Morgunblaðið - 08.09.1966, Side 25
Fimmtudagur 8. sept. 1966
MOKCUNBLADID
25
í
- íþróttir
Framhald af bls. 30
tveggja marka forskoti, og fóru
að taka lífinu léttar, en KR-ing-
ar sóttu í sig veðrið til muna,
og gerðu þeir hvað eftir annað
áhlaup á franska markið. Frakk-
arnir léku í vörninni mikið upp
á rangstöðu, og komust KR-ingcu:
hvað eftir annað einir inn fyrir
varnarveginn, en þá flautaði
Hansen dómari ávallt rangstöðu.
Ketti þetta heldur hvimleiðan
svip á leikinn.
í sóknarleik sínum léku KR-
ingar mikið upp kantana og að
endamörkum, þar sem knöttur-
inn var sendur fyrir franska
markið, og skapaðist af þessu oft
mikil hætta.
Á 25. min. fékk Gunnar Felix
son knöttinn í opnu færi úr einu
eliku upphlaupi og átti fast skot
að marki, sem Castel hálfvarði,
þannig að knötturinn hrökk út
til Eyleifs, sem skaut framhjá.
Fimm mínútum síðar lék Gunn
ar upp vinstri væng, og sendi
knöttinn fyrir. Par tók Hörður
Markan við honum og skaut við
stöðulaust að marki, en knöttur
inn lenti í varnarvegg Nantes,
hrökk þaðan til Eyleifs sem
skaut aftur í varnarvegginn, og
Enska
knattspyrnan
5. umferð ensku deildarkeppn
innar fór fram sl. laugardag og
urðu úrslit leikja þessi:
1 deild.
l Aston Villa — Manchester
City 3-0
Burnley — Leeds X-l
Everton — Stoke 0-í
Fulham — Sheffield U. 0-1
Manchester U. —• Newcastle
3-2
N. Forest — W.B.A.. 2-1
Sheffield W. — Leicester 1-1
Southampton — Chelsea 0-3
Sunderland — Blackpool 4-0
Tottenham — ' Arsenal 3-1
West Ham — Liverpool 1-1
2. deild
Bury — Portsmouth 1-3
Cardiff — Carlisle 4-2
Coventry — Birmingham 1-1
Crystal Palace — Bolton 3-2
Derby — Charlton 0-2
Huddersfield — Blackburn 3-1
Millwall — Northampton 1-0
Norwich — Ipswich 1-2
Preston — Hull 4-2
Rotherham — Plymouth 4-2
( Wolverhampton — Bristol
\ City 1-1
/ 1 Skotlandi fóru fram leikir
1 bikarkeppni deildarliðanna og
urðu úrslit m.a. þessi:
Dundee U. — Aberdeen 3-4
\ St. Johnstone — Dundee 2-2
Kilmarnock — Celtic 0-1
Staðan er þá þessi:
1 deild.
1. Sheffield W. 8 stig
2. Burnley 8 —
3. Chelsea 8 —
, 4. Tottenham 8 —
5. Manchester U. 8 —
Blackpool rekur lestina hefur
aðeins hlotið eitt stig.
2. deild
t 1. Birmingham 4 stig
2. Ipswich 8 —
3. Crystal Palace 8 —
EM ann að
hvert ar
Ákveðið var á þingi frjáls-
íþróttamanna í Budapest að fram
vegis verði Evrópumeistaramót
haldið 2. þvert ár í stað þriðja
hvers árs eins og verið hefur.
Nýskipanin tekur gildi eftir
næsta mót sem ákveðið er í
Aþenu 1069. Jafnframt verður
keppt um Evrópubikar landsliða
í frjálsum íþróttum 4. hvert ár
og verða því stórverkefnin þann
ig að 1969 verður EM, 1970 bik-
arkeppni, EM 1071 og OL 1972.
Japönsk tilaga um heimsmeist
arakeppni í frjálsum var felld.
Þórður skallar. Haustsólin var lágt á lofti og leikmenn sem
áhorfendur áttu í erfiðleikum að fylgjast með.
þaðan hrökk knötturinn til Jóns
Sigurðssonar, sem skaut í þriðja
skipti í varnarvegginn og tókst
vörninni þá loksins að hreinsa
almennilega.
