Morgunblaðið - 14.10.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.10.1966, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Föstuclag'ir 14. okt. 1966 BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 SEN DU M MAGIVÚSAR SKIPHOITI 21 SÍMAR 21190 eftirlokun sírni 40381 Hverfisgötu 103. Daggjald 300 og 3 kr. ekinn km. Benzin innifalið. Sími eftir lokun 31160. LITLA hilaleigan Ingólísstræti 11. Sólarhringsgjald kr. 300,00 Kr. 2,50 ekinn kílómeter. Benzin innifalið í leigugjaldi Sími 14970 Bifreiðaleigan Vegfcrð Sími 23900. Sólarhringsgjald kr. 300,00. Kr. 3,00 pr. km. BILALEIGAiM VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. BÍLALEIGA S/A CONSUL CORTINA Sími 10586. BÍLALEIGA H A R Ð A R Sími 1426 — Keflavík. Lækkað verð. 22-1-75 Malflutningsskrifstofa JON N. SIGL'RDSSON Sími 14934 — Laugavegj 10 B O S C H Hóspennukefli 6 volt. 12 volt. Brœðurnir Ormsson i*aginuia 9. — Sinn ijöRZU. Ekki bara fyrir unglinga „Kæri Velvakandi, Mér dettur ekki í hug að þéra þig frekar en aðrir gera — og þó ekki sízt vegna þess, að ég er samstarfsmaður þinn, vinn hjá Morgunblaðinu. Okk- ar starf er samt ólíkt, þú skrif- ar í blaðið, sem ég ber út til kaupendanna í einu hverfinu hér í bænum. Ég hef stundum orðið var við að fólki finnst það undarlegt, að ég, roskinn maðurinn, skuli hafa valið mér það starf að bera út blöð. Sumum finnst þetta sennilega aðeins starf fyr ir unglinga, en ég er ekki sam mála. Ég er ekki jafnsprækur og áður og get ekki stundað erfi'ða vinnu, get jafnvel ekki skilað fullu dagsverki þótt vinnan væri fremur létt: Það tekur mig ekki nema hálfa aðra klukkustund að bera blaðið út á hverjum morgni, það er að segja alla daga nema mánudaga, en þá kemur blaðið ekki út eins og þú veizt bézt sjálfur“. Tilbieytingaríkt Þessi morgunganga um hverf ið hressir mig og kaupið, sem ég fæ fyrir gönguferðina drýg ir ellilaunin mín líka ágætlega. Það, sem þó er mikilsveraðst fyrir mig, að sú andlega upp- lyfting, sem ég fæ af þessu starfi. Þa'ð er enginn ys og þys hér heima og ég er ekki dug- legur að heimsækja kunningj- ana og þeir ekki duglegir að heimsækja mig. En á minni morgungöngu með Morgun- blaðið hef ég eignast mikinn fjölda kunningja, ég hitti margt gott og skemmtilegt fólk, ekki sízt þegar ég rukka — og það geri ég einu sinni í mán- uði. f sannleika sagt hef ég aldrei haft jafn tilbreytingar- ríkt starf hvað þetta snertir. ^ Ungnr í anda Þess vegna held ég að það sé mesti misskilningur, að blað burður sé aðeins starf fyrir unglinga. Þetta getur verið á- gæt upplyfting fyrir roskið fólk, og jáfnvel húsmæður, sem mikfð eru inni við. Starfið er ekkl erfitt, því að blaðinu er ekið* heim til mín á hverjum morgni, ég fæ poka undir það — og litla handkerru, ef ég kæri mig um. Hún er sérstak- lega góð, þegar Lesbókin kem ur um helgar — og eins, þegar blaðið er tvöfalt að stærð, en það er nú aðallega fyrir jól- in. Þú þarft ekki að birta þetta bréf frekar en þú vilt, en viltu ekki láta það koma fram í blað inu, að ekkert sé athugavert við að karlar á mínum aldri beri út blaðíð — og jafnvel konur líka. Ég mundi t. d. vel geta þegið að hafa eina mf' mér á morgungöngunni. Þú sérð, að að ég er ekki dauður úr öllum æðum. Svo þakka ég þér fyrir pistl- ana þína Velvakandi, ég les þá alltaf. Roskinn blaðberi". ■£■ Ekkert einsdæmi Mér er ánægja að birta þetta bréf frá ágætum samstarfs- manni. Það er síður en svo athugavert við að fullorðið fólk beri út blöð — og þurfum vfð