Morgunblaðið - 18.08.1966, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 18. ágúst 1968
Útgefandi:
Framkvæmdastj óri:
Ritstjórar:
Ritstj órnarf ulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 105.00
1 lausasöiu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti ð. Sími 22430.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
STALDRAÐ VIÐ
William C. Westmoreland, hershöfðingi, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í S-Vietnam hefur -
undanfarna daga verið í Bandarikjunum til skrafs og ráðagerða við Johnson forseta. Hafa fund ;
ir þeirra einkum staðið að búgarði forsetans í Texas. Myndin sýnir forsetann og Westmoreland 1
er þeir komu til guðsþjónustu í Fredericksburg, í Texas, sl. sunnudag.
TTið nýstofnáða Hagráð hef-
ur að undanförnu setið á
fundum og fjallað um skýrslu
þá sem Efnahagsstofnunin
hefur lagt fyrir það um á-
stand og horfur í efnahags-
málum. Skýrsla Efnahags-
stofnunarinnar hefur enn
ekki verið gerð opinber, en
miðað við þær upplýsingar,
sem þegar liggja fyrir um
horfur í efnahags- og atvinnu-
málum, má telja líklegt að
ekki sé unnt að hækka kaup-
gjald í landinu frá því sem
nú er, um sinn a.m.k. Á síð-
astliðnum tveimur árum hef-
ur kaupmáttur launa vaxið
um 15—20%, og hefur
útflutningsatvinnuvegunum
reynzt fært að standa undir
því vegna hækkandi verð-
lags á erlendum mörkuðum
og aukinnar hagræðingar í
rekstri fyrirtækja. En þessari
þróun eru viss takmörk sett.
og líkur benda til, að verðlag
á mörkuðum okkar erlendis
hafi náð hámarki og fari nú
heldur lækkandi.
Eftir u.þ.b. sex vikur renna
út kjarasamningar þeir, sem
gerðir voru í sumar til
þriggja mánaða. Mikilvægt
er, að við þá samninga, sem
þá verða gerðir verði þessi
aðstaða útflutningsatvinnu-
veganna höfð í huga, og ekki
síður sú staðreynd, að iðn-
aðurinn á nú í harðnandi
samkeppni við erlendar iðn-
aðarvörur og getur ekki held-
ur tekið á sig auknar kaup-
hækkanir.
Á síðastliðnum tveimur ár-
um hefur stefnan í kjaramál-
um tekið verulegum breyting
um, og verkalýðshreyfingin
hefur lagt mun minni áherzlu
á beinar kauphækkanir en
áður. Þessi stefna hefur
greinilega borið mjög já-
kvæðan árangur.
Kaupgjald hefur verið
vísitölubundið, þannig að
verðlagshækkanir koma sjálf
krafa fram í hækkuðu kaupi.
Samið hefur verið um mjög
þýðingarmiklar félagslegar
umbætur, t.d. á sviði hús-
næðismála, en húsnæðis-
málastjórnarlán hafa verið
hækkuð verulega, og nú er
að komast á framkvæmdastig
sú skuldbinding ríkisstjórnar
innar, að byggðar verði 1250
íbúðir fyrir efnalitla méð-
limi verkalýðsfélaganna, sem
. þeir eiga kost á að kaupa með
sérstaklega hagkvæmum
kjörum. Sérstakar ráðstafan-
ir hafa verið gerðar í atvinnu
málum Norðurlands til þess
að stuðla að vaxandi atvinnu
þar, en síldarleysi síðustu ára
fyrir Norðurlandi hefur skap-
að töluverða erfiðleika í þeim
efnum.
Þannig hafa launþegar
’fengið fram mjög mikilsverð-
ar kjarabætur og skiptir nú
miklu, að þannig verði haldið
á samningamálum í haust, að
sá árangur, sem þegar hefur
náðst með auknum kaup-
mætti launa, verði ekki eyði-
lagður.
