. fl. o. fl. Þeir, sem áhuga hafa, sendi nöfn sín
til afgr. Mbl., merkt: „Skrifstofumaður — 8866“ sem
fyrst.
AUII IIDFtOLII
LANDVELARH
Laugavegi 168 — Sími 15347.
— Á slóbum
Framhald af bls. 13
stað heim í Furufjörð og lögðu
leið sína út með Þaralátursfirði
fyrir Furufjarðarnúp hjá Könnu.
í Reykjafirði hittum við þá
bræður Guðfinn og Jóhannes
Jakobssyni og fjölskyldu og
höfðu þeir unnið rekavið í sjö
vikur. Við þágum hjá þeim ágætt
kaffi og góðar móttökur. Heim-
leiðis héldum við svo um Þara-
tátursfjörð og Svartaskarð í blíð-
skaparveðri eftir ágætan dag.
Á þriðjudagsmorgun var ræst
snemma. Nú átti að bera allan
farangur yfir Skorarheiði í
Hrafnsfjörð, þar sem báturinn
átti að taka okkur. I.eiðin er inn-
an við 10 kílómetra löng, ekki
200 metra yfir sjó og auðveld.
Við fórum þetta á 3 tímum og
í Hrafnsfirði beið okkar bátur
eins og áætlað var. En nú var
ekki sami bátur og áður, heldur
hét hann Björg, sérstaklega út-
búinn til fólksflutninga og var
undir stjórn Geralds Haslers frá
ísafirði.
Veðrið var ákaflega fagurt
fyrrihluta þessa dags og það var
unun að sigla út eftir Hrafns-
firði og sjá hina Jökulfirðina
opnast og lokast, Kjós, Leiru-
fjörð, Lónafjörð, Veiðileysufjörð,
Hesteyrarfjörð og loks Grunna-
vík, þar sem við stigum á land.
Við gengum heim að Stað og
virtum fyrir okkur þessa fögru
sveit með fjölda húsa, sem nú
eru auð og yfirgefin.
Þá var siglt beinutu leið fyrir
Bjarnarnúp og allt inn til Æð-
eyjar. Þar stigum við á land og
var vel fagnað af Helga óðals-
bónda og Guðrúnu konu hans.
Við vorum leidd í stofu til veizlu,
sem þau kölluðu molakaffi. Síð-
an fór Helgi með okkur um alla
Æðey og sýndi okkur kletta og
króka og fjölskylduskrúðugt
fuglalíf. Að því loknu vorum við
aftur leidd í stofu, þar sem meðal
annars voru bornar fyrir okkur
lundabringur. Þær voru sannar-
lega höfðinglegar móttökurnar í
Æðey. Kærar þakkir.
Björg flutti með sér þann far-
angur. sem við höfðum skilið
eftir á ísafixði. og nú var haldið
áfréim til Melgraseyrar, þar sem
við slógum tjöldum í eina skiptið
í ferðinni. Vestfjarðaleiðarbíllinn
var mættur og Ásmundur skauzt
með okkur inn í Kaldalón um
kvöldið áður en við fórum að
sofa. Næsta dag var svo haldið
með áætlunarbílnum til Reykja-
víkur, sem leið liggur yfir
Þorskfjarðarheiði, fyrir Gilsfjörð
o. s. frv.
I þessari Hornstrandaferð
dvöldum við í skýlum Slysa-
varnafélagsins með leyfi þeirra
Hannesar Hafstein og Daníels
Sigmundssonar, sem veittu okk-
ur margvíslega aðstoð. Auðvitað
vorum við með eiginn mat og
eigin hitunartæki, þannig að við
þurftum hvergi að grípa til
birgðanna í. skýlunum. Þessi
skýli eru á allan hátt til fyrir-
myndar, og er það mikið afrek
hjá viðkomandi aðilum að hafa
gert þau svo vel úr garði. Það
mega bara engir ferðalangar níð-
ast á þessum húsum með illri
umgengni og kæruleysi, sem því
miður er svo ríkjandi hér á landi.
Svona starfsemi verður ekki
haldið uppi með aðkeyptri vinnu
einni saman, heldur byggist hún
ætíð á miklu og fórnfúsu starfi
fleiri eða færri einstaklinga.
Slysavarnafélagið áheiður og
þökk skilið fyrir þessi hús. Við
skulum ekki leggja stein í götu
þess, heldur styðja það og efla
á allan hátt.
Hornstrandir eru allar í eyði
nema Hornbjargsviti í Látravík.
Það eru ekki líkur til, að þær
hyggist aftur á næstunni, enda
engin þjóðhagsleg nauðsyn. Nóg
er af ónotuðu en ræktanlegu
landi annars staðar á byggilegri
stöðum. En Hornstrandir eru
ævintýraland fyrir ferðamenn,
og. sem ferðamannaland með
ósnerta náttúru, auðugt fugla-
lif og fjölbreyttan gróður geta
Hornstrandir átt mikla framtíð.
Það virðist því eðlilegast, að
Hornstrandir í heild sinhi verði
friðaðar og gerðar að þjóðgarði.
Éj». mundi telja slíka ráðstöfun
ithjóg æskilega. ' .
6IKARKEPPNIN
MELAVÖLLUR:
í kvöld (fimmtudag) kl. 7,45 leika
KRb — Víkingur
MÓTANEFND.
Vantnr fæði og húsnæði
Unga manntaskólastúlku utan af landi vantar her
bergi og helzt fæði á sama stað. — Þeir sem gætu
hjálpað vinsamlegast hringið í síma 16728 fyrir há-
degi laugardag.
Lögtök
Eftir kröfu bæjarritarans í Keflavík og að undan-
gengnum úrskurði verða ógreidd útsvör og fast-
eignagjöld ársins 1966 til Bæjarsjóðs Keflavíkur tek
in lögtaki á ábyrgð bæjarsjóðs en á kosnað gjald-
enda að 8 dögum liðnum frá birtingu auglýsingar
þessarar.
Bæjarfógetinn í Keflavík, 16. ágúst 1966.
Alfreð Gíslason.
LYFTARI
Stór gaffallyftari til sölu. Er á stórum hjólum með
drifi á öllum hjólum. Ámokstursskóflu, útbúnaður
fylgir. Símar 34333 og 34033.
5 herb. íbuð
í Háaleitishverfi
Til sölu mjög vönduð 5 herb. íbúð við Háaleitis-
braut. íbúðin er teppalögð með harðviðarinnrétt-
ingum og tvöföldu gleri.
GÍSLI G ISLEIFSSON
hæstaréttarlögmaður.
JÓN L. BJARNASON
Hverfisgötu 18.
Símar 14150 og 14160
Kvöldsími 40960.
10% af sláttur
Útsölunni lýkur í dag og gefum við
10% aflsátt af öllu, sem er á útsölunni.
Komið og gcrið ótrúlega góð kaup.
Tízkuverzlunin
Guðrún
Rauðarárstíg 1.