ekki áð fara lengra en til Danmerkur til þess að finna hliðstæður: Þar eru það aTidan- tekningarlaust konur, sem bera út dagblöðin. í öðrum löndum er þetta svipað. Yfirleitt er það fólk, sem komið er af léttasta skeiði, sem tekur að sér þetta starf. En mjög álgengt er líka, að húsmæ'ður afli sér smáauka tekna með því að skreppa í morgungöngu með bláðabunka undir hendinni. Framsóknarmenn í glerhúsi Ólafur Vigfússon skrifar: „Eitt gamalt orðtæki segir, að þeir skuli ekki steini kasta sem búa í glerhúsi. í leiðara Tímans 2. október er veizt að hr. Geir Hallgrímssyni borgar- stjóra, og hvað var það nú sem hinn ágæti borgarstjóri hafði unnið sér til óþurftar að dómi Tímamanna? Jú, hann hafði gefið borgarbúum og allri þjóðinni haldgóða og skýra mynd af hag og vexti höfuð- borgarinnar. Það fór sem sagt í taugarnar á utangarðsmönn- unum, að það skyldi vera unn- ið fyrir opnum tjöldum og það á ekki vel við Framsóknar- menn. Þeirra iðja er að ~- frægja andstæðinganna, bæði þótt þeir séu einhvers ráðandi í þjóðmálum, og ekki síður þeg ar þeir eru utangarðs. Við skul um nú athuga feril flokksins í ljósi staðreyndanna. Fram- sóknarflokkurinn er upphaf- lega stofnaður með hag ■ sveit- anna fyrir augum. Það er í sjálfu sér ekki ámælisvert. Etv hvernig hefur svo þessi flokk- ur brugðizt við að bæta hag bænda og búaliðs? Því er fljót svarað. Allsstaðar hafa þeir skilið eftir sig sviðna jörð eða muna ekki allir þegar mjólkur bú Flóamanna greiddi frá 13- 17 aura fyrir mjólkurliterinn, þá var líterinn seldur á 42 aura hér í Reykjavík. Svona var nú umhyggja þeirra til bænda. Góðir lesendur, komið með mér í stutta ferð á þann stað sem var höfuðvígi Hermanns Jónas sonar, Strandirnar, þar sem flest var vanrækt en SjálfstæS ismenn hafa hafið myndarlegar framkvæmdir á ýmsum sviðum. Þannig er saga þessa flokks sem kann ráð vi'ð öllum vanda málum bænda. Nei, lesendur góðir. Sýndarmennskan er svo ofboðsleg að manni verður flökurt af að lesa skrif þeirra. Já, og svo eru þeir stórhneyksl aðir yfir að þeim skuli ekki hafa verið falin forsjá Reykja- víkurborgar til að koma á hana einhverjum Strandasvip, og svo verða þessir menn gripnir eldmóði verkalýðshreyfingar- innnar, en hverjir halda, les- endur góðir, að þar séu heil- indi á bak við. Voru það ekki Framsóknarmenn sem tölúðu um hræðslupeninga til sjó- manna. Jú, það voru þeir. Að lokum þessi ósk til þjóðarinn- ar. Ég vona að þeim verði hald ið utangarðs í þjóðmálum ís- lendinga, nú og um langa fram- tið. Ólafur Vígfússon. Hávallagötu 17“. Happdrætti Sjálfstæðisfiokksins óskar eftir nokkrum sendlum í einn mán- uð. — Upplýsingar á skrifstoíunni, sími 17100. Hippdrætti Sjálfstæðisflokksins Prentari Óskum eftir að ráða prentara. Plastpokar hf. Veghúsastíg 9B. Blikksmiðja í Reykjavík óskar að ráða veikstjóra Umsóknir ásarnt upplýsingum um fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir 20. þ.m., merkt: „Verkstjóri — 4892 ‘. Skrifsto.ustúlka óskast strax Vélritunarkunnátta nauðsynleg, — Umsðknir send ist afgr. Mbl. fyrir 18. þ.m., merkt: „Skrifstofu- stúlka — 4895“. Skrifstofuhúsnæði í Miðbænum 3 samliggjandi herbergi á 1. hæð og geymsla í kjallara. Tilboð sendist aígr. Mbl., merkt: „Skrif- stofuhúsnæði — 4897“. Höfum opnað f asteignasölu undir nafninu FASTEIGNASALAN GARÐASTRÆTI 17 Símar 24647 — 15221 — kvöldsími 30647. Árni Guðjónsson, hrl. Þorsteinn Geirsson, Jögfr. Helgi Ólafsson, sölustjori.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.