Verkalýðssamtökin og ýmis
önnur hagsmunasamtök, svo
sem atvinnurekendur og stétt
arsamtök bænda hafa lýst yf-
ir vilja sínum til þess að
stuðla að takmörkun þeirrar
verðbólguþróunar, sem verið
hefur hér á landi undanfarna
áratugi. Nokkur árangur hef-
ur þegar náðst með samstarfi
þessara aðila, en nú er mikil-
vægt að þeirri viðleitni verði
haldið áfram, og að allir aðil-
ar geri sér grein fyrir þeirri
staðreynd, að verði kaup-
hækkanir knúnar fram í haust
sem enginn grundvöllur er fyr
ir, er stofnað í hættu þeim ár-
angri og þeim bættu lífskjör-
um, sem þegar hafa náðst. Nú
er nauðsynlegt að staldra við
og treysta þann ávinning sem
þegar hefur fengizt.
ÓÞÖRF TILLAGA
rpíminn býður Morgunblað-
inu í gær samvinnu um
„baráttu fyrir því, að vand-
ræði iðnaðarins verði leyst“.
Um slíka samvinnu er ekkert
nema gott að segja, en for-
senda hennar er auðvitað sú,
að Framsóknarmenn geri sér
grein fyrir þeim verkefnum,
sem framundan eru á sviði
iðnaðarins. Tillaga, sem þeir
hafa flutt á tveimur síðustu
þingum, um „athugun á sam-
drætti í iðnaði“ bendir ekki
til þess, að þær forsendur
séu enn fyrir hendi.
í nefndaráliti meirihluta
allsherjarnefndar um þessa
tillögu segir svo:
„Tillaga þessi var einnig
lögð fram á síðasta Alþingi,
og var þá send sömu aðilum
til umsagitar. Að þessu sinni
bárust aðeins umsagnir frá
Sambandi ísl. samvinnufé-
laga, sem mælir með sam-
þykkt tillögunnar og Félagi
ísl. iðnrekenda, sem mælti
með tillögunni í fyrra, vegna
samdráttar, sem það taldi að
hefði orðið í veiðarfæraiðn-
aði og fataiðnaði, en telur til-
löguna nú óþarfa. Bendir fé-
lagið á að fram hafi farið sér-
stök athugun á veiðarfæra-
iðnaðinum, og fataiðnaðurinn
sé nú í athugun hjá Iðnaðar-
málastofnun íslands“.
Samtök iðnaðarins hafa því
lýst því yfir við Alþingi, að
„athugun á samdrætti í iðn-
aði“ sé óþörf. Þegar Tíminn
hefur gert sér grein fyrir
þessari staðreynd, er hægt að
ræða við hann um samvinnu
Ástralía eykur
hervarnir
Canberra, 16. ágúst — NTB
• Stjórn Ástralíu hefur tilkynnt
að hún muni auka útgjöld til
landvarna á næsta ári um 34%
eða upp í u.þ.b. 500 milljarða
íslenzkra króna.
Fjárlagafrumvarp stjórnarinn-
ar var lagt fram á þingi í dag.
Er þar ekki gert ráð fyrir skatta
hækkunum. Fjármálaráðherra
landsins, MacMahon, sagði, er
hann fylgdi frumvarpinu úr
hlaði, að nauðsyn bæri til að
styrkja varnir Ástralíu og efla
aðstoð við bandamenn landsins.
Ástralía hefur nú þegar 4.5Q0
manna lið í Suður-Vietnam. Út-
gjöld Ástralíu til hervarna hafa
aukizt um 90% frá því um ára-
mótin 1963-64.
Rússar bæta
flugflotann
Moskvu, 16. ágúst — NTB
• Tass-fréttastofan skýrir svo
frá, að Sovétmenn muni taka í
notkun fyrir árið 1970 nýja far-
þegaþotu, sem farið geti hraðar
en hljóðið. Þota þessi á að taka
120 farþega.
Vara-flugmálaráðherrann, Niko
um þau verkefni á sviði iðn-
aðarins, sem framundan eru.
