Morgunblaðið - 27.08.1966, Side 10
10
MOR.CU N BLAÐIÐ
^augardagtir 27. ágúst 190
*
i
FRÁ SIGLUFIRDI — FRÁ SIGLUFIRDI
' ■ - v ■ ** -X
Stdrstígar framfarir í at-
vinnu og samgöngumálum
Steídn Friðbjarnarson segir
lró móleinum Siglufjarðnr
Stefán Friðbjarnarson heitir maður 37 ára að aldri, fæddur og
uppalinn á Siglufirði. Hann tók við hinu vandasama starfi að
gerast bæjarstjóri Siglufjarðar eftir kosningarnar í vor. Siglu-
fjörður hefur, eins og hverjum íslendingi má vera kunnugt
um, átt við mikla erfiðleika að stríða á undanförnum árum,
sökum þess að síldin, þessi gjöfuli, en hvikuli fiskur hefur að
langmestu leyti brugðizt bæjarbúum.
Tíðindamaður Morgunbl. fór þess á leit við Stefán, að hann
skýrði lesendum bíaðsins frá þeim vandamálum, sem Siglu-
fjörðm hefur átt við að etja og hvernig þeim skuli mætt. Frá-
sögn hans lýsir miklu trausti á framtíð Siglufjarðar og færir
heim sanninn um, að hann og aðrir Siglfirðingar ala nú sterka
von í brjósti um að erfiðleikar undanfarinna ára verði senn
yfirunnir vegna stórstígra framfara i atvinnu- og samgöngumál-
um Siglufjarðar. Hér hefst frásögnin. Innífyrirsagnir eru blaðsins.
Siglfirðingar binda miklar vonir við tilkomu Strákavegar. —■
Með honum verður bundinn endi á þá samgönguerfiðleika,
sem kaupstaðurinn hefur búið við til þessa. Gert er ráð fyrir,
að búið verði að grafa göngin í næsta mánuði.
Fyrrum veiga-
mesti hlekkurinn
i verðmætasköpun
bjóðarinnar
Á fyrra helmingi þessaar
aldar var Siglufjarðarkaup-
staður það byggðarlag, sem
var hvað veigamesti hlekk-
m in í verðmætasköpun
pjóðarinnar, þeirri verðmæta
sköpun, sem gerði mögulega
þá þróun frá frumbýlings-
hætti til velmegunar, sem
þjóðin býr við nú. Ríkisvald-
ið stuðlaði á sinn hátt að
þessu með því að staðsetja
hér stærstu og fullkomnustu
síldarbræðslur, sem til eru
á landinu, en hér eru stað-
settar 4 síldarbræðslur og
um 20 söltunarstöðvar, enda
þótt þær séu ekki allar starf-
ræktar í dag. Segja má, að
ríkisvaldið hafi á þennan
hátt stuðlað að því að draga
hingað að allmikið fólk, sem
lagði hér í fjárfestingu við
heimilistofnun og íbúðar-
kaup í trausti þess, að það
gæti átt hér lífvænlega fram
tíð.
Með tilliti til þess að ríkis-
valdið stuðlaði sjálft að bú-
setu þessa fólks hér og með
tilliti til þeirra verðmæta,
sem þáð lagði í þjóðarbúið
á velmaktardögum Siglu-
fjarðar, er síldin veiddist fyr
ir Norðurlandi, verður að
líta svo á, að ríkisvaldið eigi
skyldum að gegna við fólkið
og byggðariagið nú, þegar
ver gengur vegna breyttra
gangna síldarinnar.
Segja má, að rikisvaldið
hafi gert sér þetta ljóst m.a.
með því að stuðla að síldar-
flutningum hingað í því
skyni að nýta þann verk-
smiðjukost og það vinnuafl,
sem hér er fyrir hendi, þó
að þeir síldarflutningar hafi
enn sem komið er miðazt
við bræðslusíld en ekki sölt-
unarsíld, sem skapar mun
meiri vinnu og verðmæti.
Ennfremur með því að stuðla
að stórbættum samgöngum
við Siglufjörð, en Stráka-
vegur með tilheyrandi jarð-
göngum verður væntanlega
tekin í notkun á þessu ári
og unnið er að gerð flug-
brautar, en áætlað er, að
hluti hennar (eða um 700
af 1200 metra fyrirhugaðri
braut) verði tekin í notkun
á þessu ári. Síðast en ekki
sízt með fyrirhugaðri fram-
kvæmdaáætlun Norðurlands
og tilkomu atvinnujöfnunar-
sjóðs, sem Norðlendingar
byggja mjög á vonir sínur
um fjölhæfara og öruggara
atvinnulíf.
Nýskipun atvinnu
lifs á Siglufirði
1 sambandi við Norður-
landsáætlun, eins og við
nefnum þessa framkvæmda-
áætlun hér, mætti nefna fjög
ur atriði, sem mjög koma til
greina í sambandi við ný-
skipun atvinnulífs hér á
staðnum. 1 fyrsta lagi er það
dráttarbraut. í því tilefni má
nefna, að Siglufjörður er frá
náttúrunnar hendi ein bezta
höfn á Norðurlandi. Hér eru
fyrir hendi mjög góð skiyrði
t«l byggingar dráttarbrautar
í svokallaðri innri höfn og
hér eru til staðar ýms full-
komin iðnverkstæði og marg
ir vel menntaðir iðnaðar-
menn. Dráttarbraut og ef til
vill síðar skipasmíðastóð
myndu falla mjög vel inn í
atvinnulífið hér.
