Morgunblaðið - 27.08.1966, Síða 2
r
2
MORCU NBLAÐIÐ
Laugardagur 27. ágúst 1966
Frá slysstað á Hringbraut. Ljósm; Sv. Þorm.
Alvarlegt umferð-
arslys á Hringbr.
Keflavík fær eigið
skjaldarmerki
ALVARLEGT umferðarslys
varð kl. 7 í gærdag á Hring-
braut. skammt frá gatnamótum
Hofsvallagötu.
Þar var kona, Asa Guðmunds-
dóttir, bankagjaldkeri, Lang-
holtsvegi 43, á leið austur Hring
braut. Volkswagenbíll kom að
vestan að og lenti á Ásu, sem
barst framan á bílnum ca. 20
Mýr lögreglu-
stjori i
Bolungarvík
SKIPAÐUR hefur verið nýr iög-
reglustjóri í Bolungarvík. Er
hann Hafsteinn Hafsteinsson,
sem verið hefur fulltrúi bæjar-
fógeta í Keflavík.
Hreppsnefnd Hólshrepps mælti
einróma með því, að Hafsteini
yrði veitt embættið. Hann er
sonur Hafsteins Bergiþórssonar,
fyrrum framkvæmdastjóra Bæj-
arútgerðar Reykjavíkur.
Fangageymslon
margfyllf
metra, en féll þá í götuna.
Ása var flutt í Slysavarðstof-
una, en síðar í Landsspítalann.
Meiðsli hennar eru talin alvar-
leg, en hún er enn til rann-
sóknar. Hún var um fimmtugt.
Kona ók Volkswagenbílnum.
Sýningu á Kefla
víkurvelli frestað
KEFLA VÍKURFLUGV ÖLLUR.
— Veðurstofan á Keflavíkurflug-
velli spáir slæmu veðri nk.
sunnudag, 28. ágúst, og er því
útlit fyrir óhagstæð veðurskil-
yrði til flugsýningar þeirrar,
sem áformuð var þann dag. Verð-
ur því sýningunni á vegum varn-
ariiðsins, sem tilkynnt var í út-
varpi og blöðum, frestað um ó-
ákve'ðinn tíma.
*■
Oðinn aðstoðar
norskan bát
VARÐSKIPI® Óðin fór eftir
hádegi í gær til aðstoðar norsk-
um báti, Peter Aarseth, sem
staddur var með bilaða vél um
100—120 mílur út af Ingólfs-
höfða.
Kinks era
væntanlegir
BÍTL AHL J ÓMS VEITIN brezka,
„The Kinks“, er væntanleg hing-
að til lands 12. september nk. —
Mun hljómsveitin koma fram í
Háskólabíói 13. og 14. september
og þá tvívegis hvorn daginn.
„The Kinks" lögðu leið sína
hingað til lands í fyrra, svo sem
mörgum mun kunnugt. Urðu þeir
svo hrifnir af viðtökum islenzks
æskulýðs, að þeir buðust sjálfir
til að koma aftur. Hingað koma
þeir á vegum Handknattleiks-
deildar Vals.
UM 6 leytið í gærmorgun vakn
aði einn heiðursborgari í Vest-
urbænum við það, að kona í
næsta húsi kallaði til hans og
bað hann að hringja á lögregl-
una, því verið væri að brjótast
inn í kjallara húss hennar.
Borgarinn hringdi strax í lög
regluna, en innbrotsþjófarnir
munu hafa heyrt viðvörunarorð
konunnar og hlaupizt á brott.
Voru þeir horfnir er lögreglan
kom.
1 NÓVEMBER síðastliðnum
auglýsti bæjarstjórn Keflavík-
ur eftir hugmynda samkeppni
um bæjarmerki fyrir Keflavík-
urbæ. 19 tillögur bárust fyrir
ákveðin skilatíma, en verðlaun
voru 10 þús. krónur. Svo sem
venja er skyldu teikningar auð-
kenndar dulnefni og höfunda-
nöfn bera hið sama í lokuðu
bréfi. Þegar merkið var end-
anlega og samhljóða valið, kom
í ljós að höfundur þess var
Helgi S. Jónsson í Keflavík.
Morgunblaðið á greiðan að-
gang að Helga S. Jónssyni frétta
ritara sínum á staðnum og
spurði hann því nokkuð i'ánar
um þetta nýja skjaldarmerki
Keflavíkur. Var ekki gaman að
vinna samkeppnina?
Jú, það var það, því allt frá
því ég var og hét í pólitíkinni,
fótboltanum og íþróttunum,
kannast ég bezt við að tapa, svo
það var skemmtileg tilbreyting
að sigra.
— Hvert er svo tákn og rnein-
ing þessa bæjarmerkis Kefla-
víkur? Slík merki þurfa að mín
um dómi að vera stílhrein og
einföld í sniðum, til margskon-
ar útfærslu, fleira en prentun
eina. Um táknið má segja að
keflin þrjú séu þær stoðir, sem
bar hann að í sömu mund og
þeir á einum kaffiveitingastaðn
um. Gerði hann þegar lögregl-
unni viðvarL
Innbrotsþjófarnir voru hirtir
af lögreglunni og við nánari
yfirheyrslu í gær viðurkenndu
þeir að hafa brotizt inn í kjöt-
verzlun í Vesturbænum, en haft
þar minna en skyldi, því þeir
stálu ekki öðru en þremur reykt
um rauðmögum.
