Morgunblaðið - 27.08.1966, Page 13
Laugarðagur 5T. Igúst 1966
MORGUNBLAÐIÐ
13
i
Kannsakar atferli flugna 555
Um þessar munair er
staddur hér á landi kunnur
Vestur-lslendingur, dr. Jón-
as Thorsteinsson, prófessor
við Manitoba háskóla, ásamt
konu sinni Miidred Eleanor
og fjórum börnum. Hafa þau
nú dvalið hér um mánaðar-
skeið og héldu heim 21. þ.m.
í>au hjónin eru bæði fædd
í Winnipeg. Foreldrar Jón-
asar, Sigurður Þorsteinsson
sem fæddur var og uppalinn
í Reykjavík, og Halldóra Jón
asdóttir frá Akranesi, flutt-
ust ung vestur um haf. Sömu
sögu er að segja um foreldra
frú Mildred, þau Matthildi
Júlíönu Fjeldsted og Guð-
mund Andrésson, sem lengi
staríaði hjá Winnipeg Hydro
og andaðist á sl. ári. Blaða-
m. Mbl. heimsótti þau hjón-
in á dögunum á heimili Bergs
Jónassonar og Rutar Árna-
dóttur, en þar haf þau dval-
Tali?' frá vinstri: Davíð (12 ára), dr. Jónas, Julian (16 ára), frú Mildred, Sigrid og Pétur.
Rannsakar atferli flugna
Rabbað við vestur-íslenzk hjón
ið undanfarið.
— Hver er sérgrein yðar
dr. Jónas?
— Skordýrafræði. Ég stund
aði fyrst nám við háskólann
í Manitoba og síðar tók ég
doktorsgráðu í skordýrafræði
við Lundúnaháskóla. Nú
veiti ég forstöðu skordýra-
fræðideildinni við Manitoba
háskóla, en hún er ein sú
stærsta í Kanada.
— Er skordýrafræðin vin-
sælt námsefni í Kanada?
— Já, hún er all vinsæl. í
deildinni okkar í Manitoba
háskóla eru nú 12 nemmend-
ur, sem vinna að doktors-
gráðu.
Hafið þér fengizt við ein-
hverjar rannsóknir á þessu
sviði?
— Já, undanfarið hef ég
verið að rannsaka atferli
flugna, sem nærast á blóði,
er hér einkum um að ræða
moskítófulgur, mýflugur og
hrossaflugur (valda skaða á
skepnum). Það merkilegasta
og gagnlegasta sem af þessari
rannsókn mini leiddi er, að
ég komst að raun um, hvaða
liti og lögun flugurnar fá
aðgreint. Þær flugu t.d. alltaf
að svörtum og rauðum kúl-
um. Þessar upplýsingar koma
okkur að góðum notum við
uppfyndningu annarra út-
rýmingavopna en eiturs. Nú
höfum við t.d. búið til svart-
ar gildrur til að veiða flug-
urnar í.
— Er þetta í fyrsta sinn,
sem þið hjónin komið hingað
til lands?
— Já, við vorum í Þýzka-
landi í vetur þess vegna kom
um við hérna við. Ég var í
eins árs leyfi og notaði því
tímann til að skrifa bók um
atferli skordýra, en ég hef
ekki enn lokið við hana.
Nú snúum við okkur að frú
Mildred. Hún er kona list-
feng mjög og t.d. eini hörpu-
leikarinn í Winnipeg.
— Hafið þér stundað list-
nám, frú Mildred?
— Já, ég nam við lista-
háskólann í Winipeg og kenni
nú leirkera smíði við gagn-
fræðaskóla í Manitoba. Ég
átti t.d. verk á heimssýning-
unni í New York árið 1939,
en það er nú svo langt síð-
an. Svo var ég við nám í
hörpuleik í eitt ár í Eng-
landi.
— Hefur ekkert barnanna
erft listgáfu yðar?
— Elzta dóttir okkar Sig-
rid, sem er 18 ára, hefur um
fjögurra ára skeið stundað
söngnám hjá vestur-íslenzkri
söngkonu, Elmu Gíslason, og
þykir mjög efnileg. Hefur
hún oftsinnis komið fram
bæði í sjónvarpi og útvarpi
og sungið þá þjóðlög, annars
syngur hún alltaf sígild verk
í skólanum. Nú fyrir
skemmstu sigraði hún í söng
keppni, sem gagnfræðaskólar
tveggja borga í Manitoba
efndu til. Undirleikarinn hjá
henni var vestur-íslenzkur
piltur, sem stundar píanó-
nám í Winnipeg.
— Hafið þið ferðast eitt-
hvað um landið?
— Við erum búin að sækja
*heim æskuslóðir foreldra
okkar, Ólafsvík, Stykkishólm
og Akranes, og ýmsa aðra
staði bæði á Suður- og Vest-
urlandi.
— Og hvernig líkar ykkur
hérna?
— Hér er alveg eins og við
séum heima hjá okkur. Land
ið er svo fallegt og allir
hafa tekið okkur opnum örm
um. Maturinn er svipaður og
heima. Ég hef nefnilega allt-
af reynt að hafa hann eins
íslenzkan og tök eru á og
t.d. alltaf búið til slátur.