Hitt er ljóst, að það bar-
lómsvæl, sem málgagn Fram
sóknarflokksins hefur iðkað
nú um langa hríð í garð iðn-
aðarins, hefur eingöngu nei-
kvæð áhrif á þá, sem að iðn-
aði starfa. Iðnaðurinn vinnur
nú að því verkefni að aðlaga
sig breyttum aðstæðum,
auknu innflutningsfrelsi og
nokkrum tollalækkunum, en
þessar breyttu aðstæður gera
lai Bykov, upplýsir að þotan
verði kölluð TU-144. Þá segir
hann uppi áætlanir um smíði
langflugsvéla, IL-62, sem taka
eigi 186 farþega, ennfremur 160
farþega véla fyrir meðal fjar-
lægðir og nýjar 24 farþega vél-
ar YAK-40 fyrir styttri vega-
lengdir. Þá kvað hann í*ráði að
víkka verulega flugnet Sovét-
ríkjanna, einkum austur til
Kazahkstan og Síberíu og er
ætlunin að byggja á næstunni
200 flugvelli á afskekktari stöð-
um landsins. Sovézka flugfélag-
ið Aeroflot hefur nú reglulegar
flugsamgöngur við 38 lönd og er
í ár fyrirhugað að koma á reglu
legum flugsamgöngum milli
Moskvu, Japan og Kanada.
Miklor her-
æfingor í Tékkó
slóvakiu
Prag, 16. ágúst NTB.
MIKLAR heræfingar eru fyrir
hugaðar í Tékkóslóvakíu í næsta
mánuði, að því er fréttastofan
„Ceteka“ hermir, — sennilega
hinar mestu frá lokum heim-
styrjaldarinnar síðari.
í æfingunum taka þátt deildir
úr herjum Sovétríkjanna, A-
kröfur til hans um vaxandi
tækniþróun og aukna fram-
leiðni. Iðnrekendur hafa gert
sér grein fyrir þessum nýju
viðhorfum, og haft málefna-
legt og gott samstarf við ríkis
stjórnina um aðgerðir til þess
að auðvelda honum þetta að-
lögunartímabil. Ríkisstjórnin
hefur sýnt í verki vilja sinn
til þess, t.d. með stóreflingu
Iðnlánasjóðs árið 1963, og aft-
ur á síðasta Alþingi, þegar
ríkisframlag til hans var
Þýzkalands, Ungverjalands og
Tékkóslóvakíu. Er það í fyrsta
sinn frá stofnun Varsjárbanda-
lagsins, að ungverskir hermenn
taka þátt í slíkum æfingum.
Spyrnt við
verðbólgu
í S-Afríku
Höfðaborg, S-Afríku, 16,
ágúst NTB.
m S.-Afríkubúar reyndu eftir
megni að birgja sig upp at
drykkjarföngum og tóbaki i
dag, þar sem þeir búazt við
hækkunum á þessum vörutegund
um á næstunni. Mun stjórn lands
ins leggja fram á miðvikudag
nýtt fjárlagafrumvarp, þar sem
búizt er við ýmsum ráðstöfun-
um til þess að draga úr neyzlu
almennings. Er þar með verið að
reyna að hamla gegn vaxandi
verðbólgu í landinu.
Einnig er búizt við hækkun á
benzínverði og að dregið verði
úr afborgunarviðskiptum. Hins-
ar er ekki vænzt aukinna skatta.
Þegar hefur veri'ð reynt að
hækka vexti til þess að hamla
gegn verðfoólgunni, dregið hefur
verið úr lánveitingum og ýmsar
aðrar minni háttar ráðstafanir
gerðar.
fimmfaldað og lántökuheim-
ild hækkuð um 150 milljómr
króna, en af þeirri lántöku-
heimild eru 100 milljónir
króna ætlaðar til hagræðing-
arlána, til eflingar rekstrar-
tækni og aukinnar framleiðm.
Skrif Tímans um málefni iðn-
aðarins eru honum skaðleg.
Iðnrekendur hafa hinsvegar
sjálfir sýnt, að þeir eru reiðu-
búnir til þess að mæta nýjum
viðhorfum með djörfung og
framsýni.