Morgunblaðið - 27.08.1966, Side 3
LaugarclagnT Sgúst 1966
3
MORCUNBLAÐIÐ
< tH( Á lSí rjSw BSÉÍÍ
Flóki sýnir í Bogasainum
væri hin eina sýningarhæfa.
Stefnu sina í málaralist vildi
Flóki kalla „magiskan realisma",
seiðræna raunsæishyggju.
I>á gaf Flóki þær yfirlýsing-
ar að íslenzk myndlist væri
ósköp dapurleg, og listasagan
væri fals einbert allt frá Vasar-
ely til Björns Th. Björnssonar.
Aðspurður kvað Flóki, að hon-
um væru litir ekki að skapi, því
það væri í kringum þá sóða-
skapur og viss leiðindi.
Sýning listamannsins opnar
kl. 2 í dag óg stendur yfir í rösk
lega viku.
Brotizt inn hfá
SUKSIHMR
.,Menningarbyltingin“
og Þjóðviljinn
Þjóðviljinn hefur verið furðu
fámáll um „menningarbyltingu
öreiganna", sem geisað hefur í
Kína að undanförnn, og er það
blaö þó ekki vant að þegja,
þegar miklir atburðir gerast er-
lendis, eins og sjá má daglega
í blaðinu, þegar það ræðir bæði
f DAG opnar Alfreð Flóki
myndlistarsýningu í Bogasal
Þjóðminjasafnsins. Á sýning-
unni eru nær eingöngu tússteikn
ingar, samtals 47 að tölu. Mynd-
irnar eru allar frá síðustu tveim
ur árum.
Á fundi fréttamanna með lista-
manninum í Bogasalnum í gær,
upplýsti hann, að tvö ár eru lið-
Leiðrétting
í BLAÐINU í gær urðu þau mis-
tök að í grein um Ásgeir Krist-
jánsson, Grundarfirði, látinn
kom mynd af Ásgeiri Krist-
mundssyni, vegaverkastjóra,
Grundarfirði. M'bl. þykja þessi
mistök, sem eiga þó sína skýr-
ingu, að vonum áfar leið og biðja
*lla hlutaðeigendur velvirðingar.
Jafnframt birtum við hér mynd
af hinum látna er hét fullu
rafni Þórður Ásgeir Kristjáns-
•on.
Missögjn um slys
f>AÐ var á misskiiningi byggt í
frétt blaðsins í gær um gamia
manninn, sem féll út úr strætis-
vagninum við Álfheima, að hann
hafi dregizt með honum. .— Hið
rétta var, að hurð strætisvagns-
ins skall á manninn, sem féll í göt
una við það.
2 skip með
92 tonn
SLÆMT veður hefir yfirleitt
verið á sildarmiðunum síðasta
•ólarhring, aðallega á syðri mið-
nnum og er þar foráttusjór. í
nótt var komið leitarveður á
eyðri miðunum, var Hafþór þar
að leit, en fann ekki síld, hún
virðist hafa hreyft sig eitthvað."
I>ar norðurfrá eru nokkur skip.
Veðrið virtist vera að versna
aftur í morgun.
Siðastliðinn sólarhring til-
kynntu 2 skip um afla, samtals
92 tonn. Björg NK 32 og Sóley IS
60 lestir.
in síðan hann síðast hélt sýn-
ingu og þá í Galerie 13 í Kaup-
mannahöfn.
Alfreð Flóki er þegar lands-
kunnur listamaður og einkum
þekktur fyrir oft á tíðum hroll-
vekjandi verk sín, enda sagði
hann á blaðamannafundinum að
hann hefði ætíð dregizt að hinu
furðulega og óhugnanlega. Eru
myndir hans a.m.k. talandi vott-
ur um það. Má þar nefna mynd
af Elísabetu nokkurri Bathori,
ungversku kvendi frá 17. öld,
sem Flóki kvað hafa komið fyrir
kattarnef nokkrum hundruðum
manna og laugað sig í blóði
þeirra til að viðhalda yndis-
þokka sínum. Af kvinnu þessari
kvaðst Flóki hafa gert 20 mynd
ir, en sú sem á sýningunni er,
vátryggmgafél.
BROTIZT var síðastliðna nótt
inn hjá vátryggingarfélagi í
borginni. Fór þjófurinn inn um
glugga, sem hann braut upp, og
komst þannig inn á skrifstof-
urnar.
Þar braut hann upp allar læst
ar hirzlur og gramsaði í því, sem
þar var. Ekki mun hann hafa
haft neitt upp úr þessu, því pen
ingar allir eru geymdir í ramm
byggðum peningaskáp, sem
hann mun ekki hafa getað ráð-
ið við. Hefur oft verið brotizt
þarna inn áður.
Aöalfundur SÍSE geri ályktanir
um hagsmunamál stúdenta
AÐALFUNDUR Sambands ís-
lenzkra stúdenta erlendis (SÍSE)
var haldinn dagana 18. og 19.