Keflavík hvílir á — sjór, loft
og land. Keflin eru við hvítar
öldur, sem við sjáum hér dag-
lega og yfir svífur máfurinn —
táknið Um flugið og framtíð-
ina — hærra og lengra. — Það
kann að vera eitthvað íleira
bak við einföld strik, sem hver
finnur fyrir sig — annars væri
það ekki gott.
— Gerirðu mikið að því að
teikna og mála?
Ég kann ekkert að teikna, en
ég er stundum að bulla með
liti á haustin og þykir gaman
þegar kunningjarnir vilja hirða
það og kaupa ramma sjálfir.
Mér þykja fallegar myndir, sem
listamenn búa til.
— Við óskum þér til ham-
Skjaldarmerki Keflavíkur
ingju með sigurinn. Þakka ykk-
ur fyrir. Þið ættuð að búa til
lítið myndamót af merkinu og
nota það með rosafréttum frá
Keflavík.
— Við viljum svo aðeins bæta
við að það virðist vera rétt að
merkið er stílhreint og tákn-
rænt og við óskum Keflavík til
hamingju með hið nýja skjalda-
merki sitt.
BERLÍN. — Fjögurra ára gömul
kanadísk telpa, sem vopnaður
maður rændi af heimili sínu á
mánudaginn, fannst á föstudag
í skúr í útjaðri V-Berlínar. —
Telpan var ómeidd.
Borgari eltir uppi
innbrotsþjófa
Höföu stolið 3 reyktum rauðmogum
Landlega d
Neskaupstað:
Neskaupstað, 26. ágúst.
UM FJÖRUTÍU síldveiðibátar
lágu hér inni í nótt vegna óveð-
urs á miðunum. Mikil ölvun var
í bænum, slagsmál og illindi.
Einn sjómaðurinn stal bíl hér
í nótt og ók á honum inn í sveit,
þar sem hann lenti út af á mikilli
ferð og eyðilagði bílinn svo til
alveg. Sjómaðurinn slapp ómeidd
ur að mestu.
Lögreglan margfyllti fanga-
geymsluna, og voru mennirnir
hafðir í haldi unz runnið hafði
af þeim.
Nú eru flestir bátarnir að fara
á miðin og hafa nokkrir þegar
fengið góð köst um 50 mílur
suðaustur af Skrúð. — Ásgeir.
-----------------------------•
Var ætlunin að draga skipið,
sem er 240 tonn, inn til hafnar,
ef ekki tækizt að gera við bil-
unina.
IUálverkasýning Valtýs
Péturssonar í Lnuhúsi
MÁLVERKASÝNING Valtýs Pét
urssonar í Unuhúsi, Veghúsastíg,
hefur nú aftur verið opnuð. —-
Hafa allmargar myndir selzt á'
sýningunni, en nýjum komið fyr-
ir í staðinn.
Eru nu aftur 50 myndir a syrt-
ingunni, allar til sölu með af-
borgunarkjörum.
Sýningin verður aðeins opin í
dag, laugardag og á morgun. Er
báða dagana opið til k'L 10 áð
Borgarinn hóf leit með lög-
reglunni í næsta nágrenni, en
án árangurs. Honum fannst ekki
taka því að fara að sofa aftur,
eftir þetta ævintýri, enda stutt-
ur tími unz hann átti að mæta
í vinnu.
Er hann Var búinn að fá sér
kaffisopa hóf hann leit að inn-
brotsþjófunum, sem hann hafði
séð bregða fyrir á flóttanum, dg
Báðlr sklpstjór-
arnlr játuðu
Neskaupstað, 26. ágúst.
RÉTTARHÖLDUNUM sem
hófust í gærkvöldi vegna bát-
anna tveggja, sem teknir voru
að meintum ólöglegum togveið-
um í gær á Héraðsflóa, lauk kl.
1.30 um nóttina.
Skipstjóri á Sigurfara frá
Hornafirði játaði brot sitt, en
skipstjórinn á Jóni Oddssyni
neitaði að hann væri sekur.
Réttarhöld hófust aftur kl.
9.30 í morgun og kl. 2 í dag
játaði skipstjórinn á Jóni Odds-
syni, að hann hefði verið að
veiðum í landhelgi.
Mál þeirra skipstjóranna
verður nú sent saksóknara rík-
isins til ákvörðunar.
Það var varðskipið Þór, sem
tók bátana innan landhelgi.
i — Asgeir.
11 ára drengur
slasast á höfði
UMFERÐARSLYS var kl. 10.10
i gærmorgun milli Laugavegar og
Brautarholts.
Þar var sendiferðabifreið ek-
5 niður Nóatún, en 11 ára dreng
ir, Björn Stefánsson, Hvassa-
eiti 24, hljóp út á götuna frá
eystri gangstétt.
Björn lenti á hægra fram-
horni yfirbyggingar bilsins og
féll í götuná. Hann var fluttur í
Slysavarðstofuna og síðar í
Landsspítalann. Hlaut hann al-
varleg höfuðmeiðsli.
Blaðburðarfólk
vantar í eftirtalin hverfi:
Meðalholt
Tjarnargötu
Laugaveg frá 1—32
Selás
Br æðra bor garstígur
Kleifarvegur
Hofteigur
Kirkjuteigur
Ingólfsstræti
Talið við afgreiðsluna súni 22480.