Morgunblaðið - 09.09.1966, Síða 5
Föstudagur 9. sepl. 1966
MORCU N ÚLADIÐ
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
— HEIMSÓKNIN
Framhald af bls. 32.
forsætisráðherrarnir hafi
rætt lendingamál Loftleiða -
Noregi.
Fyrsti dagur norsku gestanna
Við minnismerki faliinna
Norðmanna.
i>á óku norski forsætisráðherr
ann og frú hans, ásamt fylgdar-
liði suður í Fossvogskirkjugarð
og var gengið að minnismerkinu
um Norðmenn þá sem fórust á
íslandi og við ísland á stríðsár-
unum. Þar lagði Per Borten blóm
sveig að minnismerkinu með
þeim orðum að hann vildi fyrir
hönd norsku ríkisstjórnarinnar
nota tækifæri til að votta þeim
sem féllu á örlagaárunum virð-
ingu.
Hópur Norðmanna, sem búsett
ir eru á íslandi, voru við minnis
merkið. Leif Möller, formaður
Normanslaget var leiðsögumað-
ur ráðherrans, og Hans Darnels-
Sen, sem var hér í norska hern-
um á stríðsárunum, gekk með
honum að leiðum þeirra Norð-
manna, sem grafnir eru í garð-
inum. Las ráðherrann nöfnin og
stóð lengi við minnismerkið, áð
ur en hann fór.
Þá var ekið suður að Bessa-
stöðum, þar sem Per Borten
ræddi um stund við forseta ís-
lands, Ásgeir Ásgeirsson, en heim
sóknin á skrifstofu hans fyrr um
morguninn hafði fallið niður. Síð
an sátu norsku forsætisráðherra-
hjónin hádegisverðarboð forseta,
ásamt íslenzkum ráðherrum,
frúm þeirra og fleiri gestum.
Kemur með allt nema norsku
skógana.
Síðdegis skoðuðu Per Borten
og frú hans svo rannsóknar- og
tilraunastöð Skógræktarfélags
íslands á Mógilsá, en hún er að
risa við rætur Esjunnar fyrir
% hluta af millj. n.kr. gjöfinni,
sem Ólafur konungur færði ís-
lendingum frá Norðmönnum
1961. Tók Haukur Ragnarsson,
tilraunastjóri og frú hans á móti
norsku forsætisráðherrahjónun-
um, ásamt Hákoni Bjarnasynl,
skógræktarstjóra og Hákoni Guð
mundssyni, formanni Skógrækt-
arfélags íslands. Bauð skógrækt-
arstjóri gesti velkomna, vitnaði
í orð fyrrverandi sendiherra
Andersens-Ryst, um að Norð-
menn hefðu haft með sér til ís-
lands allt, bæði það sem þeir
þurftu og það sem var þeim
kært. Aðeins einu gleymdu þeir,
að taka með sér norsku skógana.
Síðan hefðu þeir bætt þessa
gleymsku upp með margvíslegri
aðstoð og gjöfum til að koma upp
skógi á íslandi, síðast stórgjöf-
inni, sem þessi tilraunastöð er
byggð fyrir, sem verður tilbúin
og vígð á næsta ári. Færði hann
ráðherranum og þjóð hans þakk
læti frá íslendingum fyrir þessa
stórmannlegu gjöf.
Per Borten kvað mjög ánægju
legt að koma í þessa tilrauna-
stöð. Minnti á að Norðmenn
þyrftu líka að leggja vinnu í
skógrækt hjá sér. Svo norðar-
lega á hnettinum væri skóg-
rækt erfiðari en á suðlægari
breiddargráðum. En trjávörur
væri samt mjög mikilvæg fram-
leiðsluvara.
Dvaldist við hvern bás Iðnsýn-
ingarinnar.
Þegar ekið var frá Mógilsá,
var komið við á ISnsýningunni
í íþróttahöllinni, þar sem sýn-
ingarnefndin tók á móti norsku
forsætisráðherrahjónunum undir
forustu formannsins, Bjarna
Björnssonar. Aðeins gafst timi
til að ganga um hluta af sýn-
ingunni, en Per Borten og frú
Magnhild dvöldust við hvern
sýningarbás. Skoðuðu þau af
áhuga íslenzku sýningarmunina
og spurðu margs Frú Borten
athugaði einkum íslenzku ull-
ina og ullarteppin. Lýsti hún
aðdáun sinni á þessum efnivið,
sagði að í Noregi væri ekki til
svo gott sterkt tog. Og Per Bort
en skoðaði mjög nákvæmlega
sútuðu skinnin, einkum hrossa-
húðirnar og bað um kort með
áritun fyrirtækisins, sem þær
framleiddi. Þau hjónin eru mjög
handgengin afurðum bænda, þar
sem þau bjuggu búi sínu þar
til nýlega og ráðherrann er bú-
fræðingur og fyrrverandi búnað
arráðunautur.