— Harðfiskurinn er bezt-
ur, skýtur nú inn í Pétur
litli, 10 ára sonur hjónanna.
— Já, við ætlum að fara
með harðfiskinn til Winni-
peg eins og hvert annað sæl-
gæti, segir frú Mildred að
lokum.
'
Kirkjudagur
Longholts-
sufnaðcT
Hinn árlegi kirkjudagur okk-
ar verður 28. ágúst eða næst-
komandi sunnudag. Eins og
ávallt áður verða hátíðahöldin,
fjölbreytt með virðulegri dag-
skrá. Biskupinn yfir íslandi hr.
Sigurbjörn Einarsson, mun pré-
dika í hátíðaguðsþjónustu, sem
hefst klukkan 2 eftir hádegi.
Klukkan 4 verður samkoma
helguð hinum yngri safnaðar-
meðlimum. Að kvöldi verður
hátíðasamkoma í Safnaðarheim-
ilinu. Formaður sóknarnefndar,
Helgi Þorláksson, skólastjóri,
flytur ávarp, en aðalræðumað-
ur kvöldsins verður Helgi Bergs
alþingismaður. Listakonurnar
Sigurveig Hjaltested og Margrét
Eggertsdóttir munu skemmta
með söng, svo mun kirkjukór-
inn.og syngja nokkur lög. Ung
stúlka, Sigrún Garðarsdóttir,
sem nýkomin er heim eftir árs-
dvöl í USA á vegum Þjóðkirkj-
unnar mun segja okkur eitt-
hvað frá dvöl sinni vestra. Kaffi
veitingar verða frá klukkan
þrjú og fram á kvöld í kaffi-
stofu safnaðarins.
Heitið er á alla að mæta og
styðja gott málefni. Hið tví-
þætta takmark kirkjudagsins er:
Að efla safnaðarvitund og safn-
aðarstarf og afla fjár til kirkju-
byggingar þeirrar, sem nú er í
smíðum og áætlað er að ljúki
á næstu 6 árum.
Það er á ábyrgð okkar allra
hversu það tekst. Verum sam-
taka. Verum fórnfús.
Árelíus Níelsson.
Sig. Haukur Guðjónsson.
liiaður fyrir
bifreið
Á MIÐNÆTTI i fyrrinótt varð
maður fyrir sendiferðabifreið á
móts við húsið nr. 46 við Álf-
heima. Gekk maðurinn á vestari
gangstétt, slangraði út á göt-
una og lenti á vinstra fram-
bretti bifreiðarinnar.
Við slysið féll maðurinn á
götuna og fékk allmikla skurði
á höfuðið og einnig mun hann
hafa skrámast á fleiri stöðum. í
gærkvöldi var maðurinn enn á
slysavarðstofunni, en hann mun
hafa verið allmikið við skál, er
slysið varð.
Hefur gefið 30 mannu
æviréttindi í SVFÍ
Frú V. Ingibjörg Fiiipusdóttir
frá Hellum í Landsveit, 75 ára,
Ijósmóðir í Landsveit í 48 ár
gaf nýlega fyrsta barnabarna-
barni sínu Berglindi Gunnarsd.
leviréttindi í Slysavarnafélagi
fslands. Berglind litla, fædd 17.
maí í ár, og því aðeins þriggja
mánaða, er þrítugasta manneskj
an, sem frú Ingibjörg hefur gef
ið æviréttindi í Slysavarnafélag
inu.
Frú Ingibjörg var einn af
stofnendum slysavarnadeildarinn
ar Landbjörg í Landsveit fyrir
rúmum 38 árum, og hefur hún
verið formaður deildarinnar æ
síðan. 1 Landbjörg eru nú skráð
ir 87 félagar. Hefur frú Ingi-
björg jafnan verið fremst í
flokki í Landsveit þegar hjálp-
ar hefur þarfnast. Hafa félagar
í deildinni m.a. farið til hjálp-
ar nauðstöddum mönnum í
Landmannalaugum.
Frú Ingibjörg er gift Magnúsi
Jónssyni frá Björgum í Köldu-
kinn og hafa þau hjónin búið á
Hellum síðan 1922. Þeim hefur
orðið fjögurra barna auðið, og
eru öll uppkomin. Heita þau
Guðrún, Hlöðver Filipus, As-
kell og Ingibjörg. Barnabörn á
frú Ingibjörg níu, en Berglind
er fyrsta barnabarnið. Er stúlk-
er fyrsta barnabarnabarnið. Er
stúlkan dóttir Ingibjargar og
Gunnars Þormóðssonar, Hof-
gerði 2 í Kópavogi.
Þess má geta, að í æsku sinni
var frú Ingibjörg nemandi Guð-
mundar Björnssonar, fyrsta for
seta Slysavarnafélags Islands.
Fékk hún þá áhuga á tilgangi
S.V.F.Í., og hefur ætíð haldið
tryggð við félagið síðan.
Myndin er tekin í Slysavarna félagshúsinu í gær. Frá vinstri: Hannes Hafstein, erindreki
S.V.F.Í., Ingibjörg Strandberg, Berglind litla Gunnarsdóttir. frú Ingibjörg Filipusdóttir, og
frú Gróa Pétursdóttir, varaformaður S.V.FX (Liósm. Sv. Þorm.)