Morgunblaðið - 05.10.1966, Side 18
18
M O R G ll n 1 Anio
■?vr;*T,;Vurla;Erur 5 október 1966
Mínar innilegustu þakkir íæri eg öiium þeim sem
glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á
sjötugsafmæli mínu.
EHn Jónsdottir, Eskifirði.
Hjartanlega þakka ég öllum er mmntust mír> á 75 ára
afmæli mínu. — Guð blessi ykkur.
Carl Rydén.
Ég þakka af hjarta öllum, bæði sóknarfólki og öðrum,
sem sýndu mér vinsemd og hlýbug á sextugs afmæli
mínu þann 8. sept síðastliðinn.
Garðar Svavarsson.
Beztu þakkir til vina og vandamanna nær og fjær,
sem sýndu mér heiður og góðvild á 75 ára afmæli mínu,
með gjöfum, blómum. heiliaskeytum og heimsóknum.
Oddný Stefánsson
Tómasarhaga 53.
Vegna jarðarfarar
Eggerts Krístjánssonar stórkaupmanns verða skrif-
stofur vorar lokaðar í dag frá kl. li,—i e.h.
Innflytjendasambaiidið
Lokað
vegna jarðarfarar frá kl. 1—4.
Miðstöðin hf.
t,
Hjartkær faðir okkar
EINAR BOGASON
frá Hringsdal.
andaðist þann 4. þessa mánaðar.
Börnin.
Eiginmaður minn
ÓLAFUR l FJELDSTFD
andaðist 3. okt. að heimili sínu Kársnesbraut 96.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna.
Sæmunda J. Fjeldsted.
Útför mannsins mins og föður
FRIÐRIKS TEITSSONAR
vélsmíðameistara,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. október
kL 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað.
Blóm vinsamlega afbeðin.
Karítas Bergsdóttir,
Laufey Friðriksdóttir.
I>ökkum innilega sýndan vinarhug við útför vin-
konu okkar
GUÐLAUGAR SIGURÐARDÓTTUR
Láretta Tryggvadóttir,
Jóhannes Oddsson.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og jarðarför
IIALLGRÍMS STEFÁNS GUÐMUNDSSONAR
frá Grafargildi.
Jóna G. Reinharðardóttir,
börn. tengdabörn og barnaböm.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda san-úð og vináttu
við andlát og útför fóstursystur minnar,
GUÐRÚNAR RYDELSBORG
Klapparstíg 25.
Einnig vil ég b• ' ’ a sérstaklega þessum elskulegu
hjónum Kristni Gv . r>i og konu hans fyrir sérstaka
framkomu og umhu .sua í hennar garð.
Guðrún Camp Crosiaer.
Jóhanna Jónsdóttir
Ásgeirsson - Minning
SUNNUDAGINN 25. september
lézt frú Jóhanna Ásgeirsson í
Boston USA. Frú Jóhanna var
fædd í janúar 1897 í Reykjavík,
dóttir hjónanna Jóns Kristjáns-
.sonar og Oddnýar Erlingsdóttur.
Jón Kristjánsson faðir frú Jó-
hönnu var Árnesingur að ætt,
sonur Kristjáns Jónssonar, bónda
í Hólmabúðum og Garðhúsum í
Vogum, Ólafssonar formanns í
Þorlákshöfn. Jón Ólafsson lang-
afi frú Jóhönnu réði 46 vertíðir,
sem formaður í Þorlákshöfn.
Kona kristjáns i Hólmabúðum,
amma frú Jóhönnu var Jóhanna
Bjarnadóttir frá Hókoti í Njarð-
víkum, Péturssonar á Galtastöð-
um í Flóa, Grímssonar,
I móðurætt var frú Jóhanna af
bændaættum í uppsveitum
Borgarf jarðar. Oddný móðir
hennar var, sem fyrr greinir
Erlingsdóttir, frá Kirkjubóli í
Hvítársíðu, Árnasonar á Bjarna-
stöðum Þórðarsonar. Erlingur
var föðurbróðir hins kunna verk-
fræðings og uppfinningamanns,
Hjartar Þórðarsonar Chicago.