Veizla ríkisstjórnar í gærkvöidi.
í gærkvöldi hélt rikisstjórnin
norsku forsætisráðherrahjónun-
um kvöldverðarveizlu í Súhta-
sal Hótel Sögu. Sátu hana á ann
að hundrað manns, ráðherrar,
fulltrúar erlendra ríkja, em'oætt
ismenn o.fl.
Dr. Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, hélt þar ræðu,
sem birt er í heild á bls. 17. Og
Per Borten, forsætisráðherra,
svaraði með ræðu, sem einnig
er birt í heild á sömu síðu.
f dag fara hinir norsku gest-
ir upp í Borgarfjörð, skoða hval
stöðina, borða hádegisverð á
Varmalandi, og fara í Reyk-
holt. Farið verður með varð-
skipi upp í Hvalfjörð og einr.ig
frá Akranesi.
Á Iðnsýningunni. Bjarni Björns son sýnir Per Borten íslenzkar
iðnaðarvörur. Til hægri Andreas Andersen.
Á tröppum tlIraunastSSvar Skóg ræktarlnnar. Frú Magnhild Borten (fyrir miðju með hatt)
kveður ásamt fleiri gestum þá Hákon Bjarnason (lengst til vinstri) og Hákon Guðmundsson.
Aðrir á myndinni eru frú Andersen, sendiherrafrúrnar Ásta An dersen og Nancy Miklebost, Agn-
ar Kl. Jónsson og Andreas And ersen.
ALLTMEÐ
EIMSKIP
A NÆSTUNNI =■•■■■■■ 1 -a> ferma skip
vor til Islaiids, sem hér segir:
Brottf arar dagar:
ANTWERPEN:
Fjallfoss 17. sept.
Tungufoss 21. sept.*
Bakkafoss 1. okt.
Skip 8. okt.
HAMBORG:
Goðafoss 16. sept.
Askja 24. sept.**
Reykjafoss 4. okt.
Goðafoss 13. okt.
ROTTERDAM:
Goðafoss 12. sept.
Askja 20. sept.**
Reykjafoss 30. sept.
Goðafoss 10. okt.
LEITH:
Christian Holm 12. sept.
Gullfoss' 23. sept.
Gullfoss 14. okt.
LONDON:
Fjallfoss 15. sept.
Tungufoss 23. sept.*
Bakkafoss 4. okt.
Skip 11. okt.
HULL:
Christian Holm 9.s ept.
Fjallfoss 20. sept.
Tungufoss 27. sept.*
Bakkafoss 7. okt.
Skip 14. okt.
GAUTABORG:
Christian Sartori 15. sept.
Mánafoss 29. sept.**
Skip um 10. okt.
K AUPM ANN AHÖFN:
Christian Sartori 12. sept
Gullfoss 21. sept.
Mánafoss 28. sept.**
Gullfoss 12. okt.
NEW YORK:
Brúarfoss 15. sept.
Selfoss 27. sept.
Fjallfoss 13. okt. *
KRISTIANSAND:
Christian Sartori 17. sept
Mánafoss
Skip
1. okt. *
um 12. okt.
KOTKA:
Lagarfoss 21. sept.
Rannö 27. sept.
VENTSPILS:
Dettifoss 17. sept.
GDYNIA:
Christian Sartori 9. sepl
Dettifoss 20. sept.
Skip um 7. okt.
• Skipið losar á öllum aðal-
höfnum, Reykjavik, ísa-
firði, Akureyri og Reyðar-
firði.
•* Skipið losar á öllum aðal-
höfnum og auk þess í
Vestmannaeyjum, Siglu-
firði, Húsavík, Seyðisfirði
og Norðfirði.
Skip, sem ekki eru merkt
með stjörnu, losa í Reykja-
vík.
VINSAMLEGAST athugið, að
vér áskiljum oss rétt til breyt-
inga á áætlun þessari, ef
nauðsyn krefur.
ALLTMEÐ
EIMSKIP