Morgunblaðið - 27.08.1966, Qupperneq 24
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
3 ára drengur
nærri drukknaður
Sást í kafi í Sundlaug Vestur-
bæjar - var bjargað með
blástursaðferðinni
MINNSTU munaðl, að tæplega
Þriggja ára drengur, Geir Sig-
urðsson, Ásvallagötu 46, drukkn-
aði í Sundlaug Vesturbæjar í
gær. En svo heppilega vildi til,
að Ásgrímur Björnsson, fyrrum
erindreki SVFÍ var þarna stadd-
Vatnsstríðið á
ur og hóf hann lífgunartilraunir
með blástursaðferðinni. Má full-
víst telja, að það hafi orðið
drengnum til tifs.
Málsatvik eru þau, að Ásgrím-
ur, sem nú starfsmaður Vita-
málastjórnarinnar, var að synda
í lauginni. Heyrði hann þá óp
konu, sem var í hinum heitu ker-
um sundlaugarinnar uppi á bakk
anum.
Myndin er tekin af Hafursá sl. miðvikudag, þar sem hún beljar fram við Skeiðflöt, er þó
nokkuð tekið að fjara í henni og bílar farnir að fara yfir ána. Eru þetta mjólkurbílar frá Kaup-
félagi V-Skaftfellinga og áætl unarbíllinn frá Austurleið. Bíiar frá Kaupfélaginu voru til að
stoðar. Einnig var þarna hálfkassabíll Verzlunarfélagsins og smærri bílar. Viðgerð hefur nú
farið fram, svo fært er um veginn. (Ljósm. Gunnar Sigurðsson)
Miklar vegaskemmdir
Seyðisfirði
AÐILAR
LEITA
SATTA
SÍÐUSTU fregnir frá
Seyðisfirði í gærkvöldi eru
þær, að frestað hefur ver-
ið málflutningi um lög-
bannið, sem óskað hafði
verið eftir gegn íokun bæj-
arstjórnar fyrir vatn til
síldarverksmiðja og nokk-
urra söltunarstöðva þar í
bæ.
Málflutningurinn átti að
fara fram í gærkvöldi, en
honum hefur nú verið
frestað til kl. 1 á mánudag.
Bæjarstjórn ábyrgðist, að
ekki yrði lokað fyrir vatn-
ið á meðan, en aðilar voru
sammála um að reyna sætt
ir. Hófst sáttafundur kl.
10.30 í gærkvöldi.
Sjá greinargerðir bæjar-
stjórnar Seyðisfjarðar og
Erlends Björnssonar, bæj-
arfógeta, á bls. 8.
Drengs
saknað
ÁTTA ára drengs var sakn-
aðað í gærkvöldi. Hann heitir
Einar Eiríkur, til heimilis að
Austurbrún 2.
Einar hafði farið í Sund-
laugarnar með 12 ára kunn-
ingja sínum um kl. 8 síðdegis,
en þegar hann var ekki kom-
inn heim seint í gærkvöldi gerði
móðir hans lögreglunni viðvart.
Var hann ókominn fram, er
blaðið fór í prentun.
Einar var klæddur ljósgrárri,
munstraðri lopapeysu, bláum
gallabuxum og strigaskóm.
Hann er rauðhærður.
í>eir, sem kynnu að hafa orð-
ið Einars varir, eru beðnir að
gera lögreglunni þegar viðvart.
Ásgrímur áttaði sig strax á því,
að eitthvað væri að og tók að
svipast í kringum sig. Sá hann
þá lítinn dreng á kafi í lauginni.
Kom Ásgrímur og konan, sem
var móðir Geirs litla, að honum
svo til samtímis.
Brátt tók litarháttur hans að
breytast og um þær mundir
komu starfsmenn laugarinnar
með öndunarbelg, sem notaður
var við lífgunina.
Eftir nokkrar mínútur fór Geir
að lifna við brast í grát, en svo
virtist draga af honum aftur.
Var lífgunartilraunum haldið
áfram með öndunarbelgnum og
um það bil er sjúkrabíll kom
með súrefnistæki kastaði Geir
litli upp og var nú kominn til
meðvitundar.
Til öryggis vai farið með Geir
í Slysavarðstofuna til athugun-
ar, en sú hætta er ætíð fyrir
hendi að lungnabólga geri vart
við sig, eftir slíkt volk.
Tvær prestsliosn-
ingar um
helgina
PRESTSKOSNING fer fram á
sunnudag í Vallanesprestakalli
og Hofsósprestakalli.
í Vallanesprestakalli er einn
umsækjandi, séra Ágúst Sigurðs-
son. í prestakallinu eru þrjár
kirkjusóknir, Vallanessókn, Eg-
ilsstaðasókn og Þingmúlasókn.
í Hofsósprestakalli eru einnig
einn umsækjandi, séra Sigurpáll
Óskarsson. f prestakallinu eru
þrjár sóknir, Hofsóssókn, Hofs-
sókn og Fellssókn.
Þá hafa verið auglýst laus til
umsóknar þrjú prestaköll,
Skinnastaðir í Norj?ur-Þing.,
Hrísey í Eyjafirði og Bíldudalur.
Umsóknarfrestur rennur út 1.
september nk.
undir Eyjafjöllum og Vestf jörðum
MIKLAR vegaskemmdir urðu af
völdum stórrigninga sl. fimmtu-
dag undir Eyjafjöllum og á Vest-
fjörðum. Þannig er vegurinn und
ir Eyjafjöllum ófær bifreiðum.