Næst mætti nefna lýsis-
herzlu, en þeir tímar hljota
óhjákvæmilega að koma, að
við flytjum lýsið út unnið
í stað þess að flytja það út
sem hráefni.
I þriðja lagi er það mjólk-
urvinnslustöð, en með til-
komu Strákavegar skapist
hér möguleikar fyrir mjólk-
urvinnslustöð fyrir sveitir
Austur-Skagafjarðar og
ýmsri annarri þjónustu við
þær sveitir, sem á margan
hátt eiga hagsmunalega sam
leið með Siglufirði.
I fjórða lagi kemur til
greina pappírspokverksmiðja
Stefán Friðbjarnarson,
bæjarstjóri.
er framleiddi umbúðir undir
fiski- og síldarmjöl, og væri
ef til vill eðlilegast, að það
fyrirtæki væri á vegum
Síldarverksmiðja ríkisins,
sem eru stærsti framleiðandi
síldarmjöls á landinu og hafa
yfir nægum húsakosti að
ráða hér.
Eitt helzta vandamál Siglu
fjarðarkaupstaðar nú er það
að yfir 60% af atvinnurekstri
bæjarins er í því rekstrar-
formi, að hann er svo til
undanþeginn útsvarsgreiðsl-
um beint til bæjarsjóðs. A
ég þar við Síldarverksmiðj-
ur ríkisins og fleiri fyrir-
tæki. Þetta veldur því, að
útsvarsbyrðin lendir með ó-
eðlilegum þunga á hinum al-
menna útsvarsgjaldanda og
með öðru því, að við höfum
orðið að leggja 20% ofan á
gildandi útsvarsstiga, en
slíkt er skilyrði fyrir því að
fá svokallað aukaframlag úr
jöfnunarsjóði sveitarfélaga,
sem kaupstaðurinn hefur
neyðzt til þess að sækja um
bæði nú og á sl. ári til þess
að brúa bilið milli tekna og
óhjákvæmilegra gjalda. Ég
tel óhjákvæmilegt, að lög-
gjafarvaldið endurskoði þessi
mál og felli niður fyrrnefnt
skilyrði um 20% hækkun út-
svara, sem skapar óviðun-
andi misræmi milli gjald-
þegna í landinu.
Miklar verkle^ar
framkvæmdir
Hvað framkvæmdir hér á
Siglufirði snertir, þá er þar
fyrst að nefna Strákaveginn
og flugbraut þá, sem fyrr er
minnzt á. Siglufjörður hefur
frá aldaöðli verið einangrað-
ur frá öðrum byggðum lands
ins og allar samgöngur við
hann farið fram á sjó. Veg-
urinn yfir Siglufjarðarskarð
var að vísu mikil bót á sín-
um tíma, en hann hefur hins
vegar aðeins verið akfær yf-
ir hásumarið og getur bar
að auki teppzt, £ hvaða mán-
uði sem er eins og við Sigl-
firðingar fengum síðast að
reyna í júlímánuði sl. Er
því augljóst, hvaða þýðingu
hinn nýi vegur hefur fyrir
Siglufjörð bæði hvað snert-
ir samgöngur og verzlun sem
og iðnaðarþjónustu fyrir nær
liggiandi sveitir.
I hina nýju flugbraut er
búið að dæla upp efni í uin
700 m. af flugbrautinni, en
efnið er tekið úr botni fjarð
arins. Gerum við okkur von-
ur um og höfum vilyrði flug
málastjórnarinnar fyrir þvi,
að þessi kafli flugbrautar ra~
ar verði tekinn í notkun,
ekki síðar en í vor.
Aðrar helztu framkvæmd-
ir, sem hér eru á döfinni,
eru steinsteyping Hvanneyr-
arbrautar, sem verður aðal-
innkeyrsluæðin inn í bæinn
með tilkomu Strákavegar, ný
bygging sjúkrahúss, sem
væntanlega verður fullgert
um næstkomandi áramót.
Sjúkrahús þetta verður hið
fullkomnasta og búið öllum
nýtízku tækjum. Það er á
þremur hæðum og yfir 6000
rúmmetrar. Það er okkur
Siglfirðingum sérstök
ánægja, að sjúkrahúsið verð
ur tekið í notkun á þessu
ári en um þessar mundir eða
nánar tiltekið h. 19. þ.m. á
okkar ágæti sjúkrahússlækn-
ir, Ólafur Þ. Þorsteinsson
sextugsafmæli. Tel ég það
sérstakt happ fyrir Siglu-
fjörð, að þessi ágæti læknlr
Eramhald á bls. 17.
Sigiutjoröur. Ljósa linan er hmn nýi Slrakavegur.