Kona Erlings var Þórunn Magnús
dóttir frá Fljótstungu í Hvítár-
síðu. Eru þetta stórar og kunnar
ættir í Borgarfirði.
Frú Jóhanna ólst upp hjá for-
eldrum sínum í Reykjavík í hópi
8 systkina. Fyrst að Laugalandi
í Laugardal í nokkur ár, en
lengst bjuggu þau Jón og Oddny
inni í bænum. Fjögur þeirra
systkina eru nú látin Kristján,
vélstjóri (1893-1920) ókv. Þór-
unn (1895-1961) var gift Jóni
Alexanderssyni og Sigurlaug
(1907-1957), Sigurlaug bjó einnig
í Boston, gift Þorsteini Þórðar-
syni sjómanni þar. Á lífi eru
Erlingur, Sigriður, Guðrún og
Jon Oddgeir. Öll gift í Reykjavík
Árið 1927 giftist frú Jóhanna
eftirlifandi manni sínum Kor-
máki sjómanni í Boston, Ásgeirs
syni Eyþórssonar kaupmanns í
Kóranesi í Straumfirði, síðar í
Reykjavík. Er Kormákur bróðir
forseta íslands.
Þau Jóhanna voru heitbundin,
er Kormákur sigldi vestur um
haf og hugðist upphaflega stunda
flugnám, en varð frá að hverfa
vegna sjóndepru. Jóhanna flutt-
ist síðan vestur og þar giftu þau
sig. Bjuggu þau fyrst í New York
en fluttu síðan til Boston. Um
þetta leyti var mikið um ferðir
íslendinga til Ameríku. Gott ár-
ferði var er þau settust að vestan
hafs, en heimskreppan mikla
skall yfir 1929. Þeim reiddi þó
vel af. Jóhanna var lærð hatta-
dama frá Hattabúð Reykjavíkur,
en þar hafði hún unnið í 10 ár.
Vann Jóhanna við saumaskap
vestra fyrstu árin, en eftir að
einkabarn þeirra hjóna, Ásgeir,
fæddist 1933 helgaði hún heim-
ilinu allan starfstíma sinn. Ásgeir
sonur þeirra er efnaverkfræðiug
ur í Boston og er kvæntur Ninu
Thornton.
Heimili þeirra Kormáks og Jó-
hönnu var óvenju fagurt. Lengst
af bjuggu þau í Birghton þar
sem þau áttu tvílyft hús í glæsi-
legu hverfi. Reglusemi og ráð-
deild sat í öndvegi. Var.þar oft
gestkvæmt. Sá sem þessar línur
ritar eyddi jólaleyfi hjá þeim
hjónum árið 1960, og mun ávalt
minnast þeirra stunda af þakk-
læti.
Þótt frú Jóhanna og Kormákur
kæmu til íslands á þeim 39 ár-
um, sem liðin eru síðar, voru
þau ávalt í góðu sambandi við
ættingja og vini á siandi. Þótt
þau hefðu ást á nýja föðurlandi
sínu, var allt íslenzkt þeim kært,
Á stríðsárunum, þegar troðnar
námsleiðir íslendinga lokuðust
um hríð, flykktust íslenzkir stúd
entar vestur um haf. Buston
einn stærsti háskólabær Banda-
ríkjanna. Þar stunduðu margir
íslendingar nám og gera enn.
Sérstaklega þó í læknisfræði og
verkfræði, en í Boston er einn
frægasti verkfræðiskóli i heimi
MIT. Voru íslenzkir námsmenn
auðfúsugestir á heimili þeirra og
munu margir mínnast gestrisni
frú Jóhönnu og Kormaks. írú
Jóhanna lét Sér einnig mjóg annt
um sjúka íslendinga, sem Jeit.uðu
sér lækninga á hinum fi ægu
sjúkrahúsum í Boston. Oft var
þetta fólk mállaust í ókunnu
landi. Jóhanna heimsótti það,
túlkaði fyrir það og veitti því
margvíslega aðstoð. Hefur kona
mín, sem dvaldist hjá þeim hjón
um í 3 ár, sagt mér frá þessum
líknarstörfum frú Jóhönnu. Til
dæmis lá fátæk Reykjavíkur
stúlka mánuðum saman í sjúk-a
húsí í Boston, én stúlkan var með
ólæknandi sjúkdóm. Jóhanna
heimsótti stúlku þessa tvisv-ir í
viku mánuð eftir mánuð. Fserð:
henni gjafir, talaði við hana ug
hughreysti.