ágúst sl. Fundinn sátu 25 skip-
aðir fulltrúar frá 11 þjóðlönd-
um auk áheyrnarfulltrúa frá
Stúdentaráði Háskóla íslands og
gesta. SÍSE var stofnað 13. ágúst
1961 og varð því 5 ára í þessum
mánuði. Eru nú hátt á 3. hundr-
að námsmenn í sambandinu.
Tilgangur sámbandsins er að
gæta hagsmuna íslenzkra stúd-
enta erlendis, efla samheldni
þeirra í milli og kynna nám og
kjör stúdenta erlendis.
Kjörin var ný stjórn, en hana
skipa: Gylfi ísaksson, formaður,
Ólafur Einarsson, varaforniaður,
Sven Sigurðsson, ritari, Gunnar
Benediktsson og Huldar Smári
Ásmundsson meðstjórnendur.
Fyrir fundinum lágu álit
nefnda í hagsmunamálum SfSE.
Þórir Bergsson, fulltrúi SÍSE í
Lánasjóði námsmanna, skýrði
frá tillögum nefndar þeirrar,
sem skipuð var af ríkisstjórn 1il
endurskoðunar á lánamálum
stúdenta.
Fundurinn samþykkti eftir-
farandi ályktun:
„SÍSE minnir á, að fjárhags-
aðstaða íslenzkra stúdenta er-
lendis er mjög erfið, og fer
síversnandi (sbr. niðurstöður
könnunar Þóris Bergssonar) Þvi
telur SÍSE knýjandi nauðsyn að
auka aðstoð við stúdenta erlend-
is og jafnframt sé komið á skyn-
samlegum vinnubrögðum við út-
hlutun lána og styrkja.
SÍSE vill því vekja athygli
ríkisstjórnar og alþingis á eftir-
farandi kröfum sínum:
Að sami aðili úthluti fram-
vegis öllum lánum og styrkjum
til námsmanna heima og er-
lendis.
Að námsstyrkir verði ekki
skertir frá því, sem nú er, og uð
lán námsmanna, sem látasx,
örkumlast eða missa tekjuöfl-
unarhæfni, verði óafturkræft.
Að lán og styrkir verði ár
hvert tilbúin til afgreiðsln eigi
siðar en 1. febrúar.
Að stefnt verði að því af>
koma á stighækkandi fjarhags-
aðstoð við stúdenta, sem miðuð
verði við áætlaða umframfjár-
þörf (þ.e. mismunur heildar-
námskostnaðar og eðUlegrar
tekjuöflunar). SÍSE telur það
lágmarkskröfur, að fjárhagsað-
stoð á fyrsta námsári nemi
minnst helmingi umframfjár-
þarfar og hækki síðan stig af
stigi, unz hún nemi allri um-
framfjárþörf á fimmta, sjötta
og sjöunda námsári.
Að fellt verði niður almanna-
tryggingasjóðsgjald á náms-
mönnum.
Að stefnt sé að þvi, að stúi!-
entar þurfi ekki að leita til ann-
arra lánastofnana, vegna náms-
kostnaðar, en hins opinbera, t d
með stofnun viðbótarlánasjóðs
með venjulegum bankavöxtum
til þess að forða námsmönnu.n
frá því að þurfa að velta áfram
víxlum.
Að tekin verði upp ríkisábyrgð
á námslánum.
Að allt það tekjutap, sem há-
skólamenn verða fyrir vegna
náms síns, komi fram sem frá-
dráttur við skattaálagningu
næstu árin eftir að námi lýkur
og sé þá miðað við meðallaun
stúdents fyrir öll námsárin“.
Rætt var um sameiningu Stúd-
entaráðs Háskóla íslands (SHÍ)
LEIKRITI Jökuls Jakobssonar,
„Gullbrúðkaup", hefur verið út-
varpað víða um heim undan-
farna mánuði, m.a. í Svíþjóð og
Finnlandi. Þann 4. júlí var leik-
ritinu útvarpað í Austur-Berlin
og aftur þann 31. júlí. Var það
í flokki útvarpsieikrita frá 10
löndum og má geta þess, að m.a.
var útvarpað leikritinu „The
Gimlet“ eftir brezka skáldið
James Saunders. Fékk leikrit
Jökuls mjög góða dóma.
Gullbrúðkaupinu mun einnig
útvarpað í ísrael þann 15. okt.
n.k. og af danska útvarpinu um
jólaleytið.
Annað leikrit Jökuls, „Sjóleið
in til Bagdad“, verður tekið til
flutnings í Vestur-Þýzkalandi.
Mun því bæði sjónvarpað og út
og SÍSE, en fundinn sátu, sem
fyrr segir, áheyrnarfulltrúar frá
SHÍ. Samvinna hefur verið haf-
in milli SHÍ og SÍSE á ýmsum
sviðum, m.a. hefur verið ráð-
inn sameiginlegur framkvæmda
stjóri auk þess, sem samstarí
hefur verið í kjaramálum og
utanríkismálum. Enn hefur þó
ekki orðið af stofnun Sambands
íslenzkra háskólastúdenta (SÍH)
en nefnd fulltrúa frá SHÍ og
SÍSE vinnur að þeim málum.