ROSKINN maður varð fyrir bíl
á Borgartúni um kl. 11 í gær-
kvöldi. Slasaðist hann mjög
mikið, tvíbrotnaði á fæti og
skarst mikið á höfði. Hann var
fluttur í Slysavarðstofuna, en
síðar í Landsspítalann.
Slysið varð með þeim hætti,
að Opel-bíl var ekið austur Borg
artún og gekk maðurinn yfir göt
una við austustu húsin í Höfða-
borg.
Lenti hann fyrir framenda
bílsins, kastaðist upp á hann,
mölbraut framrúðuna, en hent-
ist svo í götuna.
Þó var hægt að flytja mjólk
austur yfir í dag.
Samkvæmt upplýsingum sem
Steingrímur Arason, verkfræð-
ingur hjá Vegagerð ríkisins lét
blaðinu í té í gær, þá fór stöpu'l
Hin slasaði heitir Ármann
Hermannsson, til heimilis að
Hverfisgötu 89.
undan brúnni yfir Kaldaklifsá
undir Eyjafjöllum í vatnavöxt-
unum sJ. fimmtudag. Viðgerð
var þegar hafin, en vafasamt er
talið, að henni verði lokið í dag.
Fært er þó stórum bifreiðum yf-
ir vað á ánni, en þangað er vand-
ratað fyrir ókunnuga og vaðið er
gersamlega ófært minni bifreið-
um. Yfir þetta vað fóru mjólkur-
flutningabílar austur yfir í dag.
Þá fór Holtsá undir Eyjafjöll-
um yfir veginn í vatnavöxtun-
um, en vfðgerðum á veginum þar
lauk í gær.
í Arnarfirði fór Fossá yfir veg-
inn á einum stað, en viðgerð þar
mun hafa lokið í gær. Þá eru
víða úrrennsli úr ám yfir vegi
víða á Vestfjörðum.
Eldsvoði í Tálknafirði:
Fólkið bjargaðist
naumlega út
Roskinn maður
stórslasast
Bíllinn varð fyrir talsverðum
skemmdum við höggið.
Þjóðleikhúsið
greiddi
söluskattinn
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ greiddi í gær-
morgun söluskattsskuld sina hjá
tollstjóraembættinu. — Að pví
búnu var innsigli embættisins
fjarlægt af dyrum leikhússins.
Starfsmenn leikhússins geta
því óhindrað gengið þar um sali.
Patreksfirði, 26. ágúst.
BÆRINN Sellátrar í Tálkna-
firði brann til kaldra kola í
nótt. Kona húsbóndans, Davíðs
Davíðssonar, var ein heima
ásamt dóttur sinni og fimm
börnum hennar.
Eldsins varð vart um kl. 2.30
sl. nótt og bjargaðist fólkið
naumlega út um glugga. Innan-
stokksmunir voru lágt vátryggð
ir.
Húsið var hitað með rafmagni
og raflýst. Eldsupptök eru ó-
kunn.
Davíð bóndi er oddviti Tálkna
fjarðarhrepps og framkvæmda-
stjóri Ræktunarsambands Vest-
’ ur-Barðastrandarsýslu og var
hann að sinna embættistörfum
er bær hans brann. Kona hans
(heitir Guðrún Einarsdóttir.
Eldurinn breiddist svo fljótt
út, að Guðrún og dóttir hennar
höfðu ekki tækifæri til að kom-
ast í síma til að gera viðvart
um brunann, en hugsuðu um
það eitt að bjarga börunum 5.
Brann húsið til grunna á ca.
hálfri klukkustund.
Eldurinn var svo mikill, að
bátar sem voru að dragnótaveið
um á Patreksfjarðarflóa, sáu
hann bera við himinn.
— Trausti.
Sænska sjónvarpið sést í Reykjavík
TJtsending þess náðist í fyrrakvöld á rás 2 og 3 á tvö tæki am.k.
ÚTSENDING sænska sjón-
varpsins náðist a.m.k. á tvö
sjónvarpstæki í Reykjavík um
kl. 9.30 í fyrrakvöld. Myndin
var skýr á köflum, en dofn-
aði þess á milli. Tal heyrðist
og með útsendingunni.
Það atvikaðist þannig, að
útsending sænska sjónvarps-
ins náðist hér, að Bjarni
Júlíusson, Skálagerði 3, hafði
boðið sænskri konu í heim-
sókn. Á heimili Bjarna er
sjónvarpstæki og hugðist hann
sýna gesti sínum „stillimynd“
þá, er íslenzka sjónvarpið
sendir út. Þeirri útsendingu
mun hafa verið hætt á þess-
um tíma kvölds.
Bjarni hreyfði takka tækis-
ins fram og aftur og allt í
einu kom mynd fram á tæk-
ið og tal fylgdi. Myndin >ar
skýr á köflum, en dofnaði
þess á milli.
Var hér um útsendingu
sænska sjónvarpsins að ræða
á íþróttaþætti, viðtalsþáttur
og ræddust tvær konur úð.
Hinn sænski gestur Bjarna
þekkti báðar konurnar, svo
ekki var neinn vafi á, að send
ingin kom frá Svíþjóð.
Bjarni hringdi í kunningja
sinn, Sigurð Hafliðason, Háa-
leitisbraut 41, og sagði hon-
um frá þessu og bað hann að
athuga, hvort hann næði út
sendingunni einnig.
Skemmst er frá því að
segja, að Sigurður náði einn-
ig útsendingu sænska sjón-
varpsins á sitt tæki.
Þeir Bjarni og Sigurður eiga
báðir Philips-sjónvarpstæki
og náðist sænska stöðin bæði
á rás 2 og rás 3.