Alla tíð hélt hún óven)ulegri
tryggð við fjölskyldu sína. Hún
var óþreytandi að skrifa !>réf,
systkinum sínum og börnum
þeirra. Hún var ákaflega Vireiii-
skilin manneskja og stundum
sveið undan ádrepum. Hún hvatti
og eggjaði unglingana til dáða
og á tímum langferða auðnaðist
henni að sjá marga þá ættingja
sína er leið áttu um Bandaríkin.
Bræður hennar, Erlingur og Jón
Oddgeir, dvöldu á heimili hennar
og hafði sá síðarnefndi einmitt
verið þar í heimsókn ekki löngu
fyrir andlát hennar.
Frú Jóhanna gekk ekki heil til
skógar síðustu árin. Mun henni
hafa verið ljóst að hverju dró.
Hjartasjúkdómur varð henni að
bana. Þó lýsa viðbrögð hennar
við veikindunum henni kanske
bezt. Hún sagði ekki einu sinni
nánustu ættingjum frá veikind-
um sínum, heldur stóðu þeir í
þeirri trú að ekkert væri að. Því
kom andlát hennar öllum á
óvart hér.
Nokkru eftir að frú Jóhanna
settist að í Bandaríkjunum flutt-
ist Sigurlaug systir hennar til
hennar. Bjó hún á heimili hennar
þar til hún giftist manni sínum
j Þorsteini Þórðarsyni. Þær syst-
i ur voru ákaflega samrýmdar.
Sigurlaug var barnlaus og Ivaidi
oftast á heimili Jóhönnu, þegar
maður hennar var á sjónum.
Einnig var mikill samgangur
milli heimila íslendinga í Boslon.
Þar býr Árni Ásgeirsson, bróöir
Kormáks og á glæsilega fjöl-
skyldu.
íslendingar í Boston eru marg-
ir. Og þeir eru í miklu áliti, sem
sjómenn. Þeir sófnuðust þangað
vegna togaraflotans, sem geröur
er þar út. Þetta fólk hefur brot-
izt til manns og börn þess verða
langlíf í landinu. Á því er ekki
vafi, að íslendingar í Boston
sakna þessarar dugmiklu, kiark-
góðu konu, þegar hún nú ’ierur
kvatt og heima á Islandi er þung-
ur harmur kveðinn hjá sysóön-
um og ekki sízt hjá unga folk-
mu, sem lærði að elska hana
og virða. Ameríkubréfin koma
ekki lengur með hressandi anda
og umbúðalausum skoðunum. En
stærstur er þó harmur þeirra
feðga Kormáks og Ásgeirs. As-
geir er nýkvæntur og býr I
Boston með brúði sinni, en Kor-
mákur er nú einn eftir á heimili.
Við hér sendum þeim samúðar-
kveðjur og biðjum drottin . að
styðja þá í harmi.
Jónas Guðmundsson,
stýrimaður.
Vegna jaröarfarar
Eggerts Kristjánssonar stórkaupmanns
verða skrifstofur vorar lokaðar í dag
frá kl. 12 — 3,30.
HF. Ölgerðin Egill Skallagrímsson
Laugavegi 172.
Vegna jarðarfarar
Eggerts Kristjánssonar, stórkaupmanns, verða
skrifstofur vorar lokaðar kl. 13—15 i dag.
*
Verzlunarráð Islands
Lokað
í dag kl. 1—4 vegna jarðarfarar.
Vegna jarðarfarar
EGGERTS KRISTJÁNSSONAR stórkaupmanns
vcrður skrifstofa okkar lokuð í dag.
Desa hf.
Garðastræti.