Ákveðið var á fundinum að
halda námskynningu í samráði
við SHÍ, eins og undanfarin ár,
og fer hún fram þriðjudaginn
30. 8 í Menntaskólanum i
Reykjavík og hefst kl. 20. Á
námskynningu þessari verða
gefnar upplýsingar um nám í
fjölmörgum námsgreinum við
Háskóla íslands og fjölda er-
lendra háskóla. Verður reynt að
gera hana víðtækari en náms-
kynningar þær, sem SÍSE og
SHÍ stóðu að sl. vetur við
menntaskólana utan Reykjavík-
ur og Verzlunarskóla íslands.
Þess skal að lokum getið, að
SÍSE rekur skrifstofu, að
Hverfisgötu 14, Reykjavík. Eru
þar veittar upplýsingar um nám
erlendis. Skrifstofan er opin
þriðjudaga og fimmtudaga kl.
17.30—19.00. Sími: 17752.
varpað í Stuttgart.
Leikritið hefur verið sýnt víða
hér í sumar og á næstunni verð
ur. það sýnt á nokkrum stöðum
á Suðurlandi.
Siðasta
fræðsluferð
SÍÐASTA fræðsluferð Hins ís-
lenzka náttúrufræðifélags á sumr
inu verður farin á sunnudaginn
kemur. Fari'ð verður í Botnsdal
og gengið að Glym og Hvalvatni.
Lagt verður af stað frá Umferð-
armiðstöðinni kl. 9,30 oa komið
aftur um kvöldið.
Leíkrít Jökuis flutt víðn um heim
í fréttum og forustugreinum um
árásarstyrjöld kommúnista í
Vietnam. Og ástæða væri til
aö ætla, að „menningarbylting-
in“ í Kína vekti óskipta athygli
ritstjóra blaðsins, enda hefur
einn þeirra skrifað heila bók
um þetta volduga kommúnista-
ríki. En hvernig sem á því stend
ur er staðreyndin samt sú, að
það sem af er ágústmánuði hef-
ur Þjóðviljinn einungis birt
þrjár fregnir um „menningar-
byltinguna" í Kína, og ekki hef-
ur ritstjórum blaðsins þótt þess-
ir viðburðir svo markverðir, að
þeir teldu ástæðu til að ræða
þá í forustugrein blaðsins. Væri
þó ástæða til að ætla, að atburð
irnir, sem nú eru að gerast í
Kina vektu óskipta athygli komm
únista um heim allan, en vera
má að kommúnistar hér á landi,
sem gjarnan hafa reynt að fela
sig undir ýmsum öðrum nöfnum
Iíti á „menningarbyltingu" Maos
sem eitthvert feimnismál og
vilji sem minnst um hana vita.
Hvað segir
Kínaklíkan?
En innan kommúnistaflokks-
ins hér á landi er starfandi harð
snúinn fámennur hópur Kina-
sinna, sem hefur hreiðrað um
sig í bækistöðvum Máls og
Menningar og starfar þar undir
forustu Kristins E. Andréssonar
að því að útbreiða hér á landi
áróðursrit kínverskra kommún-
ista, enda er þessi forsprakki
þeirra tíður gestur í kínverska
sendiráðinu í Kaupmannahöfn.
Fróðlegt væri að vita hvort
Kinaklíkan í kommúnistaflokkn
um hér á landi er ýkja ánægð
með hinn stopula fréttaflutn-
ing Þjóðviljans af atburðunum
í Kína, en e.t.v. kemur það ekki
að sök, sjálfsagt er ekkert sam-
bandsleysi milli Peking og skrif
stofu Máls og Menningar.
„Menningarbylting" í
Sósíalistaflokknum?
Fyrirbærum á borð við
„menningarbyltingu öreiganna**
í Kína er gjarnt að breiðast út
í röðum kommúnista, og þess
vegna hljóta menn óhjákvæmi-
Iega að velta því fyrir sér,
hvort ekki megi eiga von á
„menningarbyltingu“ í Sósíalista
flokknum hér á landi, en eins
og kunnugt er hafa að undan-
förnu vaðið þar uppi endurskoð
unarsinnar og aðrir svikarar,
sem svo sannarlega eru ekki
að skapi hinnar lireinræktuðu
kommúnistaklíku sem flokkn-
um stjórnar. Það þyrfti því
engum að koma á óvart, þótt
„menningarbylting öreiganna"
í Kina smitaði út frá sér og
teygði anga sina til Tjarnagötu
20. og þá gæti maður t.d. imynd
að sér að fyrsta fórnardýr
„menningarbyltingar “ Sósia-
listaflokksins yrði formaður
flokksins, Einar Olgeirsson, sem
hefur spilað sín spil á þann
veg hin siðustu ár, að hann
nýtur nú einskis trausts í flokkn
um hvorki til hægri né vinstri,
og á fundum Sósíalistafélags
Reykjavíkur fær hann ekki leng
ur hljóð til þess að tala vegna
framíkalla og svivirðingarhrópa
utan úr salnum.