Á 44. mín. fengu KR-ingar
dæmda vítaspyrnu, sem Ellert
skoraði örugglega úr. Voru skipt
ar skoðanir um réttmæti þessar
ar vítaspyrr.u, en hún var þannig
tilkomin, að Gunnar Felixson
reyndi að trufla Castel mark
vörð, þegar einn af varnarmönn-
um Nantes bar þar að og stjak-
aði nokkuð harkalega við Gunn
ari. Hansen virtist ekki í nein-
um vafa um vítaspyrnuna, en
margir töldu óbeina vítaspyrnu
réttmætari, þar sem engin hætta
hefði verið er brotið var framið.
í byrjun síðari hálfleiks sóttu
Frakkarnir fast að marki KR, og
á 17. mín. skoruðu þeir þriðja
mark sitt. Var það Gondet, sem
þar var að ve’-ki í annað skipti.
Fékk knöttinn við vítateig KR-
inga og lék að markinu, en KR-
vörnin gerði þau mistök að hopa
um of, þannig að Gondet hafði
nægan tíma að leggja knöttinn
vel fyrir sig, og skoraði með ó-
verjandi skoti.
KR-ingai áttu eftir þetta tvö
mjög hættuleg tækifæri, í fyrra
skiptið komst Gunnar inn fyrir,
en Castel markvörður bjargaði
með úthlaupi. 1 siðara skipti léku
þeir saman upp liægri væng,
Baldvin og Gunnar, og lauk með
því að Baldvin skaut viðstöðu-
laust, en knötturinn lenti í varn
armanni og þaðan út á völlinn
aftur.
Á 38. míp... þegar minnst varði
kom svo annað mark KR og fal-
legasta mark leiksins. Ellert
skaut af 25 metra færi, og knött-
urinn lenti efst í vinstra mark-
horninu. Castel gerði heiðarlega
tilraun til þess að verja, en átti
enga möguieika í að ná knett-
inum. Fleiri hættuleg tækifæri
sköpuðust ekki það sem eftir var
af leiknum, og lauk honum með
naumum sigri frönsku atvinnu-
mannanna, 3 mörk gegn 2.
Markvörðurinn
skoraði
i útsparki
í leik dönsku liðanna Skovs-
hoved og Husum um helgina bar
það til að markvörður Skovs-
hoved spyrnti mjög langt út frá
marki með þeim afleiðingum að
knötturinn lenti í marki Hus-
um. Var þetta í byrjun leiks og
fékk Skovshoved því „óskabyrj-
un“.
En framherjar liðsins voru
ekki eins marksæknir og mark-
vörðurinn. Þetta varð eina mark
liðsins og Husum vann 3-1.
Þessi mynd var tekin vestur í slipp fyrir nokkrum dög
uni, og sýnir hún skemmdir þær er urðu í V-þýzka tog- i
aranum Dortmund er lent i í árekstri á dögunum við anu
an þýzkan togara, hér við 1 and. Myndin var tekin er járu
smiðir Slippsins höfðu skorið skemmdirnar í burtu og
var þá allt gapandi frá bátapalli og niður fyrir sjólínu
Ljósm. Sveinn Þorm.
■*
200 m.
200 m.
200
'h
meirctnct
JAMES BOND
—X— -X- Eftii IAN FLEMING
Eg yfirgaf demantahúsið með 1000 pund
af peningum glæpaflokksins og vissu um
að vinna í Saratogaveiðreiðunum á
þriðjudag. Þá fannst mér ég vera eltur. — Allt í iagi Breti. Taktu því rólegat
Ég lézt vera að skoða í búðarglugga. nema þú viljir blý í hádegismatinn.
J Ú M B ó —K—< X— *—K— ----— -JC—'
Teiknari; J. M O R A
Skipstjórinn togar í kaðalinn, sem ligg-
ar í gegnum klettarifuna. Hann tautar
við barm sér: — Þetta er nú dálítið snið-
ugt, en erfitt er að opna og loka hurð á
þennan hátt.
Hann flýtir sér til Júmbós og segir, að
allt sé tilbúið. Júmbó fjarlægir öryggis-
'ásinn á lyftistönginni. Þetta er að verða
ótrúlega spennandi. Ætii þeir hafi nú
reiknað dæmið rétt . . .? Hann iyftir
stönginni gætilega.
— Hún færist, hrópar skipstjórinn þeg
ar beinagrindin sniám saman fer á hrcyí-
’iuru.